Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1989, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1989, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1989. Sviðsljós Ólyginn sagði... Cybill Shepherd leikkonan fræga, sem leikur á móti Bruce Willis í Moonlighting, er nú aö skilja við eiginmann sinn, Bruce Oppenheim, eftir tæplega tveggja ára hjónaband. Hjónin, sem eiga saman tvíbura, kynntust þegar Oppenheim, sem er læknir, annaðist Shepherd þegar hún átti í erfiðleikum vegna höfuðverks. Leikkonan, sem er nú 39 ára gömul, var áður gift David nokkrum Ford og átti áður í löngu ástarsambandi við Peter Bogdanovich leikstjóra. GeorgeMichael Breski söngvarinn George Mic- hael var aðalstjaman þegar verð- laun voru veitt á mikilli tónlistar- hátíð í Bandaríkjunum í síðustu viku. Hann skaut nafna sínum Jackson ref fyrir rass þegar hann vann til þrennra verðlauna. Hann var kjörinn bestí popp-rokk karlsöngvariim, besti soul-tón- listarmaðurinn og plata hans Fa- ith var kjörin besta hljómplatan í þeim flokki. „Ég hef elskað so- ul-tónlist frá þvi ég var bam,“ segir hann. Sigurvegaramir vom valdir af hljómplötukaupendum í Bandaríkjunum. Richard Attenborugh Leikarinn og leikstjórinn kunni Richard Attenborough segir að þegar hann var ellefu ára hafi hann einsett sér að einbeita sér að kvikmyndabransanum. Ástæðan var að þá sá hann kvik- myndina Gullæðið með Charlie Chaplin. Síðan hefur Richard ávallt verið hrifinn af þeim út- skeifa með stafinn og hattinn. Nú ætlar hann meira að segja að gera kvikmynd um líf Chaplins. Verið er að skipuleggja myndina og hugsar leikstjórinn sér gott til glóðarinnar. Aldarfjórðungur er liðinn síðan þessi mynd var tekin af Mandy Rice-Davies sem þá var átján ára. Henni hefur gengið ágætlega í lífsbaráttunni á þeim 25 árum sem liðin eru frá hneykslinu. Hún hellti sér i viðskiptalífiö og hagn- aðist verulega. Profumo-hneykslið kvikmyndað: Joanne Walley leikur Christine Keeler og Bridget Fonda leikur Mandy Rice- Davies. John Profumo sagöi af sér embætti og dró sig i hlé. Hann er núna 73 ára ríkisstarfsmaöur og vill bæta fyrir mistökin. Hann hefur alla tið notið dyggi- legs stuðnings eiginkonu sinnar, leikkonunnar Valerie Hobson. Áður var lifið dans á rósum hjá Christine Keeler. Peningar, minkapelsar og skartgripir voru hennar líf og yndi en í kjölfar Profumo-málsins fór að halla undan fæti. Nú hefur Keeler engar áhyggjur af karlmönnunum i lífi sínu heldur stöðugu peningaleysi. Kynþokkinn er horfinn og eftir situr hún, þreytt og vonlaus. Þeir sem komnir voru til vits og ára fyrir 25 árum muna eflaust eftir Profiímo-málinu í Bretlandi. Nú, ald- arfjórðungi síðar, er í vinnslu kvik- mynd um þetta stóra hneykslismál sem skók hinn vestræna heim. í Profumo-máhð flæktust ráðherrar, vændiskonur og sovéskir sendiráðs- starfsmenn og það í miðju kalda stríðinu. Vændiskonumar leika Joanne Whalley, sem þekkt er fyrir leik sinn í Willow, og Bridget Fonda. Bridget er dóttir Peters Fonda og sonardóttir Henrys heitins Fonda. Hún tilheyrir því þriðju kynslóð Fonda-ættarinnar sem tekst á við leiklistina. Bridget leikur vændiskonuna Mandy Rice- Davies sem á þeim tíma var lítil, sæt stelpa á nítjánda ári. Joanne leikur Christine Keeler, tuttugu og tveggja ára, þokkafulla vændiskonu. Keeler átti samtímis í ástarsam- bandi við vamarmálaráðherra Breta, John Profumo, og sovéska sendiráðsstarfsmanninn Jevgenij Ivanov. Inn í málið flækist læknirinn Stephen Ward en hann hafði á sínum snærum leigustúlkur fyrir þá sem gátu borgað vel. Þegar upp komst sagði John Profumo af sér embætti vamamálaráðherra og dró sig í hlé. Læknirinn framdi sjálfsmorð í kjöl- far hneykslisins en síðari ár er það áht manna að hann hafi verið blóra- bögguh kerfisins. John Profumo leik- ur Shakespeareleikarinn Ian Mckeh- an en hlutverk læknisins er í hönd- um Johns Hurt. Valt veraldargengi Á aldarfjórðungi, sem hðinn er, hefur lífið farið misjöfnum höndum um málsaðila. John Profumo lifir enn kyrrlátu lífi ásamt eiginkonu sinni sem stóð með honum í inála- vafstrinu. Hann hefur snúið sér að vinnu í þágu þjóðfélagsins og vih bæta fyrir fyrri misgjörðir. Mandy Rice-Davies giftist gyðingi, tók gyð- ingatrú og settíst aö í ísrael. Þar tók hún að stunda viðskiptí og græddist mikið fé. Síðar skhdi hún en giftist aftur breskum auðjöfri og býr í Eng- landi. Hún þykir glæsheg heimskona í dag, ákaflega fahega klædd og virðuleg. Líf Christine Keeler hefur hins veg- ar ekki verið dans á rósum. Hún stendur á fimmtugu og er hla útht- andi og þreytuleg. Kynþokkinn, sem nærri varð ríkisstjóm að falli, er horfmn og erfitt að ímynda sér að þessi kona hafi verið þátttakandi í slíkri atburðarás. „Við vorum bara stelpukjánar í leit að Ijúfu lífi, fahegum fotum og pen- ingum,“ segir Christine Keeler nú. „Ein nótt með Profumo eyðhagöi aht mitt líf. Karlmenn valda mér ekki áhyggjum lerígur heldur sífeht pen- ingaleysi." Stelpukjánar í Við borðhaldið á árshátiö hundaeigendanna voru meðal annarra Anna Hulda Sveinsdóttir húsmóðir, Guttormur Þórarinsson trésmiður, Guðrún Guöjohnsen, formaöur Hundaræktarfélagsins, Sigurður örn Hansson dýra- læknfr og Frfða Björnsdóttlr, skrifstofustjóri Blaðamannafélags íslands. Nýlega var haldin árshátið Hundaræktarfélags Islands í Gaflinum i Hafnar- firöi. Gestir skemmtu sér við ýmis heimatilbúin atriöi og á þessari mynd sést leikritið Rauðhetta uppfært á nýstárlegan hátt. Leikendur komu óundir- búnir og túlkuðu ieikritið eins og þeir mundu þaö. Á bak við úlfagrfmuna er Guðmundur „Kató“ Ragnarsson, Rauðhettu lék Jón „Patton" Pétursson og ömmuna (liggjandi) lék Bjarni Sigurbjörnsson, ráösmaöur og hundaeig- andi i Viðey. Alengdar standa dýralæknarnir og hjónin Helga Finnsdóttir og Sigurður öm Hansson. DV-myndir Ragnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.