Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Blaðsíða 19
crr-.-N/ r.’t-r.,. DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982. 19 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari sést hér bjóða Bjarna Guðmundsson og Sigurð Sveinsson velkomna í leikina gegn V-Þjóðverjum og Dönum á dögunum. DV-mynd: Friðþjófur. Nettelstedt gefur Sigurði og Bjama frí — til að leika með landsliðinu ÍA-Þúskalandi — Sigurður Sveinsson og Bjarni Guðmundsson hafa fengið frí frá Nettelstedt til að leika með okkur í A- Þýskalandi og leika þeir með okkur f jóra af fimm leikjum okkar þar, sagði Hilmar Björnsson, landsliðsþjálfari i handknattleik. Næsta verkefni landsliðsins í hand- knattleik verður að taka þátt í geysilega sterku móti i Rostock í A- Þýskalandi 14.-20. desember. — Þar verða komnar saman flestar af sterk- ustu handknattleiksþjóðum heims. Þetta er gífurlega sterkt mót — eitt það sterkasta í Evrópu í vetur, sagði Hilmar. I mótinu taka þátt heimsmeist- aramir frá Rússlandi, A-Þjóðverjar, Rúmenar, Svíar, Tékkar og Islendingar -SOS. Neitaði að leika í „landsliðsskónunT — og lætin út af því kostuðu danska handknattleikssambandið milljón króna samning Danska handknattleikssambandið hefur orðið að rifta hátt í tveggja milljóna króna samningi sem það hafði gert við íþróttafatafyrirtækið Hummel. Það var danska íþrótta- sambandið sem ákvað þetta á dögun- um en samningur þessi — eða réttara sagt ein grein i honurn — hafði verið kærður af einum leikmanni. Það var markvörður AGF, Ole Mörskov , sem kærði þennan samning handknattleikssambandsins og Hummel. Sérstaklega þó klausu í honum þar sem segir að leikmenn danska landsliðsins séu skyldugir að leika í búningi og skóm frá Hummel. Ole Mörskov var í landsliðshópnum en haröneitaði að spila í skóm frá Hummel. Sagðist hann nota sína eigin skó og danska handknattleiks- sambandiö gæti ekki skipaö sér fyrir í þeim efnum. Ut af þessu varð mikið þref sem endaði með því að Mörskov var settur út úr landsliðshópnum, sem Leif Mikkelsen valdi í sumar. Danska sam- bandið sagði að Mörskov heföi ekki verið settur út úr hópnum vegna þess að hann vildi ekki leika í Hummel- skóm. Allt önnur ástæða hefði legið þar aðbaki. Markmaðurinn lagði ekki mikinn trúnað á þetta og kærði handknatt- leikssambandið og samninginn. Danska íþróttasambandið tók málið fyrir á dögunum og dæmdi samninginn ógildan á þeim forsendum að sam- kvæmt áhugamannareglunum væri ekki hægt að skylda áhugamann í í- þróttum til að ganga í eða leika í skóm eða fatnaði frá ákveönu fyrirtæki. Dómur þessi er mikið áfall fyrir DHF. Samningur þessi gilti til þriggja ára og samkvæmt honum átti Hummel aö sjá um allan útbúnaö á öll dönsku landsliöin, auk þess sem DHF átti að fá 500 þúsund danskar krónur á ári frá fyrirtækinu. Handknattleikssamband Islands gerði á dögunum samning viö Hummel. Ekkert ákvæði um peninga- greiðslur mun vera í þeim samningi, að sögn Júlíusar Hafstein formanns HSI. Hann sagðist heldur ekki vita hvað myndi gerast ef einhver úr lands- liðshópnum neitaði að leika á Hummelskóm — vonaði bara að til þess kæmiekki. -klp- — Fimm lið eru efst með 12 stig í Svíþjóð ogíþeim hóp erGUIF Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — frétta- manni DV í Svíþjóð. — Sænska meistaraliðið Heim er nú að nýju komið upp á toppinn í „Allsvenskan”, eftir að liðið vann Lugi 28:20. Frölunda, sem hafði forustuna, hefur tapað tveimur leikjum í röð — 16—20 fyrir Drott og 23—24 fyrir Karlskrona. Það er óhætt að segja að allt sé kamið í hnút því að fimm lið eru nú með tólf stig eftir níu umferðir. GUIF heldur á- fram að koma á óvart — lagði Warta að velli 23—22 og skoraði „Bobban” Anderson sigurmarkið á síðustu sek. leiksins, eftir að Andrés Kristjánsson hafði jafnað metin 22—22 með stór- glæsilegu marki af línu — sendi knöttinn aftur fyrir sig og í netinu hafnaði hann. Andrés hefur nú skorað 33 mörk í „Allsvenskan”. Staðan er nú þannig, eftir níu umferðir: Heim 9 6 0 3 226-206 12 Frölunda 9 6 0 3 214—196 12 Ystadt 9 6 0 3 197—179 12 Karlskrona 9 6 0 3 211-196 12 GUIF 9 6 0 3 216—218 12 Drott 9 5 1 3 205-189 11 H 43 9 4 2 3 196-198 10 Lugi 9 4 0 5 196-205 8 Warta 9 3 0 6 178—185 6 Kroppskultur 9 3 0 6 194—222 6 Visby 9 2 1 6 220-227 5 Vikingarna 9 0 2 7 181—213 2 -GAJ/-SOS. Unnendum fagurra lista feerir Bmikinn feng Ljóð og leikrit Tonlist Indríöi G. Þorsfeinvton Dagbók um HJÖRTUR PÁLSSON Dagbók um veginn eftir Indriða G. Þorsteinsson. Ljóðabók Myndir eru í bókinni eftir Jónas Guðmundsson. Heitu árin eftir Erlend Jónsson. Ljóðaflokkur um lífið í norð- lensku sjávarþorpi í síðasta stríði - ástandsárunum. Má e.t.v. líta á bókina sem eins konar fram- hald á ljóðabók Erlends Fyrir stríð sem kom út 1978. Heitu árin er pappírskilja. Sofendadans eftir Hjört Páls- son. Þetta er þriðja ljóðabók skáldsins, en fyrri bókum Hjartar hefur verið mjög vel tekið. íslenskt söngvasafn, Sigfús Einarsson og Halldór Jónsson söfnuðu og Jbjuggu til prentunar. Fjórða prentun hins afar vinsæla söngvasafns sem víða gekk undir nafninu „Fjárlögin". Hin snilldar- lega raddsetning Sigfúsar Einarssonar er án efa undirstaða þeirra vinsælda sem Söngvasafnið hefur notið. Formálsorð eftir Jón Ásgeirsson. Jólalögin- nótnabók. Þrjátíu lög ogljóð sem öll eru tengd jólunum valin og útsett af Jóni Þórarinssvni. Gosi eftir Brynju Benediktsdótt- ur. Leikritið er byggt á hinni kunnu ítölsku sögu um Gosa eftir Collodi. Ljóð eru eftir Þórarin Eldjárn. Auk leikritsins eru skýr- ingar leikstjórans, Brynju Benediktsdóttur, á sviðsetningu verksins. Margar myndir eru í bókinni frá sýningum Gosa í Þjóðleikhúsinu. á>

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.