Þjóðviljinn - 21.07.1983, Page 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNj Fimmtudagur 21. júlí 1983
Skák
Karpov að tafll - 171
Heldur er óvenjulegt að sjá sterka
skákmenn missa af einfaldri vinn-
ingsleið og enn undarlegra ef við-
komandi skákmaður er f góðu formi.
Það vakti því mikla athygli á skákmót-
inu í Las Palmas 1977 þegar Karpov
sást yfir afar einfalda leið gegn
neðsta manni mótsins, Spánverjan-
um Cabrera. Þegar skákin var tefld
hafði Karpov hlotið 10 vinninga úr 11
skákum, en Cabrera 1/2 vinning:
abcdefgh
Karpov - Cabrera
Staðan kom upp eftir 15. leik svarts
Bg7-f8. Karpov sem tefldi þessa skák
eins og margar aðrar í mótinu leiftur-
hratt lék nú:
16. Bxf8
(Það er ekki ástæða til að gefa þess-
um leik spurningarmerki því Karpov
heldur eftir sem áður miklum stöðuyf-
irburðum. Bandaríski stórmeistarinn
Walter Browne sem skrifaði um mótið
í „Chess life“ vildi halda því fram, að
þarna væri kominn munurinn á Fisc-
her og Karpov. Fischer sem ávallt
reyndi að finna besta leikinn hefði ár-
eiðanlega leikið 16. Hxe6+! með
hugmyndinni 16. - fxe6 17. Nh5-Kd8
18. Rxe6 mát. „Karpov teflir eins og
vél,“ skrifaði Browne. „Hann leikur
yfirleitt góðum leikjum en ekki alltaf
besta leiknum." Lok skákarinnar
urðu þessi:
16. .. Kxf8
17. bxb7 Dxb7
19. Dh5 Hd8
19. Dh6+ Ke7
20. Dg7 e5
21. dxe5 fxe5
22. Had1 Db8
23. Rd5+ Ke6
24. Dg4+ f5
25. Dg7
- og Cabrera gafst upp. Karpov hafði
notað 56 mínútur á alla skákina.
Bridge
Guðmundur Páll og Þórarinn sátu
A-V og sagnir eru forvitnilegar:
Vestur Norður Austur Suður
Guðmundur Þórarinn
4— L pass 4—T 4-S
5- L 5-S 6—H(!) pass
pass 6-S dobl pass/
hringinn
Notkun þeirra á „Texas“ og fram-
haldið er athyglisvert. Opnunin lofar
vitanlega góðum hjartalit og fyrir-
stöðu í tveim litum öðrum (minnst).
4-T er bið - og spurnarsögn og 5-L
upplýsir hvar fyrirstöðuna vantar.
Þórarinn segir síðan slemmuna af ör-
yggi, þrátt fyrir „bandstrikið" í tromp-
inu!
Það var síðan þeirra ólán að hætt-
urnar buðu fórn heim. Þeir þræddu
vörhina og uppskáru sín 900. 4 impa
gróði, en ómældur kerfissigur. Áfram
Island.
Gcetum
tungunnar
Sagt var: Flogið er til Lúxem-
búrgar.Rétt vaeri:... til Lúxem-
borgar.
(Staðurinn heitir Lúxemborg á ís-
lensku, sbr. t.d. Hamborg.)
Gufu-
baðið
v/ð
Laugarvatn
Glaðasólskin er engin lífs-
nauðsyn kringum Laugar-
vatn. Þar er líka hægt að líða
vel í dumbungi og smárign-
ingu, - einkum ef ferðalangur
eða dvalargestur uppgötvar
gufubaðið niður við vatnið.
Maður klæðir sig úr og lætur
hverinn ylja sér þangað til
ekki verður lengur þolað við,
hægir á huganum og lifir í lík-
amanum. Síðan á að tölta eftir
hellum útí Laugarvatn, henda
sér í eða skvetta á sig, - það,
fer eftir hugrekki; að lokum er
sest á bekk við baðskálann til
að hleypa lofti að líkamanum.
Svo er farið aftur inní gufu-
baðið og athöfnin endurtekin
eins oft og vill. Að lokum er
gráupplagt að rölta í gróðrar-
stöðina við hliðina og kaupa
sér ferskar gúrkur og tómata
og papríkur, til áts á staðnum
eða þegar heim er komið.
Leifur tók ljósmyndirnar.
-m