Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992. 39 Markúsarnet og önnur björgunartæki og hefur ekki innkallað þau net sem framkvæmdastjórinn lýsir sem ónothæfum. Varðandi seinna atriðið þá er það okkur sem stóðum að þessari björgun óskiljanlegt með hvaða hætti menn eiga að vera út- búnir við björgun úr sjó. Flotbún- ingar þeir sem eru lögboðnir um borð í skipum eru það tæki sem minnsta áhættu hefur í för með sér fyrir björgunarmenn. - Að senda menn í sjó við erfiðar aðstæður öðruvísi útbúna er óðs manns æði. Málflutningur Péturs lýsir því vanþekkingu á viðfangsefninu og er honum ekki til sæmdar. Öll umræða um öryggismál sjómanna er af hinu góða, en menn verða að hafa það hugfast að umræðan verð- ur að sriúast um það í einlægni að leita þeirra niðurstaðna sem koma munu að gangi við björgun. Um- „ .. .menn verða að hafa það hugfast að umræðan verður að snúast um það í einlægni að leita þeirra niðurstaðna sem koma munu að gagni við björgun.“ ræðan má ekki snúast um það hvort meira eða minna selst af einu eða öðru öryggistæki. Reynir Traustason Pétur Th. Pétursson, fram- kvæmdastjóri Björgunarnetsins Markús h/f, hefur að undanfórnu farið nokkuð geyst í íjölmiðlum vegna athugasemda sem undirrit- aður og íleiri úr áhöfn Sléttaness ÍS gerðu varðandi notagildi Mark- úsarnetsins við þær kringumstæð- ur, sem voru á slysstað, þegar b/v Krossnes SH fórst á Halamiðum 23. febrúar sl. Málílutningur Péturs hefur verið á þann hátt að ekki verður undan því vikist að grípa til nokkurra andsvara með það að leiöarljósi að varpa ljósi á málið. Áhöfn Slétta- ness sem og allir aðrir sjómenn eiga allt sitt undir því að þau björg- unartæki, sem um borð eru, séu hvorki ofmetin né vanmetin við KjaUariim Reynir Traustason stýrimaður á b/v Sléttanesi Gabriel HÖGGDEYFAR STERKIR, ORUGGIR ÓDÝRIR! SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-81 47 88 Markúsarnetið. - Ekki verið að afskrifa það, en að það henti fyrst og fremst við gott sjólag og þegar sá er bjarga á sé sjálfur tiltækur að leggja björgunarmönnum lið, segir m.a. í grein Reynis. hinar ýmsu aðstæður sem eru þeg- ar slys verða á sjó. Dýrmætar mínútur Atburðir voru á þann veg að um kl. 8 að morgni sunnudagsins 23. febrúar barst neyðarkall frá togar- anum Krossnesi þar sem þeir segj- ast vera komnir á hliðina. Öll ná- læg skip hííðu strax upp veiðarfæri sín og héldu til hjálpar hinu nauð- stadda skipi. Örfáum mínútum eft- ir að neyðarkallið barst hvarf Krossnes af ratsjá. Sléttanes var eitt þeirra skipa, sem næst voru slysstaðnum, aðeins um eina sjó- mílu frá Krossnesi. Strax og neyðarkall barst var unnið samkvæmt neyðarplani um borð í Sléttanesi. Stýrimaður, sem var á vakt í brúnni, ræsti þegar út alla áhöfnina og gaf út skipun um að gert yrði klárt til björgunar manna úr sjó. Tvö Markúsarnet voru gerð klár á bakborðssíðu og tveir menn fóru í flotbúninga. Fljótlega eftir að byrjað var að keyra í átt til slysstaðar sást glampa á glitmerki í geisla frá ljós- kösturum skipsins, við nánari at- hugun kom í Ijós að þarna var um tvo flotbúninga að ræða, en annar var tómur. Skipstjórinn manúveraði skipinu að manninum og annar björgunar- manna stökk fyrir borð og synti um 20 metra leiö til mannsins, tengdur annars vegar með taug við skipið og hins vegar með Markús- amet. Aðstæður yoru þannig að myrkur var og él og töluverð hreyf- ing vegna suövestan strekkings- vinds. Þegar björgunarmaður kom að hinum nauðstadda manni sá hann að mjög var af honum dregið. Hann gat engan veginn hjálpað til við björgunina vegna ofkælingar, enda hafði honum ekki unnist tími til að loka galla sínum og var því í honum fullum af sjó. Sjávarhitinn á þessum slóðum var um 5 gráður á Celsius og er talið að við það hitastig geti full- frískir menn lifað í eina klukku- stund. Þama var um að ræða mann sem kominn var fast að sextugu og hann var búinri að vera í sjó 30 til 40 mínútur. Það var því augljóst að hraða varð björgun svo sem hægt væri. Tilraunir björgunar- manns til að koma manninum í netið báru ekki árangur og fór ann- ar því honum til aðstoðar án árang- urs. Þama töpuðust dýrmætar mínút- ur og þegar svo var komið að annar björgunarmanna var orðinn flækt- ur í netið tókst honum að lása sam- an belti á galla mannsins og krana skipsins var húkkað í beltið og hann hífður um borð þar sem hann fékk nauðsynlega aðhlynningu. Undarlegar athugasemdir Niðurstaða áhafnar b/v Slétta- ness ÍS eftir björgun var sú að Markúsarnetið hefði alls ekki kom- ið að notum við þær aðstæður sem þama voru. Björgunarlykkja hefði aftur á móti hentað og reyndar komið að fullum notum. menn töldu fulla ástæðu til þess að það kæmi fram öðrum til viðvörunar svo menn íhugi það fyrirfram hvaða björgunartæld henti best við breytilegar aðstæður. Með gagn- rýninni er alls ekki verið að af- skrifa Markúsarnetið sem ónýtt björgunartæki. Á því leikur ekki vafi að í mörgum tilvikum hentar það tæki vel til björgunar, en það er fyrst og fremst í þeim tiMkum þegar sá sem bjarga á er nógu frísk- ur til að geta sjálfur lagt björgunar- mönnum lið og þegar sjólag er gott. Athugasemdir Péturs lúta eink- um að tvennu. Hann segir að net þau sem um borð í Sléttanesi eru séu úrelt. Þá telur hann upp á að flotgallar þeir sem björgunarmenn voru íklæddir væru þeim til traf- ala. Báðar þessar athugasemdir eru stórundarlegar og kalla á mjög vandlega skoðun. Varðandi netið þá gerir Siglinga- málastofnun þá kröfu að Markús- arnet sé um borð í öllum skipum yfir ákveðinni stærð. Stofnunin gerir engar kröfur um það að netið sé af einni fremur en annarri gerð, Fjöldi bílasala, bíla- umboóa og einstaklinga auglýsa fjölbreytt úrval bíla af öllum gerðum og í öllum verðflokkum með góðum árangri í DV-BÍLAR á laugardögum. Athugið að auglýsingar í DV-BÍLAR þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl.17.00 á fimmtudögum. Smáauglýsingadeildin er hins vegar opin alla daga frá kl. 09.00 til 22.00 nema laugardaga frá kl. 09.00 til 18.00 og sunnudaga frá kl. 18.00 til 22.00. Smáauglýsing í HELGARBLAÐ verðuraó berast fyrir kl. 17.00 á föstudögum. Auglýsingadeild 632700

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.