Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Blaðsíða 34
34 DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Karólína prinsessa: Roberto Rosselini á hug hennar allan — talað um giftingu unni í Mónakó segja aö án Roberto væri Karólína enn andlega niöurbrotin eftir áfalliö. Þær sögur ganga fjöllunum hærra aö Karólína og Roberto Rosselini giftist innan skamms, þ.e. þegar Páfagarður hefur veitt Karólínu og Philippe Junot formlegan skilnaö og aö hæfilegum tíma liönum frá andláti Graee. Samband Karólínu og tennisleikar- ans Guillermo Vilas er löngu gleymt og grafið. Aö sögn vina hennar segir hún nú að þaö ástarsamband hafi einungis veriö flótti frá raunveruleikanum. Sög- unni fylgir aö Karóiína hafi, eftir frá- fall móöur sinnar, orðið aö takast á viö raunveruleikann og þá gert sér grein fyf ir aö þaö er Roberto sem hún þarfn- ast. Hann hafi einmitt þá eðliskosti sem hún þurfi á aö halda: Trygglyndi og festu. En ef Karólína vill ganga í hjóna- band meö Roberto er það vitaskuld frumskilyröi aö Páfi ómerki hjóna- band hennar og Philippe Junot. Furstafjölskyldan hefur um langt skeiö. reynt aö fá páfann til aö gera þaö en hann hefur veriö tregur til enda er 70% umsókna um skilnað neitaö af hálfu Páfagarðs. En nú hefur furstafjöl- skyldan fengið óopinbert vilyröi fyrir því aö Karólína veröi innan skamms laus allra mála og Páfagarður leggi blessun sína yfir skilnaöinn. Karólína ^hefur verið mjög sorg- mædd síðan móöir hennar lést og hefur einungis tvisvar farið út fyrir landa- mæri Mónakó. Annars heldur hún sig meöal fjölskyldunnar og hittir enga nema hana og Roberto. Hún hefur sökkt sér í vinnu og tekið á sig flest skyldustörf móðurinnar. Hún hefur misst fimm kíló af þessum sökum og veriö á allan hátt heldur illa útlítandi. Roberto Rosselini og Karólina á innilegri stundu. Eftir sviplegt fráfall móöur sinnar hefur Karólína Mónakóprinsessa leit- aö huggunar og ástar enn á ný hjá æskuástinni, Roberto Rosselini. Marg- ir sem kunnugir eru furstafjölskyld- Svona viii Jean-Paul Gautier að vortiskan verði. Djarfar hugmyndir — um vortískuna Enda þótt Vetur konungur sé ný- genginn í garö eru stóru tískufyrir- tækin farin að huga að vortískunni. Hvaö veröur ofan á veit auðvitaö enginn en athyglisveröustu hug- myndirnar koma jafnan fram í París enda er sú borg ætíð nefnd höfuðborg tískunnar. Einn af athygiisveröustu tísku- kóngunum heitir Jean-Paul Gautier og er hann oft auknefndur hinn nýji Yves Saint-Laurent. Það er ljóst að Gaútier viil ekki dylja neitt. Ymis- legt frumlegt er að finna í hugmynd- um hans. Til að mynda opnar buxna- klaufir með „öryggisneti” fyrir inn- an, flegnir kjólar og alltof litlir undirkjólar þar undir og hann mælir meö hef tiplástrum á öxl eða enni! Ekki aö undra aö í dönskum blöö- um megi finna flennifyrirsagnir eins og „FrakkLand: aldrei eins sexí og nú.” Og „Djarfasta tískan td þessa”. Hvort þessi djarfi klæönaöur nær almannahylli skal ósagt látið. II m FÆD DIR ÞU R FA E N< GA u Tfl lNAE IKOMA Nl Dl 1 IJ Á LP —þegarum ræflarokk erað ræðar segirí grein um íslenskan nýbylgjuheim í bandarísku blaði „Ef maöur ætti aö nefna 10 lönd sem ala af sér rokkhljómsveitir myndi maður líklega ekki nefna Is- land þar meö, ” segir í grein sem birt- ist í blaöinu Trouser Press í New York í þessum mánuöi. Greinar- höfundur, Ira Robbins, heldur áfram.” Síðast hugsuöu Bandaríkja- menn eitthvaö um þessa pínulitlu þjóö uppi við heimskautsbaug er Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu um heimsmeistaratitilinn í skák fyrir tíu árum. I hópi rokk- áhugamanna vakti Island einhverja athygli er Killing Joke flúöi þangaö en plötumar sem ég nefni að ofan . sanna aö innfæddir þurfa enga utanaðkomandi hjálp sérstaklega þegar um sannfærandi ræflarokk er að ræöa.” Þær plötur sem rætt er um í grein- inni eru „Rokk í Reykjavík”, Northem lights playhouse, Ut i kuldann með Grafík, Gæti eins veriö meö Þursaflokkinum, Geislavirki meö Utangarðsmönnum, Googoo- plex meö Purrki Pillnikk og As a bove og Mjötviður Mær meö hljómsveit- inni Þeý. Um Rokk í Reykjavík segir greina- höfundurm.a. aöþaöségott aðbyrja á henni til aö kanna íslenska tóniist. Um plötu Grafík segir m.a. að upp- takan sé eins og kristall (-?!) og hún njóti þess að vera vel spiluö. Hljóm- sveitin blandi saman ýmsum stii (taki stundum til sín frá Cure, Gang of four og King Crimson) en skapi úr því lýríska heild meö nokkrum skörpum brúnum. Síöan segir að sum lög gangi of lengi án þess aö mikið gerist. En kraftmeiri lögin eins og Vídeó og Guöjón Þorsteinsson Utangarðsmenn krattmiklir og spila ponk kryddað með ska. Ieigubifreiöarstjóri standist auöveld- lega samanburö viö hvaöa svipaöa breska hljómsveit sem er. Skríbent blaðsins er ekki eins hrifinn af Þursaflokknum og segir aö tækni- lega séu þeir leiknir en fágaö yfir- borð nægi ekki til að hylja leiöindin í lögum þeirra. Um Utangarðsmenn er sagt aö þeir séu kraftmeiri en hin- ar tvær sveitirnar og spili pönk sem 'sé ekki meö öllu hamslaust, krydd- aö með ska. Skríbentinn segir aö flest laga þeirra séu sungin á íslensku sem minni meira á hebresku en nokkurt vestrænt tungu- mál! Síöan segir aö Geislavirkir sé á sínum bestu stundum góö Stónsleg tónlist enda þótt hún beri ekki frum- leikann í þverpokum. Um Purrk Pillnikk er sagt að Googooplex sé leiöinlegt í eyrum skríbentsins en Purrkinn skorti ekki ákafa og ein- strengingslega hæfni. Aö lokum greinir frá hljómsveit- inni Þey sem sagt er aö sé greinilega besta hljómsveitin á Islandi. Sagt er um tónlist þeirra aö þar blandist skrýtilegheit Residents, þung takt- sveit og útsetningar og söngur sem hvort tveggja sé unnið á Bowie-legan hátt.. Svo segir aö þetta sé áhrifa- mikil hljómsveit sem ætti ekki aö vera í vandræðum meö aö láta sig skiljast í Bandaríkjunum og á Bretlandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.