Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Qupperneq 7
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1986 7 Einka- fram- taMð blómstrar Eftir að hin nýja efnahags- stefna Dengs Xiaoping fór að gera vart við sig hefur einkaframtakið aftur feng- ið að blómstra í Kína. Einkaframtak í smáat- vinnurekstri. Og í fyrsta sinn í mörg ár hafa ferða- menn í Kína rekist á vænd- iskonur á götum úti, stúlk- ur sem bjóða blíðu sína gegn gjaldi. Þessar stúlkur leggja helst net sín fyrir útlendinga - í von um að komast yfir hærra gjald með því móti og erlenda mynt. Þegar erlendir frétta- menn hafa spurt talsmenn kommúnistafiokksins um þessa nýju hlið á einka- framtakinu hafa þeir farið undan í flæmingi enda fátt sem þeim þykir meira niðurlægjandi um að tala en kínverskar stúlkur sem lentar eru á götunni - el- legar farnar af einskærri tækifærismennsku að selja sig á stóru hótelunum i Shanghai og Peking. Aldraður félagi í flokkn- um og meðlimur í Polit- buro, hinni valdamiklu miðstjórn, Chen Yun að nafni, sagði í samtali við fréttamann að fjölmargir í Kína væru varkárir í af- stöðu sinni til efnahags- stefnu Dengs. Og reyndar var það þessi Chen Yun sem fyrstur vakti máls á því í haust sem leið. „Við höfum orðið vör við ýmislegt ljótt og niður- lægjandi - svo sem vændi kvenna og sölu á klám- myndum á myndböndum. Okkar land er ekki eins og ýmis önnur lönd,“ sagðu Chen Yun. „Við teljum að vændi sé siðlaust.“ Þegar fréttamaður ræddi við hótelstjóra í Peking neitaði hann því alfarið að vændi færðist í vöxt í Kína. „En,“ sagði sá góði maður „við erum hér með fáeinar stúlkur ef þig skyldi vanta.“ Þær kínversku stúlkur,. sem láta blekkjast til vændis, lenda í vondum málum ef lögreglan stend- ur þær að verki og hand- tekur. Því þótt þær hafi starfað með samþykki hót- elstjórnar einhvers af hin- um stærri hótelum, þar sem útlendingar búa, þá stendur hótelstjórnin ófrá- víkjanlega með lögregl- unni ef svínaríið kemst upp. Vændið hefur lítið verið rætt af opinberri hálfu. Hið opinbera málgagn, „Shanghai Law“, kom þó inn á málið í nóvember í haust. Þar var það viður- kennt að vændi væri að verða vandamál í landa- mæraborgum Kína og við ströndina. „Vændiskonur eru ekki margar,“ sagði blaðið. „En þær munu hafa slæm áhrif á siðgæðisvit- und fólksins og eitra út frá sér. Þess vegna þarf að setja sérstök lög til að hamla gegn vændi.“ Graham Eamshaw/Reuter OPIÐUM HELGINA EINS OG VENJULEGA Notið tækifæriö að skoða glæsileg húsgögn í glæsilegu umhverfi. LaugardagkL 9-17 SunnudagkL 14-17 TM-HUSGOGN Síöumúla 30, sími 68-68-22 jf Sparneytinn jr Lipur jf Traustur jf Rúmgóður jf Ódýr jf Spennandi Hjá okkur er fjölbreytnin mest og kjörin best Munið bílasýningar okkar laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 NISSAN CHERRY Tökum flesta notaða bíla upp í nýja. ||| INGVAR HELGASON HF ■ ■■ Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.