Alþýðublaðið - 14.04.1967, Síða 11
IR sigrabi sfúdenta
og KFR ÍKF örugglega
Hallgrímur
Gurmarsson,
Armanni
Hallgrímur er 18 ára, 187
cm á hæð. Hann byrjaði að
æfa körfuknattleik árið 1961
og varð fljótt efnilegur leik-
maður. Hann vakti athygli
fyrir góða skotfimi í leikj-
um sínum með yngri flokk-
um Ármanns og leikur nú
hægri framherja í meistara-
flokki Ármanns. Hann var
vaiinn í landsliðið, sem lék
í Danmörku í Polar Cup-
keppninni 1966, og lék þá
fjóra landsleiki.
i1,
if
r.
‘ «
:i
c,
1!
(V
c
i1,
c,
i(
c,
c.
(i
<1
(i
í:
Magnús Ingólfs son, sigraði
í A-fl. á Togbrautarmóti
í fyrrakvöld voru leiknir tveir
leikir í I. deild islandsmótsins í
körfuknattleik. Fyrst sigraði ÍR
Stúdenta í söguleigum leik og síð
an vann KFR ÍKF með nokkrum
yfirburðum.
ÍR-ÍS 80-49
Fyrir leikinn var réttilega búizt
við auðveldum sigri ÍR, sém er
í efsta sæti í mótinu um þessar
mundir, en það var öðru nær.
Botnliðið, ÍS hélt jöfnu allan fyrri
íhálfleik og höfðu meira að segja
3 stig yfir í liálfleik. Það var ekki
fyrr en í síðari íhluta se.inni hálf
leiks að ÍR-ingar náðu afgerandi
yfirburðum, en þá létu þeir líka
Ehendur standa fram úr ermum.
Stúdentar skoruðu 4 fyrstu stig
in, ÍR kemst yfir, en stúdentar
jafna eftir 7 mínútna leik, 12-12
Akranesi — Hdan.
Firmakeppni Bandmintonráðs
Akraness fór fram dagana 1. og
2. apríl sl. með þátttöku 25 fyrir
tækja.
Úrslit urðu þau í einliðaleik
að Sementsverksmiðjan, keppandi
Hörður Ragnarsson, sigraði Hár
greiðslustofuna Skagabraut 9,
keppandi Pétur Jóhannesson, með
15-3 og 15-9 í úrslitaleiknum.
Birgir Jakobsson hitti vel og
breytti stöðunni í 24-18, en Björn
Ástmundsson sendir boltann hvað
eftir annað í körfu ÍR-inga og
ÍS kemst yfir 25-24. Birgir skor
ar enn fyrir ÍR 25-26, en stúdent
ar taka enn sprett olg komast
5 stig yfir, 31-26 og höfðu 3 stig
yfir í hálfleik, 33-30.
Skúli Jóhannsson skorar 4
fyrstu stigin í seinni hálfleik og
ÍR kemst yfir, 34-33. Þá kom nokk
uð jafn kafli, og þegar 10 mín.
voru liðnar af seinni hálfleik var
staðan 50-43 fyrir ÍR. Þá var
skyndilega eins og ÍR ingar vökn
uðu til lífsips og leikur þeirra
sem hafði verið fremur slakur,
komst í eðlilegt horf. Síðustu 10
mín. skoruðu þeir 30 stig gelgn
6, mest úr hinum sígildu hraðupp
hlaupum sínum og sigruðu með
yfirburðum 80-49.
í tvíliðaleik bar Samvinnubank
inn sigur úr býtum, keppendur
Hildur Sigurðardóttir og Jóhann
es Guðjónsson, gegn Haraldi Böðv
arssyni olg Co. keppendur Hörður
Ragnarsson og Guðmundur Guð-
jónsson, með 6-15, 15-9 og 15-7.
í einliðaleik var keppt um bikar
sem Síldar- og fiskimjölsverksmiðj
an gaf, en Sjóvá gaf bikarinn í tví
liðaleik.
ÍR-ingar léku nú án Hólmsteins
Hauks og Tómasar, en sá síðast
nefndi hefur að eigin sögn hætt
keppni fyrir ÍR. Það er mikið áfall
fyrir liðið, en þetta er sjöundi
leikmaðurinn, sem liðið verður að
sjá á bak síðan 1964. í þessum
leik var Birgir Jakobsson skæðast
ur í sókninni og átti auk þess á-
gætan varnarleik. Skúli, Agnar og,
Jón gerðu margt vel, sérstaklega
í seinni hálfleik.
KFR-ÍKF 74:51
ÍKF skoraði fyrstu stigin og
KFR svaraði með tveimur körfum
í röð. ÍKF jafnar 4—4, en KFR
jafnar enn 10—10, og kemst í
16—12, en þá datt botninn úr
öllu saman og KFR skorar 9 stig
í röð, 16—21. Fjögurra til fimm
stiga munur hélzt svo það sem
eftir var af hálfleiknum, sem end-
aði 27—23, KFR í vil.
KFR byrjaði seinni hálfleikinn
vel, skoraði 16 stig gegn 4 á sjö
mínútum, og hafði þar með tryggt
sér yfirburðastöðu, 43—27. Um
miðbik háifleiksins skoruðu liðin
nokkuð jafnt, en KFR jók þó
heldur við forskot sitt undir lokin
og vann verðskuldaðan sigur, 74—
51.
Þórir Magnússon varð stiga-
hæstur KFR-inga að vanda með
36 stig, en hann hefur skorað að
jafnaði nokkuð yfir 30 stig í leik
í þessu íslandsmóti. Mai-inó stóð
sig líka mjög vel og skoraði 12
stig, og Rafn skoraði 13.
Hjá ÍKF var Hilmar stigahæst-
ur með 20 stig, Helgi skoraði 12,
Friðþjófur 9 og Sigurður 8.
.Dómarar voru Guðmundur Þor-
steinsson og Ólafur Geirsson.
Björn Ástmundsson átti beztan
leik Stúdenta, skoraði mikið af
löngu færi og lék yfirleitt mjög
vel. Steindór átti einnig ágætan
leik og sama er að segja um
Hjört.
Dómarar voru Ingi Gunnarsson
og Kristbjörn Albertsson.
STAÐAN:
ÍR 8 8 0 0 534-414 16
KR 8 7 0 1 620-361 14
KFR 8 5 0 3 553*643 10
ÍKF 8 3 0 5 435-531 6
Á 9 2 0 7 444-491 4
ÍS 9 1 0 8 437-683 2
Innanfélagsmot
IR fer fram í Hamragili á sunnu
dag og hefst kl. 2.
Keppt verður í svigi karla,
kvenna, drengja og stúlkna.
Togbrautarmót Skíðaráðs Akur
eyrar fór fram í Hlíðarfjalli sl.
sunnudag og var keppt í svigi í
öllum flokkum.
Lifla bikar-
keppnin hefst
á sunnudaginn
Reykjavík, Hdan.
Við höfum áður skýrt frá því
hér á síðunni, að ákveðið er að
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu
hefjist 20. apríl n.k. með leik Vals
og Víkings. Nú hefur verið ákveð
ið að Litla bikarkeppnin hefjist
n.k. sunnudag með leikjum í Kefla
vík og Kópavogi. Það eru Kefl-
víkingar og Hafnfh-ðingar, sem
leika í Keflavík, en Breiðablik og
Akurnesingar í Kópavogi og hefj-
ast báðir leikirnir kl. 14.00.
Ákveðnir hafa verið allir leik-
irnir í keppninni, sem lýkur 15.
maí með leik á Akranesi milli
Akurnesinga og Hafnfirðinga.
Eins og kunnugt er, var það
verk þeirra Alberts Guðmunds-
sonar og Axels Kristjánssonar í
Hafnarfirði að þessi keppni hófst
á sínum tíma og hafa þeir jafnan
gefið gripi þá, sem keppt hefur
verið um, og unnizt hafa til eign
ar hverju sinni. í fyrstu voru það
þrír aðilar, sem tóku þátt í keppn-
inni, en síðar bættist Breiðablik
í Kópavogi í hópinn.
Fyrirkomuíag Litlu bikarkeppn-
innar er þannig, að leikið er
heima og heiman. Næstu leikir
verða á sumardaginn fyrsta, en þá
leika Keflvíkingar og Breiðablik
í Keflavík og Hafnfirðingar og
Akurnesingar í Hafnarfirði.
Nokkuð hvasst var meðan
keppni yngri flokkanna stóð yf
ir, en batnaði er á daginn leið
Mótsstjóri var Halldór Ólafsson,
en Reynir Pálsson lagði brautim
ar Úrslit í einstökum flokkum urðu,
sem hér segir.:
Drengir 10 ára og yngri
Tómas Leifsson KA 52,6 sek.
Gunnar Jónsson KA
Haligrímur Ingólísson Þór.
fi
Stúlkur 10 — 12 ára.
Anna H'ermantisdáAtir KA 55,8
Margrét Þorvaldsdóttir KA
Sigríður Frímannsdóttir KA
I
Drengir 11—12 ára:
Gunnlaugur Frímannsson KA 48,9
Alfreð Þórsson KA 55,3 sek.
Guðmundur Sigurbjörnsson Þó)p
56,1 sek.
Stúlkur 12 — 15 ára:
Barbara Geirsdóttir KA 139,3 sek.
Sigþrúður Siglaugsdóttir KA 159,8
Unglingar 13—15 ára:
Guðmundur Frímannsson KA 86,8
Guðmundur Sigurðsson Þór 92J&
Þorsteinn Vilhehnsson KA 93,8
Unglingar 15—16 ára:
Ingvi Óðinsson KA 127,3 sek.
Jónas Sigurbjörnsson Þór 129,8
Bergur Finnsson Þór 136,4
Karlar:
Magnús Ingólfsson KA 129,7 sek.
Reynir Pálmason KA 133,9 sek.
Reynir Brjmjólfsson Þór 136,2 sek.
Alls voru keppendur 70 og fór
mótið mjög vel fram.
14. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ %%
Guðmundur Sveinbjörnsson form. ÍA afhendir Sveini Guðmundssyni
bankastjóra Samvinnubankans á Akranesi sigurlaunin. (Mynd: Hdan).
Badmintonmót
háð á Akranesi