Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1989, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1989, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1989. 25 LífsstOl Ófærd stendur sorp- hreinsun fyrir þrifum Ófærðin hefur töluvert staðið sorp- hreinsun fyrir þrifum aö undan- förnu. Á nokkrum stöðum hefur þurft að skilja eftir sorp þar sem Ula gengur aö komast að tunnum. Veru- lega hefúr dregið úr afköstum sorp- hreinsunarmanna sem m.a. hafa átt í vandræðum með að keyra kerrum- ar á undan sér við sorpgeymslur sem ekki hefur verið rutt frá. Pétur Hannesson, deildarstjóri hreinsunardeildar Reykjavíkurborg- ar, segir að aðgangur að sorpgeymsl- um skuh vera hindrunarlaus við íbúðarhús. Þess eru dæmi að við höfum þurft að skilja sorp eftir á nokkrum stöðum. Verst er þegar þarf að ganga um tröppur sem htið sem ekkert hafa verið mokaðar. Þá verðum við hreinlega frá að hverfa. Ég hvet fólk til að reyna að hafa að- komu við hús sín eins aðgengilega og kostur er ef það vih losna við sorp. Við höfum reynt að fylla í eyðumar sem skapast hafa og sýnt þannig sanngirni en við viljum líka að fólk sé sanngjamt og reyni að koma til móts við okkur. Þar sem þarf að moka langar leiðir að sorptunnum má hka færa tunnumar á betri staði úm stundarsakir, a.m.k. á meðan færðin er svona slæm. Annað atriði, sem hefur háð sorp- hreinsun, er afleiðing mikihar bíla- eignar landsmanna - bílum hefur nefnilega verið lagt á stigum þar sem sorphreinsunarbílar þurfa að keyra um og starfsmenn með kermr. Ég vil benda fólki á aö hafa slíkt í huga þegar það leggur bílum sínum og umfram aht að moka frá sorpílátum. - Takið þið aUt rusl sem hefur safn- ast fyrir hjá fólki? Já, og það er best fyrir íbúa að Sorphreinsunarmenn vinna ýmsa hetjudáð við störf sín þrátt fyrir að þeim sé ekki skylt að taka sorp þar sem illfært er að slikum geymsfum. DV-mynd E.ÓI. reyna að fá sér stóra plastpoka til að setja sorp í sem ekki kemst fyrir í tunnunum. Mér sýnist að það gangi nokkuð vel að fá menn tíl að taka við .sér þegar svona lagað safnast fyrtf. Einnig er vert að hafa í huga, þegar fólk veit af því aö sorpgeymsla er yfirfuU, að reyna þá að fara niður með mshð og leggja það þar frá sér í staðinn fyrir að henda linnulítiö niðurumsorpgat. -ÓTT í ófærðinni gera fæstir sér grein fyrir því hve erfitt er um vik fyrir póstburðarfólk og blaðbera að skUa hlutverki sínu sem best á mismun- andi tímum sólarhringsins. íbúar húsanna gera sér það ljóst, sumir hverjir, að aðkoma að húsunum er mjög erfið, moka eitthvað til mála- mynda en láta svo þar við sitja. En allir vUja fá póstinn sinn og dag- Þarna datt sá stutti þegar hann var að bera út og fékk marblett á mjöðmina - það vissu íbúarnir ekk- ert um - þeir fengu bara sitt blað. Hurðin er ómerkt og ekkert Ijós við- hana. Við þennan inngang er kústurinn klár viö dyrnar, búið að moka tröpp- urnar og Ijós við dyrnar. Bréfberinn komst klakklaust leiðar sinnar i þetta skiptið. DV-myndir KAE blöðin, hvað sem raular og tautar. En komast blaðberar með góöu móti að heimUum landsmanna? Oft er það svo að blaðberar koma að húsum þar sem hefur snjóað á tröppur og við innganga, hálka hefur myndast og ofan í kaupið bætist oft við myrkur í skammdeginu. íbúamir slökkva útiljósið áður en þeir fara að sofa. Hvers vegna? Af því að þeir tíma ekki að láta það loga yfir nótt- ina? Raunin er sú að kostnaður við að láta eitt útiljós loga yfir nótt er ekki nema örfáar krónur á viku. Það er ekki skrítið þótt foreldrum blað- burðarbarna finnist að það minnsta sem hægt sé að gera sé að moka eins og kostur er og láta ljós loga þegar því er að skipta - og merkja svo hús- in. „Þeir sterkustu komast af" í nágrannalöndum okkar, t.d. í Þýskalandi, gUda strangar reglur um tiUitssemi við náungann hvaö snertir aðkomu að húsum. Þá fara íbúar gjama út að moka strax og snjókorn sést. Á ófærðarlandinu Islandi er þetta hins vegar bara meira og minna látið ráðast. Einn viðmælenda DV, sem ber út póst, sagði að það lægi við að hér á landi gUti reglan „Þeir sterkustu komast af‘. Hins vegar sagði hann að mjög mismunandi væri hvemig íbúar hugi að þessum málum. „Þetta er víða tU fyrirmyndar en það er ansi erfitt á mörgum stöðum og þá er mér hugsað tU lítUla krakka sem bera út blöðin eldsnemma á morgn- ana í myrkrinu, áður en flestir fara á fætur. Þetta er víða þannig að það veröur að berjast í gegnum fannfergi við óupplýstar dyr sem eru ómerktar í þokkabót." „Erum að gera rassíu" Gísh Jón Sigurðsson, póstútibús- stjóri hjá R 5, segir að verið sé að gera átak um þessar mundir til að fá íbúa tU að merkja hurðir og inn- ganga við hús sín. „Við höfum sent út aUmörg bréf með þeim tilmælum að fólk merki nöfn við póstlúgur og póstkassa þar sem því er ábótavant. Það hafa orðið aUgóð viðbrögð við þessu - annars er mér efst í huga að um þessar mundir er mjög erfitt fyr- ir bréfbera og aðra að athafna sig þegar færð er slæm. Þetta er fólk sem þarf að fara á marga staði. Við útveg- um póstburðarfólki mannbrodda en það dugar skammt þar sem mokstri er ábótavant." - Vantar húsnúmer á mörg hús? „í nýjum hverfum vantar víða hús- númer, það er verst þar. Borgin á að sjá um fyrstu merkingu á hús en síð- an eiga húseigendur að sjá um fram- haldið. Hvað snertir nýju hverfin höfum við orðið varir við að þangað berst sumum póstur þótt byggingar séu mjög skammt á veg komnar. í því sambandi er ekki hægt að ætlast tíl að við skUjum bréfin eftir á plöt- unni. -ÓTT Blaða- .og póstburður: Oftast kvartað þar sem illa er merkt Þar sem merkingum við heimili er ábótavant er oftast kvartað vegna blaðburðar. Meira að segja er ástand- ið sums staðar svo slæmt að póstlúgu vantar - og í ofanálag verða svo alUr hlessa þegar blöð og póstur berst ekki. Einnig er ástandið slæmt þar sem sameiginleg póstlúga er notuð við fjölbýlishús. Þá vUl bregða svo við að einn kemur heim á eftir öðrum og hafa þá t.d. tveir aðUar úr sömu fjölskyldunni tekið blað, síðan berst kvörtun frá öðrum íbúum hússins tU blaðdreifingar. Úr þessu er væntan- lega hægt að bæta með betra fyrir- komulagi póstkassa og með betri merkingum. Hjá þeim þjónustustöðum, sem hægt er að fá nöfn heimUisfólks graf- in á merkispjald, er oftast ekki um meira en sólarhrings bið að ræða. Spjöldin eru á mismunandi verði, allt eftir því hvaða efni er í spjald- inu. Algengast er aö keypt séu spjöld úr plasti eða áh og margir vUja kop- ar. Sem dæmi má nefna að plast- spjald með svörtum grunni kostar um 250-300 krónur og kostar síðan hver ígrafin Una um 250 krónur. Efn- iskostnaður er því oftast minnstur miðað við þá vinnu sem lögð er í verkið. Þegar lagt er saman verður heildarkostnaður vegna merkingar af þessu tæi sjaldnast meiri en þús- und krónur. -ÓTT Fjölskyldan Brávallagötu 92 Sigurbjörg Pétursdóttir Halldór Þorgeirsson - hundurinn Pússí - Sjaldnast kostar einfalt merkispjald eins og þetta meira en þúsund kr. hjð skiltagerðum. DV-mynd BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.