Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1992, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1992, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1992. Fréttir Margar aurskriður í leysingunum 1 Fljótshlíð: Hlíðin fagra í sárum eftir náttúruöflin - meira en menn muna hér, segir húsfreyjan að Hlíðarendakoti „Það verða af þessu mikil land- spjöll," sagði starfsmaður Rafmagns- veitu ríkisins við blaðamenn DV í gær en aurskriða hefur rofið stórt skarð í Fljótshliðinni, í landi Hlíðar- enda. Rafmagnsveitumenn voru að huga að rafmagnsstaur sem brotnaði í spón í miðri aurskriðunni. Rafmagn var tekið af í Fljótshlíðinni í gær á meðan hnan var losuð frá staurnum. Margar aurskriður féllu aðfaranótt mánudagsins í Fljótshlíð þegar leys- ingarnar stóðu sem hæst. Hin fagra hlíð er nú í sárum eftir náttúruöflin. Mest urðu spjölhn í landi Hhðar- endakots og Hlíðarenda. Stærsta skarðið í hhðinni er í landi Hhðarenda. Eftir að flóðið féh rann lækur eftir skurðinum í hlíðinni og myndaði lón fyrir á aumum og torf- inu sem rann niður. Því var ekki séð í gær hvort önnur skriða félh í kjölf- arið. „Þetta er meira en menn muna hér í kring,“ sagði Guðrún Stefánsdóttir, húsfreyja að Hlíðarendakoti, við DV. „Þetta er nú samt fljótt að gróa aft- ur. Verst fór nú samt girðingin hér fyrir neðan veginn þar sem fljótið lék um hana. Bærinn og öh húsin hér voru byggð á meðan Markarfljótið gekk héma yfir, áður en garðarnir voru gerðir árið 1947. Þó það komi svona flóð verða því htil spjöll á mannvirkjum. Bæirnir eru byggðir þannig hér að það er htil hætta á að skriður falh á þá. Þeir hugsuðu um það gömlu mennimir á árum áður þegar þeir settu upp kofana," sagði Guðrún. -ÓTT Aurskriðan sem féll i landi Hlíðarenda í Fljótshlíð. Ber klöpp stóð eftir ofarlega í hliðinni. Rafmagnsstaur kubbaðist í sundur þegar aurskrlðan féll. í gær hafði safnast upp lón ofan á aurinn og torfið sem féll niður og því ekki Ijóst hvort skriðan færi lengra. DV-mynd Brynjar Gauti Dýrari læknisþjónusta - nýja gjaldskráin tekur gildi í dag Stykkishó mm a ■ r lmur: u w . . 70 pusunai íþróttahúsið áfyrstaári Kristján Sigurðsson, DV, Stykkishólrm: íþróttahúsið hérí Stykkishólmi átti nýlega eiris árs afmæli og af því tilefni hefur Vignir Sveins- chjii, vuuajuucu uiav tekiö saman tölur juí uuocmia, um nýtingu þess. Þar kemur í I legur íþróttaáhugi jos nve gixur- er í Stykkis- hólmi. Um 70 þú sund manns | I 1 xs sið á fyrsta starfsári þess. Allt að því 300 m; mns koma til mikiö roiðað við að 1300. Annað sem sýnii g er pao nijog íbúar eru hér áhugann er hve vel er mætt á deildarinnar í körf leiki úrvals- uknattleik en valsdefldarlið. A mæta um 300 áhorfi 5 meðaltali :ndur á hvem leik en flestir hafa 450 - það er 35% b; l| Ný gjaldskrá fyrir læknisþjónustu tekur gildi í dag. Sjúkhngum er nú gert að greiða 600 kr. fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimihs- læknis á dagvinnutíma. Elh- og ör- orkulifeyrisþegar greiða lægra gjald eða 200 kr. Utan dagvinnutíma er heimsóÉiriargjaldið 1000 kr. en 350 kr. fyrir elli- og örorkulífeyrisþega. Þetta á þó ekki við þegar læknir hefur sjálf- ur vahð að sinna læknisstaríi utan dagvinnutíma. Þá er í gildi sama gjald og á dagvinnutíma. Gjaldið rennur til reksturs heilsu- gæslustöðvar eða stofureksturs heimihslæknis. Ekki þarf að greiða fyrir komur vegna mæðra- og ung- bamavemdar. Fyrir vitjun skal greiða 1000 kr. á dagvinnutíma og 1500 kr. utan dag- vinnutíma. Elh- og öjcorkuhféýris-' þegar eiga að greiða 350 kr. fyrir vitj- . un á dagvinnutíma en 500 kr. fyrir vþjun utan dagvinnutírriá. Þetta á þó ekki við þegar læknir hefut''sjálfur válíð að sinna vitjun utan dagvinnu- tíma. Koma vegna krabbameinsleitar á heilsugæslustöðvum og hjá heimilis- læknum kostar nú 1500 kr. Elh- og örorkulífeyrisþegar eiga að greiða 500 kr. Gjald fyrir sérfræðilæknishjálp, rannsóknir, röntgengreiningu og komu á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku sést á meðfylgjandi töflu. Einstakhngar á aldrinum 16 til 67 ára þurfa þó aldrel áð greiða hærri fjárhæð en 12 þúsririd kr. á ári vegna læknisþjónustu. Fyrir elli- og ör- orkulífeyrisþega gildir upphæðin 3 þúsund kr. Greiðslur fyrir meöferð á glasa- frjóvgunardehd Landspítalans hafa ekki áhrif á hámarksgreiðslur. Fyrsta meðferð kostar 105 þúsund krónur. Önnur og þriðja meðferð kostar 60 þúsund hvor. Fyrir meö- ferðir umfram þijár skal greiða full- ankostnað,200þúsundkrónur. -IBS Heilsugstöð Heimlæknir Vitjun Sérfrhjálp Rannsóknir Röntgen Slysadeild/ Göngudeild Dagvinnutimi Sjúkratryggðir 600 kr. 1.000 kr. 1.500 kr. 600 kr. 600 kr. 1.500 kr. Elli- og örorkulifeyrisþ. 200 kr. 350 kr. 500 kr. 200 kr. 200 kr. 500 kr. Utan dagvinnutíma Sjúkratryggðir 1.000kr. 1,500kr. Elli- og örorku 1 ífeyrisþ. 350 kr. 500 kr. „Eg mun þegar í stað hefía við- ræöur við Samskip um kaup þeirra á strandferðaskipinu Esju og hugsanlega fleiri skipum Skip- aútgerðar ríkisins. Undirbún- ingsnefhd aö stofnun hlutafélags um kaupin óskaði eftir hálfs mánaðar íresti til viðbótar til að koma með tilboð en við því treysti ég mér ekki aö verða. Að mínu mati er óhjákvæmilegt að láta nú þegar á það reyna hvert tilboð Samskipa er nákvæmlega. Frek- ari frestun myndi einungis valda því að Samskip færu að leita sér að strandferðaskipi erlendis. Það tel ég vera kost sem ekki gangi,“ segir Hahdór Blöndal samgöngu- ráðherra. Halldór kahaði undirbúnings- nefndina á sinn fund í gær og skýrði henni frá ákvörðun sinni. Áður hafði ráöherra hafnað til- boði frá nefndinni þar sem gert var ráð fyrir kostnaðarsömum þjónustusamningi við ríkið. Hahdór segir tilboð Samskipa gera ráð fyrir að starfsmenn Rík- isskipa verði látnir sitja fyrir um vinnu hjá Samskipum gangi samningar eftir. Að ööru leyti sagði hann tilboð Samskipa vera trúnaðarmál. Heimildir DV herma að tilboð Samskipa í ms. Esju geri ráð fyr- ir kaupleigu til eins árs. Að þeim tíma liðnum gerði skipafélagið úpp við sig hvort þaö hefði hug á kaupum. Samtals mun kauptil- boöíð hljóða upp á um 120 millj- ónir krónur. Halldór segist vilja reyna til þrautar samninga við Samskip um kaup á fleiri skipum en Esju áður en viðræður verði teknar upp við aöra aðila, þar á meðal norska útgerðaraðila. Hann seg- ist vongóöur um árangur^enda hafi Samskip mikla hagsmuni af strandsigHngunum. MíHÍoí við þróun mála segir Halldór allar Iíkur á að Skipautgerð rikisins verði lögð niöur síðar á árinu. Hjörtur Emilsson, varaformað- ur undirbúningsnefndarinnar, segir það mikil vonbrigði að sam- gönguráðherra skuli hafa ákveð- ið að veita ekki frekari frest til tilboðsgerðár. Hann útilokar þó ekki nýtt tilboð frá riefndinni á næstunni, enda háfl samgöngu- ráðherra ekki slitið viðræðum við hana þótt hann hafi tekið upp samningaviðræður við Samskip. „Það eru mér vissulega mikil vonbrigöi aö Skipaútgerð ríkisins skuli verða lögð niður með þess- um hætti. Ég hefði talið eðlilegt að láta reyna á okkar getu til að taka fyrirtækið yfir,“ segir Hjört- ur. -kaa Loönuskipstjórar: Mótmæla út- lendum skipum Skipstjórar á 31 loðnuveiðiskipi hafa sent yfírvöldum mótmælí sín vegna fyrirhugaðra samninga yiö útiendinga um loðnuveiöar i íslenskri lögsögu og of margra erlendra loðnuveiöiskipa á mið- unum á þessari vertíð. Ályktun skipstjóranna hljóðar svo: „I Ijósi reynslu okkar af veiðum erlendra loðnuskipa hér við land undanfarin ár raótmælum við harðlega öllum áformum um samninga viö útlendinga um loðnuveiöar í íslenskri lögsögu. Einnig skorum við á stjórnvöld að sjá til þess að á yfirstandandi vertíö séu aðeins 20 erlend loönu- skip í íslenskri lögsögu í einu, eins og reglur kveða á um.“ Undir þetta eru rituð nöfn skip- stjóra á 31 ioðnuskipi. -S.dór J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.