Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992. 7 Fréttir Tilboð MS til að koma Bauluvörum út úr verslunum: Sölumenn f ara þá út fyrir verksvið sitt - segir Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar Ég sé ekki að skynsamlegt sé að leggja Samsöluna niður, segir Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursam- DV-mynd GVA - Fullyrt hefur verið í DV að Mjólkursamsalan bjóði kaup- mönnum 3 prósent afslátt af til- teknum vörum hendi þeir vörum frá Baulu út annars vegar eða eftir- láti MS 80 prósent af hilluplássi en Baulu aðeins 20 prósent. Er þetta rétt? Yfirmaður sölusviðs hefur svar- að þessu í DV upp á síðkastið. Það er rétt sem fram hefur komið hjá honum að sölumenn þessa fyrir- tækis hafa ekki haft umboð til þess að bjóða afslátt gegn því að Baulu sé hent út úr verslunum. Hins veg- ar hefur verið lagt fyrir sölumenn að reyna að sjá til þess að við fáum eðlilega framstillingu fyrir okkar vörur í verslunum. - Ertu með þessu að segja að sölu- mennirnir bjóði þetta án vitundar yfirmanna fyrirtækisins eöa þá að viðmælendur blaðsins fari með ósannindi? Ég hlýt að vona að þetta sé rangt og að ekki sé hægt að túlka söluað- ferðir sölumanna okkar með þess- um hætti vegna þess að það væri algjörlega andstætt mínum vilja og stjórnenda þessa fyrirtækis. Það er það sem skiptir máli. - DV hefur birt staðfestingar manna sem fengiö hafa slíkt tilboð og nótur MS frá þeim sem hafa þegið það. Eru þetta ekki nógar sannanir? Því er til að svara að sé þetta rétt þá tel ég að sölumaður hafi farið út fyrir það umboð sem hann hefur haft. Meira hef ég ekki um það að segja. - Munuð þið hafa uppi á þessum sölumönnum og taka þá til bæna? Við munum fylgjást með og standa klárir á því hvernig okkar starfsfólk kemur fram úti í versl- ununum. Ég tel aö við séum með allar upplýsingar sem við þurfum í þessu máli. - Varðandi ísmarkaðinn þá hafa einnig komið fram fullyrðingar um að MS kaupi upp ísbúðir, fjármagni vélar í þær og jafnvel innréttingar og taki þátt í auglýsingakostnaði þeirra. Er þetta rétt? ísútsölustaðir verða að versla við okkur eða einhverja aðra vegna þess að yfirleitt er ekki um að ræða nema eina eða tvær ísvélar. Það gengur ekki að vera með ísblöndu frá mörgum aðilum. Það eru til dæmi þess að Mjólkursamsalan hafi lagt til ísvél í einhverja ísbúð. En ég vil taka það mjög ákveðið fram að Mjólkursamsalan hefur ekki verið brautryðjandi á því sviði að leigja út áhöld. Aðskildar rekstrareiningar - Þá hefur verið kvartað undan því að MS hóti seinni afgreiðslu á mjólk og mjólkurvörum fái brauð fyrirtækisins ekki betra rými í hill- um heldur en brauð annarra fram- leiðenda: Þetta er algjörlega út í loftið. Ég leyfi mér að efast um að þeir menn, sem vinna við það hér á Bitruhálsi að senda mjólkurvörurnar út til verslana, hafi hugmynd um hvort viðkomandi verslanir kaupa af okkur brauð, ís eða aðrar vörur því starfsemin er algjörlega aðskilin. - Nú eru mjólkurvörur, brauð- gerö, ísgerð og ávaxtasafi undir einum hatti hjá Mjólkursamsöl- unni. Þessar einingar eru ekki lög- formlega sjálfstæðir rekstraraðil- ar. Er þetta ekki óheppilegt fyrir- komulag? Þessi hliðarstarfsemi, hvort sem um er að ræða ísgerð eða brauð- gerð, er rekin sem algjörlega að- skildar rekstrareiningar sem eru gerðar upp sérstaklega í rekstrin- um. Birtur er sundurliðaður, ítar- legur rekstrarreikningur fyrir við- komandi starfsemi. Það komu fram ávirðingar frá einum keppinaut okkar fyrir nokkru um að við vær- um að rugla saman reytum í mjólk- inni annars vegar og í rekstri brauðgeröar hins vegar. Þar sem Verslunarráði var blandað í málið fórum við fram á að það kannaði hvað hæft væri í þessum ásökun- um. Það valdi virtan endurskoð- anda til að fara ofan í saumana á þessu máli. Eftir því sem ég best veit sannfærðist hann um að þess- ar ávirðingar ættu ekki við rök að Yfirheyrsla Jóhanna S. Sigþórsdóttir styðjast. En það væri alveg til í dæminu að stofna eitthvert rekstr- arform um þessi hliðarfyrirtæki. - Fullyrt er að Mjólkursamsalan flytji gróða af niðurgreiddum nauð- synjavörum til að fjármagna aðra vöruílokka í samkeppninni. Er þetta rétt? Ég vísa- þessu alfarið á bug. Við getum tekið sem dæmi að við erum nýbúnir að endurreisa brauðgerð fyrirtækisins. Brauðgerðin, sem var áður nánast algjörlega skuld- laust fyrirtæki, er núna komin með langtímaskuld upp á annað hundr- að milljónir vegna þessarar fjár- festingar sem fylgdi endurreisn- inni. Kostnaðurinn leyndarmál - Hvað kostaði nýja brauðgerðin að Lynghálsi 7? Ég sé ekki ástæðu til að upplýsa um það. Ég efast um að samkeppn- isaðili væri tilbúinn til að upplýsa svipaða hluti. - Nú er Mjólkursamsalan rekin að hluta til af skattpeningum almenn- ings í landinu. Gildir ekki sama um hana og önnur fyrirtæki af því tagi að veittar eru umbeðnar upplýs- ingar um kostnað við fjárfestingar? Ég tel aö ekki sé ástæða til að gefa upp slíkar upplýsingar. Ég get fullvissað þig um að við erum ekki að nota mjólkurpeninga til þeirrar íjármögnunar. Brauðgerðin hefur skilað hagnaði í allmörg ár og átti því verulegan höfuðstól inni í rekstrinum. Það voru því þokka- legar ástæður til að endurnýja húsakynnin. - Er mögulegt að færa íjármagn á milli hinna einstöku greina, það er mjólkurvara, ís- og brauðgerðar, eins og rekstrarfyrirkomulag fyrir- tækisins er núna? Já, það getur vel verið að það sé hægt. En þessi fyrirtæki eru rekin algjörlega aðskilin. Hér eru starf- andi endurskoöendur, bæði ráðnir og félagslega kjörnir. Ég leyfi mér að efast um það að þeir myndu horfa upp á slíkt þegjandi og hljóöalaust. - Skilaði brauðgerðin hagnaði á síðasta ári? Nei, að sjálfsögðu kemur um- rædd fjárfesting fram sem aukinn þungi í rekstri og eykur ijármagns- kostnað fyrirtækis og gerir það að verkum að brauðgerðin er ekki rekin með hagnaði á síðasta ári. Verðlagning hjá afurðastöðvunum - Hvorum megin við strikið var ísgerðin? Isgerðin skilaði þokkalegri af- komu á síðasta ári. Hún var því réttu megin en það var ekkert mik- ið meira en það. - Er Mjólkursamsalan tíma- skekkja eins og hún er rekin núna? Ég er sannfærður um að það er margt í rekstri afurðastöðva yfir- leitt sem mætti lagfæra. Einnig mætti margt í verðmyndunarkerfi mjólkurvara vera meö öðrum hætti. Það er mikill misskilningur að MS sé að reyna að halda í þessa hluti. - Hvað myndir þú vilja sjá breyt- ast? Það þarf aö koma til meira frjáls- ræði og aukið svigrúm afurða- stöðva til að selja sínar vörur. Af- urðastöðvarnar þyrftu að hafa meira um það að segja á hvaða verði þær væru seldar. í mjög mörgum tilvikum er verðskráning- in í höndum fimm manna nefndar. Ég teldi eðlilegra að hún væri meira hjá afurðastöðvunum sjálf- um, enda gef ég mér það að þær verði í allt annarri og meiri sam- keppni heldur én þær eru í dag. - Er það ekki svo að MS haldi uppi verðinu og boli öðrum til hliðar í skjóli einokunar? Ég ætla að vona að svo sé ekki. En ég gæti vel séð fyrir mér að mjólkuriðnaðurinn væri öðruvísi upp byggður að mörgu leyti þannig að ýmsir hlutir væru gerðir með hagkvæmari hætti heldur en er í dag. Með því móti væri hægt að lækka vöruverðið. Ég hlýt að vona að stjórnvöld og forsvarsmenn mjólkuriðnaðarins geri eitthvað til að finna skynsamlegar lausnir í þeim efnum því á þeim þurfum við virkilega að halda í dag. En ég sé ekki að skynsamlegt sé að leggja Samsöluna niður. Hún hefur þjón- að viðskiptavinum sínum dyggi- lega í gegnum árin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.