Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 6
6 DV. ÞRHUUDAGUR14. FEBRUAR1984. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur A þessari mynd eru reyndar ekki nema 14 áfengisflöskur en við hellum iokkur enn meira magni, eða 17.3 flöskum að meðaltaliár hvert. Áfengis- skammtur — hvers íbúa 17,3 f löskur A árinu 1983 keyptu Islendingar áfengi fyrir 985 milljónir króna hér á landi. Ut frá þeirri forsendu hefur verið reiknað að hver landsmaður hafi tæmt 17,3 flöskur á árinu. Af þessum rúmlega sautján flöskum hafa verið 7 af brenndum, sterkum vínum, 3,7 flöskur af svokölluðum heitum vínum (sérrí t.d.) og 6,6 flöskur af léttum vínum. Þetta eru tölur sem skiptast jafnt á hvem íbúa landsins, böm jafnt semfullorðna. Fimm manna fjölskylda hefur varið 20.914 krónum til áfengiskaupa á árinu, hver einstaklingur rúmum f jögur þúsund krónum. Ársskammtur fimm manna fjöl- skyldunnar er 86,5 flöskur, dágóðar birgðir ef tappamir hefðu ekki veriö iosaðir. Fyrir utan þessar tölur allar bætist við annar skammtur og það er það magn sem ferðafólk tekur með sér til landsins og eins farmannaveigamar. Og er þá óútreiknanlegt hvað Islend- ingar hafa tæmt margar flöskur á ferðalögum erlendis. Ætti aö sleppa þeim sem aldrei dreypa á ööru en óáfengum drykkjum koma fleiri flösk- ur en 17,3 í hlut þeirra sem á annaö borð drekka umrædda drykki. -ÞG. Annaðhvort að frjósa eða svelta íhel — segir reiður orkuneytandi íBolungarvík Agæta neytendasíða. Ennþá einu sinni leyfi ég mér aö rita þér bréf, umræðuefnið er það sama og áður. Hið gengdarlausa orkuokur hér á Vestfjarðarkjálkan- um og víðar. Oft hefur fólki hér reynst erfitt að standa í skilum með greiðslur fyrir hita og rafmagn en nú fyrst kastar tólfunum. Áður þegar háir reikningar komu inn um bréfalúgumar, varð maður var við aö það þykknaði í fólki. En nú má segja að þaö sé komin ofsareiði í fólkið og þaö ekki að ástæðulausu. I fréttum sjónvarpsins þann 27. janúar að mig minnir sýndi Omar Ragnarsson fréttamaður muninn á rekstri íbúðar og bíls á höfuðborgar- svæðinu. Þar kom í ljós að kostnaður við hita- og rafmagn var 13 þúsund krónur yfir árið á viökomandi íbúð. Nú má enginn taka orö mín þann- ig að mér finnist sú upphæð ekki nógu há. Og sjálfsagt stendur það í æði mörgum sem á höfuðborgar- svæðinu búa að reiða fram þá fjár- hæð þegar aö skuldadögunum kemur. En hvemig ætli þessu fólki yrði við ef það ætti að borga þessa upphæð tólf sinnum á ári. Eða til frekari einföldunar einu sinni í mánuði hverjum. — Gegndarlaust orkuokur Nú reka sjálfsagt margir upp stór augu og segja, maðurinn lýgur þessu, þetta getur ekki verið satt, og ekki lái ég þeim þau ummæli. Hvemig á fólk með meðallaun eöa eigum við ekki bara að kalla þau sínu rétta nafni — lúsarlaun — að komast af og þar stendur hnífurinn illilega í kúnni. Eg ætla að taka þrjú dæmi um gegndarlaust orkuokur hér í Bolungarvík. Einnig læt ég fylgja með ljósrit af reikningum greiöanda í dæmi tvö. Viö skulum hafa í huga aö þetta fólk á eftir aö fæða sig og klæða, borga skatta og sinar skyldur allar af laun- unum, hvaö er þá eftir ? Þegar svo er komiö aö 160 klst. á mánuði í dagvinnu eða vinnulaun fyrir þær klukkustundir duga ekki fyrir greiöslum á ljós- og hitareikn- ingum, þá er eitthvaö stórvægilegt aö. Það virðast allir vita nema ráða- menn þjóðarinnar. Astandið er nú órðið þannig hjá þorra þeirra sem á landsbyggðinni búa að annaðhvort er að hætta upphitun og þar með fr jósa í hel eða hætta matarkaupum og þar með svelta í hel. Þegnarnir blóðmjólkaðir Okurverð nú til dags á ekkert skylt við réttlátar greiðslur fyrir veitta þjónustu. Þegnarnir em miskunn- arlaust blóðmjólkaöir. Og þegar þeir geta ekki lengur staðið í skilum dynja yfir þá tilkynningar í útvarp- inu um lokun á rafmagni. Þaö er eins og forráðamenn raf- veitna sem hér eiga hlut að máli standi í þeirri trú að það sé nóg að senda út stanslausar hótanir, þá muni rigna yfir viðkomandi fimm hundruð króna seðlum eftir þörfum og eðli reikningsins. Enhvaðertil ráða? Hækka hitaveituna á höfuðborgar- svæðinu þangað til kostnaöurinn er kominn til jafns við landsbyggðina. Nú alla vega er það stefna þeirra sem nú ráöa feröinni. Ætli okkur hin- um gangi þá betur að greiða okkar reikninga? Þvílík firra og della. En því miður fyrir þá sem ennþá búa við nokkurn veginn eðlilegt verð á hitunarkostnaði, þá virðist þetta vera svarið við eðlilegum kröfum fólks að látið sé af þessu gegndar- lausu orkuokri. En skyldi ekki vera einhver skilningur á þessu hjá við- komandi þingmönnum og ráðherrum dreifbýlisins? Nei, ekki aldeilis. Heldur nokkur heilvita maður að þeim sé ekki sama hvað það kostar kjósendur þeirra að greiða sína orkureikninga. Þetta eru menn með margfaldar tekjur borið saman við hinn almenna launþega. Við skulum ekki heldur gleyma því að það erum við sem greiðum þess- um herrum laun, sem þeir skammta sér að vísu sjálfir og skera ekki við nögl. Smágelt um vanda fjöldans Meðan landsbyggðin stynur undan okinu og endalausu arðráni, loka þessir menn eyrunum og skemmta sér við það hver geti keypt fínustu og dýrustu bílana. Öll vitum viö hver kemur svo til meö að greiöa fyrir gamanið. öllum ætti að gera ljóst að ef ein- hver vilji væri fyrir hendi hjá al- þingismönnum væri búiö að leiðrétta þetta fyrir löngu. Eini viljinn sem maður verður var við er þegar ein- hver þingmaðurinn, svona rétt fyrir siðasakir, vill láta taka pinulítið eftir sér og rekur upp smágelt um vanda f jöldans, síðan ekki söguna meir. Staðreyndin er sú að nú er hafinn stórfelldur fólksflótti frá hinum ýmsu byggðum landsins, aöallega sjávarplássunum. Þaðan sem mesta verömætasköpunin á sér stað. Og fólk flykkist til höfuðborgarsvæðis- ins. Ástæðan er líklega sú að fólk getur ekki lengur lifað af vinnulaun- um sínum, þökk sé orkuverðinu. Heiöurinn af þessu ástandi eiga steinblind nátttröll sem þessum mál- um stjóma og sem ekkert sjá fyrr en allt er orðiö mörgum árum of seint. Með vinsemd og virðingu til neyt- endasíðu DV. Virðingarfyllst, Kristján Ágústsson, Bolungarvík. Kæri Kristján. Eg þakka þér bréfiö semþú sendir eftir samtal okkar símleiðis. Það er von að þungt sé í þér hljóðið, en bréf- ið ritar þú 1. febrúar sl. og síðan þá hefur iðnaðarráöherra ákveðið að auka niðurgreiðslur til Orkubús Vestfjarða um 10%. Jafnframt herma fréttir að sami ráöherra sé aö leggja síðustu hönd á stjómarfrum- varp sem á að koma frekar til móts við hagsmuni neytenda á „köldu svæðunum”. Þú spyrð í bréfi þínu hvað sé til ráða. Að hækka hitaveituna á höfuö- borgasvæðinu þangaö til kostnaður- inn sé kominn til jafns viö lands- byggðina. Og heldur áfram að alla vega sé það stefna þeirra sem nú ráða ferðinni. Þama hittir þú mig í hjartastað. Eg sat nefnilega sem borgafulltrúi í borgarstjórn þegar ákveðið var að hækka gjöld Hita- veitu Reykjavíkur um 25%, frá og með 1. febrúar sl. Þar rétti ég upp hönd og samþykkti hækkunina. En ég get fullvissað þig um að það var ekkiaf þeim hvötum sem þú tilnefnd- ir íbréfiþínu. Forsendan fyrir þeirri samþykkt var af öðrum toga, meðal annars fjármagnsþörf Hitaveitu Reykjavík- ur til frekari uppbyggingar og lag- færingar. En viö skulum vona að „stein- blindu nátttröliin” sem þú nefnir í bréfinu hugi enn frekar aö úrlausn ykkar mála í náinni framtíð. Fyrstadæmiö: Ein fyrirvinna með s jö börn. Fjölskyldan býr í þríbýlishúsi og er greiöandi skráður 61% af eigninni og greiðir samkvæmt því sína reikninga. Ibúöarstærð 170 fermetrar. Reikningar: Rafmagnskynding Um 30 daga tímabil: Annaðdæmið: Ein fy rirvinna með tvö börn. Einbýlishús 120 fermetrar. Ljósareikningur (31 dagur) Rafmagnskynding (31 dagur) Ljóskr. 3.573 kr. 8.400 Samtalskr. 11.973.- kr. 3.397,98 kr. 6.125,15 Samtals kr. 9.523,- (Sjá ljósrit) Þriðjadæmið: Tveir í heimili, eldri hjón, sem bæði vinna úti. Búa í einbýlishúsi, 100 fermetraaðstærð Ljósareikningur kr. 1.478,70 Fjarvarmakynding kr. 6.467,- Samtalskr. 7.945,70 •ÞG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.