Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1986, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1986, Blaðsíða 19
DV. MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1986. 19 Menning Menning Menning Menning Tónleikar Dave Brubecks - Stórvið- burður í jasssógu íslands Dave Brubeck. LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK Tónleikar Dave Brubecks kvartettsins i veitingahúsinu Broadway 8. júni. Dave Brubeck hefur löngum verið kallaður menntamaðurinn í jassin- um. Liklega er hann frægasti nemandi Dariusar Milhauds fyrr og síðar. Hann var upphafsmaður jass- smiðjunnar (jázz workshop) og boðberi margra nýjunga í jassi. Ann- ars segir Jón Múli kjamann úr sögunni af Dave Brubeck í bók sinni Djass. „Kvartettinn varð vinsælasta djasssveit Ameríku, einatt á hljóm- leikaferðum út um allt land og önnur lönd á næstu árum. Músíkin var oft á háu djassplani en allt að einu létt og aðgengileg." Lýsing Jóns Múla gæti allt að einu átt við Kvartett Dave Brubecks eins og hann er nú, en vitanlega átti hann við gamla kvartettinn marg- fræga sem stofriaður var 1951 og lék eins skipaður óralengi, að minnsta kosti á aldursmælikvarða jasssveita. Þann kvartett skipuðu auk höíúð- paursins Paul Desmond, sem Múli kallar „einhvem ljóðrænasta og lag- vísasta saxófónista í öllum djassi", Jo Morello á trommur og Eugene Wright á bassa. Sá kvartett hafði geysileg áhrif á tónsmekk þess fólks sem nú er á milli fertugs og fimm- tugs og ég þekki ótal dæmi þess að fólk hafi hneigst til jassáhuga við að heyra þann prísaða og sæla kvartett. Að glíma við goðsögn Það kann því að hafa verið spenna hjá mörgum að vita hvort goðsögnin væri lifandi enn en aldurshópurinn, sem ég gat um, fjölmennti á tónleik- ana í Broadway. Og goðsögnin lifir jafhfersk og blíðóma sem fyrr. Dave Bmbeck er nákvæmlega jafnkúltf- veraður tónlistarmaður og hann hefúr alltaf verið. Ef nokkuð er, þá er meira bit í karli en forðum. Með sér hafði hann úrvalslið. Einn sona sinna á bassa og ekki er hann ætt- leri, pilturinn sá. Randy Jones sá um slagverkið - ömggur maður og lif- andi í sínu starfi. Að Desmond gengnum hlýtur að hafa verið erfitt að koma sem blásari inn í Dave Brubeck kvartettinn. En snillingur- inn, sem lék með Brubeck þetta kvöldið, gerði meira en að fylla upp í ímyndað skarð eftir goðsögn. Hann fór á kostum. Blés jafnt á saxófóna sem flautu og bar þó snilli hans á flautuna af. Glefsustíll Efhisskráin spannaði vítt. Byrjun- arlagið var eitt virðulegasta og þekktasta lag jasssögunnar, Saint Louis Blues, og síðan var keyrt á eigin ópusum og annarra í nærri þrjá tíma. Kenndi í lagavalinu margra grasa og stundum viðhafður glefsustíll þannig að hlaupið var úr einu laginu í annað. Þannig leystist C Jam Blues upp í Don’t Get Around Much Anymore og guð má vita hvað. Tónlist Eyjólfur Melsted Það einkenndi þó glefsustílinn hjá þeim félögum, en hann getur einatt verið ófrumlegur og leiðigjam, að vera frumlega og hnökralaust saman settur. Þannig spila einungis sannir meistarar. Að lokum, eftir að áhey- rendur vom búnir að fá Kathys Waltz, Blue Rondo, Take Five og allt hitt gaf meistarinn til kynna að nóg væri komið með því að sveifla léttilega Show Me The Way to Go Home. Þetta var stórviðburður í jasssögu íslands. Einkar ánægjulegt var að finna að tekið var mark á því sem kallað var skítkast. Tónleikamir hófust aðeins fjórtán mínútum eftir aug- lýstan tíma. Reykingar vom bann- aðar meðan á leiknum stóð, ekki varð vart skarkala úr eldhúsi og salemi vom lokuð svo rafdrifnar handþurrkur hvæstu ekki í kapp við músíkina. Hverjum sem þakka ber skal hér með þakkað fyrir framför. -EM Bráðþroska, smekk- vís og snjall USTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK. Tónleikar Tomas Landers og Jan Eyron i Gamla biói 8. júní. Á efnisskrá: Ljóðsöngvar eftir: Robert Schumann, Gabriel Fauré, Richard Strauss og Ottorino Respighi. Tomas Lander telja margir eina stærstu stjömu framtíðarinnar í sænsku sönglífi. En hingað var hann nú kominn á Listahátíð svo að menn gátu dæmt af eigin raun hversu efhi- legur pilturinn væri. Reyndar var tekið fram fyrir tónleikana að hann gengi ekki heill til skógar. Kannski beitti hann sér minna en ella fyrir vik- ið, en annars held ég ekki að menn hafi greint neinn krankleika í söng hans. Vel saman sett Á fyrri hluta tónleikanna vom ein- göngu söngvar eftir Schumann. Hafi Tomas Lander sett efnisskrána saman á eigin spýtur lýsir það óvenju miklum þroska hjá svo ungum manni. Hafi hann þegið góð ráð við gerð hennar sýnir það að hann kann vel ráð að þiggja. En þroski hins unga söngvara birtist í fleiru en uppröðun efhisskrár. Tónlist Eyjólfur Melsted Öryggi hans í túlkun er frábært. Hún einkennist af skýrum textaframburði, klárri beitingu raddarinnar og hrein- um tóni. Slíkt er ekki einungis að þakka góðri skólun, heldur einnig meðfæddri eða ræktaðri smekkvísi, og rétt sama af hvorri gerðinni hún er. Meðferð þeirra félaga á söngvum Faurés, Richards Strauss og Respighis var alveg á sömu bókina lærð, einstak- lega smekkvís, vönduð og falleg. Reyndar ber að geta sérstaklega ein- stakrar meðferðar á Strauss söngvun- um. Oft heyrir maður söngvara byrja á Standchen (opus 17 nr. 2) með tölu- verðum þjósti. Kannski finnst þeim textinn, Wach auf, wach auf, gefa til- efni til þess. En hér var einstaklega blítt af stað farið - þó án þess að nokk- urs missti í snerpu. Hinn fullkomni þjónn Jan Eyron þekkjum við að góðu. Hann hefur komið hingað áður og þjónað söngvurum með sínum ein- staka leik. Mér finnst hann jafnan vera í hlutverki hins fullkomna þjóns. Hann hvetur þar sem þess er þörf, dregur sig í hlé þegar söngvarinn á að fá að blakta og mótar stílinn að því er virðist í fullkominni samvinnu við söngvarann, en þó er hans eigin stíll í meðleiknum fastmótaður og auð- þekktur. Þegar tveir svo góðir leggja saman er ekki við öðru en góðu að búast. Tomas Lander er greinilega eitt helsta skrautblómið í kröftugri raddrækt Svía um þessar mundir. -EM Tomas Lander.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.