Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1989, Side 26
26
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989.
Sviðsljós
Heillaprinsessan
sldrð Beatrice
Þetta er opinbera skírnarmyndin frá drottningarfjölskyldunni. Á henni eru aðeins nánustu skyldmenni og svo
náttúrlega guðmæður og guðfeður.
Litla dóttir hertogahjónanna af
York, Söru og Andrews, var skírö
þann 20. desember síðastliðinn.
Hlaut prinsessan nöfnin Beatrice
Elizabeth Mary, allt nöfn sem
drottningar Bretaveldis hafa boriö.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Beatrice htla hlotið mikið umtal frá
fyrstu tíð. í fyrsta lagi af því að hún
er konungborin sem þykir nægi-
lega fréttnæmt. í öðru lagi komst
hún á milli tanna á fólki þegar
móðir hennar fór frá henni til að
hitta prinsinn í Ástralíu seint á síð-
astliðnu ári. Það þykir enn hin
mesta hneisa, hvort sem almenn-
ingur eða konungbornir eiga í hlut.
Stjörnuspekingar spá litlu prins-
essunni mikilli hamingju og góðu
gengi. Helgast það af fæðingartíma
prinsessunnar sem er fædd 8.8.88
og klukkan 8.18 en talan átta er
mikið heillatákn í stjörnuspekinni.
Nafnið Beatrice þýðir einnig ham-
ingjuberi og því ættu allar spár að
ganga eftir. Prinsessan er skírð
Beatrice í höfuðið á fimmtu og
yngstu dóttur Viktoríu drottning-
ar. Beatrice eldri giftist prinsinum
af Battenberg en þeirra dóttir var
Viktoría Eugenina sem giftist Al-
fonso XIII. Spánarkonungi. Illar
tungur benda á að nafnið eigi sér
allt aðrar forsendur. Þegar karl
faðir hennar, Andrew prins, átti í
ástarsambandi viö Koo Stark áttu
turtildúfumar athvarf í íbúð bestu
vinkonu Koo. Sú heitir Beatrice
Nash og hafa menn fyrir satt að
prinsinn hafi heitið því að ef hon-
um einhvem tíma fæddist dóttir
yrði hún skírö Beatrice.
Beatrice er næst á eftir foðursyst-
ir sinni, Önnu, að bera prinsessu-
titilinn því ríkisarfinn Charles á
eingöngu drengi og dætur Önnu
prinsessu bera engan titil. Hún er
fimmta í röðinni til arfs krúnunnar
því faðir hennar, föðurbróöir og
hans synir, eru á undan. En þrátt
fyrir allt titlatog er henni spáð góð-
um gáfum og skapferli og hún
muni í framtíðinni geisla af bjart-
sýni og sjálfsöryggi. Hún mun gift-
ast tvisvar og eignast þrjú böm.
Eina svartsýnishjalið í spámönn-
unum er í sambandi við ytra útlit-
ið, þvi hún mun, eins og mamma
hennar, eiga í erfiðleikum með
Prinsessan var sæl og hjalaði í
fangi móður sinnar við skírnina.
Ljósmyndarar heimspressunnar
voru ánægðir og töldu hana lofa
góðu sem myndefni í framtíðinni.
Stóru frændur prinsessunar, synir
Díönu og Charles, fengu auðvitað
að vera með í hátíðahöldunum.
Með þeim á myndinni eru guð-
mæður Beatrice og Díana móðir
þeirra.
holdafarið. Hér er sem sagt komin
slúðurdálkamatur framtíðarinnar
sem ætti, miðað við allar spár, aö
endast langt fram eftir næstu öld.
Skamm-
astu þín,
Fergie
Nei, ekki aftur. Bretar eru nú í
miklu uppnámi yfir Fergie her-
togaynju því nú þeytist hún um
Alpana á skíðum ásamt eiginmanni
sínum Andrew prins og vinum
þeirra hióna á meðan Bea grætur
ein í höllinni. Bretar voYu tæplega
búnir aö jafna sig á Ástralíuför
hertogaynjunnar á haustmánuð-
um en þar dvaldi hún í heilar sex
vikur og skildi bamið eftir heima
í umsjá bamfóstra. Það þótti meiri
háttar skandall í því landi.
Sálfræðingar og uppeldisfræð-
ingar tjáöu sig um máliö og töldu
að barnið gæti hlotið andlegan
skaða af þvi að vera móðurlaust
svo lengi. Eftir aö Fergie kom heim
• lýsti hún því yfir að hún myndi
aldrei yfírgefa Bea aflur, ekki einu
sinni í þijá eða fjóra daga. En hún
var fljót að gleyma.
Nú em menn jafnvel þeirrar
skoðunar að Fergie hefði aldrei átt
að eignast barn, það sé á mörkun-
um að hún sé hæf móðir.
Fergie var fljót að gleyma fyrri yfir-
lýsingum og skildi Beu eftir eina
heima einn ganginn enn.
Með tvær í takinu. Þannig vill Mike helst hafa það um þessar mundir. Innfellda myndin er af Suzette Charles,
fyrrum ungfrú Ameríku, en Mike hefur verið að gera hosur sínar grænar fyrir henni upp á síðkastið.
Mike Tyson:
lifir ljúfa lífinu
Stelpur og aftur stelpur er það eina
sem hnefaleikarinn Mike Tyson
hugsar um þessa dagana. Minningin
um fyrrnrn eiginkonu hans Robin er
löngu fölnuö.
Mike hefur sést í fylgd með hinum
og þessum glæsikonum, alsæll með
nýfengið frelsi. Sú sem hann hefur
oftast sést með upp á arminn að und-
anfömu er LaToya Jackson.
Að sögn vina Mikes hefur hann
hegðað sér eins og smákrakki í sæl-
gætisbúð síðan hann skildi við Rob-
in. Hann hefur tekið hverja glæsi-
meyjuna á fætur annarri á löpp.
Þeirra á meðal er leikkonan Temper-
ance Lance en þau hafa verið vmir
í um það bil ár. Lance segir að eftir
að Robin yfirgaf hann hafi Mike stöð-
ugt hringt í sig í leit að huggun. Ég
er hrifin af Mike og ég myndi ekki
hugsa mig um eitt augnablik bæði
hann mín. Hins vegar veit ég að það
em miklu fleiri konur í lífi hans en
ég, segir leikkonan.
Á hveijum degi berst hnefaleika-
kappanum aragrúi aðádendabréfa
frá konum sem vilja að hann hafi
samband við sig. Ein sendi honum
segulbandsspólu og á henni var ein-
ungis að finna orðin „Ég elska þig“.
Og önnur bauðst til að búa til voo-
doo dúkku svo hann gæti hefnt sín á
Robin, fyrrum eiginkonu sinni.
En Mike nýtur lífsins út í æsar,
alsæll með lífið og tilveruna.