Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 2
2 DV. ÞKŒWUEAGUR14 FEBKUAR1964 Loðnukvótinn líklega hækkaður um 265 þúsund tonn: Bátar sem voru búnir með kvóta mega byrja aftur Niðurstöður nýafstaðinna loðnu- rannsókna tveggja islenskra rann- sóknaskipa hafa leitt í ljós að stofninn er talsvert stærri en mælingar í haust gáfu til kynna og hafa fiskifræðingar lagt til að 256 þúsund tonnum verði bætt við aflann á þessari vertíð. Ef þeirri veiði verður náð verður heildar- aflinn um 640 þúsund tonn á vertíðinni en í upphafi hennar höföu fiskifræðing- ar lagt til 375 tonn og Þjóðhagsstofnun reiknað með 400 þúsund tonnum. Nú á því eftir að veiöa hátt í 400 þús- und tonn og hefur sjávarútvegsráð- herra ákveðið aö þeir fimm bátar sem búnir eru með kvóta sinn megi strax halda til veiða aftur þar sem end- anlegs kvóta er að vænta innan viku. Hann liggur ekki ljós fyrir fyrr en eftir umfjöllun sameiginlegrar nefnd- ar Norðmanna og okkar um loðnu- veiðamar. Líklegt er talið að Norð- menn muni fallast á rök okkar og hækkun kvóta um 256 þús. tonn. Ekki verður fleiri bátum heimilað að fara á loðnu en fengu leyfl til þess i upphafi vertíðar. Ef þokkalega gefur á núverandi floti auðveldlega að ráða við þetta magn enda geta veiðarnar staðið útmars. Tonnin misþung eftir því hvort landað er hér eða erlendis: Siglingatogar- amir koma þó sléttir út I nýju kvótareglunum er gert rað fyrir að ef skip sigli með afla sinn reiknist það hafa veitt 25 prósent meira af kvóta sínum en aflatölur gefa til kynna. Landi skipið næst heima reiknast þaö hafa landað 25 prósent minna af kvóta sínum en aflatölur segja til um. Þannig munu þau skip sem undan- farin ár hafa ýmist landað heima eða erlendis, og halda því áfram í ár með svipuðum hætti, koma eins út og áður aö frádregnum sama samdrætti og gildirfyrir alla. Sumir útgerðarmenn túlka þetta sem bónus til „siglingatogaranna” fyr- ir aö vera lengur frá veiðum en önnur skip á meöan á siglingum stendur. Aðrir túlka þetta sem viðurkenningu ráöuneytisins á gildi þess að viðhalda ferskfiskmörkuöum okkar i Bretlandi og Þýskalandi. Enn aðrir telja þetta hvetningu til siglingatogaranna aö landaheima. -GS Rithöfundasambandið: Mótmælir geðþóttaákvörðun varðandi ritfrelsi Á fundi Rithöfundasambands Is- lands, sem haldinn var í fyrrakvöld, var tiilaga nokkurra félaga sam- þykkt einróma þar sem starfsað- ferðum saksóknara ríkisins, eins og iðkaöar voru i Spegilsmálinu, var mótmælt. Þórarinn Eldjám, einn þeirra rit- höfunda sem stóðu aö þessari til- lögu, sagöi að Rithöfundasambandiö vildi með þessu móti fordæma það að geðþóttaákvörðun eins manns gerði honum kleift aö leggja hald á blað og fá staðfestingu Hæstaréttar eins og Þórður Bjömsson rikissaksóknari gerði við- Spegilinn, blað Ulfars Þormóðssonar. „Við beinum þeirri ósk til stjóm- valda að löggjöf verði hagað á annan hátt og að ákæruvaldið leiti fyrst úrskurðar dómstóls áður en gripið er til jafnróttækra aðgerða og að leggja hald á prentað mál,” sagði Þórarinn Eldjárn og ennfremur: „Ymsir lögfræðingar hafa áhyggjur af þessu og telja að í Spegilsmálinu hafi Hæstiréttur lagt blessun sina yfir brot á ritfrelsisákvæði í mann- réttindakafla stjómarskrárinnar. Það er því sú framtíðarþróun sem þetta fordæmi kann að hafa áhrif á sem við höfum áhyggjur af,” sagði Þórarinn Eldjárn. -HÞ. Langfari, en svo nefnist Fiugieiðaþotan, sem rann fram af flugbrautinni á sunnudag, hefur að baki flesta fíugtima allra Flugleiðavéla og mjög góðan feril. Hún reyndist óskemmd eftir óhappið og hélt áfram til Bandarikjanna i fyrrinótt að skoðun lokinni. DV mynd: S. Umfangsmikil rannsókn á óhappi Flugleiðaþotunnar íKeflavík: Hlustað á segulbönd úr stjórnklefanum f jöldi vitna yfirheyrður Nú stendur yfir víðtæk rannsókn á því hvers vegna DC-8 þota Flugleiða rann fram af flugbraut í lendingu á Keflavíkurflugvelli í fyrradag. Loft- ferðaeftirlitið annast rannsóknina og er hún m.a. fólgin í því að yfirheyra þá sem voru á vakt hjá slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli og starfsmenn flugtumsins þar sem vitni urðu að at- burðinum. Þá verður nákvæmni aö- flugshallaljósa fyrir brautina athuguð við fyrsta tækifæri og hlustað verður á segulbandsupptöku úr stjórnklefa þot- unnar frá lendingunhi. Engar upplys- ingar eru gefnar um gang rann- sóknarinnar á þessu stigi og er ekki ljóst hversu langt er aö bíöa niöur- stöðu. Eins og fram kom í DV í gær telur flugstjórinn aö brautin hafi verið hálli en hann fékk upplýsingar um. Slökkvi- liöið hefur með höndum mælingar á bremsuskilyrðum eftir því sem þurfa þykir. Flugturninn fær þær upplýsing- ar og miðlar þeim ásamt tímasetningu á síöustu mælingu til komandi flug- véla. Viðkomandi flugstjóri metur svo þær upplýsingar og vilji hann nýja mæl- ingu er hún þegar framkvæmd. Ef hon- um sýnast skilyrði þá ekki nægilega góö getur hann farið fram á að brautin sé sandborin eða borin öörum hálku- eyöandi efnum. Sú framkvæmd er í verkahring slökkviliðsins og er ávallt orðið við þessháttar óskum frá flugmönnum. -GS DEILT UM FJÖLDA í ÁHÖFN FJALLFOSS - Sjómannaf élagið hef ur kraf ist vinnustöðvunar við skipið 15. febrúar ef ekki verður fjölgað í áhöf ninni Sjómannafélag Reykjavíkur hefur boöaö vinnustöövun á Fjallfossi frá og með morgundeginum, 15. febrúar, vegna ágreinings viö Eimskipaf élag- iö um f jölda í áhöfn skipsins. Deilur hafa staðið að undanförnu um fjölda háseta á skipinu en sam- kvæmt kjarasamningi um háseta- f jölda eiga þeir að vera minnst sex að tölu. I áhöfninni í þessari fyrstu ferð Fjallfoss voru átta manns, skip- stjóri, stýrimaður, tveir vélstjórar, matsveinn og þrír hásetar. Sjó- mannafélagið hafði veitt Eimskipa- félaginu undanþágu til að hafa að- eins þrjá háseta um borð í Lagar- fossi og Bakkafossi til 15. mars næst- komandi en undanþágu fyrir Fjall- foss var algjörlega synjað. Skipverjar á Fjallfossi fengu skeyti frá Sjómannafélaginu þann 7. febrúar, er þeir voru á leiðinni til Is1 lands, og þar var þeim tilkynnt að skipið yröi stöðvað vegna þessa máls er þaö kæmi til hafnar á Islandi. Að sögn Þórðar Sverrissonar, full- trúa framkvæmdastjóra Eimskipa- félagsins, er samningaviðræðum við Sjómannafélagið um þetta efni ekki lokið. Sagði Þórður að verið væri að kanna með hvaða hætti hægt væri að fjölga í áhöfninni en þaö væri þeim erfiðleikum bundið að aðeins væru klefar í skipinu fyrir níu manns. Eimskipafélagið telur að skipið kom- ist af með færri menn í áhöfn en Sjó- mannafélagið gerir kröfu um og bendir á að meðan þetta skip var í eigu fyrri eigenda í Vestur-Þýska- landi var á því 7 manna áhöfn. Þórður Sverrisson sagði að fjöldi í áhöfn skipa hefði oft orðið ágreiningsefni þegar ný skip bættust í flotann en alltaf hefði náðst sam- komulag um þetta við stéttarfélögin. klp/ÖEF Verðbólgan 8fl prósent Sektaður fyrir land- helgisbrot Skipstjórinn á vélbátnum Búðanesi frá Grindavík var á laugardag dæmd- ur til að greiða 60 þúsund króna sekt í landhelgissjóð og sakarkostnað. AfU og veiðarfæri voru gerð upptæk. Gæsluflugvélin TF-SYN kom að Búðanesi að togveiðum um hálfa sjó- mílu fyrir innan mörkin úti af Þjórsá síðastUðinn miðvikudag. Dóminn kvað upp Guðmundur Kristjánsson, aðalfulltrúi við fógeta- embættið i Keflavík. Meðdómendur voru Ámi Þorsteinsson og Ragnar Bjömsson. -KMU Visitala framfærslukostnaðar hækkaði um 0,65 prósent frá janúar- byrjun tU febrúarbyrjunar. Vísitala vöru og þjónustu hækkaði jafnmikið. Þessar hækkanir jafngUda því aö verðbólgan á Islandi, miöað við heilt ár, sé um þessar mundir 8,1 prósent. I frétt frá Hagstofunni segir að framfærsluvísitalan hafi í febrúar- byrjun reynst vera 397 stig, miðað við grunntölu 100 í janúar 1981. I nóvember síðastUðnum var vísitalan 387 stig. Hækkun frá þeim tíma er 2,7 prósent. Stærstan þátt i hækkun vísitölunn- ar á Hitaveita Reykjavíkur. Taxtar hennar hækkuðu um 25 prósent í byrjun febrúar. Það oUi 0,64 pró- sent hækkun vísitölunnar. AthygU vekur að í matvöruflokkn- um urðu margar verðlækkanir en einnig nokkrar verðhækkanir sem saman ollu 0,3 prósent lækkun á vísi- tölunni. Að öðru leyti var um að ræða hækk- anir og lækkanir sem jöfnuðust út með 0,3 prósenta vísitöluhækkun. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.