Alþýðublaðið - 14.04.1967, Page 7
viirxm \
UR RUMENIFORSEII
NÆSTA AUSHBUARWNGS'
CORNELIU MANESCU
— árangurslaus stefna.
í FYRSTA skipti í sögu Sam-
einuðu þjóðanna er talið að
kommúnisti frá Austur-Evr-
ópu verði kjörinn forseti Alls-
herjarþingsins.
Forseti þingsins verður ekki
formlega kjörinn fyrr en 22.
Allsherjarþingið kemur saman
í september, en nú þegar virð-
ist nœgilegur meirihluti vera
fylgjandi því, að hinn 51. árs
gamli ulanríkisráðherra Rúm-
eníu, Corneliu Manescu, verði
kjörinn.
Ýmis vestræn ríki og Aust-
ur-Evrópuríki hafa heitið hon-
um stuðningi, svo og Asíuríki
og Suður-Ameríkuríki, og bú-
izt er við að lýst verði yfir ein-
róma stuðningi við kosningu
Manescus á fundi æðstu manna
Afríkuríkja, sem haldinn verð-
ur í júní.
Bandaríkin hafa ekki og
munu sennilega ekki beita sér
opinberlega fydr kosningu
Manescus, en margt bendir til
þess að Bandaríkjamenn muni
ekki leggjast gegn því að liann
vcrði í framboði.
DÆMI UM BREYT-
INGU.
Yestur-Evrópulöndum, Mið-
austurlöndum og Asíulöndum
og nú á síðari árum frá Afríku-
löndum. Sú hefð hefur skap-
azt, að forseti Allsherjarþings-
ins skuli vera fulltrúi eins
þeirra rikja, sem eiga fastafull-
trúa í Öryggisráðinu. Nú telja
margir óhjákvæmilegt og jafn-
vel æskilegt að Austur-Evrópu-
maður taki við embættinu.
Fram að þessu hefur verið
forðazt að skipa Austur-Evrópu
mann í embættið af tveimur á-
stæðum: í fyrsta lagi vegna
þess að forsetaembættið hefur
verið talið mikilvæg ,vígstaða’
í kalda stríðinu, og í öðru lagi
hefur vcrið óttazt, að ef kom-
múnisti yrði kjörinn forseti —
mundi hann nota embættið til
að spilla fyrir störfum Allsherj-
arþingsins.
En dagar kalda stríðsins eru
liðnir og Rúmenía hefur sýnt
í hve ríkum mæli að minnsta
kosti viss kommúnistaríki vilja
fara eigin götur og sýna sjálf-
stæða afstöðu.
Eftirtektarvert er og mót-
sagnakennt, að framboð Manes-
cus mun mæta harðastri and-
stöðu í Sovétríkjunum og öðr-
um Austur-Evrópuríkjum, þótt
ef til vill verði lítið látið á
þessari andúð bera á yfirborð-
inu. Ástæðan er sú, að Rúm-
enar hafa svo oft sýnt sjálf-
stæða afstöðu í utanríkismálum
og beinlínis lagzt gegn stefnu
sovétstjórnarinnar. Síðasta
dæmið um árekstra Rússa og
Rúmena er ákvör'ðun Rúmena
um að taka upp stjórnmálasam-
band við Bonnstjórnina og til-
raunir þær er Rússar hafa gert
síðan Rúmenar tóku þessa á-
kvörðun til að koma í veg fyrir
að önnur komníúnistaríki fari
að dæmi Rúmena og veiki þar
með Ulbricht-stjórnina í Au-
Þýzkalandi enn frekar.
* MILLIGÖNGUMENN.
Corneliu Manescu er gamal-
reyndur starfsmaður rúmenska
kommúnistaflokksins, starfaði
í skipulagsráði ríkisins, fór það-
an í utanríkisþjónustuna og
varð síðan utanríkisráðherra.
Upp á síðkastið hefur hann
margoft fordæmt Bandaríkin
Frh. á 10. síðu.
Síðan Sameinuðu þjóðirnar
voru stofnsettar hafa forsetar
Allsherjarþingsins verið frá
Nýtízku dans.
Skemmtiferðaskipið Fritz Heckert.
Úr vcitingasal Fritz Henckert.
Sunnuferðir með
Fritz Heckert
FERÐASKRIFSTOFAN Sunna
hefur tekið á leigu austur-
þýzka skemmtiferðaskipið Fritz
Heckert og efnir hinn 18. apríl
næstkomandi til 15 daga sigl-
ingar til Bergen, Oslóar, Kaup
mannahafnar, Amsterdam, Lond
on og aftur heim til Reykjavík-
úr. Er þetta í fyrsta sinn, sem
íslendingar fá tækifæri til að
taka þátt í skemmtisiglingu
með nýtízku lúxusskipi.
Fritz Heckert er 8.115 tonn
að stærð og var skipinu lileypt
af stokkum árið 1961. Það tek
ur um 350 farþega og veitir
180 manna áhöfn farþegum
hina fullkomnustu þjónustu.
Um borð eru rúmgóðir sam
komusalir, þar sem hljómsveit-
ir leika á hverju kvöldi og á-
herzla lögð á fjölbreyttar veit-
ingar og skemmtanir. Þá eru
rúmgóðar setustofur, spilastof-
ur og í Sunnuferðinni verður
um borð gott, íslenzkt bókasafn
í lesstofu. Kvikmyndasýningar
eru haldnar og fararstjórar
Sunnu annast fjölbreytt skem'mt
analíf um borð og aðstoða fólk "
í ótal kynnis- og skoðunarferð-
um í landi.
260 manns hafa þegar keypt
farmiða.
Um borð í Fritz Heckert erU
tvær sUndlaugar, önnur inni en
hin úti, hárgreiðslustofa, lítið
sjúkrahús með lækni og hjúkr-
unarkonu, svo og tollfrjálsar'
verzlanir.
Um 260 manns hafa þegar
keypt farseðla í Sunnuferðina
með Fritz Heekert til Norður-
Evrópu dagana 18. apríl til 2.
maí. Þegar er búið að ráðstafa
flestum tveggja manna klefum,
en nokkuð er eftir af þriggja
manna klefum.
Fritz Heckert kemur íil
Reykjavíkur nk. mánudag og
leggst þá að bryggju. Farþegar
eiga að mæta milli kl. 6 og 7 á
þriðjudagsmorgun, en kl. 8 leys
ir skipið landfestar og lieldur
fyrst til Bergen í Noregi, þaðan
er svo farið hina fögru sigl
ingaleið innan skerja áleiðis til
Osló. Síðar til Kaupmannahafn
ar um Kílarskurðinn til Am-
sterdam og loks til London og
Reykjavíkur.
Á öllum viðkomustöðum er
efnt til margvíslegra skoðunar-
og skemmtiferða í landi og verzl
að í einhverjum eftirsóttustu
verzlunarborgum Evrópu, svo
sem Amsterdam, þar sem verð-
lag er einstaklega liagstætt.
Frægir skemmtikraftar eru heim
sóttir á kvöldin, m. a. í Kaup-
mannahöfn og Amsterdam.
Sérstök álierzla er lögð á
það um borð í Fritz Ileckert
að hafa gnægð gómsætra rétta
á borðum og rná geta þess, a5
mátseðlar verða á íslenzku. Á-
höfnin hefur reynslu i að þjóna
" farþegum áf ýmsu þjóðerni og
hafa m.a. Svíar, Bretar, Frakk-
ar og Austurríkismenn leigt það
til skemmtiferða.
Fritz Héckert kemur aftur til
Réykjavíkur með farþega Si nnu
að kvöldi 2. maí.
3 hópar sigla utan með ’riiz
Heckert — fljúga hcim.
Frá Reykjavík fer skipið dag
inn eftir áleiðis til Gautabo gar.
Um borð verða þátttakendur 1
þremur hópferðum á vc gum
Frh. á 10. sí< lu.-
.14, apríi 1967 -- ALÞÝÐUBLAÐIÐ J