Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1984, Page 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. APRlL 1984.
13
Fáf róðir eiga ekki að spyrja
Utsala á svínakjöti gengur vel. Hjá
einum kaupmanni hér í bæ lágu fyrir
200 stórpantanir einn daginn. Enda
er verö á til dæmis svínalundum,
óniöurgreiddum, komiö niöur fyrir
verö á lambalundum, niöurgreidd-
um. Spá ársins, sem gott er fyrir
neytendur aö fá aö heyra, er aö
þegar svínakjötsútsölunni lýkur taki
viö útsala á kjúklingakjöti. Reyndar
hefur verö á kjúklingum verið hiö
sama í um það bil eitt ár, sem telst
útsala,ekkisatt?
Þá kemur rööin aö nautakjötinu.
Utsala veröur á því aö lokinni
kjúklingaútsölunni. Og þá kemur
stærsta útsalan af öllum, dilkakjöts-
útsalan. Og samkvæmt útliti og
niöurstöðum spámanna veröur þaö
kjöt einlitt. Það er gott fyrir
neytendur aö vita hvaö framtíðin ber.
í skauti sínu og hvernig á aö raöa í
frystikistumar. Og hvaö á að boröa á
hverjumtíma.
Raunvirði
dilkakjötsins
Kjötbirgðir í landinu eru taldar
vera í dag um 5 þúsund tonn, mest af
kindakjöti. En þegar kemur aö útsöl-
unni stóru á dilkakjötinu er ekki víst
aö viö getum torgaö því öllu. En þaö
er í lagi því til er nokkuð sem heitir
útflutningsbætur á fjárlögum. Ef út-
lendingar vilja kaupa dálítinn
skammt af kjöti frá okkur greiðum
við fúslega með kjötinu til þeirra
einar litlar 280 milljónir króna á
þessu ári. En áður en aö útflutnings-
bótunum kemur greiöum viö fyrst
niöurgreiöslur, 25,06 kr. á hvert
einasta dilkakjötskiló. Tekiö skal
fram aö framleiðsluverð til heildsala
á 1. flokks dilkakjöti er 110,18 kr. pr.
kg, þar af fær bóndinn 102,04 kr. Eitt
kíló af dilkakjöti kostar því 135,24
Kjallarinn
ÞORUIMN
GESTSDÓTTIR
BLAÐAMAÐUR
„Þá getur útflytjandi greitt hópi fólks laun, byggt geymslur yfir kjötið,
pakkað því inn i umbúðir sem
A „En þegar kemur að útsölunni stóru á
^ dilkakjötinu er ekki víst að við getum
torgað því öllu.”
auka hróður okkar Islendinga
á meðal annarra þjóða. "
krónur. Þaö er raunvirði á óniöur-
greiddu kjöti. Meö smátalnaleik er
fast verö á kjötinu í heilum
skrokkum til kaupmannsins 121,45
krónur, niöursagaö fer kjötiö í 123,05
krónur. Kilóverö af lambalæri út úr
verslun er um 185 krónur, nokkuð
breytilegt verö reyndar á kílóverði á
læri eftir- aö frjáls álagning var
heimiluö á kjötinu. A meöan fast
verö var á dilkakjöti var sama verð á
til dæmis lærum og hryggjum en nú
fer veröiö eftir framboöi og eftir-
spurn. Meiri eftirspurn er eftir
lærum og því eru þau dýrari en
hryggir í sumum verslunum. Þetta
snýr aö okkur neytendum hér.
Neytendur annarra
landa komast
á bragðið
Viö skulum snúa okkur aö
neytendum í öörum löndum sem eru
svo elskulegir aö vilja losa okkur viö
umframframleiðsluna á dilkakjöti.
Þeir í Ameríkunni eru aö komast á
bragðið, fengu nýlega dágóöan slatta
af kjöti frá okkur á 52 krónur kílóiö.
Mjög gott verö, segja útflytjendur,
enda voru bitarnir valdir ofan i þá,
bara læri, hryggir og frampartar.
Slögin getum viö notaö í rúllupylsu,
enda þjóölegur matur.
Nú hugsar einhver fáfróöur. Hvers
vegna greiða skattgreiöendur rúmar
80 krónur úr sínum vasa til aö fylla
maga þeirra í Ameríkunni eöa ann-
arra sem vilja boröa kjötið okkar?
Þarna kemur sá hinn sami illa upp
um sig og sína fáfræöi. Þetta er
þjóðhagslega hagkvæmt.
Þaö er hagkvæmt aö greiða 2
prósent af óniöurgreiddu dilkakjöt-
inu til útflytjenda af skattpeningun-
um. Þá getur útflytjandi greitt hópi
fólks laun, byggt geymslur yfir kjöt-
iö, pakkaö því inn í umbúðir sem
auka hróður okkar Islendmga á
meöal annarra þjóöa. Byggt
geymslur, já, og fengið geymslu-
gjald fyrir aö geyma kjötiö. Nú, svo
er auövitað sláturkostnaöurinn sem
er um 30 krónur af hverju kílói.
Vinna fyrir þá í sláturhúsinu;
auövjtaö. Flutnmgskostnaöur,
tryggingar og allt sem fylgir útflutn-
ingi er tekjuaukandi fyrir þjóöarbú-
ið.
Gat í stjórnkerfinu?
Þetta skýrir sig allt sjálft og óþarfi
fyrir fáfróöa að spyrja meira.
Nokkrar krónur fara í aö reikna
dæmiö endanlega upp. Og ekki
spyrja iivers vegna Norömenn
hagnast af því aö kaupa niðurgreitt
útflutningsbótakjötiö okkar og selja
þaötil Japana.
Viö gefum ekki upp fávisku okkar
meö því aö spyrja. Viö vitum aö
niöurgreiöslur landbúnaðarafuröa
eru hagstjórnartæki stjórnvalda.
Þeir hugsa um hag okkar, stýra
neyslunni á þennan hátt og annan.
Og þó. Svínakjöt og kjúklingakjöt
eru ekki niöurgreiddar framleiöslu-
vörur. Viö þurfum sem sagt ekki aö
greiða undir boröiö úr skattabaukn-
um áöur en viö kaupum svína- og
kjúklingakjöt í búöinni. Þetta hlýtur
aö vera gat í stjórnkerfinu.
Áhrif nýju húsnæðislaganna síðasta ár sem ríkisstjórn dr. Gunnars sat að völdum
18,5% aukning íbúðabygginga
Sl. sumar skrifaöi ég grein í þetta
dagblaö þar sem ég geröi grein fyrir
þróun húsnæöismála á árinu 1981
Þar kom fram hvemig húsnæðismál
þróuöust á fyrsta ári hinnar nýju
húsnæðislaga. Hér var um aö ræöa
yfirlitsgrein sem byggðist á skýrslu
Húsnæðisstofnunarinnar frá sl.
sumri. Nú hefur komiö út frá
Húsnæðisstofnun skýrsla um þróun
mála frá árinu 1982, en þaö er annað
áriö sem nýju lögin voru í gildi, og í
þeirri skýrslu kemur því enn betur
fram hvernig þau lög reyndust og
hvernig þau voru framkvæmd undir
forystu þáverandi stjórnar Hús-
næðisstofnunar ríkisins en formaöur
hennar var Olafur Jónsson. Hér
veröa rakin nokkur meginatriöi
þessarar nýju skýrslu.
Tilgangur þessara greina er sá aö
ljóst megi verða hvernig húsnæöis-
málum var stjórnað í tíö ríkisstjórn-
ar Gunnars Thoroddsen. Nauðsyn
greinanna er augljós því aö í raun
málaflokkum hefur veriö þyrlað upp
eins miklu magni ósanninda og í hús-
næðismálum og er þá langt til jafnaö1
aö því núverandi ríkisstjóm hefur;
í raun lifaö á því einu aö dreifa:
óhróðri um ríkisstjóm Gunnars
Thoroddsen á öllum sviöum. Verður
fróölegt aö sjá hversu lengi ein ríkis-
stjórn getur lifaö á því einu aö neyta
yfirburða í áróöursaöstöðu á þennan
hátt án þess í rauninni aö leggja neitt
til sjálf nema aö láta alþýðuheimilin
borga niður veröbólguna meö kaup-
lækkun.
Var samdráttur 1982?
Því er haldið fram að samdráttur
hafi orðið í húsbyggingum og íbúöa-
framleiöslu 1982. Hvaö er hæft í því?
Um það segir skýrslan: „Heildar-
fjöldi veittra íbúðalána Byggingar-
sjóðs ríkisins áriö 1982 var 4215. Veitt
lán sjóöins 1981 voru 3949 þannig
að fjöldi veittra lána jókst um
6,7%. ” Hér liggja staöreyndirnar
fyrir, en var þá samdráttur í lánum
út á nýjar íbúöir? Svar skýrslunnar
er: „Nýbyggiiigarláiium fjölgaöi um
10,3% (eftir 35,6% samdrátt 1980-
1981), úr 1072 lánum árið 1981 í 1182
lán árið 1982.” Einnig hér er vitnis-
buröurinn skýr í hinni opinberu
skýrslu, þ.e. aö nýju lögin réttu viö
þróun á íbúöamarkaðnum í landinu
eftir aö raunvaxtastefnan, sem Al-
þýðuflokkurinn knúöi fram 1979,
haföi veitt högg sem hafði orsakað
stórfelldan samdrátt.
„Jókst verulega"
Samkvæmt skýrslunni var það
þetta sem gerðist: „Lánastarfsemi
Byggingasjóös verkamanna jókst
verulega á árinu 1982. Samþykktum
nýbyggingarlánum til bygginga á
vegum stjórna verkamannabústaða
víðsvegar um landiö fjölgaði um
12,2%, úr 336 lánum áriö 1982 í 377 lán
áriö 1983. Samþykkt lán vegna
endursölu eldri íbúða í verkamanna-
bústööum voru 177 áriö 1982 (176
1981). 1 árslok 1982 voru 423 íbúðir í
verkamannabústöðum í byggingu,
samanborið við 269 íbúðir í árslok
1981.”
SvavarGestsson
Hvaða
samdráttur?
I skýrslunni kemur fram: „A árinu
voru nýbyggðar íbúðir 18,5% fleiri
en árið 1981.” Og ennfremur: „1 yfir-
liti Seölabanka Islands (Arsskýrsla
1982, bls. 45) kemur fram að af nýj-
um útlánum fjárfestingarlána-
sjóöanna hækka íbúðarlán mest
1982 eða um 71% ... Viðvíkjandi
heildarfjármögnun húsnæöismála á
árinu 1982 viröist lánsfjármagn hafa
dregist saman sé miöaö viö 1981, en
þá voru útián mikiu meiri en áður.
Þessi samdráttur á fyrst og fremst
rætur að rekja til minni útlána hjá
lifeyrissjóðum og inniánsstofnunum.
Samanlögö útlán Byggingarsjóös
ríkisins og Byggingarsjóðs verka-
manna á árinu 1982 voru 59% meiri
en árið áður. Samsvarandi aukning á
áætluöum lánum h'feyrissjóöa til
sjóðfélaga var 32% og hjá innláns-
stofnuniun nam aukningin 28%.”
Samdráttur varö því annars staðar
en hjá opinberu sjóöunum. Sér-
' staklega kemur samdrátturinn fram
hjá bönkunum. Ástæðan fyrir sam-
drætti í húsbyggingum felst því ekki í
■skertri starfsemi byggingar-
sjóöanna heldur í minnkandi eftir-
spum eftir lánum og í því aö fjár-
magnskostnaður haföi hækkaö
stórum. Verkamannabústaðirnir og
efling þeirra var því brýn nauösyn og
eina leiöin til aö vega upp á móti
samdrætti.
Minni eftirspurn — lægri
lán
Ibúöalán hfeyrissjóöanna hækk-
uöu ekki í hlutfahi viö verölags-
þróun milli áranna 1981 og 1982, en
ráðstöfunar.fé sjóöanna hækkaöi
heldur ekki um nema 40% mhh ár-
anna. I skýrslunni segir: „Miðaö viö
þær tölur sem hér er stuöst viö má
ætla aö sjóðfélagalán á árinu 1982
hafi dregist saman um 20% aö
raungildi samanboriö 1981.” Þá
segir í skýrslunni aö skuldabréfa-
kaup Ufeyrissjóöanna sem hlutfall af
ráðstöfunarfé hafi dregist saman
miUi áranna, því hlutfallið var
aðeins 35% 1982 en 36% árið áður.
Telur skýrsluhöfundur að raungildi
skuldabréfanna hafi dregist saman
um 7,7% mUIi áranna.
Sami samdráttur er i lánum
bankanna, eöa eins og segir:
„Athyglisvert er, að hlutfall íbúða-
lána af heildarútlánum innláns-
stofnana var aðeins 7,8% árið 1982,
en næstu 3 árin á undan var hlutf allið
að mcðaltali 14%.” Það var því út-
lánastefna banka og lífeyrissjóða
sem oUi samdrætti lána auk minni
eftirspurnar en áöur.
Aukning eftir samdráttar-
skeið
Þaö er athyglisvert sem fram
kemur aö 51% aUs húsnæöis á Islandi
hefur risið eftir 1960. Árin 1972 til
1980 bættust viö nær 10 íbúöir fyrir
hverja 1000 Islendinga. Eftir aö
raunvaxtastefnan fór aö hafa áhrif
varö samdráttur í íbúöabyggingum,
en áriö 1982 snerist þetta viö þegar
áhrifa nýju húsnæöislánalaganna fór
aö gæta: „Áriö 1982 átti sér staö viss
aukning nýbygginga eftir þriggja
ára samdráttarskeiö í fjölda þeirra
íbúöa, sem lokið var viö. MiUi ár-
anna 1978 og 1981 varö 27,6% sam-
dráttur í fjölda hafinna nýsmíða.
Fjöldi nýsmíöa sem byrjað var á
áriö 1982 nam 1829 íbúðum, sem er
11% aukning frá 1981. Samkvæmt
bráðabirgðatölum var lokiö við 1924
íbúðir árið 1982 sem er 18,5%
aukning í samanburði við áriö 1981.”
Meö öörum orðum: Samdráttur
áranna á undan vannst upp á árinu
1982. Þaö var einmitt aöfaraár kosn-
inganna þegar því var haldið fram
aö húsnæöislánakerfiö væri i rústum.
I seinni grein minni um húsnæðis-
mál, sem birtist síöar, segir frá
þeirri þróun aö íbúðir hafa fariö
stækkandi og hvernig staöa Byggrng-
arsjóös verkamanna gerbreyttist
1980 tU hins betra. Utlán sjóösins
margfölduöust á stjórnartímabiU
síöustu ríkisstjórnar.
„Verður fróðlegt að sjá hversu lengi ein
ríkisstjórn getur lifað á því einu að neyta
yfirburða í áróðursaðstöðu á þennan hátt án
þess í rauninni að leggja neitt til sjálf nema að
láta alþýðuheimilin borga niður verðbólguna
með kauplækkun.”