Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 20
20 íþróttir (þróttir DV. ÞREXJUDAGUR14. FEBRUAR19«. Nanna missti annan stafinn Nanna Leifsdóttir frá Akureyri varð fyrir því óhappi í keppninni í stórsvigi í Sarajevo í gær aö hún missti annan skíðastafinn þegar hún var að leggja af stað i seinni umferðina. Nanna, sem hafði farið fyrri umferðina á 1:14,82 mín., lét það ekki á sig fá — hún hætti ekki keppni heldur keyrði niður brautina með aðeins annan stafinn og kom í mark á 1:20,02 mín. Það vakti að sjálfsögðu athygli þessi keppnisharka Nönnu sem lauk keppni þó hún hefði misst annan stafinn. • Nanna varð í 38. sæti af þeím 43 stúlkum sem luku keppni. Nanna fékk timann 2:34,84 mín. (1:84,82—1:20,02). Fyrir aftan hana voru þrjár stúlkur frá Argentínu, ein frá Kina og ein frá Kýpur. Ellefu stúlkur féllu í brautinni en fjórar hófu ekki keppni. -SOS ÍR-ingarfeti nærtitlinum ÍR og Haukar áttust við í 1. deild kvenna i körfuknattleik í Seljaskóla í gærkvöldi. Leikurinn var æsispennandi og jafn, þó höfðu iR-stúlkurnar fremur frumkvæðið. Leikurinn einkenndist af mikilii baráttu á báða bóga en svo fór að ÍR-dömumar höfðu betur. Þær sigruðu með 42 stigum gegn 37 eftir aö hafa leitt í hálfieik. Hjá IR voru Auður Rafnsdóttfr, Thelma Björnsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir mjög góðar. Hjá Haukum voru Sóley Indríðadóttir og Svanhildur ágætar. Stigahæstar ÍR-stúlknanna voru þær Auður og Thclma með 10 stig hvor. Aðrar mlnna. Hjá Haukum skoraði Sóley 10 stig og Svanhildur 9. Aðrar minna. -ÞS. Völsungur vann tvisvar Fimm leikir fóru fram í 1. deild kvenna í blaki um helgina. Eftir úrsiitin er nær vist að það verður annaðhvort Völsungur eða tþróttafélag stúdenta sem fær islandsmeistarabikarinn í sína vörslu. Aðalviðureignin var milli Vöisungs og Breiðabliks. Húsavíkurliðið stóð uppi sem sigurvegari eftir hundrað mínútna 3—2 leik. Hrinurnar fóru 9—15, 15—13, 15—6, 10—15 og 15—2. Völsungur af- greiddi og Þrótt um helgina, 3—1: 15—4, 15—0,3—15 og 15—3. Breiðablik og Þróttur léku einnig við KA í norðurferð sinni. Faxaflóaliðin unnu bæði Eyjaf jaröarliöið 3—1. I Reykjavík mættust Víkingur og IS. IS vann 3—0. -KMU. Wylierekinn fráAlbion Ron Wyiie, framkvæmdastjóri WBA, var ekki ianglífur á The Hawthoms. Hann var rekinn frá félaginu í gær og er hann fimmtándi framkvæmdastjórinn sem hefur fengið að taka pokann sinn í Englandi í vetur. Mike Kelly, aðalþjálf- ari WBA, var einnig rekinn. Forráða- menn Albion vora ekki yfir sig ánægðir þegar félagið tapaði 0—5 fyrir Notting- ham Forest í síðustu viku á heimavelli og gerði síðan jafntefli 1—1 við Everton á Iaugardaginn. Albion er í fallhættu. Nokkrir menn hafa verið orðaðir sem eftir- menn Wylie, eins og Tommy Docherty, fram- kvæmdastjórinn kunni, Richie Barker, sem var rekinn frá Stoke fyrir stuttu og John Barnwell, fymim framkvæmdastjóri Úlfanna, sem var rekinn frá gríska félagínu AEK Aþena fyrir nokkrum vikum. Þess má geta að lokum að áhorfendafjöldinn hefur farið minnkandi á The Hawthorns að undanförnu. Aðeins 10 þús. áhorfendur voru þar á laugardaginn. — öllu sem farið hefur úrskeiðis, er skellt á mig — ekki þjálfara eða leíkmenn. Því miður hef ég ekki getað komið í veg fyrir meiðsli leik- manna minna, sagði Wylie í gær. -SOS íþróttir Pétur fór á kostum Óvænt hjá bandarísku« John Barawell í búningi Forest, þega sem knattspymumaður. Reynir, S.-ÍR 28—24 Grótta-Þór, Ve. Frestað Breiðablik-Fram 24-18 HK-Fylkir 14—14 Þór, Ve. 12 12 0 0 271—202 24 Breiðablik 13 10 0 3 280-243 20 Fram 13 9 1 3 286—254 19 Grótta 12 6 1 5 259—243 13 ÍR 13 4 0 9 224-267 8 HK 13 3 1 9 229—259 7 Fylkir 13 1 4 8 228—264 6 Reynir, S. 13 2 1 10 281—327 5 Brynjar í V-Þýskalandi — þar sem hann leikur í markinu hjá Hövelhof „Þetta hefur allt gengið upp hjá mér hér í Vestur-Þýskalandi, liðið hefur sigrað í báðum þeim leikjum sem ég hef Ieikið með því og ég hef fengið góða dóma,” sagði Brynjar Guðmundsson, fyrrum markvörður Vals í knattspym- unni, þegar DV ræddi við hann í gær. Brynjar fór frá Svíþjóð til Þýskalands og er markvörður hjá áhugamanna- liðinu HSV Hövelhof. Það er í sömu deild og lið það sem Guðmundur Baldursson (Fram) leikur með í Þýskalandi — Hövelhof skammt frá Hannover og Bielefeld. Tveir aðrir islendingar leika með áhugamanna- liðum í V-Þýskalandi, Sigurður Grétarsson og Hafþór Sveinjónsson. „Það var nánast tilviljun að ég fór til Þýskalands. Þeir Atli Eðvaldsson og Albert bróðir voru að ræða saman og þá kom í ljós að Hovelhof var að leita Brynjar Guðmundsson. eftir markverði. Liöinu hefur gengið heldur illa. Það var svo úr að ég fór til þýska liðsins. Kominn þar í markið og tveir sigrar í þeim tveimur leikjum sem ég hef leikið meö því,” sagði Byrjar ennfremur. Hann taldi litlar líkur — nánast engar — á að hann kæmi heim í vor. A von á unnustu sinni út í mars og hún mun fara í framhaldsnám í sjúkra- þjálfun. „Eins og staðan er nú eru allar líkur á aö ég leiki meö þýska liðinu i bikarkeppni í sumar og veröi hjá því næsta leiktímabil.” -hsim. 2. DEILD Staðan er nú þessi í 2. deildarkeppni karla í handknattleik, eftir leiki helgarinnar: — þegar IR vann sigur á KR ífrábærum leik í gærkvöldi 90:89 að renna út en hitti ekki. „Það var grátlegt að missa þetta skot. Spennan var mikil og litill timi eftir,” sagði Birgir eftir leikinn. IR-ingar hrósuðu því sigri í einum besta leik vetraríns. Pétur var alveg einstaklega góður, skoraði 44 stig og allt annað að sjá til hans en í síðustu leikjiun með IR. Miklu grimmari og betri aö öllu leyti en áður. Aðrir sem skomðu stigin; Kolbeinn 12, Gylfi 12, Benedikt 12 og Hjörtur, Ragnar og Hreinn 4 hver. KR-ingar léku mjög vel þrátt fyrir tapiö. Hittu betur en áður í vetur og misheppnuö körfuskot þeirra sárafá í leiknum. Sér- staklega var Garöar Jóhannsson góöur og skoraði 29 stig, öll meö glæsilegum iang- skotum og réðu IR-ingar lítið sem ekkert við kappann. Aðrír stigaskorarar. Guöni 20, Birgir 11, Jón Sig. 10, Þorsteinn 11, Kristján 6 ogOiafur2. Eftir þennan leik hafa IR-ingar 10 stig, IBK 12, KR, Valur og Haukar 16 og Njarðvík 24. Leikinn dæmdu þeir Krístinn Albertsson og Davíö Sveinsson og er víst best að hafa sem fæst orð um frammistööu þeirra. Maður leiksins: PéturGuðmundssonlR. -SK. „Eg er ánægður með þennau sigur en ekki leik okkar að öllu leyti. Við voram nokkrir klaufar á köflum en sigur okkar var sanngjara,” sagði Pétur Guðmundsson, Ht, eftir sigur IR á KR í úrvalsdeildinni í körfu í Selja- skóla í gærkvöldi. Leikurinn var mjög góður og svo spennandi að rólegustu menn um- tumuðust í hita leiksins í lokin. Þegar 25 sek. voru eftir af leiknum var staðan 90—87 IR í vil. Benedikt Ingþórsson skoraði síðustu körfu iR-inga sem reyndist vera úrsUtakarfa þessa leiks. „ Það var ekki um neitt annað að ræða en skora. Eg mátti bara ekki kUkka,” sagði hann eftir leikinn. KR-ingar fengu nokkur tækifæri til að stela sigrinum í lokin. Birgir skoraði síðustu körfu KR þegar 15 sek. voru eftir og gat jafnað úr vítaskoti sem hann fékk að auki. Hitti ekki. iR-ingar brunuðu upp með knöttinn, misstu hann þegar 6 sek. voru eftir og Birgir átti síðasta skotið að körfu IR þegar leiktíminn var Pétur Guðmundsson átti stórkostlegan leik með ÍR í gær gegn KR og skoraði 44 stig. DV-mynd Oskar Öra Jónsson. „Þetta var st — sagði 20 ára háskólastúlka frá Seatl „Þetta var stórkostlegt. Þetta voru mín fyrstu sigurverðlaun á stórmóti og það var ánægjulegt að ég hafi unnið tU þeirra hér á ólympiuleikunum í Sara- jevo,” sagði 20 ára háskólastúlka frá Seattle, Debbi Armstrong, sem varð sigurvegari í stórsvigi kvenna í gær — og þar með varð hún fyrsti Banda- ríkjamaðurinn til að vinna til gull- verðlauna í alpagreinum á OL síðan 1972 í Sapporo er Barbara Covhran vann gull. —Eg hef verið á mikilli uppleið að undanfömu og ég vissi það fyrir OL að ég ætti möguleika á verðlaunum — jafnvel sigri, sagði þessi bandaríska stúlka, sem er mikill íþróttamaður — leikur t.d. knattspymu og körfuknatt- „Draumurinn rættist” — sagði Karin Enke, ef tir að hafa tryggt sér sín þriðju verðlaun á OL — Ég er mjög hamingjusöm því að minn stærsti draumur fyrir OL, var að vinna gullverðlaun í 1000 og 1500 m skautahlaupi. Sá draumur rættist í dag. Þetta var auðveldara heldur en í 1500 m skautahlaupinu því að þá var ég svo taugaóstyrk, sagði hin 22 ára Karin Enke frá Dresden í A-Þýska- landi, eftir að hún hafði sigrað í 1000 m skautahlaupi í gær á nýju ólympíumeti —1:21.61 mín. — Það var ekki möguleiki að setja heimsmet hér því aö kuldinn var of mikill, sagði Enke, sem varö fyrst til að vinna þrenn verðlaun á OL — hún varð sigurvegari í 1000 pg 1500 m hlaupi en í öðru sæti í 500 m hlaupi. Andrea Schöene frá A-Þýskalandi — 23 ára vinkona Enke frá Dresden — vann silfurverðlaun. Hún fékk timann 1:22.83 mín. og Natalia Patruseva frá Rússlandi, sem er heimsmeistari á vegalengdinni og varð OD-meistari 1980, varð þriðja á 1:31.21 min. — Eg er mjög haming jusöm að vinna mér inn mín önnur silfurverðlaun hér (var einnig önnur í 1500) því að ég náði Karin Enke — f agnar gulli. mér ekki á strik. Eg hlakka til keppn- innar í 3000 m hlaupi — þar á ég bestu möguleikana á að hljóta gull, sagði Schöene. -sos (þróttir Iþróttir Iþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.