Þjóðviljinn - 21.07.1983, Qupperneq 3
Fimmtudagur 21. júlí 1983jÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 *
Arnarflug
með
afslátt
Arnarflug hefur ákveðið að veita
10% aflsátt af fargjöldum í innan-
landsflugi ef keyptur er farseðill
fram og til baka.
Gildistími farseðilsins er 60 dag-
ar frá útgáfudegi.
Þá hefur Arnarflug ákveðið að
rýmka fjölskylduafslátt í innan-
landsflugi þannig að 2-10 ára börn
greiða 25% af fargjaldi fullorðinna
en þau borguðu 60% áður.
Opið hús:
Erindi um
Reykjavik
Nanna Hermansson, borgar-
minjavörður heldur erindi með lit-
skyggnum í Opnu húsi fimmtudag-
inn 21. júlí kl. 20:30. Flytur hún
erindið á dönsku og nefnir það
Reykjavík - for og nu. Ennfremur
verða sýndar tvær kvikmyndir,
teknar af Ósvaldi Knudsen. Eru
það kvikmyndirnar Reykjavík og
Hrognkelsaveiði. Tekur sýning
þeirra tæpan klukkutíma. Að
venju verður bókasafn hússins og
kaffistofa opið fram eftir kvöldi.
í anddyri hússins stendur sýning
á íslenskum sjófuglum, og er hún
opin á þeim tíma sem húsið sjálft er
opið. - í sýningarsölum í kj allara er
Sumarsýning Norræna hússins, þar
sem sýnd eru málverk og vatsnlita-
myndir eftir Ásgrím Jónsson. Sýn-
ingin stendur til 24. júlí og er hún
opin daglega frá 14-19.
Fyrsti bar
í Keflavík
Nú geta Keflvtkingar setið yfir
glasi af góðu víni þegar þeir fara út
að borða, því á fundi bæjarstjórn-
arinnar í fyrradag var samþykkt að
veita „GIóðinni“, sem er veglegt
veitingahús, vínveitingaleyfl.
Veitingastaðurinn er á tveimur
hæðum og á efri hæðinni er fyrir-
hugað að setja upp bar. Þetta er í
fyrsta sinn sem þvílíkt leyfi er veitt í
Keflavík.
T rúnaðarmannar áð
járnsmiða:
Hnekkjum
kjara-
skerðingu
Bráðabirgðalög ríkisstjórnar-
innar um launamál er grófasta árás
á kjör og réttindi verkafólks sem
stjórnvöld hafa framkvæmt, segir f
ályktun sem trúnaðarmannaráð
Félags járniðnaðarmana gerði á
fundi sínum þann 19. júlí.
í ályktuninni segir ennfremur:
Verðbótaskerðingar sem áður
hafa verið framkvæmdar hafa ekki
stöðvað verðbólguþróun eða leyst
efnahagsvanda.
Trúnaðarmannaráð Félags jám-
iðnaðarmanna mótmælir harðlega
setningu bráðabrigðalaganna um
launamál frá 27. maí 1983 og af-
námi frjáls samningsréttar og
skerðingu kaupmáttar sem af lög-
unum leiðir. Sérstaklega mótmælir
trúnaðarmannaráð Félags jám-
iðnaðarmanna því að reiknaðar
em fullar verðbætur á lán sam-
kvæmt lánskjaravísitölu þegar
verðbætur á laun em bannaðar.
Trúnaðarmannaráð Félags jám-
iðnaðarmanna hvetur samtök
launafólks að undirbúa ráðstafanir
til að hnekkja kjara og réttinda-
skerðingum fyrr en síðar.
Ragnheiður Sigurðardóttir: „Við erum hrædd um börnin.
í tengslum við starfscmi Burstafells.“ Mynd: - eik.
Starfsemi Burstafells við Hamarsgerði
Það líðurekkisádaguraðstórirflutningabflar og fólksbflar aki ekki hér um
Skapar mikla slysahœttu
„Okkur sem búum hér við
Hamarsgerði flnnst fyrirtækið
Burstafell ekki auka líf hérna í
hverflnu heldur þvert á móti. Það
skapast af því mikil slysahætta“,
sagði Ragnheiður Sigurðardótt-
ir, ein íbúa Hamarsgerðis vegna
ummæla kaupmannsins í Bursta-
felli, Kristins Breiðfjörð, í Morg-
unblaðinu sl. laugardag þar sem
hann heldur því fram að hann sé
að gæða hverfíð lífi og veita þjón-
segir Ragnheiður
Sigurðardóttir.
ustu sem nauðsynleg sé í íbúðar-
hverfi.
Sagði Ragnheiður að íbúarnir
væru búnir að fá sig fullsadda af
því ófremdarástandi sem skap-
aðist í kringum fyrirtækið. Þar
væri hvorki verið að selja kók eða
karamellur. Mikill fjöldi bif-
reiða, bæði fólksbfla og stórra
flutningabfla, væri stöðugt á ferð-
inni í götunni og lægi oft við stór-
slysum þó bflstjórar reyndu ef-
laust að sýna aðgætni. Væri á-
standið oft svo slæmt að foreldrar
treystu sé ekki til að lofa börnum
útúr húsi fyrr en eftir lokunar-
tíma verslana, Kvað hún það
enga lausn að flytja þessa slysa-
gildruum set innan hverfisins.
Fyrirtæki eins og Burstafell ætti
best heima í iðnaðarhverfi. Þá
sagði hún að fólki finndist það
mjög undarlegt ef ætti að leyfa
byggingu á græna svæðinu neðan
Sogavegar því þar væri ekki gert
ráð fyrir byggð á skipulagi. Væru
slík vinnubrögð stórfurðuleg, svo
ekki væri minnst á bruðl með
almannafé.
- áþj
Flugleiðir 10 ára
Afmælisglllið
haldið í haust
Er sumarferðamynstrið að breytast?
Stjanað við farþega í millilandaflugi
Flugleiðir áttu tíu ára afmæli í
gær. Stofnendur voru hluthafar
Flugfélags íslands hf. og Loftleiða
hf. sem samþykktu á aðalfundum
beggja félaganna 28. júní 1973
uppkast áð samningi um stofnun
sameignarfélags. Þrír forstjórar
voru í fyrstu við félagið, þeir Örn
Ó. Johnson, Alfreð Elíasson og
Sigurður Helgason og hélst sú
skipan mála til ársins 1979 er Sig-
urður Helgason varð einn for-
stjóri.
1 tilefni þessara tímamóta var
boðað til blaðamannafundar þar
sem Sigurður Helgason gerði
grein fyrir því helsta sem drifið
hefur á daga félagsins á þessum
tíu árum. Það kom fram hjá hon-
um að þetta hefði verið erfiður
áratugur fyrir flugstarfsemi al-
mennt en meiri hagræðing hefði
náðst í rekstri fyrirtækisins.
Starfsmenn Flugleiða 1973 voru
1700 en eru nú tíu árum seinna
1200. Launagreiðslur félagsins á
þessu ári nema 370 miljónum,
eða miljón á dag, og til auglýs-
inga og landkynningar erlendis er
varið um 80 miljónum. Farþega-
fjöldi með félaginu á tímabilinu
1. janúar til 9. júlí á þessu ári var
279 þúsund en var á sama tímabili
í fyrra 268 þúsund. Er það um 4%
aukning í heildina en ekki er um
aukningu að ræða á öllum
leiðum. Þannig er fækkun á Evr-
ópuleiðum um 3,6% og innan-
lands 8,8%, meðan aukningin í
Norður-Atlantshafsfluginu nem-
ur 28%. Að sögn Sigurðar er
stöðugt í athugun hvernig beri að
standa að endurnýjun á flugvél-
akosti félagsins og hefur m.a.
verið rætt um að taka í notkun
breiðþotur í N-Atlantshafsflug-
inu. Endumýjun véla í innan-
landsflugi er einnig á dagskrá en
engar ákvarðanir hafa verið tekn-
ar í þeim málum. Það kom fram
að tap á innanlandsfluginu á þess-
um 10 ámm nemur um 250 milj-
ónum og samsvarar sú upphæð
verði tveggja Fokker-véla. Það er
fyrst nú að fargjöld í innanlands-
flugi standa undir kostnaði.
Erling Aspelund formaður af-
mælisnefndar Flugleiða geri
grein fyrir því hvemig þessara
tímamóta í sögu félagsins yrði
minnst. Kom fram hjá honum að
mikil afmælishátíð standi fyrir
dymm í haust, helgina 17.-18.
september en ekki þótt heppilegt
að leggjast í veisluhöld nú, á há-
annatímanum. Þessa helgi fer
fram víðtæk kynning á starfsemi
Flugleiða og verðu efsta hæðin á
Hótel Loftleiðum lögðu undir
hana og munu allar deildir félags-
ins gera þar grein fyrir sínu starfi.
Einnig verða flugvélar félagsins
skírðar við hátíðlega athöfn en
eins og menn etv. rekur minni til
fór fram nafnasamkeppni fyrir
flugvélaflotann fyrir all nokkm,
og urðu hlutskarpastar tillögur
sem enduðu á — fari.
-áþj