Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1984, Side 35
35
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. APRtL 1984.
TOLVUR - TOLVUR - TOLVUR - TOLVUR
„KONURENNÞÁ
í MEIRIHLUTA”
— segir Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen sem hefur kennt
„Er með frásögn
af rifrildi í þinginu"
— rætt við Vilborgu Norðdahl, 26 ára konu úr Keflavík,
á ritvinnslunámskeiði hjá St jórnunarf élaginu
ritvinnslu á þriðja ár í St jórnunarskólanum
Ragna S. Guðjohnsen, kennari á ritvinnslunámskeiðum Stjórnunarféiags-
ins. „Það er nokkuð um að husmæður komi hingað. Þær koma til að öðl-
ast starfsmenntun og geta þar afleiðandi frekar fengið vinnu á eftir."
Vilborg hlordahl, 26 ára skrifstofustúlka hjá bæjarfógetanum i Keflavik.
á að fara á þetta námskeið."
, Það var yfirmaður minn sem benti mér
D V-mynd Bjarnleifur Bjarnleifsson
„Það er fólk á öllum aldri sem
kemur hingað, bæði konur og karlar,
,en ennþá eru konur í meirihluta, sagði
Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen,-
'kennari á ritvinnslunámskeiðum
Stjórnunarfélagsins.
Námskeiðin eru góð byrjendanám-
skeiö. Það hefst á því aö viðkomandi
fær diskettu sem hefur að geyma rit-
vinnsluforritið. Síöan er bara sest fyrir
framan „herlegheitin”, diskettunni
stungiö á sinn stað í tölvuna og þá er
allt orðiðklárt.
Textinn er síðan „pikkaður” inn á
tölvuna, sem sér um uppsetningu hans
eftir ákveðinni forskrift. „Ég hef til
skamms tíma kennt hér þrjú rit-
vinnslukerfi en nú kenni ég tvö. ”
Ragna sagði ennfremur að á milli 15
og 20 ritvinnslukerfi væru komin með
íslenskan texta. Meö námskeiðinu ætti
fólk að geta áttaö sig á þessum kerfum
og því væri auðveldara með vai á rit-
vinnslukerfi.
— Koma margar húsmæður á
námskeiðið?
„Já, það er nokkuö um það. Þær
koma þá til aö öðlast starfsmenntun og
geta þar af leiðandi frekar fengið
vinnu á eftir. Það er farið aö spyrja í
atvinnuumsóknum um það, hvort fólk
hafi komiö nálægt tölvum. ”
— Hefurðu eingöngu verið með þessi
námskeið í Reykjavík?
„Nei, ég hef farið út á land með þau.
Og þaö er greinilegt, að þau njóta
sömu vinsælda þar og í bænum. ”
— Og aðsóknin er ekkert að
minnka?
,,Nei, nei. Nú er komið á þriðja ár,
sem ég hef kennt hér, og aðsóknin er
alltaf að aukast. Og á örugglega eftir
aðaukastmeira.” -JGH
Ragna aðstoðar hér einn nemanda sinn á námskeiðinu. Þess má geta að
ritvinnslukerfiþað sem kennt var heitir Wordstar.
DV-myndir Bjarnleifur Bjarnleifsson.
tsai
Þaö verdur „stutt " til London frá Reykja■
vik, Stykkishólmi, Isafirði, Blönduósi.
Akureyri, Egilsstóðum og Hvolsvelli
þegar nýja, almenna tö/vunet Pósts og
sima verður komið i gagnið um mitt
næsta ár.
„Það var yfirmaður minn sem benti
mér á að fara á þetta ^ámskeið. Hann
sagði viö ftiig að méð námskeiöinu
opnuöust ákvéðnir möguleikar og því
væri sniöugt fyrir mig að sækja það. ”
A þessa leið svaraði hún Vilborg
Norðdahl, 26 ára skrifstofustúlka hjá
bæjarfógetanum í Keflavík, okkur er
við litum inn á ritvinnslunámskeið hjá
Stjórnunarfélaginu. Við höfðum spurt
Vilborgu hvers vegna hún heföi tekið
sig til og farið í höfuðborgarferð til að
fara á tölvunámskeið.
Vilborg hefur unnið hjá bæjarfógeta-
embættinu í Keflavík í rúmlega þrjú
ár. Hún sagði okkur aö þetta væri
fyrsta tölvunámskeiðið sem hún sækti.
— Ertu hrædd við tölvur?
„Nei, það er ég ekki. Eg held að það
sé engin ástæða til þess.”
— Heldurðu að fólk sé almennt hrætt
við að setjast fyrir framan tölvuna og
tölvuskjáinn og byrja að ýta á takkana
á lyklaborðinu?
„Eg er ekki viss um hvort það er
hræðsla. Hins vegar held ég að fólk ótt-
ist að skemma eitthvað ef þaö kemur
við takkana. Jafnvel að það eyðileggi
forritin eða eitthvað í þeim dúr.”
— Ertu orðin tölvufrík eftir þetta
námskeið?
„Ekki get ég sagt þaö. Áhuginn
hefur þó greinilega aukist á tölvum í
kjölfar þess aö maður veit aðeins
meira hvað tölvan getur gert.”
— Og hvaða texti er þetta sem þið
æfið ykkur í?
„Eg er hér með frásögn eins dag-
blaðsins af rifrildi í þinginu. Það er
hressilegur texti, sem mér sýnist
tölvan kunna alveg ágætlega að
meta.”
-JGH
Verðlækkun!
og það á íslandi!
—tölvur hafa lækkað í verði um tugþúsundir króna
á síðastliðnum'tveimur mánuðum
Borgar sig fy rir mig aö kaupa tölvu í
dag? Tapa ég ekki viö þaö því á
morgun verður tölvan orðin tugþús-
undum ódýrari? Svo er komið að ís-
lenski tölvumarkaöurinn býður upp á
slíkan þankagang.
Tökum dæmi um Neck-tölvuna, sem
Benco er með umboð fyrir. I lok janúar
kostaði Neck APC um 106 þúsund. 1.
febrúar lækkaði hún í 85.500 og 1. apríl
fór hún niður í 69.900 kr. Lækkunin
nam um 36.000 kr. á um tveimur
mánuðum.
Þess skal getið að lækkunin 1.
febrúar er til komin vegna þess að fjár-
málaráðuneytið afnam tolla og sölu-
skatt á sjálfvirkum gagnavinnslu-
vélum.
Lítum á aðra tegund af Neck, einnig
APC-gerð. 1 lokjanúar kostaði hún um
142.000 kr. (með litaskerm). 1. apríl
var hún komin í 99.900 kr. Lækkun um
42.000 krónur.
En hvers vegna verölækkun frá
verksmiðjunum? Guðmundur Hólm-
steinsson, sölustjóri hjá Benco: „Við
kaupum tölvurnar í gegnum London.
Okkur fannst verðið vera örlítiö í hærri
kantinum. Við gáfum því þeim úti upp
verðin hjá samkeppnisaðilum okkar
hér. I k jölfarið f engum við lækkun.”
Tökum annaö dæmi, IBM PC. I lok
janúarkostaðihún um 134.000 kr. Við
tolllækkunina fór hún niður í um
101.000 krónur. Verksmiðjulækkun
kom svo í mars. Nú kostar hún um
77.340 kr.
Ovenjulegt að heyra um verðlækkan-
irálslandi,ekkisatt? -JGH