Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1992, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1992, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1992. Fréttir Merkjá rauf skarð í veginn við brúna á Fljótshllðarvegi: Rétt slapp yf ir með „Maður er ekkert að gera sér rellu út af aurskriðunum,“ sagði Jón Þóröarson, bóndi að Eyvindarmúla i Fljótshlið. konu og barn „Gilið héma fyrir ofan var fullt þegar verst lét,“ sagði Jón Smári Lárusson vegagerðarmaður við DV í gær þar sem hann var að vinna við lagfæringu á Fljótshlíðarvegi við Merkjá rétt innan við Hlíðarendakot í gær. Sprænan í hlíðinni fyrir ofan varð að beljandi á á mánudag. Þá fór vegurinn í sundur við brúarsporðinn þar sem Jón Smári og vinnufélagar hans vora að keyra í við brúna yfir Merkjá: „Sonurinn frá Eyvindarmúla rétt slapp framhjá. Það var hann sem lét okkur vita þegar vegurinn fór í sund- ur við brúna,“ sagði húsfreyjan að Hlíðarendakoti. „Hann var með konu og barn í bílnum og sagðist hreinlega hafa komist yfir á bílnum á malbik- inu. Það sást ekkert þarna í svarta myrkri. Það var settur sandur þama Síðasti bíll sem ók veginn áður en hann rofnaði við brúna yfir Merkjá nánast „slapp yfir á malbikinu" einu saman. Myrkur var og sá ökumaðurinn ekki vel að áin var búin að grafa sig undir veginn. Verið var að aka grjóti í skarðið í gær. Á myndinni er bíll frá vegagerðinni. DV-myndir BG við brúna þegar hún var gerð í hitti- fyrra en ekkert grjót,“ sagði hús- freyjan. Verið var að aka grjóti í skarðið við brúna í gær þar sem vegurinn fór í sundur. Ekki kom til þess að bæir einangruðust í Fljótshlíð því hægt var að aka frá veginum eftir heim- keyrslunni að Múlakoti og síðan eftir vegarspotta fyrir brúna og upp á þjóðveg aftur. Aurskriöa féll í hlíðinni rétt vestan viö bæinn Eyvindarmúla sem stend- ur austarlega í Fljótshlíð. Jón Þórð- arson bóndi sagði að mörg ár væru liðin frá því að skriður féllu með svipuðum hætti og nú hefur gerst. Fjárhúsin að Eyvindarmúla standa þétt undir hlíðinni. „Maður er ekkert að gera sér rellu út af þessu. Þetta er fljótt að gróa aftur,“ sagði Jón. -ÓTT í bflnum í dag mælir Dagfari_______________ Steingrímur fór ekki Sendiherra Bandaríkjanna, Mr. Charles Cobb, er senn á förum vest- ur um haf. Mr. Cobb sendiherra er afar geðþekkur maður og einn af fáum diplómötum sem hér hafa dvalið með þeim árangri að íslend- mgar hafa dáðst að honum og virt. Mr. Charles Cobb er hressilegur í tali, hreinskiptinn og heiðarlegur. Skýringin er sjálfsagt sú að maður- inn er boðflenna í sendiráðinu og ekki tamið sér edikettur utanríkis- þjónustunnar, sem þurrkar burtu persónuleika þeirra manna sem þar dveljast langdvölum. Mr. Cobb hefur staldrað stutt við. Sendiherrastaðan hér á landi er hans eina starf í utanríkisþjón- ustunni og nú er hann farinn aftur vestur um haf til að hjálpa vini sín- um, George Bush, aö verða forseti á nýjan leik. Enda segir Mr. Cobb að hann hafi margt lært af íslensk- um stjórnmálum og stjóramála- mönnum og allt ætti þaö að geta komið Bush að góðum notum. Sendiherrann segir frá því að hann hafi veriö vinur allra íslenskra sljómmálamanna og meiri vinur sumra en annarra. Nefnir hann því til sönnunar að „forsætisráðherra hefur dvalið á heimili mínu í Flórída í eina viku, svo og utanrík- isráðherrann og Steingrímur Her- mannsson. Þorsteinn Pálssson sjávarútvegsráðherra hefur dvalið í skíðaskálanum okkar í Banda- ríkjunum". Þess skal getið til áréttingar að Mr. Cobb hefur aðeins dvalið á ís- landi í tvö ár, svo honum hefur ekki gefist ráðrúm til aö bjóða fleiri ráðherrum íslenskum á einka- heimili sín, sumarbústaði og skíða- skála fyrir vestan, en hann hefur hins vegar notað tímann hér heima og segir: „Þegar við klifum Heklu báðum við Þorstein Pálsson og Ingibjörgu Rafnar að klífa hana með okkur og það gerðu þau. Þegar við höfum rennt fyrir lax, höfum við iðulega gert það í félagi við stjómmálafor- ingja, leiðandi menn úr viöskipta- lífinu og svo framvegis.“ Hér kemur það fram að Mr. Cobb hefur nýtt tíma sinn vel, þrátt fyrir stutt stopp og milli þess sem ís- lensku stjómmálaforingjarnir dvöldu fyrir vestan í híbýlum sendiherrans veiddu þeir með hon- um lax og klifu flöll og voru honum ánægjulegt kompaní. islenskum kjósendum fmnst áreiðanlega notalegt til þess að vita aö þegar ráðherramir eru á sífelldum ferða- lögum í útlöndum eigi þeir sér at- hvarf í sumarbústöðum banda- ríska sendiherrans og Þorsteinn Pálsson gat meira að segja gert hlé á fundarsetum sínum í Bandaríkj- unum til að komast á skíði, þökk sé Mr. Cobb og skíðaskálanum hans. Eitthvað er Steingrímur Her- mannsson að hafa móral út af þess- um vinskap og Steingrímur sér til- efni til að skrifa athugasemd í Mogga og koma þvi að að hann hafi aldrei þegið boð sendiherrans um að dvelja á heimilum hans. Steingrímur telur það ekki við hæfi að þiggja slík boð frá sendi- manni erlends ríkis. Steingrími er vorkunn. Hann þarf sífellt að stíga í vinstri eða hægri og vera bæði með og móti Bandaríkjamönnum meðan hinir ráðherramir geta verið heilshugar með Bandaríkjunum og þurfa þess vegna ekki að hafa móralskar áhyggjur af því þótt þeir dvelji í sumarbústöðum og skíðaskálum ambassadorsins fyrir ekki neitt. Og svo vill maðurinn endilega bjóða. íslenskir ráðherrar geta auðvitað ekki veriö þekktir fyrir að aíþakka svona góð boð, enda er góð vinátta milli íslands og Banda- ríkjanna og svo er þetta algjörlega frítt og ráðherramir fá sína dag- peninga á meðan þeir dvelja í sum- arbústöðunum og konurnar líka og Mr. Cobb er vinur Bush forseta og Bush er vinur íslands. íslenskir ráðherrar geta ekki verið þekktir fyrir að móðga vini Bush. Steingrímur Hermannsson hefur ekki þegið heimboð sendiherrans. Það er hans vandamál. Steingrím- ur á eftir að sjá eftir því, enda hrökklaðist hann úr stjórninni meðan allir heimilisgestir Mr. Cobb eru við völd á íslandi. Mr. Charles Cobb hefur reynst íslendingum vel. Hans verður sárt saknað af núverandi ráðherrum. Vonandi skipar Bush Bandaríkja- forseti nýjan sendiherra sem bæði á sumarbústaði og skíðaskála. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.