Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.1996, Blaðsíða 41

Bókasafnið - 01.06.1996, Blaðsíða 41
ur og vel siðaður“ (Skarðsárannáll, s. 104). Er þetta rnikið lof. Þar segir einnig að hann hafi komið hingað í land fyrst- ur allra manna til að reka prentsmiðju og hóf hann hana á Breiðabólsstað í Vesturhópi í Húnaþingi. Hann var réttur maður á réttum stað á réttum tíma. Það var ekki skrýtið þótt bornar væru í hann víurnar. Jón sænski þótd góður verkmaður við prentverkið heima á Hólum. Því miður er fátt eitt til af prentverki þessa tíma, en aðallega var prentað guðsorð fram eftir öldum. Upplög voru afar lítil, stundum aðeins nokkrir tugir ein- taka. Þegar lúterskur siður hafði hasla ð sér völl hér var gerð gangskör að því að útrýma kaþólsum ritum. Það var engu líkara en menn ætluðu að strika vandlega yfir kaþólskan kafla Islandssögunnar og einkum allt sem minnti á Jón biskup Arason. Engin heil bók hefur varðveist frá bernsku prentlistarinnar á íslandi. Um eina bók, sem Jón sænski prentaði er vitað með nokkurri vissu. Hún er nefnd Breviarium Holense og stundum kölluð Breviarium Nidrosiense. Arni Magnússon eignaðist eintak af henni en það brann 1728 í Kaupmanna- höfn. Grunnavíkur-Jón, sem gjörþekkti safn Árna, mundi eftir henni. Hann skrifaði titil hennar upp eftir minni og lýsti henni allvel. Tvö blöð, sem talin eru vera úr Breviarium Holense, fundust í Konungsbókhlöðu í Stoklthólmi árið 1913. Dr. Isak Collijn bókavörður þar rannsakaði þau og segir hann engum vafa undirorpið að hér séu komin blöð úr þessu riti sem Jón sænski hafi prentað á Hólum 1534 (Collijn, s. 14). Ritið er í 4to stærð, prentað á þunnan pappír, tveir dálkar á síðu og 29 línur að lengd. Prentunin er léleg með „Schwa- backer“ letri sem var mikið notað í nágrannalöndunum um þessar mundir. Ekki er að sjá að rauður litur hafi verið not- aður sem annars var algengt með svertunni. Einnig er talið fullvíst að Jón sænski hafi prentað ís- lenska þýðingu guðspjallanna, handbók presta, sunnudaga guðspjöll svo og aðra pistla og smárit. Síðar fékk Jón biskup prentara sínum og nafna jörðina Breiðabólsstað til ábúðar. Þar þjónaði hann sem prestur og rak jafnframt prentverkið en hann átti sjálfur öll áhöldin til þess eins og áður er getið. Prentsmiðjan mun hafa verið lítil og áhöld fremur klén (Halldór, s. i). Sé það rétt að hann hafi flúið lúterskuna í Svíþjóð, er nokkuð kaldhæðið að hugsa til örlaga hans hér. Jón Arason biskup var aliur þann 7. nóvember 1550, eins og kunnugt er, og var síðasta vígi kaþólskrar trúar þar með fallið. Séra Jón sænski fékk það hlutverk að þjóna sem prestur á Breiðabólsstað og þá eftir lúterskri kennisetningu. Auk þess vann hann prentgripi fyrir Ólaf Hjaltason, lúterskan bisk- up á Hólum. Örlögin höguðu lífi hans því á annan veg en hann að líkindum hefði kosið. Prentarinn féll vel að aðstæðum í nýja landinu og lands- mönnum féll vel við hann. Jón sænski þótti hinn mætasti maður. Hann fann sér íslensku stúlku, kvæntist henni og gat við henni börn. Frá honum mun mikill ættbogi vera kominn. I heimildum er til þess tekið að Jón sonur hans hafi ver- ið mannvænlegur og honum kenndi Jón sænski að prenta. Fram að því var hann einn um verkið. Það kom síðan í hlut Jóns Jónssonar að flytja prentlistina áfram og vinna fyrir Hólastól. Hann þótti afbragðs prentari. Jón erfði prent- smiðjuna eftir föður sinn og notaði prentáhöld hans jafn- an. Síðar á ævinni fór hann til útlanda til að fylgjast með nýjungum og keypti þá inn áhöld til prentsmiðjunnar. Jón sænski Matthíasson dó 1567 þá orðinn aldraður maður. Hann hafði flutt með sér þekkingu hingað sem átti eftir að valda straumhvörfum á íslandi. Höfimdur er bókasafhsfi-œðingur með cand. mag. gráðu í ís- lenskum bókmenntum og forstöðumaður Þjóðdeildar Lands- bókasafhs Islands Háskólabókasafhs. HEIMILDIR: Collijn, Isak. 1914. Tvá blad af det forlorade breviarium Nidrosiense, Hólar 1534. Nordisk Tidskrififór Bok- och Biblioteksvásen 1(1): 11-16. Gödel, V. 1892. Katalog over Upsala universitets biblioteks fornisliindska och fornnorska handskrifter. Uppsala : Almquist & Wiksells förlag. Halldór Hermannsson. 1916. Icelandic books of the sixteenth century (1534-1600). Ithaca, N.Y. : Cornell University Library. (Islandica IX). Magnus, Olaus. 1963. Historia om de nordiska folken. Uppsala : Gebers. Olmert, Michael. 1992. The Smithsonian Book ofBooks. Wasington, D.C. : Smithsonian Books. Páll Eggert Ólason. 1917. Ritfregnir. Islandica IX. Icelandic books of the sixteenth century (1534-1600). By Halldór Hermannsson. Skírnir 1917: 199-213. Pétur Sigurðsson. 1940. Fornprent. Prentlistin fimm hundruðára. Reykja- vík: Isafold. Skarðsárannáll 1400-1640 1922-1927. Annálar 1400-1800. 1. bindi. Reykjavík : Hið íslenzka bókmenntafélag. Þorkell Jóhannesson. 1940. Prentlistin kemur til íslands. Prentlistin fimm hundruð ára. Reykjavík : ísafold. SUMMARY Jón Matthíasson the Swede: the First Typographer in Iceland Traces the life and work of the first typographer in Iceland, Jón the Swede Matthíasson. He was a Swedish priest and itinerant typographer, which worked on the European continent, before he came along with his tools and skills to Iceland in ca. 1530 at the instigation of the last Cat- holic bishop in Iceland. Tracks in brief the progress of the Reformation on the European Continent and in the Nordic Countries as well. Discus- ses the invention of printing with movable letters in Germany in ca. 1440 and its predecessors: block-books, wood-block and woodcut printing and methods of combining printed text with a wood-block or engraving for illustration. Deals with characteristic features of the incunabula like colophons and custodes. Ponders on Jón's motives to go to Iceland and his contribution there to printing, but he set up the first printing press in Iceland. None of the printed books has been preserved undamaged, e.g. because of the complete introduction of the Reformation in the country in 1550 and the following demolition of Catholic books. After the Reformation Jón was appointed to a parish in Northern Iceland where he also pursued printing books, raised a family with many descendants and passed away in 1567. \ Bókasafnið 20. árg. 1996 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.