Dagur - 27.01.1960, Blaðsíða 5

Dagur - 27.01.1960, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 27. janúar 1960 D AGUR 5 Bráðabirgðafjárgreiðslur Við aðra umræðu þessa máls á Alþingi flutti Gísli Guðmundsson eftirfarandi ræðu: Herra forseti. Það er ekki ætl- un mín að bæta miklu við þær umræður, sem fram hafa farið undanfarið hér í háttvirtri deild- inni, en eg vil þó gera fáein atriði að umtalsefni, áður en þessari umræðu lýkur. Þétta frv., sem -fyrir liggur, á þingskjali 16, er eitt þeirra mála, sem standa í sérstöku sambandi við tillögu hæstv. forsætisráðherra, varð- andi frestun Alþingis nú á næst- unni fram til loka janúarmánað- ar. Ef ekki væri farið fram á að fresta þinginu nú þegar, væri ekki heldur óskað eftir afgreiðslu þessa írv. að svo stöddu, þar sem það kemur ekki til framkvæmda fyrr en í byrjun janúarmánaðar á næsta ári. Samþykkt þessa frv. og frv. á þingskj. 40 um bráða- birgðabreytingu og framlengingu nokkurra laga, samþykkt þessa frv. nú þýðir, eins og fram hefur verið tekið áður í þessum um- ræðum, að hægt er að fresta þinginu strax, ef tillagan um það, sú sem fyrir liggur, verður sam- • þykkt. Það er því eðlilegt, að þeir, sem vilja draga þingfrestun, t. d. fram yfir miðjan þennan mánuð, vilji einnig fresta af- greiðslu þessa frv. til þess tíma eða því sem næst. Eg tel, eins og fleiri, sem hafa tekið til máls í þessum umræð- um, að frestun Alþingis, eins og hún er fyrirhuguð, sé ótilhlýði- leg. Eg skal ekki rekja ástæðurn- ar til þess í löngu máli, það hefur verið af öðrum gert, og eg get að miklu leyti undir það tekið, en eg vil í því sambandi nefna, að fjár- lögin hafa ekki verið tekin til 1. umræðu og ekki flutt fjárlaga- ræða, að mörg mál hafa nú verið lögð fyrir þingið og mál hafa ver- ið að koma fram þessa daga og nú síðast í dag og að eðlilegt er, ,.^ð. nokkuð sé- að þeim málum unnið, áður en þingi er frestað. í þriðja lagi kemur það svo til, að bráðabirgðalögin frá 18. sept., um verð landbúnaðarvara, hafa ekki enn vei'ið tekin til meðferðar í þinginu. Eg vil leyfa mér að gera þetta síðasta atriði að umræðu- efni með nokkrum orðum, vegna þess að mér sýnist það mál vera stæi-sta ástæðan fyrir því, að ekki er tilhlýðilegt að fresta þingi að svo stöddu. Þegar Alþingi kom saman 20. nóvember, held eg, að flestir, a. m. k. þeir, sem ekki höfðu fengið vitneskju um annað, — hafi búizt við, að þau yrðu lögð fyrir þingið þegar eftir að það væri tekið til starfa, að þau yrðu eitt af allra fyrstu málum þings- ins. Eg minnist þess, að ný ríkis- stjói’n, sem tók við völdum árið 1956, gaf þá um haustið út bráða- birgðalög, sem mikla athygli vöktu og fjölluðu eins og þessi bráðabii’gðalög um vissan þátt efnahagsmála, þótt þar væri að vísu öðruvísi á málum tekið og með meiri víðsýni að mínum dómi. Þessi bi’áðabii’gðalög 1956 voru lögð fyrir þingið svo fljótt, sem kostur var á. Þau munu hafa vei’ið á þingskjali 12 á því þingi. Ætla mátti, að óreyndu, að nú yrði fai’ið eins að. En svo liðu nokki-ir dagar í upphafi þings, að frv. var ekki lagt fram. Þegar þingmenn tóku að spyrja eftir frv. og hvenær það kæmi fram, vai’ð hæstv. land- búnaðarráðherra afundinn og gaf engin svör, sem því nafni mætti nefna í þessu sambandi. Er svo skemmst af því að segja, að ríkis- stjórnin hefur allt til þessa dags ekki fengizt til þess að leggja frv. fram, þótt margsinnis hafi vei’ið eftir því gengið, en hefur í þess stað boi’ið fram tillögu um að fresta þinginu nú þegar. Loks- ins nú í kvöld hafa þau tíðindi gei’zt, að bi’áðabirgðalagafrum- varpi hefur verið útbýtt hér í háttv. deildinni. Þetta er þá sá árangur, sem umræðurnar und- anfarna daga hafa borið. Hitt er þá enn eftir, að sannfæra háttv. ríkisstjórn um, að henni beri að láta málið ganga til úrslita í þing- inu. Afstaða Sjálfstæðisfl. eða for- ustumanna hans í þessu bráða- birgðalagamáli hefur verið mjög einkennileg fyrr og síðar, svo að ekki sé meira sagt. Bráðabirgða- lögin voru, eins og eg sagði áðan, gefin út 18. september sl. En hinn 22. september birtist í Morgunblaðinu yfirlýsing frá Sjálfstæðisfl. Það hafði að vísu áður birzt yfirlýsing í Moi’gun- blaðinu frá þessum flokki varð- andi þetta mál, en eg geri þá yf- irlýsingu ekki að umræðuefni heldur þessa, sem birtist 22. sept. í þeirri yfii’lýsingu frá flokknum segir svo oi’ðrétt — með leyfi hæstv. foi’seta — og er vitnað til hinnar fyrri yfirlýsingar: „Sjálfstæðisfl. lýsti sig þegar í stað andvígan setningu bi’áða- birgðal. um ákvörðun ’ verðlags landbúnaðarafurða og mun þess vegna ekki styðja þau á Alþingi, heldur leggja til, að bændum verði bætt upp það tjón, sem þeir verða fyrir af þessum sök- um.“ Þannig hljóða þau orð. Það mun út af fyrir sig orka nokkuð tvímælis, hvort Sjálfstæðisfl. hafi, eins og segir í þessai’i yfir- lýsingu, þegar í stað lýst sig and- vígan setningu bi’áðabirgðal. Þeg- ar litið er á yfirlýsingar hæstv. fyrrverandi forsætisráðherra í Alþýðublaðinu í september, um þetta leyti, verður að ætla, að ands töð uyf irlýsing S j álfstæðisfl. hafi a. m. k. ekki komið nógu snemma og ekkj verið með nógu mikilli áherzlu fram boi’in til að hindi’a útg. laganna. Eg man þess ekki dæmi síðan eg kom fyi-st á þing fyxir 25 árum, að íikisstj. hafi gefið út bráðabii’gðal. nema hún væri í góðri trú á það, að lögin myndu ekki sæta andstöðu meirihluta alþingismanna. Það eru þingmenn en ekki ráðherrai’, sem slíkir, sem hafa löggjafar- valdið. Ákvæði stjórnarskrárinn- ar um útgáfu bráðabirgðalaga eru vart sett í þeim tilgangi að fá ráðh. löggjafarvaldið, heldur til þess, ef alveg sérstaklega stendur á, að leyfa þingm. eða meirihluta þeirra fyrir forgöngu ríkisstj. að nota löggjafarvald, án þess að vera saman komnir á fundi í Alþingishúsinu í Reykja- vík. Það er þetta, sem að jafnaði gerist, þegar bráðabirgðalög eru gefin út. Eg hef líka alltaf gengið út frá því, að fyrrv. hæstv. for- sætisráðherra, sem er bæði glöggur maðpr og þingræðissinn- aður, hafi hlotið að gera sér þetta ljóst og að hann hafi verið í góði’i trú, þegar hann gaf lögin út, hvort sem þar kann að hafa verið um misskilning að ræða og hvei’s eðlis sem sá misskilningur kann að vera. En hvað sem þessu líður, þá hefur Sjálfstæðisfl. heitið því opinberlega og skriflega hinn 22. september svo skýrt, að ekki verður um villzt, að styðja ekki bráðabirgðal. á Alþingi. Það er það orðalag, sem eg las upp áðan, tekið úr yfirlýsingunni. , En hvaða stuðningur er það þá, sem bráðabirgðal. þurftu á að halda, eða formælendur þeúra? Stuðningurinn var sá, að þau yrðu ekki felld úr gildi með Al- þingissamþykkt fyrir 15. desem- ber. Eftir þann t'ma eru þau fall- in úr gildi eða efni þeirra samkv. ákvæðum í þeim sjálfum. Ef Al- þingi er frestað fyrir 15. desem- ber og þingm., sem eru á móti lögunum, hefur ekki gefizt kost- ur á að greiða um þau atkv. og afgreiða þau endanlega fyrir frestunina, þá er þessum lögum, sem út voru gefin 18. september, þar með veittur allur sá stuðniiig- ur, sem þau þurfa á að halda, og það er þá Sjálfstæðisfl., einmitt hann, sem veitir þann stuðning Gísli Guðmundsson aiþingismaður. Ef hæstv. forsætisráðh. leggur það til við forseta lýðveldisins, að þinginu verði frestað fyrir 15. desember og hæstv. landbúnaðar- ráðherra dregur að beita sér fyr- ir því, að bráðabirgðalögin verði afgi’eidd þá hafa þeir hæstv.ráðh. þar með gert að engu heit Sjálf- stæðisfl. 22. september um að styðja ekki bráðabirgðalögin frá 18. september. Af hálfu flokksins hefur þeim lcgum þá verið veitt- ur allur sá stuðningur, sem þeir þurfa á að halda, eða sá, mál- staðui’, sem í þeim felst, og ef svo á að fara að, þá er ekki óeðli- legt, þó að mönnum komi til hug- ar, eins og nokkuð hefur verið tæpt á í þessum umræðum, að hæstv. ríkisstj. kunni að láta sér koma til hugar að gefa út ný bárðabirgðalög eftir þingfrestun- ina. Það er ekki mikið öryggi í því að treysta þeim, sem sýna tómlæti af þessu tagi í sambandi við yfirlýsingar sínar. Nú má e. t. v. segja, að Sjálf- stæðisfl. eigi fyrst og fremst um það við sjálfan sig og kjósendm’ sína, hvernig forystumenn hans meta þær yfirlýsingar, sem gefn- ar hafa verið í nafni flokksins. En það er skylda alþm., eftir því sem í þeirra valdi stendur og Al- þingis í heild, að láta ekki lítils- virða eða rýra það umboð, sem þjóðin, þ. e. a. s. kjósendurnir, hafa falið þeim til þess að setja landinu lög. Það er því skylda þeirra í því tilfelli, sem hér er um að i-æða að sjá um, eftir því, sem í þeirra valdi stendur, að þau lög haldi ekki áfram að gilda, sem meirihluti Alþingis er á móti, og látið það koma í ljós, ef ætla má, að svo sé. Samkvæmt yfirlýsingunni er astæða til að ætla, að meirihluti Alþingis sé á móti þessum bráðabirgðalögum, þó að trúnaðarmenn Sjálfstæðis- flokksins í ríkisstj. hafi komið í veg fyrir, að það kæmi í ljós. Það er því eðlilegt, að hér á Alþingi sé staðið gegn því, að þingið sé sent heim á gildistíma bráða- birgðal. áður en þingviljinn er fyrir hendi. Þess er að vænta, að hæstv. ríkisstj. fallist á þetta sjón armið áður en lýkur, og hún er komin nokkuð á leið með að fall- ast á það, sem betur fer. Sjálf þingírestunartillagan er ennþá ekki komin til umræðu. En afgreiðslu þess frv., sem hér liggur fyrir, og frv. á þingskj. 40, er nú eins og eg sagði áðan óskað — þeirrar afgreiðslu er óskað af hálfu hæstv. íúkisstj. svo snemma sem raun er á, til þess að hægt sé að ákveða þingfrestunina. Ella væri það ekki hægt. Andstaðan gegn frestun þingsins nú þegar hlýtur því þegar á þessu stigi að koma fx’am og hefur komið fram andstaða gegn því, að af- greiðslu frumvarpanna sé hrað- að, þótt sú afgreiðsla væri að öðr- um kosti síðar talin eðlileg. Með þessari andstöðu eru þingm. að gæta réttar síns og skyldu gagn- vart kjósendum sínum eftir því, sem í þeirra valdi stendur. Af þessum ástæðum hafa átt sér stað langar umræður í báðum deildum, þó að eg hafi raunar ekki tekið þátt í þeim fyrr, og í sameinuðu þingi, sem hægt hefði vei’ið að komast hjá að miklu leyti, ef hæstv. ríkisstj. hefði far- ið rétt að í öndverðu gagnvart þingi og þjóð í þeim málum, sem eru tilefni þessara umræðna. — Þeim tíma, sem farið hefur í það að ræða þessa mjög svo óvenju- legu aðferð ríkisstj., og hann er orðinn töluvei’t langur, honum hefði verið betur varið til að ræðn bráðabirgðalögin og ýmis vandamál í sambandi við þau. Og það mátti hæst. ríkisstj. auð- vitað vita fyrirfram, að alþingis- menn myndu ekki taka alveg þegjandi þeim — eg leyfi mér að segja hvatvíslegu og vanhugsuðu í’áðagerðum og því tillitsleysi, sem hér er um að ræða gagnvart Alþingi og öðrum. Eg segi öðrum, því að allur sá fjöldi manna um land allt, sem ber í brjósti sára gremju út af umræddum bráða- birgðalögum, allir þessir menn eiga fullan rétt á því, að fulltrúar þeirra í þessum sölum fjalli um þetta mál á réttum tíma. Hér er því ekki eingöngu verið að sýna tillitsleysi gagnvart Alþingi, heldur fjölda manns. Eg er því miður ekki svo fróð- ur sem æskilegt væri um sögu Alþingis frá öndverðu, en eg hygg það þó einsdæmi, og eg held að það hafi komið fram ómótmælt í umræðunum, að það sé einsdæmi, eða að minnsta stóðu yfir höfuðsvörðum hinna fornu kjördæma, að ganga hægt um gleðinnar dyr, því að öll er þessi litla þjóð í einum báti, og enginn veit í dag, hver skarðast- an ber hlutinn að lokum, ef stjórnai’farsreglum er raskað í írafári af þeim, sem telja sig þurfa þess við í bili. Það veit enginn, hver skarðastan hlutinn ber frá borði að lokum, þegar slík fordæmi eru gefin. Forystu- menn og flokksstjórnir ættu að kunna sér hóf, þótt þeim hafi ver- ið lagt meira upp í hendurnar á þessu ári en vera skyldi. Og odd- vitar fjölmennis ættu alð gæta hófs í því að láta kné fylgja kviði gagnvart þeim, sem minni hafa máttinn, hvort sem um er að ræða fámenn byggðarlög þessa lands eða dreifða atvinnustétt, sem er seinþreytt til vandræða. Eg teldi það vel farið, ef hæstv. ríkisstj. sæi sig um hönd í þessu máli, eins og eg er ekki vonlaus um, að hún sé nú að byrja að gera, og þeir myndu vera margii’, sem mætu hana meira eftir en áður. , Rómvei-jar hinir fox-nu sögðu: Það er mannlegt að láta sér skjátlast, en það er óviturlegt að vaða áfram í villu sinni.“ Eg hygg, að enn geti orðið samkomu- lag hér á þingi um eðlilega af- greiðslu þeirra mála, sem nú xarf að ráða til lykta og um eðli- lega þingfrestun, ef hæstv. ríkis- stjórn vildi taka þann kostinn, sem henni og öðrum er fyrir beztu, og eg vil bæta mínum til- mælum við tilmæli annarra manna um, að hún geri það. Mundi eg vilja leggja slíku sam- komulagi lið. Eg sé ekki ástæðu til að vera vonlaus um það enn- rá, að úr því geti orðið, og dreg xað m. a. af því, sem gerðist í kvöld, er bráðabirgðalögin voru lögð fram. kosti fádæmi, að ríkisstjórn, sem hefur sett bráðabii’gðalög, hafi komið þannig fram gagnvart þinginu í því sambandi, sem þessi ríkisstjórn hefur leyft sér að gera, því miður. Og eg efast um, að þetta hefði getað gerzt, meðan hin fyrri kjördæmi landsins héldu enn sínum sögulega rétti til að eiga sína sérstöku fulltrúa á Alþingi. Eg efast um, að það hefði getað gei’zt á meðan. Eg ef- ast um, að þeim fulltrúum hefði vei’ið boðið þetta, sem hæstv. rík- isstjórn nú þykir hlýða að bjóða þeii’i’i „réttu mynd þjóðarvilj ans“, sem hér blasir við henni á þingbekkjum. Þegar samtök urðu um það hér á þessum vettvangi á sl. vetri að leggja kjördæmin nið- ur, var því af mörgum spáð, að ekki mundi sú ráðstöfun vei’ða til þess að styi’kja gnindvöll þing- í’æðisins hér á landi. Hin nýja kjördæmaskipun hefur það m. a. för með sér, að í stað hinnar pei’sónulegu kosningar, sem tíðk- ast hefur hér á landi til Alþingis, er nú komin kosning flokkslist- anna. Eg hygg, að aðferð núvei’- andi hæstv. ríkisstjórnar, og al veg sérstaklega hæstv, ráðhei’i’a Sjálfstæðisfl., beiá þess vott, að andrúmsloftið sé strax byi-jað að breytast í þeim herbúðum til samræmis við þennan nýja þing- ræðisgrundvöll. Það er byi’jað að loka gluggum á þessari vistar veru. Það er hugboð mitt, að frestur af ýmsu tagi kunni að þykja æskilegur á meðan flokks- menn ýmsir, þ. á. m. nýliðar þingi, eru að venjast hinu nýja andrúmlofti. Það er samt hyggi- legt fyrir þá, sem á sl. sumri Sýningum hraðað Sýningar á söng- og gaman- leiknum „Ævintýi’i á gönguför“ eru-að hefjast. En þannig er mál- um háttað, að sýningum þarf að vera lokið á ákveðnum tíma, og til þess að það geti oi’ðið, þarf helzt að sýna á hverju kvöldi meðan aðsókn varir. Leikhúsgestum, í bæ og héraði, er vinsamlega bent á að tryggja sér miða sem fyrst. Oft hendir það að leikhúsið er hálftómt á næstu sýningum eftir frumsýn- ingu, þótt síðar geti orðið miklir örðugleikar á að svara eftirspum eftir aðgöngumiðum. Aðgöngumiðasími L. A. er 1073. Tekið á móti pöntunum milli kl. 2 og 4 alla virka daga eftir að sýningar hefjast. Næstu sýningar ex’u miðviku- dag og fimmtudag 27. og 28. jan. Orðsending frá S. N.E. Bændur, sem færa mjólkur- skýi’slur á sambandssvæði SNE, eru beðnir um að senda skýrslur sínar til uppgjöx’s á skrifstofu Mjólkursamlags KEA sem allra fyi’st. Áríðandi er, að á skýi’slunum séu færðar allar þær upplýsing- ar, er skýrsluformin gera ráð fyrir og vitað er um. Einkum. skal bent á, að miklu máli skipt- ir að getið sé um feður og mæður ungu kúnna, ásamt fæðingai’degi og ári. Ennfremur að fóðui’bætis- gjöfin sé færð, undanrenna með- talin. Ólafur Jóiisson, ráðunautur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.