Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1992, Page 5
5
Fréttir
Færeyingará
fartinni í
Fnjóskadal
Árekstur varð við bæinn Víðivelli
í Fnjóskadal um miðjan dag á
fimmtudag. Tveir bílar rákust saman
og eru þeir taldir ónýtir. Engin
meiðsl urðu á fólki.
Færeyingar, nýkomnir úr Nor-
rænu, voru í öðrum bílnum og ætl-
uðu þeir fram úr bíl sem var að
beygja til Víðivalla. Ekki tókst betur
til en svo að bílamir rákust saman
með fyrrgreindum afleiðingum.
Lögreglan á Húsavík fór á staðinn.
Hún nýtti bakaleiðina og tók nokkra
ökumenn fyrir of hraðan akstur.
Þeir óku bílum sínum á 110-125 kíló-
metrahraða. -bjb
Eldeytvöfölduð
Hafrannsóknastofnun hefur gert
tillögur um að rækjukvótinn við Eld-
ey verði tvöfaldaður, úr 400 tonnum
í 800 tonn.
Að sögn Jóns B. Jónassonar, skrif-
stofusljóra í sjávarútvegsráðuneyt-
inu, hefur ekki enn verið gengið frá
því hvaða bátar fá þennan aukakvóta
en stefnt er að því að það liggi fyrir
eftir helgi.
Rækjumiðin við Eldey voru lokuð
í nokkuð _ár eftir að stofninn þar
hrundi. Árið 1990 var ákveðið að
leyfa þar veiðar í tilraunaskyni á ný
og var þá leyfð veiði á 100 tonnum.
í fyrra var ákveðið að kvótinn skyldi
vera 400 tonn við eyjuna en sökum
þess að stofninn virðist vera kominn
í gott horf var ákveðið að tvöfalda
þaðmagnnú. -J.Mar
Rafeindafyrirtækiö DNG:
Mikilsalaí
færavindunum
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Salan á færavindunum það sem
af er árinu hefur gengið mjög vel,“
segir Kristján Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri rafeindafyrirtækisins
DNG á Akureyri.
Tölvustýrðu DNG-færavindumar
þóttu marka tímamót er þær komu
á markaðinn á sínum tíma og hafa
sífellt sannað ágætd sitt. Kristján seg-
ir að á þessu ári hafi fyrirtækið selt
um 200 slíkar vindur og þar af hafi
um þriöjungur verið seldur til út-
landa. Velta fyrirtækisins hefur
rúmlega tvöfaldast miðað við sama
tíma á síðasta ári en það er um 60%
yfir þeirri áætlun sem gerð var á sín-
um tíma.
Tilboð í ríkisbréf
Fyrsta útboði á 6 mánaða ríkisbréf-
um lauk með opnun tilboða í fyrra-
dag. Með þessu útboði skuldbatt rík-
issjóður sig til að taka tilboðum að
fjárhæð kr. 300 til 500 milljónir
króna. Alls bámst 67 tilboð í ríkis-
bréf að fjárhæð 982 milljónir króna.
Heildarfjárhæð tekinna tilboða er
506 milljónir króna frá 32 aðilum.
Meðalávöxtun samþykktra tilboða
er 11,49%. Næsta útboð ríkisbréfa fer
fram29.júnínk. -GS
<> AV.FAH
NISSAIU
BJOÐUM 2S EIHTÖH HF
NISSRN SIINNY ES
4ra dyra stallbak 1.B 16 ventla, 5 gíra, vökvastýri, rafdrifnum rúðum,
samlæstum hurðum, upphituðum framsætum, lúxusinnréttingu o.m.fl.
R RÐEINS HR. 995
RGÖTUNR
000
INN FHLIÐ VERÐI
Anseah
Útvarp-
og kasettutæki
með fjórum
hátölurum.
IMissan
vindskeið
í sama lit
og bíllinn.
IMissan
álfelgur, léttar
og fallegar.
IMissan
mottur þykkar
og góðar.
mgvar Sævarhöfða 2
Helgason ht sími 91-674000
Litsjónvarpstæki í sumarhúsið
Nú bjóöum við fullkomió Nordmende-litsjónvarpstæki meó
fjarstyringu 40 stöðva minni, 100 rósa, sjólfvirkri stöðvaleit
oa mörgu fleira. Einnia fæst spanspennir sem breytir spennu
af 12 volta rafgeymi í 220 volt fyrir sjónvarpstækio.
NORDMENDE
□
mm—ma
WJ4 Samkort
Verð sjónvarps aðeins 31.800.- kr.
eða 28.600,- kr./stgr.
Einnig mó dreifa greiðslum með
Munalóni og greiða 25% ut (7.950,-) og
restina ó t.d. á 6 mónuðum,
4.318,- kr. ó món.