Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1984, Page 4
4
.Wi jlmk .orHTK)At,nr.arw
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. APRlL 1984.
Fugladrápið á Barðastöðum í Staðarsveit: _
,FYRIRMÆLUM UM UR-
BÆTUR EKKISINNT
— segir fulitrúi sýslumanns—„Ofsóknarbrjálæði” — segir vinnumaðurinn á Barðastöðum
„Eg tók ákvöröun, með samþykki
héraösdýralæknis, um aö láta gera
þetta,” sagöi Klemenz Eggertsson,
sýslufulltrúi í Snæfells- og Happa-
dalssýslu, um fugladrápiö aö Baröa-
stööum í Staöarsveit.
DV skýröi frá því í gær að
síðastliðinn föstudag heföi liö lög-
reglumanna komiö aö Barðastööum
og aflífað þar hænsni, kalkúna,
kanínur og grágæs og eyöilagt egg
sem voru í útungunarvél.
„Þetta er búiö aö eiga sér langan
aödraganda. Fyrirmælum um úr-
bætur varöandi fóðrun og aöbúnað
var ekki sinnt. Því var ekki um
annað aö ræöa,” sagöi sýslufull-
trúinn.
Hann sagðist gera ráö fyrir aö
málið yröi fljótlega sent ríkissak-
sóknara aö lokinni rannsókn um
meint brot á dýravemdunarlögum.
„Tilhæfulaust"
Ellert Guömundsson, áöur bóndi á
Baröastöðum en nú vinnumaður þar,
er ekki hress með aögerðir yfir-
valda.
„Þetta er tilhæf ulaust að fuglamir
hafi veriö vannærðir. Þeir heföu ekki
getaö eyðilagt nein egg ef fuglamir
heföu verið vannæröir því vannærðir
fuglar verpa ekki,” sagöi Ellert.
„Þaö var ekkert óeölilegt héma.
Auövitað dettur niöur einn og einn
fugl eins og gengur og gerist í stórum
búum. En það er fullkomlega eöli-
legt.
Dýralæknirinn kvaö upp úrskurö
um vannæringu fuglanna áöur en
hann var búinn aö skoöa nokkurn
fugl. Þegar ég andmælti honum uröu
viðbrögö hans þannig aö ég hélt aö
hann ætlaöi aö ráöast á mig.
Eg fór fram á þaö viö sýslumanns-
embættið að ég fengi upplýst frá
héraösdýralækni hvaö viö þyrftum
aö gera til aö fá aö halda áfram
búskap hérna. Þaö hefur ekki fengist
ennþá.
Þaö skal tekiö fram aö þeir kæröu
aldrei réttan aöila. Þeir kæröu mig,
sem er vinnumaður héma. Þeir
kærðu aldrei bóndann, Guðrúnu Jónu
Halldórsdóttur, sem er eigandi fugl-
anna. Hún hefur aldrei veriö boöuð
til yfirheyrslu.
Sýslumannsembættið gaf lög-
manni hennar hálfsmánaöarfrest
daginn áöur en drápið var fram-
kvæmt.
Eg tel að því hafi veriö ábótavant
aö fuglamir höfðu ekki poll til aö
synda á í vetur enda var þá allt
frosiö. En þaö er ekki bara hérna á
þessum bæ sem endur hafa orðiö
skitugar af þessum sökum.
Ungar í
íbúðarhúsi
Það er satt aö ungar voru hafðir
inni í íbúöarhúsi. Þeir vora teknir
beint úr útungunarvél og aldir fyrstu
þrjá til fjórar vikumar í þremur her-
bergjum í íbúöarhúsinu, tveimur
uppi á lofti og einu á neðri hæð. Þetta
er ekkert launungarmál. Þetta var
ekki falið fyrir neinum enda höföum
viö ekki hugmynd um að þetta væri
ólöglegt.
Þaö útihús sem fuglamir höföu
aögang aö var rammbyggö véla-
geymsla meö heilu þaki og veggjum
en dyrnar stóðu opnar til aö fuglarnir
gætu gengið út og inn. Þessu húsi
lýsir dýralæknir sem húsarústum.
Eitt af því sem dýralæknir telur
ástæðu fyrir niöurskuröi era heim-
ilisástæður á Barðastööum. Eg spyr
þá: Hvað skilja menn meö orðinu
heimilisástæður? Er þaö ekki til
dæmis drykkjuskapur eða ófriður?
Og hvaö kemur þaö héraðsdýralækni
viö? ” sagði Ellert Guömundsson.
-KMU.
AUKNAR VEÐUR-
FREGNIR í DV
„Við erum aö sjálfsögöu ánægöir
meö þá þjónustu og áhuga sem DV
sýnir veðurfréttum frá Veðurstof-
unni enda er þaö okkar kappsmál aö
hafa sem mest og best samskipti viö
blöðin eins og aöra fjölmiðla,” sagöi
Markús Á. Einarsson veðurfræðing-
ur í viötali viö DV í gær.
Tilefnið er bætt þjónusta blaösins
við lesendur hvaö varöar veður-
fregnir og veðurlýsingar víöa aö.
Verður fjölgaö þeim stööum á land-
inu sem sagt verður frá hvernig
veðrið liafi veriö þar klukkan 6 um
morguninn. Þá veröur einnig fjölgaö
stööum erlendis og reynt aö segja frá
hvemig veðrið er á helstu feröa-
mannastöðum sem Islendingar
sækja.
Markús sagöi aö veðurspá byggö-
ist á upplýsingum sem Veöurstof-
unni bærast víðsvegar aö. Hér á
landi væru til dæmis 40 veðurskeyta-
stöövar sem sendu upplýsingar til
veðurstofunnar 4 til 8 sinnum á sólar-
hring. Síöan væra enn fleiri svokall-
aöar veðurfarsstöðvar sem sendu
upplýsingar þangaö og þannig væri
hægt að fylgjast með veðurbreyting-
umá landinu.
Fyrir utan þetta bærast svo
upplýsingar til Veðurstofunnar frá
skipum og stöðvum á Noröur-
Atlantshafi eins og frá norö-austur
rikjum Bandaríkjanna, Kanada,
Grænlandi og síöan frá allri Vestur-
Evrópu — allt frá nyrsta hluta
Noregs til syösta hluta Spánar.
Veöurstofan fengi veðurlýsingu frá
mun stærra svæði en notað væri í
veöurlýsingum hér. Væri þaö til
dæmis veður- og hitastig í ýmsum
stórborgum og ferðamannastööum
þar sem veöurathugunarstöðvar
væra í næsta nágrenni. Þetta efni
fengju þeir f jölmiðlar sem þess ósk-
uðu enda hefði þaö sýnt sig aö fólk
viidi fá fréttir um veður á hinum
ýmsu stööum á landinu og úti í hin-
umstóraheimi. -klp
Frímerkjauppboð íMálmey:
FJÓRBLOKKIN SELDIST EKKI
Islenska 40 aura fjórblokkin seldist
ekki á frímerkjauppboði hjá Beng(i
Lilja í Málmey í Svíþjóö um helgina.
Enginn var reiöubúinn til að greið^'460
þúsund sænskar krónur, sem var Iág-
marksboö, í þessi verömætu frímerki.
Kaupandi heföi meö kostnaði þurft aö
greiöa sem samsvarar 600 þúsund
krónum íslenskum.
40 aura frímerkin vora prentuö
Frá Jóni Sigurðssyni, fréttaritara DV í
Kelduhverfi:
Laxaslátrun er nú hafin hjá ISNO í
Kelduhverfi og verður 60 tonnum af
laxi slátraö í þessum mánuöi en af-
ganginum, um 100—120 tonnum, verö-
ur síöan slátraö í júní.
Laxinn er seldur á erlendan markaö
en ekki er vitaö nákvæmlega til hvaða
skömmu fyrir aldamótin síöustu, áriö
1898, en voru aldrei gefin út. Þau fóra
þó í notkun meö yfirprentun ,,í gildi”
áriö 1902. á -
Frímerki án yfirprentunar voru til í
vörslu Póststjórnarinnar íslensku en
hurfu þaöan. Ur varö sakamál og voru
nokkrir menn dæmdir fyrir, þjófnaö í
kringum árið 1960. Hluti stolnu merkj-
anna gengur kaupum og sölum á hin-
lands hann fer. Héöan fer hann til sölu-
fyrirtækis þess í Noregi sem á hlut í
ISNO og sér þaö um aö koma honum
áfram á erlenda markaöi.
Laxinum er slátraö og gert að hon-
um hér á staðnum en síðan er hann
keyrður til Kópaskers til frystingar og
pökkunar.
-FRI
um alþjóölega frímerkjamarkaði, þar
á meðal f jórblokkin sem boöin var upp
í Svíþjóö. Aðeins tvær slíkar eru til í
heiminum.
-KMU/SþS.
Tvær 40 aura f jórblokkir eru til í heim ■
inum.
Laxaslátrun hafin hjá ISNO íKelduhverfi:
60 tonn til að byrja með
j dag mælir Dagfari_____________í dag mælir Pagfari í dag mælir Dagfari
Sjálfsmorðssveitir á vélsleðum
Hér á öldum áöur og allt fram á
okkar daga hafa Islendingar lent í
margvíslcgum hrakningum og
svaöilförum í óbyggöum og hálendi.
Til eru margar frásagnir af ferða-
löngum sem hafa komist viö illan
leik til mannabyggöa, hraktir af
kaldri útivist, vosbúð og baráttu við
snjó og trekk. Flestar eru þessar frá-
sagnir í hetjustíl, enda gerði það
enginn að gamni sinu aö leggja á f jöll
í misjöfnum veðrum og um miðjan
vetur. Þar fóru læknar og póstar,
bændur sem sóttu vistir fyrir
afskekkt heimili sín eöa aðrir sem
brýn erindi áttu milli bæja.
Islensk náttúruöfl fóru ekki í
manngreinarálit, né heldur sýndu
neina miskunn gagnvart ferðamönn-
um, enda hefur margur maðurinn
mátt bera bein sin á fjöllum uppi
ofurliði borinn af kulda, snjóstormi
og blindri leit að skjóli og skýli.
Með bættum samgöngum, betri út-
búnaöi og meiri vitneskju um veður-
far og aðstæöur allar, hcfur mann-
skööum fækkað í óbyggðum uppi.
Helst hafa þaö verið villuráfandi
útlcndingar, rjúpnaskyttur og stöku
ævintýramaður, sem hafa týnst og
tapast þegar þeir í óvitaskap hafa
boðið islenskri veðráttu byrginn.
Mörgum mannslifum hefur þar að
auki veriö bjargað fyrir tilstilli
hjálparsveita, björgunarleiöangra
og slysavarnasveita, sem með
ærnum kostnaði og fyrirhöfn, hafa
leitað uppi örmagna ferðalanga við
misjöfn skilyrði.
Hefur mátt ætla að Islendingar
sjálfir væru reynslunni ríkari af
slikum uppákomum og leggðu ekki í
óbyggðaferðir að nauðsynjalausu,
nema þá i þeim ásetningi að drepa
sig að yfirlögðu ráði. Sjálfsmorðstil-
raunir af því tagi ætti hinsvegar að
tilkynna fyrirfram, svo her manna
sé ekki að ieggja sjálfan sig í lífs-
hættu við leit að þeim, sem á annað
borð hafa ekki áhuga á að finnast.
En það er engu Hkara en að Islend-
ingar hafi af því einhverja nautn að
bjóða náttúruöflum og veðurguðum
byrginn. Þessi árátta virðist sömu
tegundar og skemmtanir á borð við
kvenmannsleit á dansleikjum, þar
sem menn fara af stað upp á von og
óvon og láta skeika að sköpuðu
hvemig fer.
Um helgina var auglýst, að vél-
sieðaeigendur boðuðu til stofnfundar
í sporti sínu uppi i Nýjadal, sem er
nokkurn veginn á miðju hálendinu.
Eins og kunnugt er, eru vélsleöar
nýjasta leikfang þeirra sem eru i
vandræðum með peningana sína og
hafa gaman af því að þeysast um í
skíðalöndum án þess að hafa fyrir
því. Hefur enginn amast sérstaklega
við þessum sportidiotum, enda ekki
til þess vitað, að slcðarnir væru
keyptir i þeim tilgangi að fara sér að
voða á.
Þegar vélsleöaeigendur ákváðu aö
efna til fundahalda á nákvæmlega
þeim stað á landinu, þar sem lík-
legast er að menn verði úti var hins-
vegar ljóst, að ný sjálfsmorðssvcit
var komin til sögunnar.
Þurfti engan spcking til aö gera
því skóna, að ævintýramcnnska af
þessu tagi snerist upp í harmleik og
neyðarútköll áður en helgin væri öll, ’
enda stóðst þaö á endum, að ekki
höfðu fundarmenn fyrr yfirgefið sinn
grátbroslega fundarstað, en leit var
hafin að týndum vélsleðum og öku-
mönnum þeirra.
Sem betur fer eru þeir allir komnir
i leitirnar, en það er ekki þeim að
þakka, og það eru heldur ekki þeirra
peningar eða fyrirhöfn, sem aðrir
hafa mátt gjalda til að bjarga þeim
til byggða. Ennfremur skal á það
bent, að ef menn eru á annað borð í
sjálfsmorðshugleiðingum, og vilja
ieika hetjur í leiðinni, þá má gcra
það með öðrum og ódýrari hætti en
með fundahöldum á vélsleðum.
Dagfari.