Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1992, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1992, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1992. Afmæli Guðmundur Ingi Kristjánsson Guömundur Ingi Kristjánsson, bóndi, kennari og skáld að Kirkju- bóli í Bjamardal í Önundarfirði, er áttatiu og fimm ára í dag. Starfsferill Guðmundur Ingi fæddist að Kirkjubóli og ólst þar upp í foreldra- húsum. Hann stundaði nám við eldri deild Alþýðuskólans að Laug- um 1929-30 og við eldri deild Sam- vinnuskólans 1931-32. Guðmundur Ingi hefur verið bóndi að Kirkjubóli frá 1944. Hann var kennari í Mosvallahreppi 1927-29,1930-31,1932-34,1935-37, 1943-46 og 1954-74, auk þess sem hann var skólastjóri heimavistar- skólans í Holti 1955-74. Guðmundur Ingi sat í stjóm Ung- mennafélagsins Bifrastar 1922-37 og 1938-42, var ritari Héraðssambands ungmennafélaga Vestfjarða 1932-51, sat í stjóm og var formaður Búnað- arsambands Vestíjarða 1947-83, sat í hreppsnefnd Mosvallahrepps 1938-46 og 1952-82, var oddviti hreppsins 1958-82, sat í sýslunefnd 1954-86, sat í stjóm Kaupfélags Ön- firðiriga 1935-38 og 1939-78, sat í skólanefnd 1931-56 og í skólanefnd Héraðsskólans aö Núpi 1949-83 og um árabil formaður hennar, var lengi fuUtrúi á aðalfundum Stéttar- sambands bænda frá 1945 og sat í stjóm Stéttarsambands bænda 1970-87. Ljóðabækur Guðmundar era Sól- stafir, útg. 1938; Sólbráð, útg. 1945; Sóldögg, útg. 1958; Sólborgir, Aust- urfararvísur, útg. 1963; Sólfar, útg. 1981. Auk þess hefur birstfjöldi greina og kvæða eftir Guðmund Inga í blöðum og tímaritum. Fjölskylda Guðmundur Ingi kvæntist 2.9. 1962 Þuríði Gísladóttur, f. 6.7.1925, húsfreyju. Hún er dóttir Gísla Vagnssonar, b. að Mýram í Dýra- firði, og konu hans, Guðrúnar Jóns- dótturhúsfreyju. Stjúpsonur Guðmimdar Inga er Sigurleifur Ágústsson, f. 11.8.1954, 1*; stýrimaður og nú starfsmaður hjá Sólarfilm, kvæntur Þórhildi Sverr- isdóttur, húsmóður og tækniteikn- ara, og eiga þau einn son, Guðmund Inga. Systkini Guðmundar Inga: Ólafur Þ. Kristjánsson, nú látinn, skóla- stjóri í Hafnarfirði, var kvæntur Ragnhildi Gísladóttur en Ólafur var faðir Kristjáns Bersa skólameistara, Ingileifar hjúkranarfræðings og Ásthildar skólaritara, móður Ólafs Harðarsonar sfjómmálafræðings; Jóhanna, búsett á Kirkjubóli og á hún eina dóttur, Kolfinnu Guð- mundsdóttur, hjúkranarkonu á Pat- reksfirði; Halldór, rithöfundur og fyrrv. alþingismaður, búsettur í Reykjavík, kvæntur Rebekku Ei- ríksdóttur og á hann íjögur fóstur- böm, Ósku Elínu Jóhannesdóttur húsmóður, Sævar Bjöm Gunnars- son félagsráðgjafa, Sigríði Eyrúnu Guðjónsdóttur húsmóður og Sigur- laugu Sævarsdóttir húsmóður. Foreldrar Guðmundar Inga vora Kristján Guðjón Guðmundsson, f. 1.2.1869, d. 31.10.1920, b. á Kirkju- bóli, og kona hans, Bessabe Hall- dórsdóttir, f. 4.12.1877, d. 26.6.1962, húsfreyja. Ætt Föðursystir Guðmundar Inga var Guðrún, amma Kristínar Á. Olafs- dóttur borgarfulltrúa og Gests Ól- afssonar arkitekts. Kristján var son- ur Guðmundar, b. á Vöðlum og Kirkjubóli, Pálssonar, bróður Há- konar, langafa Sigurjóns Pétiu-sson- ar borgarfulltrúa. Systir Guðmund- ar Pálssonar var Solveig, amma Gils Guðmundssonar rithöfundar. Móð- ir Guðmundar Pálssonar var Krist- ín Hákonardóttir, b. á Grafargili, Hákonarsonar, bróður Brynjólfs, tvo vegu langafa Guðnýjar, móður Guðmundar G. Hagalíns rithöfund- ar. Brynjólfur var einnig langafi Gísla, föður Guðmundar G. Haga- líns. Móðursystir Guðmundar Inga var Friðrikka, amma Einars Odds Kristjánssonar, formanns VSÍ. Guðmundur Ingi Kristjánsson. Bessabe var dóttir Halldórs, b. á Hóli í Önundarfirði, bróður Ragn- heiðar, langömmu Elsu Guðjohnsen safnvarðar, Gunnars Ásgeirssonar forstjóra og Ragnars læknis, Har- alds verkfræðings og Önundar for- stjóra Ásgeirssona. Halldór var son- ur Halldórs, b. á Grafargili, Eiríks- sonar, prests á Stað í Súgandafirði, Vigfússonar. 95 ára Baldur G uðmundsson, Háaleitiabraut 26, Reykjavfk. 80 ára Magnús Maríasson, Æsufelli 2, Reykjavik. 75 ára 50ára Andrés Eyj ólfeson, Hlíðargötu 1, Sandgerði. Eiríkur Ágúst Brynjúlfeson, Brúarlandi 1, Hraunhreppi. Gylfx Kr istján Magnússon, Grundarbraut 44, Olafsvík. ólöf Magnúsdóttir, Fagragarði 12, Keílavik. Elísabct Þórhallsdóttir, Eyjaholti 8, Garði. Hún tekur á móti gestum nk. laug- ardag að Hraunholti í Garði eftir kl. 18. Sigþrúður Tómasdóttir, Austurbraut 6, Keflavík. Kristín Hartmannsdóttir, Melstað 1, Hofshreppi. 70 ára Unnur Valgerður Ingólfsdóttir, Kjarrhólma 6, Kópavogi. Guðrún Marteinsdóttir, Hraunbæ 84, Reykjavik. Birgir Þór Baldvinsson, Amartanga 4, Mosfellsbæ. Lovísa S. Þorlei&dóttir, Grundarhúsum 11, Reykjavík. Einar Kjartansson, Barmahh'ð 56, Reykjavík. Jóhann S. Sigurðsson, Aðalgötu 8, Árskógshreppi. 60 ára Margrét Haraldsdóttir, Sleitustöðum 1, Hólhreppi. Árni Jónsson, Hlíðarendakoti, Fljótshlíðar- hreppi. Elsa Ásbergsdóttir, Völusteinsstræti 15, Bolungarvík. Ásthildur Júlíusdóttir, Möörafelli 13, Reykjavík. Sæ var Þór Geirsson, Rituhólum 15, Reykjavík. Rós Sveinbjörnsdóttir, Ölduslóð 12, Hafnarfirði. Brenda Darlene Pretlove, Ásbúö76,Garðabæ. Sigurður Sigurðsson, Hjallalundi 18, Akureyri. Eindis Kristjánsdóttir, Enni, Viðvíkurhreppi. Grétar Jónasson, Höföavegi 20, Húsavik. Steinþór Einarsson, SkaftahJíð 11, Reykjavík. Páll Gunnar Pálsson, Arnarhrauni 24, Hafiiarfirði. Björk Axelsdóttir Björk Axelsdóttir kennari, Húna- völlum, Torfalækjarhreppi, A- Húnavatnssýslu, varð fimmtug í gær. Starfsferill Björk er fædd á Ytri-Brekkum á Langanesi og ólst upp þar og í Þistil- firði. Hún var hjá foreldram sínum til fimm ára aldurs en eftir það í fóstri að Svalbarða í Þistilfirði hjá Þorláki Stefánssyni og Þuríði Vil- hjálmsdóttur. Björk lauk landsprófi frá Lauga- skóla í Reykjadal 1958 og stundaði nám í Húsmæðraskólanum að Laugum veturinn þar á eftir og lauk þaðan prófi 1959. Björk varð stúdent frá öldungadeild Menntaskólans á Akureyri 1983 og lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla íslands 1991. Björk var kennari við Höfðaskóla á Skagaströnd og verkstjóri við saumastofuna Víólu á Skagaströnd. Hún hefur verið kennari á Húna- völlumfrál986. Björk hefur tekið virkan þátt í fé- lagsmálum. Hún var í sijórn Kven- félagsins Einingar 1966-79, lengst af sem ritari en sem formaður 1976-79, formaður Framsóknarfélags A- Húnvetninga 1983-89, í stjóm Kjör- dæmissambands NV frá 1988, í stjóm Kennarasambands NV 1989-91 en í varastjóm 1984-86, rit- ari Sambands a-húnvetnskra kvenna frá 1987 en áður vararitari, í Orlofsnefnd SAHK1985-90, deild- arstjóri í Höföadeild Kaupfélags Húnvetninga 1974-79, var í rekstrar- nefnd félagsheimilisins Fellsborgar, var formaður úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta á Skagaströnd, í stjóm verkamannabústaða á Skaga- strönd og í heilbrigðisnefnd Höföa- hrepps. Fjölskylda Björk giftist 14.1.1960 Jóni Sveini Pálssyni, f. 28.12.1933, sérkennara og fyrrverandi skólastjóra. Foreldr- ar hans vora Páll Jónsson, skóla- stjóri á Skagaströnd, og Sigríöur Guðnadóttir húsmóðir. Böm Bjarkar og Jóns: Páll, f. 5.4. 1961, fiskiðnaðarmaöur á Akureyri; Rannveig, f. 7.7.1962, myndmennta- kennari í Hafnarfirði, dóttir hennar er Björk, f. 6.2.1982; Þorlákur Axel, f. 22.8.1963, sagnfræðingur, maki Gunnhildur Hafdís Gunnlaugsdótt- ir, f. 27.11.1962, þroskaþjálfi, þau dvelja nú í Kaupmannahöfn, þau eiga tvær dætur, Svanhildi, f. 6.11. 1986, og Berglindi Jónu, f. 14.9.1991; Sigurður Pétur, f. 4.1.1965, smiður í Hafnarfirði; Þorsteinn Styrmir, f. 20.4.1971, nemií Menntaskólanum áAkureyri. Systkini Bjarkar: Elsa Þórhildur húsmóðir, f. 1.8.1940, maki Pálmi Ólason skólastjóri, þau eru búsett á Ytri-Brekkum, þau eiga sjö böm; Þyrí, f 26.3.1943, skrifstofumaður, maki Ásgeir Guðnason rafvirkja- meistari, þau era búsett á Selfossi, þau eiga þrjú böm; Þuríður, f. 11.10. 1945, sjúkrahði, maki Halldór Ág- ústsson vélstjóri, þau era búsett í Reykjavík, Þuríður á tvær dætur; Davíð, f. 17.11.1946, húsasmíða- meistari, maki Selma Albertsdóttir, þau era búsett á Selfossi, þau eiga þijúböm. Björk Axelsdóttir. Foreldrar Bjarkar: Axel Davíðs- son, f. 17.11.1921, d. 18.9.1990, bóndi á Ytri-Brekkum á Langanesi og síð- ar húsasmiður og verkstjóri, síðast í Keflavík, og Þorbjörg Bjamadóttir, f. 23.1.1920, sjúkraliði í Reykjavík en áður húsmóðir að Ytri-Brekkum ogáÞórshöfn. Ætt Axel var sonur Davíðs VOhjálms- sonar, bónda að Ytri-Brekkum, og konu hans, Sigrúnar Sveinbjöms- dóttur frá Hámundarstöðum í Vopnafirði, en hún var systir Valdi- mars, íþróttakennara við Mennta- skólann í Reykjavík. Þorbjörg er dóttir Bjama Odds- sonar, bónda í Miðfirði á Langanes- strönd, og konu hans, Guðrúnar Valdimarsdóttur frá Bakka í Bakka- firöi. RAUTT Lófrúl RAUTT1 LIOS r%ZL UOS/ Nauðungaruppboð Neðangreindar fasteignir verða boðnar upp og seldar á nauðungaruppboði sem haldið verður á skrifstofu embættisins að Austurvegi 4, Hvolsvelli, fimmtudaginn 16. janúar 1992 kl. 15.00. Önnur og síðari sala: Eystri-Hóll, Vestur-Landeyjahreppi, talinn eigandi Ólafur Ingimarsson, þing- lystur eigandi Hjörtur Már Benediktsson. Uppboðsbeiðandi er Stofnlána- deild landbúnaðarins. Búð II, Djúpárhreppi, þinglýstur eigandi Daníel Hafliðason. Uppboðsbeið- endur eai Sigríður Thorlacius hdl., Ólafur Axelsson hrl., Grétar Haraldsson hrl., Jón Ingólfsson hrl„ Húsnæðisstofun ríkisins og Lífeyrissjóður Rangæ- inga. SÝSLUMAÐUR RANGÁRVALLASÝSLU Alda Saeunn Bjömsdóttir Alda Sæunn Bjömsdóttir lækna- ritari, Fossahlíð 5, Grandarfirði, er fertugídag. Fjölskylda Alda er fædd á Grandarfirði og ólst þar upp. Hún lauk gagnfræða- prófi í Stykkishólmi. Alda starfar nú sem læknaritari á Heilsugæslu- stöð Grundarfjarðar. Maður Öldu er Ríkarður Ríkarðs- son,f. 1.4.1947. Böm Öldu og Ríkarðs: Albert Magni, f. 19.10.1973; Guðrún Sól- veig, f. 30.4.1976; Sylvía Rós, f. 22.7. 1980; Hildur Margrét, f. 3.12.1984. Foreldrar Öldu: Bjöm Ásgeirsson, skipstjóri á Grandariirði, og Guð- rún SólveigÁmadóttir, látin, verka- kona. Ætt Bjöm er sonur Ásgeirs Kristjáns- sonar, Kampi í Eyrarsveit, og Þór- dísar Þorleifsdóttur. Guðrún Sól- veig var dóttir Áma Kristjánssonar, Hópi, Kvíabryggju í Eyrarsveit, og Guðrúnar Helgadóttur. Alda Sæunn Björnsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.