Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Blaðsíða 6
2. ágúst-23. ágúst-13. september Bjóðum eingöngu bestu gististaðina. Beint leiguflug, engin millilending - engin óvissa. Við staðfestum brottfarardag og gististað S-T-R-A-X. " Hagstætt verð - fyrsta flokks ferð. FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR Aðalstræti 16 • 101 Reykjavík • sími 91-621490 • J/.JW LAUGÁRDAGUR 15. JÖLÍ 1989. Peningamarkaður Utlönd (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Otvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum. Skuldabyrði og skrautsýning Uppástungu fjögurra leiðtoga þró- unarlanda um leiðtogafund ríkra og fátækra ríkja var kuldalega tekið af Bandaríkjunum og Bretlandi. Það kom fram við upphaf leiðtogafundar sjö helstu iðnríkja heims í París í gær. Francois Mitterrand Frakklands- forseti studdi hins vegar tiilöguna sem borin var fram af Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands, Hosni Mubarak Egyptalandsforseta, Carlos Perez, forseta Venezuela, og Abdou Diouf, forseta Senegals, sem komnir voru til Parisar til að vera viðstaddir hátiðahöldin í tilefni byltingaraf- mælisins. í sameiginlegri yfirlýsingu sögðu þeir að kominn væri tími til reglubundinna funda á háu pólitisku plani milli iðnaðarlanda og þróunar- landa. Gandhi ságði að fulltrúar sjö rík- ustu landanna í vesturhluta heims- ins, Bandaríkjanna, V-Þýskalands, Kanada, Ítalíu, Japans, Frakklands og Bretlands, ættu að hafa í huga hver hefði verið orsök frönsku stjórnarbyltingarinnar fyrir tvö hundrttð árum. Þess vegna ættu þeir að hugsa sig betur um. Hætta á byltingu Með þessu átti Gandhi við að hætta væri á byltingu í þróunarlöndunum ef ekki yrði komið til móts við þau í þeim atriðum sem þau væru mest hjálparþurfl. Skuldabyrði þróunarlandanna ber reyndar hæst á leiötogafundinum í París en leiðtogamir ætla einnig í fyrsta sinn að reyna aö komast að samkomulagi um tillögur til um- hverfisverndunar. Þróunarlöndin í Suður-Ameríku og Asíu hafá hins vegar tjáð iðnríkjunum sjö að þau þarfnist meiri peninga ef ætlast verði til að þau aðstoði við umhverfis- vemd. Margir óttast að viðræður leiðtoga iðnríkjanna sjö beri lítinn árangur og að þegar þeir fari heim verði þeim efst í huga minningin um glæsileg- ustu hersýningu og flugeldasýningu sem þeir hafi augum litið svo ekki Fundur leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims hófst í Louvresafninu í París í gær. Jacques Delors, framkvæmdastjóri Evrópubandalagsins, stendur lengst til vinstri. Næst honum stendur Ciriaco de Mita, forsætisráðherra Ítalíu, þá Helmut Kohl, kanslari V-Þýskalands, George Bush Bandaríkjaforseti, Francois Mitterrand Frakklandsforseti, Margar- et Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, Brian Mulroney, forsætisráðherra Kanada, og Sosuke Uno, forsætisráð- herra Japans. Simamynd Reuter sé minnst á gæsalifrarkæfuna sem skolað var niður með dým kampa- víni. Komið í veg fyrir hneyksli Hátíðarkvöldveröur var í flota- málaráðuneytinu í París í gærkvöldi í tilefni byltingarafmælisins. Þar var lagt á borð fyrir leiðtogana sjö í sér- stöku herbergi og aðrir, sem ekki voru jafnmikils metnir, sátu annars staðar í byggingunni. Þeir voru þó að minnsta kosti í sama húsi en það var bara vegna málamiðlunar sem náðist á síðustu stundu eftir aö fjöl- miðlar höfðu gefið í skyn að hneyksl- ismál væri í uppsiglingu. Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir að leiðtogar ríku ríkjanna sjö sætu einir að snæð- ingj í flotamálaráðuneytingu í gær, á sjálfan Bastilludaginn, á meöan leið- togar fátæku landanna, sem fjöl- mennt höfðu til Parísar, sætu til borðs á Crillon hótelinu þar sem kvöldverður kostar ekki undir þrett- án þúsund krónum. Hápunkturinn Síðar um kvöldið hófst svo há- punktur hátíðahaldanna, skrautsýn- ingin mikla á Champs-Elysées breið- götunni með þátttöku sex þúsund listamanna, þriggja fíla og annarra dýra frá fjarlægum löndum. Var göngunni lýst sem blöndu af kjöt- kveðjuhátíðinni í Rio de Janeiro og kvikmynd eftir Fellini. Fyrstir í skrúðgöngunni gengu Kínverjar. Ekki þeir Kínverjar sem þurftu að aíboða komu sína vegna blóðbaðsins á Torgi hins himneska friöar í Peking heldur kínverskir námsmenn í Frakklandi og aörir sem til staðar voru. Þátttaka þeirra var hylling til umbótasinnaðra náms- manna í Peking. Reuter, TT og Ritzau Samþykkja framboð Jaruzelskis Lech Walesa, leiðtogi Samstööu, hinna óháðu verkalýðssamtaka í Póllandi, sagði í gær aö samtökin væru reiðubúin að samþykkja Jaruzelski hershöfðingja sem for- seta Póllands. Áður hafði Walesa lýst því yfir að ekki væri hægt að sætta sig við kjör Jaruzelskis. Þessi stefnubreyting virðist nú ætla að ryðja úr vegi öllum hindr- unum fyrir framboði leiðtoga pólska kommúnistaflokksins til nýs forsetaembættis. Samstaða ræður yfír 46 prósentum af 559 sætum í þinginu sem áætlaö er að kjósi forseta í næstu viku. Walesa sagði í gær að Samstaða væri reiðubúin að vinna með hvaða forseta sem væri og skipti það engu máli hvort um væri aö ræða Jaruz- elski, Kiszczak innanríkisráðherra eða aðra fulltrúa samsteypustjóm- arinnar. Jaruzelski hafði áður stungiö upp á Kiszczak sem forsetaefni en hers- höfðinginn hefur verið hvattur lil að hætta við að draga sig í hlé. Margir telja hann besta forsetaefn- iö og hæfastan til að tryggja stöðug- leikann í Póllandi þar sem átt hafa sér stað snöggar pólitískar og efna- hagslegar breytingar að undan- fómu. Heimildarmenn úr röðum stjórn- málamanna segja að Bush Banda- ríkjaforseti hafi, á meðan hann var í heimsókn i Póllandi í vikunni, verið meðal þeirra sem hvöttu Walesa til þess að gefa út yfirlýs- ingu sem gerði Jarazelski kleift að bjóða sig fram. Reuter INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 14-20 Úb Sparireikningar 3jamán. uppsögn 15-20 Vb.Úb 6mán. uppsögn 16-22 Vb 12mán. uppsögn 18-20 Úb 18mán. uppsögn 30 Ib Tékkareikningar, alm. 3-9 Ab.Sp Sértékkareikninqar 4-17 Vb.Ab Innlán verðtryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5-2 Vb 6 mán. uppsögn 2,5-3 Allir • nema Innlán meðsérkjörum 27-31 Sp Sb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 8-8,75 Ab Sterlingspund 11,75-13 Lb,Bb,- Vestur-þýsk mörk 5,25-6 lb,Vb,- Sb Sb.Ab Danskar krónur 7,75-8.25 Lb.lb,- ÚTLÁNSVEXTIR (%) Vb.Sp lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv.) 32,5-34,5 Bb Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 34,25- Bb Viðskiptaskuldabréf(1) 37,25 kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) 35,5-39 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf 7-8.25 Lb Utlántilframleiðslu isl. krónur 27,5-37 Úb SDR 10-10,5 Lb Bandarikjadalir 11-11,25 Allir Sterlingspund 15,75-16 nema Úb Allir Vestur-þýskmörk 8,25-8,5 nema Úb Úb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 45,6 MEÐALVEXTIR óverðtr. júlí 89 34,2 Verðtr. júlí 89 7,9 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala júií 2540 stig Byggingavísitalajúli 461,5 stig Byggingavísitala júlí 144,3stig Húsaleiguvisitala 5%hækkun l.júll VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,042 Einingabréf 2 2,240 Einingabréf 3 2,639 Skammtímabréf 1,391 Lífeyrisbréf 2,032 Gengisbréf 1,802 Kjarabréf 4,010 Markbréf 2,134 Tekjubréf 1,732 Skyndibréf 1,218 Fjölþjóðabréf 1,268 Sjóðsbréf 1 1,938 Sjóðsbréf 2 1,552 Sjóðsbréf 3 1,369 Sjóðsbréf 4 1,140 Vaxtasjóðsbréf 1,3687 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 300 kr. Eimskip 360 kr. Flugleiðir 175 kr. Hampiðjan 164 kr. Hlutabréfasjóður 128 kr. Iðnaðarbankinn 157 kr. Skagstrendingur hf. 212 kr. Útvegsbankinn hf. 135 kr. Verslunarbankinn 145 kr. Tollvörugeymslan hf. 108 kr. HJÓLBARÐAR þurfa aö vera meö góðu mynstri allt árið Slitnir hjólbaröar hafa mun minna veggri| og geta verið hættulegir - ekki sist í hálku og bleytu. DRÖGUM ÚR HRAÐA! yUMFERÐAR RÁÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.