Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 10
íb' Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Butz Aquino: „Harmleikurinn veitti fjölskyldu minni styrk og ég hef ekki hugsað mér að skorast undan neinni ábyrgð. " Roberto d’Aubuisson næsti forseti El Salvador? Lofar skjótum sigrí gegn skæruliðunum — ogætlarekkiað taka við fyrirskipunum frá Bandaríkjunum ings Bandaríkjamanna ef á þurfi aö halda vegna krafna Bandaríkja- manna um aukin mannréttindi í E1 Salvador. „Ef ARENA kemst til valda munum viö fara okkar eigin leiöir án þess aö taka viö skipunum frá Bandaríkjunum,” sagöi d’Aubuisson viö f réttamenn nýverið. Höfuöandstæöingar d’Aubuissons í kosningunum eru kristilegir demó- kratar sem telja sér til tekna aö hafa jarðskiptingaáætlun landsins. Þeir segja aö d’Aubuisson hafi meö stuöningi ýmissa auöjöfra reynt aö spilla fyrir framgangi þessarar áætlunar svo og öllum félagslegum endurbótum í þágu bænda. En kosningafundir d’Aubuissons ganga vel, stuðningsmenn hans klappa á axlir hans og fagna honum á allan hátt og kvenfólkiö kyssir þennan myndarlega frambjóðenda. „Hér séröu næsta forseta E1 Salvador,” sagði einn stuönings- manna hans viö fréttamann Reuters- fréttastofunnar á dögunum. -GAJ. D’Aubuisson sem er sagöur stæðilegur mjög á velli er leiötogi og stofnandi mjög hægrisinnaös flokks er ber heitiö Þjóölega lýðveldis- bandalagiö (ARENA) og einn af sigurstranglegustu frambjóöendum í komandi forsetakosningum. Helstu baráttumál hans eru öflug andstaða viö kommúnismann, frjáls- hyggja og einstaklingshyggja. Bandarískir embættismenn segja aö persónulegt aödráttarafl hans og vinsældir meöal hinna ríku kunni aö trygg ja honum sigur í kosningunum. En samtímis hafa aörir áhrifa- menn í Bandaríkjunum bendlaö d’Aubuisson viö hinar illræmdu dauöasveitir hægri manna. Þess vegna telja ýmsir að sigur d’Aubuissons gæti haft það í för meö sér að Bandaríkjastjóm yröi að endurskoða afstöðu sína um stuðning viö stjóm E1 Salvadors vegna þrýst- ing frá þinginu. D’Aubuisson neitar staöfastlega nokkmm tengslum viö dauöa- sveitirnar sem eru taldar bera á- byrgö á meira en þúsund moröum á síðastliönu ári. Robert White, fyrmm sendiherra Bandaríkjanna í E1 Salvador, kallar d’Aubuisson „moröingja”. White hefur vitnaö um þaö fyrir rannsókn- Roberto d’Aubuisson segir aö ef hann sigri í forsetakosningunum í E1 Salvador í næsta mánuði, muni þaö hafa í för meö sér friö, öryggi, fram- farir, aukna atvinnu og frelsi. En andstæðingar hans segja aö kosning hans myndi aöeins hafa í för meö sér friö kirkjugarösins, atvinnu fyrir hina auðugu og frelsi fyrir þá ríku. Roberto d'Aubuisson er vinsæll meðal hinna riku ibúa landsins. Frambjóðandinn lofar skjótum árangri gegn skæruliðum. arnefnd þingsins aö d’Aubuisson hafi lagt á ráöin um morðið á Oscar Arnulfo Romero erkibiskupi áriö 1980. En Romero erkibiskup haföi veriö ötull baráttumaöur fyrir aukn- um mannréttindum og dyggur stuðn- ingsmaður lítilmagnans í landinu. Hann var myrtur er hann undirbjó guösþjónustu í sjúkrakapellu einni í San Salvador, höfuöborg landsins. D’Aubuisson hefur einnig veriö gefiö aö sök aö hafa staðið á bak viö valdaránstilraun sem beindist gegn stjórn Carlos Humberto Romero í október 1979. Hann var handtekinn á sínum tíma og White, þáverandi sendiherra Bandaríkjanna, var ein- mitt í hópi þeirra sem beittu sér fyrir handtöku hans. Honum var gefiö landráð að sök en af réttarhöldunum varð aldrei. Pólitískir bandamenn hans innan hersins fengu því fram- gengt að hann var látinn laus. Einu ári síðar stofnaöi d’Aubussion ásamt dyggum stuðningsmönnum sínum ARENA- flokkinn og buöu því fram til sveitar- stjórnakosninga þeirra sem Reagan- stjórnin sagöi aö væri fyrsta skrefið í átt til lýðræðis í E1 Salvador. Þó aö kristilegir demókratar — meö stuðningi Bandaríkjamanna — ynnu öruggan sigur í kosningunum þá náöi d’Aubuisson góöum árangri og eftir að hafa gert bandalag við aöra íhaldsflokka var hann kosinn forseti þingsins. Með byssu undir skyrtunni heldur d’Aubuisson nú hvem kosninga- fundinn á fætur öðrum og talar til þess sem hann kallar hina sönnu þjóö E1 Salvador. D’Aubuisson nýtur ekki síst dyggilegst stuönings úr rööum kvenna innan ARENA-flokksins og þær hlusta á hann fullar aðdáunar er hann sgkar stjómina í Washington um aö draga á langinn borgara- styrjöldina sem staðið hefur í fjögur ár gegn vinstrisinnuðum skæru- liðum. D’Aubuisson nýtur stuönings kaup- sýslumanna og hægrisinnaðra yfir- manna hersins. Hann lofar að binda skjótan enda á styrjöldina gegn skæmliðum og þaö jafnvel án stuðn- Stjórnarandstaðan stillir saman strengi sína: „ÞAÐ VERÐUR EKKIAFT- UR SNÚK) ÚR ÞESSU" — Butz Aquino tekur upp merki hins látna bróður síns á Filippseyjum Butz Aquino, bróöir stjómarand- stöðuleiðtogans Benigno Aquino sem myrtur var á Filippseyjum í fyrra, er aö vinna sér sess sem nýtt sameiningartákn stjórnarandstöð- unnar á móti Marcos forseta. Butz Aquino, sem er 44 ára gamall, lýsti því í samtali viö sænska blaðiö Dagens Nyheter hvernig hann heföi náö þessari lykilaöstöðu eftir aö hafa veriö glaumgosi og annars flokks leikari í skugga bróður síns. Þar skýrir hann frá hugmyndum um sífellt stærri mótmælafundi og er bjartsýnn á framtíðina. Fyrir tveimur mánuöum vom þeir ekki margir sem vora trúaöir á aö Butz gæti áunnið sér eitthvaö af vinsældum Ninoys og aö hann gæti orðið ógnun viö veldi Marcos. En hver atburöurinn hefur rekiö annan sem sýnir fram á hina nýju stööu Butz. Agapito Aquino er hans rétta nafn og hann rekur lítið fyrirtæki sem framleiðir skrifstofuhúsgögn. Leik- listin var áhugamál hans. „Þaö er þaðan sem nafniö Butz er komið úr einu af hlutverkum hans.” Einstöku sinnum kom hann eitthvað nálægt stjórnmálunum en hann segist ekki hafa haft verulega ástæðu til að láta til sín taka. En nú hefur hann fengiö ástæðu. Þaö var hinn 21. ágúst í fyrra sem Ninoy Aquino sneri heim til Filipps- eyja eftir þriggja ára útlegö en var skotinn til bana við kómuna á flug- vellinum. Þegar ein milljón manna fylgdi honum síðan til grafar og hyllti þannig hinn látna foringja sinn þá tók yngri bróðirinn afdrifaríka ákvöröun. Hann ætlaði aö sjá til þess aö bróöir hans heföi ekki dáiö til einskis. „Þessi harmleikur hefur veitt f jöl- skyldu okkar siöferöilegan styrk sem viö ætlum aö nota til þess aö knýja Marcos til eftirgjafar og aö lýöræöi veröi innleitt á ný,” segir Butz. Butz Aquino byrjaöi aö skipu- leggja alls kyns mótmæli gegn Marcos. Þau hafa veriö dáh'tiö óvenjuleg til þess aö komast framhjá því mótmælabanni sem forsetinn hefur reynt aö innleiöa. Mótmælin hafa til dæmis falist í hóptrimmi á sunnudögum þar sem tvö þúsund þátttakendur eru allir íklæddir gulum Ninoy-treyjum. Þaö eru föstur og fleira í þeim dúr. I byrjun janúar tókst Aquino aö safna saman „þjóðþingi” með þrjú þúsund fulltrúum ólíkra þjóðfélags- hópa. „Allir voru mjög vantrúaðir í fyrstu en viö höföum undirbúiö þetta vel. Viö spuröum alla: Hverjar eru kröfur ykkar fyrir aö taka þátt í kosningunum í maí? ” Þaö varö Usti með sex kröfum: Marcos skyldi afsala sér þeim mögu- leikum sem hann hefur á að láta handtaka á eigin spýtur og fangelsa póhtíska andstæðinga, hann skyldi afsala sér því valdi sem hann hefur fyrir utan og óháð þinginu, hann yröi aö sleppa öUum pólitískum and- stæöingum o.s.frv. Ef ekki yröi aö þessum kröfum gengið yrðu kosning- arnar marklausar og undir yfirlýs- rngu um þaö hafa óteljandi stofnanir og samtök skrifaö. Nú hefur stjómarandstaðan veitt Marcos frest tU 14. febrúar tU aö veröa viö þessum kröfum. Annars munu aUir þessir hópar og samtök sniðganga kosningarnar. „Viö ætlum aö safna saman öllum sem eru á móti einræðinu, hvort sem þeir koma frá hægrieöa vinstri.” Til aö leggja áherslu á kröfur sínar eru nýjar aðgerðu fyrúhugaðar í dag, þriðjudag. Butz Aqumo komst enn meir í sviösljósiö í mótmæla- göngu sem lauk fyrir rúmri viku. Þar var mesti mannfjöldi saman kominn á einn stað frá því aö Ninoy Aquino var jaröaöur í fyrra. Herinn reyndi að stöðva þessa mótmæla- göngu fjórum sinnum. „Þeir sögöu aö hún gæti leitt tU stjómleysis og byltingar ef viö kæmum inn í ManUa.” Hálf miUjón manna fagnaði göngu- mönnum er þeir fengu loks leyfi tU aö halda áfram. ,,Eftir þær móttökur sem viö fengum þarna er ég reiöu- búinn aö deyja,” segir Butz Aquino. En er hann reiöubúinn aö taka viö stjórnartaumum ef þjóöin óskar þess? „Eg hef ekki hugsað mér að skorast undan neinni ábyrgö en um þetta vU ég ekki hugsa nú. Tak- markið núna er aö endurvekja lýöræöiö,” segir hann. „Þaö sem snertir mig mest er þegar gömlu konurnar úti á landsbyggðinni koma tU mín og horfa á mig fullar tiltrúar. Þá skil ég aö ekki veröur aftur snúiö úrþvísemkomiöer.” -GAJ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.