Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1987, Page 7
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1987.
7
Fréttir
Fiskveiðistefnan:
Þingmenn varpa fram sprengju
- Frumvarpsdrögum ráðuneytisins verður mikið breytt, segir Karl Steinar Guðnason alþingismaður
Stöðunni í undirbúningi frum-
varps til laga um nýja fiskveiði-
stefnu var gerbreytt með bréfi til
ráðgjafanefndar sjávarútvegsráðu-
neytisins, undirrituðu af 32 alþing-
ismönnum. Þeir leggja til að hætt
verði að mismuna togurum á norð-
ur- og suðursvæði í kvótakerfinu
varðandi þorskveiðar. Þessi þing-
mannahópur hefur meirihluta á
Alþingi og þar mun hann beita sér
fyrir viðamiklum breytingum á
þeim frumvarpsdrögum sem sjáv-
arútvegsráðuneytið hefur þegar
lagt fram um stjórnun fiskveiða.
Undir bréfið skrifa þingmenn
Vesturlands, Reykjavíkur, Reykja-
ness og Suðurlandskjördæmis að
undanskildum ráðherrum úr þess-
um kjördæmum.
„Það er alveg ljóst að þeim frum-
varpsdrögum, sem lögð hafa verið
fram, verður gerbreytt á fleiri svið-
um en þessu sem nefnt er í bréf-
inu,“ sagði Karl Steinar Guðnason
alþingismaður í samtali við DV.
„Ef þessu eina atriði verður
breytt leiðir það af sér enn frekari
breytingar á frumvarpsdrögun-
um,“ sagði Margrét Frímannsdótt-
ir alþingismaður í samtali við DV
um þetta mál.
Það er samdóma álit þeirra al-
þingismanna, sem DV ræddi við í
gær, að fiskveiðistefnan verði
mesta hitamál þessa þings enda er
málið þverpólitískt og spá menn
þar mikilli orrahríð þegar frum-
varpið að stjórnun fiskveiða verður
lagt fram. Sjávarútvegsráðuneytið
er fyrir löngu komið í tímaþröng
með málið og eru menn efins í að
það náist að afgreiöa frumvarpið
fyrir jólafrí þingmanna. Því verði
að framlengja núverandi kerfi þeg-
ar það rennur út um áramót.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, var inntur álits á bréfi
alþingismannanna 32ja en hann
sagðist ekkert vilja um málið segja.
-S.dór
Rekstrargjald af símstöðvum hjá Pósti og síma:
Kaupendur fa
valfrelsi
Póstur og sími hefur innheimt svo-
kallað „rekstrargjald" af símstöðv-
um sem stofnunin hefur selt
fyrirtækjum og nemur rekstrargjald-
ið 1,5% af kaupverði stöðvarinnar.
Er hér um að ræða fyrirfram greitt
viðhald á stöðvunum. Hafa kaupend-
ur símstöðva almennt ekki verið
látnir vita af gjaldtökunni þegar
kaup hafa verið gerð en menn hafa
jafnvel verið látnir greiða rekstrar-
gjaldið fyrsta árið þegar símstöðv-
arnar eru enn í ábyrgð.
Rekstrargjald hefur ekki verið inn-
heimt af öðrum seljendum símstöðva
en Pósti og síma. í samtali við DV
sagði Ólafur Tómasson póst- og síma-
málastjóri að rekstrargjaldið hefði
veriö hugsað sem viðhaldssamning-
ur en fyrir nokkru hefði verið
ákveðið að gefa kaupendum sím-
stöðva valfrelsi um það hvort þeir
greiddu rekstrargjald eða viðgerðar-
kostnað samkvæmt reikningi. Hann
sagði að þessi breyting hefði ekki
komið til framkvæmda enn en tók
fram að vegna fyrirspurna DV yrði
breytingunni þegar í stað hrint í
framkvæmd.
Ólafur sagðist álíta að uppbygging
rekstrargjaldsins væri í eðli sínu
röng þar sem það væri miðað við
kaupverð en það væri breytilegt eftir
tímum. Þá sagði hann að undanfarið
hefðu kaupendur átt þess kost að
velja hvort þeir greiddu rekstrar-
gjald eða ekki en þó aðeins þeir sem
hefðu haft orð á því að fyrra bragði.
Ólafur sagði að nú yrði hins vegar
tilkynnt um valmöguleika í þessu
efni og réðu því menn hvort þeir
greiddu rekstrargjald eða ekki og
þeir sem slíkt gjald hefðu greitt und-
anfarið ættu þess kost að segja upp
þeim samningi.
-ój
Auður Auðuns:
Er ennþá i flokknum
„Eg vil ekki segja annað a þessu
stigi en að ég sagði mig úr Sjálfstæð-
iskvennafélaginu Hvöt en er ennþá í
Sjálfstæðisflokknum," var svar Auð-
ar Auðuns, fyrrverandi ráðherra,
þegar DV innti hana eftir skýringum
á úrsögn hennar.
Eins og greint var frá í gær sagði
Auður sig úr félaginu á aðalfundi í
fyrrakvöld en hún var heiðursfélagi
Hvatar. Samkvæmt heimildum DV
var Auður ósátt við kosningu for-
manns sem búsettur er utan Reykja-
víkur og gerði það að úrslitaatriði.
-HERB
Hvatarhvellurinn:
Linda Ros for líka
Það var ekki einungis Auður Auð-
uns sem sagði sig úr Sjálfstæðis-
kvennafélaginu Hvöt á aðalfundi í
fyrrakvöld. Linda Rós Michaelsdóttir
gerði slíkt hið sama og hverfur þar
með úr stjórn Landssambands sjálf-
stæðiskvenna en þar var hún fulltrúi
Hvatar.
Linda Rós sagði sig úr Hvöt af sömu
ástæðu og Auður Auðuns, vegna
kosningar félagsmanna, sem búa ut-
an Reykjavíkur, í trúnaðarstöður hjá
Hvöt. Hún var í uppstillingarnefnd
vegna stjórnarkjörs og varð ein í
minnihluta um þessa skoðun. Linda
Rós sagði í samtali við DV að eftir
margítrekaöar tilraunir til þess að fá
því framgengt að annaðhvort yrði
farið eftir lögum félagsins um kjör-
dæmisbúsetu félágsmanna eða þá
lögunum breytt, án árangurs, hefði
hún séð sig nauðbeygða til þess að
segja sig úr Hvöt.
-HERB
Rætt um byggðastefnu
Um 200 áhrifamenn í þjóðlífinu,
þeirra á meðal alþingismenn, sveit-
arstjórnarmenn og forstöðumenn
stofnana og fyrirtækja, hafa boðað
komu sína á ráðstefnu um byggða-
mál sem hefst á Selfossi í dag.
Byggðastofnun og Samband ís-
lenskra sveitarfélaga efna til ráð-
stefnunnar, sem lýkur á morgun,
undir heitinu Hefur byggðastefnan
brugðist?
„Undirtektir við boðun ráðstefn-
unnar benda til að tímabært þyki nú,
á fyrsta heila ári kjörtímabils nýrra
sveitarstjórna og í upphafi starfs-
ferils nýrrar ríkisstjórnar, að ræða
byggöamálin að viðstaddri stjórn
Byggðastofnunar og í hópi sveitar-
stjórnarmanna," segir í frétt frá
fundarboðendum.
Fjölmörg framsöguerindi verða
flutt um þá þætti stjórnsýslu, at-
vinnu-, menningar- og ijármála, sem
líklegastir þykja til þess að hafa áhrif
á búsetu í landinu. Þorsteinn Pálsson
forsætisráðherra mun gera grein fyr-
ir stefnu ríkisstjórnarinnar í byggða-
málum. Davíð Oddsson borgarstjóri
mun flytja erindi um hlutverk höfuð-
borgarinnar í byggðamynstrinu og
leitað verður hugmynda um kjarna-
atriði nýrrar byggðastefnu. -KMU
Sóknarfólk útskrifað af námskeiði:
Færist upp um einn launaflokk
í haust hefur 128 manna hópur fé-
laga úr Starfsmannafélaginu Sókn
setið námskeið hjá Námsflokkum
Reykjavíkur og var hópurinn út-
skrifaður miðvikudaginn 11. nóv-
ember.
Að sögn Þórunnar Sveinbjörns-
dóttur, formanns Sóknar, er um það
samið í kjarasamningum að þeir
Sóknarfélagar sem sækja þessi nám-
skeið flytjist upp um einn launaflokk.
Hún sagði að eins og málin stæðu
nú munaði það ekki meiru en 900
krónum á mánuði en til stæði að fá
þessu breytt þannig að það yrði
meira metið í framtíðinni ef fólk lyki
námskeiði. -S.dór
Frá útskrift Sóknarfólks af námskeiöi sem þaö sótti i haust hjá Náms-
flokkum Reykjavikur. Það voru 127 konur og einn karlmaður sem
námskeiðið sóttu. DV-mynd GVA
NILFISK GS 90
hefur mótor með yfir 2000 tíma endingu á kolum =
um 20 ára meðalheimilisnotkun. Þetta er einsdæmi
og annað er eftir því. Nilfisk er tæknilega ósvikin,
gerð til að vinna sitt verk, fljótt og vel, ár eftir ár,
með lágmarks truflunum og tilkostnaði.
Reynslan sannar rekstraröryggi og einstaka endingu.
nilhsk /FDniX
engin venjuleg ryksuga Hátúni6AsiMK9i)2442o
^ Sólbaðsstofa
Ástu B. Vilhiálms
Grettisgötu 18 - sími 28705
Nýjar
perur
24 tímar aðeins,
1800 krónur.
Hvar annars staðar er
það betra og ódýrara?
ATH!
Tilboðið stendur
eina viku.
VISA OG EURO
VERIÐVELKOMIN
ÁVALLT HEITT
Á KÖNNUNNI