Bókasafnið - 01.04.1997, Qupperneq 31
(sum með lágborð) eru 106; lessæti við borð eru 469, sem
skiptast aftur þannig að 392 sæti eru á opna lesrýminu á 3. og 4.
hæð safnsins (þar af 32 við borð með tölvu) en 54 sæti eru í
lestrarsölum þjóðdeildar og handritadeildar á 1. hæð og 23 sæti
eru á handbókasvæðinu á 2. hæð. Utlánadeild og upplýsinga-
deild hafa í samvinnu gert kannanir á nýtingu lesrýmisins og er
nánar skýrt frá því í grein Hall-
dóru Þorsteinsdóttur um upplýs-
ingadeild safnsins í þessu hefti.
I safninu eru 28 lítil lesherbergi
sem eru ætluð fræðimönnum,
nemendam í meistaraprófs- eða
doktorsnámi og öðrum sem eru að
vinna að ákveðnu rannsóknar-
verkefni og þurfa að nota rit
safnsins í því skyni. í 20 herbergj-
um eru PC-tölvur með aðgangi að
ritvinnslu, töflureikni, Gegni,
Greini og nokkrum gagnasöfnum.
Eitt herbergi er með sérstökum
búnaði fyrir hreyfihamlaða og
annað með búnaði fyrir blinda og
sjónskerta. Nánast full nýting
hefur verið á öllum almennu her-
bergjunum frá því að safnið opn-
aði. Um 70% þeirra sem hafa
fengið afnot af þeim eru nemar, bæði við Háskóla íslands og
aðra skóla. Um 10% eru kennarar og um 20% eru fræðimenn,
rithöfundar og aðrir safngestir utan háskólasamfélagsins sem
hafa verið að vinna að tilteknum verkefnum.
en bækurnar voru fluttar úr Háskólabókasafni var búið að setja
öryggismerkingu í þær allflestar. Þegar safnið opnaði 1. desem-
ber 1994 var sett upp öryggishlið frá fyrirtækinu 3M sem gefur
frá sér hljóðmerki ef safngestur gengur út úr safninu með örygg-
ismerkt rit sem hefur ekki verið skráð f lán. Ýmis vandamá! hafa
komið upp í tengslum við hliðið, m.a. hefur reynst erfitt að stilla
það nákvæmlega. Nokkuð hefur
borið á því að bækur finnist á
afviknum stöðum illa leiknar eftir
tilraunir til að fjarlægja öryggis-
merkingu. Virðast margir halda að
þeir viti hvar öryggismerkingin sé
og bregður þeim eflaust í brún
þegar hliðið gefur frá sér hljóð-
merki þegar þeir telja sig hafa
fjarlægt hana. Margar þessara
bóka finnast á handbókasvæðinu
þar sem viðkomandi safngestur
hefur losað sig við þær í flýti. Því
miður gefast ekki allir upp og
bækur hverfa þrátt fyrir öryggis-
hliðið.
Annað vandamál sem deildin
býr við og önnur útlánasöfn kann-
ast eflaust við eru mikil vanskil.
Allt of margir lánþegar skila ekki
bókum sem þeir hafa fengið að láni og er innköllun þessara rita
bæði erfið og afskaplega leiðinleg.
Safnið má illa við þessu bókatapi og er orðið tímabært að
athuga nýjar leiðir til úrbóta.
Litógrafía eftirJ. Platier, 1840.
Vandamál
Eitt aðalvandamál deildarinnar er fólgið í því að halda utan
um bókakostinn og „varðveita" hann handa sem flestum. Áður
• Arnagarðui: Bókastofunni á 3. hæð var breytt í handbóka-
safn kennara í júlímánuði 1995. Útlánum var þá hætt.
• Bókasafn íjarðfrœði og landafrœði í Jarðfræðahúsi. Opið er
á vor- og haustmisseri kl. 09:00-17:00. Siglinde Sigurbjarn-
arson annast rekstur safndeildarinnar. Viðvistartími hennar
erkl. 15:00-17:00.
• Danska lektoratið til húsa á skrifstofu lektors í dönsku í
Norræna húsinu. Útlán eru eingöngu með leyfi lektors. Um-
sjón: Sólveig Jónsdóttir. Eftirlit óreglulegt.
• Enskukennsla, Aragötu 14. Bókastofunni var breytt í hand-
bókasafn kennara og nemenda í júnímánuði 1995. Útlánum
var þá hætt.
• Finnska lektoratið til húsa á skrifstofu lektors í finnsku í
Norræna húsinu. Útlán eru eingöngu með leyfí lektors.
Urnsjón: Sólveig Jónsdóttir. Eftirlit óreglulegt.
• Guðfrœðideildarstofa í aðalbyggingu háskólans. Stofunni
var breytt í handbókasafn kennara í júnímánuði 1995. Þar
eru engin útlán.
• Lagabókasafn í Lögbergi. Reynt er að halda safninu opnu
kl. 10-18 með aðstoð nemenda. Safnið er þó lokað yftr
sumarmánuðina. Auður Gestsdóttir annast rekstur safn-
deildarinnar og viðvistartími hennar er kl. 10:00-12:30.
• Lesstofa ílíffrœði, Grensásvegi 12. Stofan er opin kl. 08:00-
17:00. Umsjón: Karl Ágúst Ólafsson. Eftirlit þrisvar í viku.
• Lyfjafreeði lyfsala í Haga. Skipulag þessarar safndeildar er í
mótun. Ritakostur var fluttur úr Iþróttahúsi háskólans (efri
hæð) í Haga árið 1995.
• Námsbraut íhjúkrunatfrceði. Þessi safndeild fluttist í Bóka-
safn Landspítalans árið 1993 og er starfrækt þar. Ritin eru
Lokaorð
Æskilegt er að útlánatölur haldi áfram að hækka. Það er
eðlileg þróun þegar horft er til þess að stúdentum við Háskóla
þó áfram eign safnsins og laun bókavarða, Jóhönnu Skafta-
dóttur, Ásbjargar Ellingsen og Ásu H. Kolka, eru greidd af
salninu.
• Námsbraut ísjúkraþjálfun, Vitastíg 8. Opið á skrifstofutíma.
Umsjón: Karl Ágúst Ólafsson. Eftirlit einu sinni í viku.
• Norska lektoratið lil húsa á skrifstofu lektors í norsku í
Norræna húsinu. Útlán eru eingöngu með leyfi lektors.
Umsjón: Sólveig Jónsdóttir. Eftirlit óreglulegt.
• Rannsóknastofa í heilbrigðisfrœðum. Stofan er til húsa að
Sóltúni 1. Um er að ræða handbókasafn, útlán eru engin.
Umsjón: Karl Ágúst Ólafsson. Eftirlit einu sinni í viku.
• Rannsóknastofa ílyfjafrœði, Ármúla 30. Engin útlán. Starfs-
maður Rannsóknastofunnar, Jóhanna Edvald, hefur umsjón
með safndeildinni.
• Raunvísindastofnun Háskólans. Bókasafn. Safnið er stofn-
unarsafn og þar eru engin útlán. Eftirlit tvisvar í viku.
Untsjón: Sólveig Jónsdóttir.
• Sœnska lektoratið til húsa á skrifstofu lektors í sænsku í
Norræna húsinu. Útlán eru eingöngu með leyfi lektors.
Umsjón: Sólveig Jónsdóttir. Eftirlit óreglulegt.
• VR II. Bókasafn verkfræðideildar og raunvfsindadeildar við
Hjarðarhaga. Opið kl. 07:00-22:00, 07:00-18:00 um helgar.
Siglinde Sigurbjarnarson annast rekstur safndeildarinnar.
Viðvistartími hennar er kl. 11:30-14:30.
• VR III. Bókasafn verkfræðideildar og raunvísindadeildar
við Hjarðarhaga. Safnið er handbókasafn kennara og eru því
engin útlán. Umsjón: Sólveig Jónsdóttir. Eftirlit 1-2 sinnurn
í viku.
BÓKASAFNIÐ 21. ÁRG. 1997 31