Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1992, Side 2
2
LAUGARDAGUR 13. JÍTNÍ 1992.
Fréttir
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra:
Markviss stef na er að
hefja hvalveiðar aftur
-en býst ekki við að það verði á þessu ári
„Það er markviss stefna okkar að
hefja hvalveiðar aftur. Við höfum
miöað allan okkar málatilbúnað og
aðgerðir við það. Við höfum hins
vegar síður reiknað með því að það
geti gerst á þessu ári. En við leggjum
enn á ný fyrir Alþjóða hvalveiðiráðið
skýrar vísindalegar niðurstöður sem
sýna að það er ekki bara óhætt að
hefja þessar veiðar heldur miklu
fremur mjög skynsamlegt að hefja
þær að nýju.“
Þetta sagði Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra við DV. Ársfundur
Alþjóða hvalveiðiráðsins verður
haldinn í lok þessa mánaðar. Vís-
indaneftid ráðsins er nú að störfum.
Hún mim leggja fyrir ráðið tíUögu
um endurskoðun á stjómunaraö-
ferðum. Ráðið hefur hengt hatt sinn
á að fyrr en samþykkt um endur-
skoðaðar sfjómunaraðferðir liggi
fyrir fjalli það ekki um veiðikvóta. Á
síðasta ársfundi vísaði ráðið tillögum
vísindanefndar í þessum efnum frá.
Þorsteinn sagði að niöurstaða
fundar hvalveiðiráðsins gæti ráðið
nokkm um hvenær íslendingar
hæfu hvalveiöar á nýjan leik. í næsta
mánuði tækju formlega til starfa hin
nýju samtök Atlantshafsþjóðanna
sem íslendingar væra aðilar að.
Framvinda mála gætí ráðist af því
hvaða árangri Islendingar næðu á
þeim vettvangi.
„Við göngum úr Alþjóða hvalveiði-
ráðinu í sumar og eftir það erum við
ekki bundnir af samþykktum þess,“
sagði Þorsteinn. „Hins vegar erum
við bundnir af skuldbindingum okk-
ar gagnvart alþjóða hafréttarsátt-
málanum. Hann gerir ráð fyrir því
að þjóðir hafi með sér samstarf um
vísindalega vemdun og nýtingu
hvalastofnanna. Það þýðir að það
getur tekið nokkum tíma að ná við-
urkenningu í alþjóðlegu samstarfi á
rétti okkar til hvalveiða þótt vísinda-
leg rök séu fyrir hendi. Við kappkost-
um að ná þeirri viðurkenningu sem
fyrst til að geta byijað. Því fyrr því
betra.“
-JSS
Þau máttu punga út fyrir nýjum farseðlum til að koma dætrunum til Kaupmannahafnar, f.v. Sigríður Guðmunds-
dóttir, Guðlaug Ósk, Kristín og Sigurður Guðbjörnsson. DV-mynd Ægir Már
Farþegar Sólarflugs í vandræðum í Leifsstöð:
Við erum alveg í sjokki
- fjölskylda keypti farseðla fyrir 163.000
Ægir Már Kiistmssan, DV, Suðumesjum:
„Við erum alveg í sjokki. Okkur
var sagt að það myndi verða einn frá
hvora félagi hér og skipta um far-
seðla úr því að búið væri að semja
við Flugleiðir. Þetta var okkur tjáð í
gær á skrifstofu Sólarflugs þegar við
borguðum afganginn af fargjaldinu,"
sögðu hjónin Sigríöur Guðmunds-
dóttir og Sigurður Guðbjömsson
þegar DV hittí þau í Leifsstöð í gær.
Þau vora að senda dætur sínar tvær
til Kaupmannahafnar með Flugferð-
um-Sólarflugi. En þegar þau ætluðu
að tékka sig inn í Leifsstöð var þeim
sagt að ferðaskrifstofan væri hætt
og farseðlar stúlknanna því ógildir.
Það var þungt yfir þeim mörgu sem
vora mættir í Leifsstöð í gærdag og
höfðu keypt sér farmiða út með Flug-
ferðum-Sólarflugi. Ekki er ofsagt að
sumir hafi veriö með tárin í augun-
um þegar þeir áttuðu sig á því hvem-
ig komið var, aö þeir höfðu greitt
flugfarið að fullu en vora með ógilda
farmiða í höndunum. Fólk reyndi að
bjarga sér út úr ógöngunum með
ýmsum hættí. Sumir hringdu í vini
og kunningja og báðu þá að lána sér
fyrir fargjaldinu, aðrir höfðu einhver
önnur ráð.
Þau Sigríður og Sigurður fengu að
vita hvemig komið væri hjá starfs-
fólki Flugleiða í Leifsstöð. Þau höfðu
þegar samband við Visa ísland þar
sem þau höfðu greitt ferðina með
greiðslukorti. Sögðust þau vonast til
aö fá þá upphæð til baka.
„Við ákváðum að senda dætumar
til Danmerkur þrátt fyrir allt og
þurftum að borga 28.800 krónur fyrir
hvora til viðbótar fargjaldinu sem
við höfðum greitt Flugferðum-Sólar-
flugi. Við erum sársvekkt og pössum
okkur svo sannarlega á því við hvem
við verslum næst.“
Um fimmtíu flugfarseðlar vora
keyptír á síðustu stundu hjá Flug-
leiðum í Leifsstöö í gærdag. Þar var
til dæmis sex manna fjölskylda sem
þurfti að greiða 163 þúsund krónur
til viðbótar því sem hún hafði greitt
Flugferðum-Sólarflugi til þess að
komast leiðar sinnar.
Þá var meðal farþega maður einn
sem var á leið til Litháens til að hitta
kunningja sinn sem hann hafði ekki
séð í fjölmörg ár. Hann var búinn að
greiða 38 þúsund krónur hjá Sólar-
flugi en þurfti að borga 50 þúsund
krónur fyrir nýjan farseðil hjá Flug-
leiðum.
Greiöslukortafyrirtækin vegna Sólarflugs:
Innheimta ekki síðustu greiðslur
„Hafi maður greitt farseðilinn sinn
með Visa á seinustu dögum verður
það stöðvað og kemur ekki til inn-
heimtu. Við getum stöðvað það sem
er í loftínu en það sem komið er til
Sólarflugs er ekki hægt að endur-
greiða,“ sagði Leifur Steinn Elísson
hjá Visa ísland við DV. Fjölmargir
þeirra sem keypt hafa farseðla hjá
Flugferðum-Sólarflugi hafa greitt
með greiðslukortum.
Leifur Steinn sagði að almenna
reglan væri sú að gæti korthafi sann-
að að hann hefði ekki fengið þá þjón-
ustu sem hann hefði greitt fyrir með
korti ætti hann rétt á bakfærslu. í
þessu tilviki væri það Flugferðir-
Sólarflug en á það fyrirtæki þýddi
ekki að gera slíkar kröfur þar sem
það væri ekki lengur starfrækt.
Atli Örn Jónsson hjá Eurocard tók
í sama streng. Hann sagði aö búið
væri að stöðva allar greiðslur vegna
Sólarflugs sem viðkomandi korthaf-
ar hefðu ella verið rukkaðir mn um
mánaðamót. Eldri greiðslur væri
ekki hægt að endurgreiða. -JSS
Samgönguráðuneytið um Flugferðir-Sólarflug:
Samningurinn við
Flugleiðir bætti
ímynd fyrirtækisins
- ráðuneytið afturkállaði rekstrarleyfið í gær
„Það var afskaplega traustvekj-
andi þegar Guðni náði þessu sam-
komulagi við Flugleiðir og raunar
þegar hann samdi aftur við Atlants-
flug. Það varð til þess að bæta ímynd
fyrirtækisins 1 augum okkar hérna,“
sagði Ólafur Valdimarsson, ráðu-
neytísstjóri í samgönguráðuneytinu,
vegna skyndilegrar lokunar ferða-
skrifstofunnar Flugferða-Sólarflugs í
gær.
Það var skömmu fyrir hádegi í gær
aö Guðni Þórðarson, eigandi ferða-
skrifstofunnar, gekk á fund yfir-
manna samgönguráðuneytisins og
tilkynntí þeim að Flugferðir-Sólar-
flug væri hætt starfsemi frá og með
deginum í gær.
„Hann lagði málið fyrir okkur eins
og það var frá hans sjónarhóli," sagöi
Ólafur. „Við könnuðum hvort ein-
hveijar leiðir fyndust til að leysa
máliö en í Ijós kom að svo var ekki.“
Síðdegis í gær sendi ráðuneytið
Guðna svo bréf þar sem honum var
tilkynnt að leyfi hans til rekstrar
ferðaskrifstofu hefði verið afturkall-
að.
í fréttatilkynningu, sem Guðni
sendi út í gær, segir meðal annars:
„Þessi erfiða og sára ákvörðun er
tekin nú fyrirvaralaust til þess að
sem minnst tjón hljótist af lokun
ferðaskrifstofunnar.
Þær aðstæður hafa skapast að fyr-
irtækinu er ókleift að halda áfram
þeirri starfsemi að flytja íslendinga
milli landa á lægri fargjöldum en
aðrir bjóða. Helstu orsakir þess eru
minnkandi eftírspurn í kjölfar
fjaðrafoks í fjölmiðlum, harðari sam-
keppni vegna lækkunar fargjalda í
áætiunarflugi og almennur sam-
dráttur vegna versnandi efnahags-
ástands í þjóðfélaginu."
Ólafur sagði að það myndi skýrast
um helgina hversu margir væru er-
lendis nú á vegum Flugferða-Sólar-
flugs. Samgönguráðuneytið hefði
þegar samið við Flugleiðir um að
koma fólkinu heim. Þaö hefði ein-
ungis keypt flugið af ferðaskrifstof-
unm en séð sjálft um að útvega sér
hótel. Það ætti því ekki að lenda 1
neinum vandræðum vegna þessa því
að séð yröi um að koma því heim
þegar fyrirhuguðum dvalartíma er-
lendis lyki.
Ekki náðist í Guðna Þórðarson
vegna þessa máls í gær.
-JSS
Ðanskar feröaskrifstofur setja
nú nærri allar sólarlandaferðir á
útsölu. Þeir sem eru sólgnir í sólar-
landaferðir geta nú hugsað sér tíl
hreyfings því í boði eru fargjöld
sem allir geta ráöiö við. íslending-
ar, sem hug hafa á að nýta sér
kostaboöin, þurfa að ná sér í ódýrt
ílug til Kaupmamiahafnar og velja
síöan.
Sem dæmi má nefna ótrúlega
ódýra ferð frá ferðaskrifstofunni
Helienic Dínos Rejser. Þeir bjóða
t.d. upp á viku ferð til Kýpur þar
sem gist er á fyrsta fiokks hóteli
fyrir aöeins 1195 danskar krónur.
Þetta er ekkert einsdæmi því all-
ar lúnar ferðaskrifstofumar era
með einhver álíka gimileg tilboð á
takteinum. Þeim sem em yfir sig
hrifnir af Spáni bjóða Falke Rejser
viku á hóteli í Mallorca fyrir aöein
1295 danskar krónur og svon:
mætti lengi tefja.
Það er svolítið merkiiegtaðferöi
til Englands eru næstum því helm
ingi dýrari þótt þær séu heiming
styttri Sigling til Englands ma
Scandinavian Seaways er hrein
ekkisvo ódýr. Pakkimi, sem inni
heldur gistingu á lúxushóteli í þrj;
daga ásamt morgunverði, kosta
hvorkl meira né minna en 209;
danskar krónur.
Þetta þýðir varla aö sólarlanda
ferðir séu á undanhaldi. Ástæðai
fyrir þessum dræma áhuga Skandi
nava á sólarlandaferöum getu
verið þetta ágæta veður sem þei
hafa fengið þaö sem af er sumrinu
I síðasta mánuði hefur hit i í 0sl<
ofimælst 20-30 stig.