Dagur - 23.10.1957, Qupperneq 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum oklair.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemnr næst út miðviku-
30. október.
XXXX. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 23. október 1957
49. tbl.
T U
F ramsóknarvistin
Næstk. íösutdagskvöld verður
spilað lokaspilið í þeirri
röð spilakvölda, er hófust 27.
sept. sl. — Eins og getið heíur
verið áður, eru veitt ferns
konar verðlaun, og eru 1. verð-
laun kvenna matarstell, en 1.
verðlaun karla yfirfrakki. —
Að spilakeppninni lokinni
verður dansleikur, er stendur
til kl. 1.
Ekki varð slys á mönnum en skipið
eitthvað skemmt
Klukkan rúmlega 7 á sunnu-
dagskvöldið strandaði „Hvassa-
íell“ lítið eitt sunnan Staðarhóls
við Siglufjörð. Hvassviðri var af
norðri, 9—10 vindstig. Var skipið
a. úyggir leixs
Leitað til bæjarhúa á laugardaginn
Undanfarna tvo vetur hefur
Barnaverndarfélag Akureyrar
starfrækt leikskóla (dagheimili)
í bænum. En sökum skorts á
hentugu húsnæði féll þessi starf-
semi niður í vetur. En í sumar
ákvað félagsstjórnin að hefjast
handa um byggingu leikskóla
fyrir lítil börn, þó að fé væri lítið
fyrir hendi. Hefur verið sótt um
lóð í þessu skyni og byggingar-
styrk frá bænum.
Um næstu helgi fer fram fjár-
söfnun Barnaverndarfélagsins, og
væntir það þess, að bæjarbúar
vilji styrkja það til þess að
hrinda þessu máli í fíamkvæmd.
Helzt þyrfti húsið að komast upp
fyrir næsta haust.
Á laugardaginn *— Barna-
verndardaginn — fer fram
merkjasaia og sala á barnabók-
inni Sólhvörf, sem að þessu sinni
er rituð af Hannesi J. Magnús-
syni, skólastjóra. Þá munu kvik-
myndahúsin eins og jafnan áður
hafa barnasýningar til ágóða fyr-
ir félagið. Almennur félagsfund-
ur um byggingarmálið verður
einnig þennan sama dag að Hó-
tel KEA. En á sunnudaginn
verður hlutavelta félagsins í Al-
þýðuhúsinu.
í stjórn félagsins eru: Eiríkur
Sigurðsson, Hannes J. Magnús-
son, séra Pétur Sigurgeirsson,
Elísabet Eiríksdóttir og Jón J.
Þorsteinsson.
að leggjast að bryggju á Siglu-
firði er akkerisfesti þess slitnaði
með fyrrgreindum afleiðingum.
Það var með lítinn farm og því
létt í sjó, en ætlaði að lesta síld í
gamla síldarbænum.
Skipið rak síðan undan sjó og
vindi upp í fjöru, en náðist á flot
á 10. tímanum á mánudagskvöld-
ið með aðstoð Jökulfells. Þá var
lítils háttar leki kominn að tönk-
um skipsins, en enginn sjór í
lestum. í gær voru skemmdir at-
hugaðar, m. a. af kafara, en að
því búnu var ráðgert að
skipinu yrði siglt til Reykjavíkur
til frekari rannsóknar og við-
gerðar. Hvassafell er elzta skipið
í flota Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga. Ekkert slys varð á
áhöfn þess.
yrsfi snj órinn fallinn í hyggð
Nokkur snjór og hálka á
Á mánudagsmorguninn var jörð
orðin hvít víða á Norðurlandi. —
Fyrsti snjórinn fallinn, sem eins
konar forboði vetrarins. í gær
bætti ört á hér í nágrenni, en
allir vegir voru þó færir, en á
heiðum var þungt færi fyrir
minni bifreiðir og mikil hálka. —
Siglufjarðarskarð er þó ófært.
Á Öxnadalsheiði er vei'ið að
gera nokkrar umbætur. Brú hef-
heiðavegum
ur verið steypt á Grjótá, en af-
leggjari gerður og bráðabirgða-
brú á meðan á því verki stóð. —
Umferð verður leyfð á nýju
brúna mjög bráðlega.
Einhvern næsta dag verður
nýja brúin á Norðurá við Skelj-
ungshöfða í Skagafirði opnuð.
90 ára foyggingaraímæli Möðru-
vallakirkju í Hiirgárdal var
minnst þar á staðnum með há-
tíðlegri athöfn sunnudaginn 20.
okt., að viðstöddu mjög mikiu
fjölmenni.
Prestar gengu í skrúðgöngu til
kirkju, þar sem sóknarprestur-
inn, séra Sigurður Stefánsson,
prófastur, flutti minningarræðu
og rakti sögu kirkju á Möðru-
völlum frá fyrstu tíð og minntist
fyrirrennara sinna, þeirra, er
þjónað hafa núverandi kirkju,
séra Þórðar Þórðarsonar, síðast í
Reykholti, séra Davíðs Guð-
mundssonar, prófasts á Hofi,
séra Jóns Þorsteinssonar á
Möðruvöllum, og Geirs vígslu-
biskups Sæmundssonar á Akur-
eyri, sem hafði aukaþjónustu á
Möðruvöllum um tveggja ára
skeið. Ennfremur sagði prófastur
frá kirkjusmiðnum, Þorsteini
Daníelssyni á Skipalóni, og Pétri
Havstein, amtmanni á Möðru-
völlum, sem stóð af hálfu amts-
ins fyrir byggingu kirkjunnar á
sí^um tíma.
Þá flutti Valdemar V. Snævarr,
sálmaskáld á Völlum, afmrelis-
Ijóð, en séra Benjamín Kristjáns-
son á Laugalandi prédikun dags-
ins.
Fyrir altari þjónuðu séra Stef-
án V. Snævarr á Völlum og séra
Fjalar Sigurjónsson í Hrísey, á
undan, en sóknarprestarnir á
Akureyri, séra Pétur Sigurgeirs-
son og séra Kristján Róbertsson,
á eftir.
Kirkjukór Möðruvallakirkju
söng undir stjórn Jóhanns Ó.
Haraldssonar, tónskálds.
Að kirkjuathöfninni lokinni
var gengið út að leiði Þorsteins
Daníelssonar og lagður blóm-
svelgur við minnismerk.i hans.
Viðstaddir hátíðarhöldin voru
(Framhald á 5. síðu.)
Búið er að steypa brú á Grjótá
hjá Víðikeri í Bárðardal og verið
að enda við að steypa brú á
Grenjá hjá Grenivík.
Menntskælingar æfa um þessar mundir sjónleik af kappi, undir leiðsögn Jónasar Jónassonar og er þessi mynd tekin á
æfingu fyrir nokkrum dögum. Ætlunin mun vera að frumsýning verði uin næstu helgi, samkv. augl. á öðrum stað. —
Nýr pianókennari við
Tónlistarskóla Ak.
Kristinn Gestsson, píanóleik-
ari, hefur verið ráðinn píanó-
kennari við Tónlistarskóla Ak-
ureyrar í vetur. Kristinn er
ágætlega menntaður píanóleikari.
bæði utan lands og innan. Lauk
hann A.R.C.M. prófi með ágæt-
um vitnisburði nú í haust.
Á það skal bent, að vegna
ráðningar Kristins getur skólinn
bætt við nokkrum nemendum í
píanóleik.
Þá er einnig enn hægt að bæta
við nemendum í fiðluleik, en
kennari er þar ungfrú Gígja Jó-
hannsdóttir.