Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1990, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1990, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1990. 15 Umsvif flármálafyrirtækja: Vísbending um verðbólgu í tímaritinu Vísbendingu er fjall- aö um væntanlega verðbólgu í landinu á komandi mánuðum og árum. Þessi spá er vonandi sett fram til vamaðar en sé svo sakna ég sárlega vamaðarorðanna og hugleiðinga um leiðir til þess að komast hjá þessari óáran. Skyldi geta átt sér stað að í spá þessari væri nokkuð stór broddur af óskhyggju? Er hugsanlegt að það sé verið að fara af stað með mark- vissan áróður til þess að hleypa verðbólgunni af stað aftur? - Ég er ekki í vafa um að þessi framsetning er blönduð von um vaxandi verð- bólgu. Að láta enda ná saman Fram til þessa hefur þetta hugtak einkum verið tengt hinum vinn- andi manni í þjóðfélaginu. Það er hins vegar orðið ljóst nú, þegar verðbólgan lækkar, að ákveðnir þættir þjóðlífsins höfðu verulegar tekjur af ástandinu og sjá þeir ekki fram á að endar nái saman hjá þeim ef þeim tekst ekki að koma verð- bólgunni af stað aftur. Þama á ég einkum við fjármála- heiminn hjá okkur, hvort sem um er að raeða bankastofnanir eða „súpermarkaði" með yörboðum á ávöxtun fjármagns. Það liggur ljóst fyrir að fjárfestingar og rekstur þessara aðila verður ekki rekinn hallalaust af vaxtamuninum einum. Ég þykist sjá af ýmsum skrifum KjaUarinn Guðbjörn Jónsson framkvæmdastjóri G-samtakanna sem fram hafa verið að koma að undanförnu að ýmsir „lykilmenn“ í fjármálaheiminum okkar séu mér sammála þótt þeir reyni að færa rök fyrir hinu gagnstæða fram á síðustu stund vegna stólanna sem þeir sitja í. Þar sem áhættan er mest Þar verður einnig tapið stærst. Nú um nokkurra ára skeið hafa verið rekin hér á landi svonefnd fjárfestingafélög, fjármögnunarfé- lög og ávöxtunarsjóðir ýmsir. Vegna þess hve lánakjör hjá þess- um sjóðum hafa verið óhagstæðari en hjá hinu almenna bankakerfi hafa menn einkum leitað þangað þegar fjármagn hefur ekki fengist með öðrum hætti. Það er sammerkt flestum þeim sem leitað hafa á þessi mið fjár- muna að þeim hefur ekki verið kynnt hversu mikil greiðslubyrðin er í raun af þessu fjármagni. Flest- ir standa frammi fyrir þessari stað- reynd eftir að hafa fengið ættingja eða vini til að ábyrgjast þessi lána- mál sín í þeirri trú að geta greitt þessar skuldir sjálfir. Staðreyndir hrúgast hins vegar upp um sorglega stöðu í mörgum svona málum. Greiðslubyrði hefur vaxið margfalt hraðar en launin hafa aukist. Fyrst var málið leyst með því að bæta við sig vinnu en í samdrætti í þjóðfélaginu er það ekki hægt. Aðrir hafa stritað í nokkur ár, vinnandi meirihluta sólarhringsins, búnir að tapa sam- bandi við vini, ættingja, fiölskyldu og börn og finna engan sökudólg annan en kerfiö. Endirinn á þessum sorgarleik er því miður oft gjaldþrot, ekki bara lántaka heldur jafnvel fiölmargra ættingja og vina að auki. Að tapa fjármagni Það geta þeir einir leyft sér sem græða mikið á því fé sem þeir lána öðrum. Þegar við lítum nokkur ár til baka sjáum við að tapað fé vegna gjaldþrota fyrirtækja og einstakl- inga eru svimandi upphæðir. Þó er ekki mikið um að fiármálafyrir- tæki eða lánastofnanir verði gjald- þrota. - Hvers vegna geta þessar stofnanir staðið af sér svona mikið tap? Að vísu fór Útvegsbankinn á hausinn vegna viðskipta við fyrir- tæki sem að mati dómstóla var rek- ið á nokkurn veginn eðlilegan máta. Nú kreppir hins vegar að hjá öllum þessum aðilum. Talnaleikur um höfuðstólshækkun, sem hægt var að reikna af vexti og verð- bætur, er í hættu. Hugsanlega verður lánskjara- visitalan felld niður og þessar stofnanir verða að fara að lifa af opinberum vaxtamismun inn- og útlána. Það geta þær ekki, eins og að framan greinir, og róa því, bak viö tjöldin, lífróður að aukinni verðbólgu til verndar rekstri sín- um. Þegar við horfum fram á nýja tíma með meiri stöðugleika í efna- hagsmálum er nauðsyn fyrir fiár- magnseigendur að gæta að trygg- ingum þeirra aðila er geyma fiár- magn þeirra. Eins og staðið hefur verið að út- lánum hér á landi er takmörkuð trygging í ábyrgðum á útlánum. Lánastofnanir hafa sýnt frekar lít- inn skilning á leiðum til þess að tryggja endurgreiðslu fiármagns- ins en lagt þeim mun meiri áherslu á að fá lögmönnum málið í hendur sem alltof oft endar með gjaldþroti fiölda manna. Trygging fiármagnseigenda hlýt- ur því fyrst og fremst að felast í raunverulegri eignastöðu fiár- geymsluaðilans að frádregnum talnaleik vegna lánskjaravísitölu en ekki ábyrgðum fiárgeymsluað- ila á útlánuðu fé. - Hin raunveru- lega verðmætaaukning í þjóðfélag- inu er svo óralangt frá þeim tölum er lánskjaravísitalan reiknar. Það vita allir fiármálamenn þjóðfélags- ins og hafa vitað frá upphafi. Guðbjörn Jónsson „Hin raunverulega verðmætaaukning í þjóðfélaginu er svo óralangt frá þeim tölum er lánskjaravísitalan reiknar. Það vita allir Qármálamenn þjóðfélags- ins.. Blefkenar nútímans ófrægja ísland „ „Við komumst allar vegleysur á bilunum okkar,“ segja þeir, „enda erum við vel útbúnir ...“ “ segir meðal annars í greininni. Það hefur færst í vöxt að erlend- ir aðilar skipuleggi ferðir til íslands og sniðgangi sem mest þá þjónustu sem við íslendingar erum að reyna að byggja upp víðs vegar um landið. Þetta rýrir að sjálfsögðu þær tekj- ur sem við gætum haft af ferða- þjónustu á sama tíma og fólk úti um allt land er að reyna að byggja upp sem fiölbreytilegasta þjónustu. - Er nú svo langt komið að framá- menn íslenskra ferðamála hafa varpað fram þeirri spumingu hvort íslensk ferðaþjónusta sé ef til vill að færast í hendur útlendinga. Þeir sem skipuleggja Þeir sem skipuleggja og selja ís- landsferðir nota vetrarmánuðina til að halda kynningar- og sölu- fundi. Ferðamáilaráð íslands og ís- lenskar ferðaskrifstofur taka þátt í ferðamörkuðum erlendis og reyna að koma á framfæri því sem við íslendingar höfum að bjóða, þ.e. „íslenska framleiðslu“. Á sama tíma halda útlendingarn- ir sín kynningarkvöld og hafa ís- lendingar staddir erlendis stund- um farið til að forvitnast um hvern- ig þeir kynna land okkar. Segja þeir að þar megi oft heyra ófagrar lýsingar á landi og þjóð. Látum vera þótt rangt sé farið með ýmis örnefni og Dettifoss kynntur sem Goðafoss eða Snæ- fellsjökull sem Eyjafiallajökull. Öllu verra er þegar ísland er kynnt sem eitt frumstæðasta ferða- mannaland í heimi þar sem hægt sé að aka eftirlitslaust um allar trissur. „Við komumst allar veg- leysirn á bílunum okkar,“ segja þeir, s.enda erum við vel útbúnir. Við þekkjum miklu fleiri staði en KjaUariim Birna G. Bjarnleifsdóttir forstöðumaður Leiðsögumannaskólans íslendingamir. Það verða ekki veg- leysurnar sem munu hindra för okkar. Við gætum hins vegar lent í vandræðum með náttúruverndar- fólkið.“ „íslandskvöldin“ Á einu kynningarkvöldinu var lögð áhersla á nauðsyn þess að hafa með sér eigin mat og var ástæðan tilgreind sú að í íslensku kaupfélögunum fengist ekki ætur matarbiti, aðeins þurrkaður fiskur og sviðnir kindahausar sem væri aðalfæða landsmanna. Auk þess væri matur ekki kaupandi á íslandi vegna þess hversu dýr hann væri. Á öðru íslandskvöldi var lögð mikil áhersla á að vissara væri að vera með eigin rútu því að ferðir með íslenskum rútum enduðu oftar en ekki utan vegar... og um leið var sýnd htskyggna af íslenskri rútu þar sem hún lá á hliðinni utan vegar. Stjórnandi umrædds kynningar- fundar sagði um íslendinga að þeir væru mjög drykkfelldir, enda væri ekkert annað fyrir þá að gera á dimmum vetrarkvöldum en drekka sig fulla. Hann bætti við að hér væri svo mikið frost á veturna að við jarðar- farir væri ekki hægt að grafa líkin heldur væru þau lögð á frosna jörð- ina og hrúgað yfir þau mold og gijóti. Þess vegna væru svo mörg leiði upphækkuð í íslenskum kirkjugörðum. Sem dæmi um áhrif vetrarmyrk- ursins á íslendinga nefndi stjóm- andinn að Grímseyingar, íbúar nyrstu eyjar landsins, gengju alltaf gráklæddir en það skipti engu máh því að þeir væru hvort eð er alhr litbhndir vegna myrkursins. - Og svo var hlegið. Hve lengi ætlum við...? Á 17. öld skrifaði Ditmar nokkur Blefken bók um ísland þar sem hann sagði frá ruddalegum borð- siðum íslendinga, að íslendingar væru lúsugir og notuðu hland til að þvo sér. Hermdi hann ýmislegt eftir Gories Peerse sem á 16. öld skrifaði um íslendinga að þeir væru saurlífir og ætu af sér lýsnar. Sagði hann að tíu eða fleiri svæfu saman í hrúgu, karlar og konur, og hefðu ahir eitt næturgagn sem menn notuðu svo á morgnana til að þvo höfuð og munn. Svo rammt kvað að ýmsum óhróðri um ísland í ferðabókum á þessum tíma að Arngrímur lærði fann hjá sér hvöt til að skrifa varnarrit á latínu um ísland. Hve lengi eigum við að láta þessa nútíma blefkena gera gys að okk- ur? Hve lengi eigum við að sitja undir óhróðri þeirra um okkur? Tekið skal fram að ekki eru allir útlendingar seldir undir sömu sök. Sumir þekkja mjög vel til hér og unna landi og þjóð heilum huga og virða lög og reglur. En upp á hveiju ætli „blefken- arnir“ finni næst til að krassa frá- sagnir sínar um okkur meðan þeir aka um landið í rútunum sínum og leika leiðsögumenn? Hvernig getum við stuðlað að því að þeir erlendu gestir, sem sækja okkur heim, fái rétta og óbrenglaða mynd af landinu okkar og þeim sem hér búa? Að við séum ekld gerð hlægi- leg í augum gestanna sem sitja í rútunum eða jeppunum og eru að skoða landið og okkur sjálf? Að gestimir fari héðan með ein- hvern annan fróðleik um okkur í vegamesti en þann að við trúum á huldufólk og drauga? Hvenær ætl- um við að þora að stýra ferðamál- unum af röggsemi og raunsæi? Birna G. Bjarnleifsdóttir ,, Stj órnandi umrædds kynningarfund- ar sagði um íslendinga að þeir væru mjög drykkfelldir, enda væri ekkert annað fyrir þá að gera á dimmum vetr- arkvöldum en drekka sig fulla.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.