Þjóðviljinn - 21.07.1983, Page 7
Fimmtudagur 21. júlí 1983 IÞJÓÐVILJINN •— SÍÐA 7 .
Húsavíkurf lotinn:
„Þeir hafa verið fyrir Norður-
landi og Vestfjörðum, togararnir,
og haft sæmilega góðan afla“ sagði
Kristján Ásgeirsson hjá Höfða hf.,
helstu útgerðarfyrirtaeki Húsvík-
inga, en þar voru Þjóðviljamenn á
vappi fyrir nokkru. „Annar togar-
inn kom inn um daginn með 175
tonn af grálúðu og þorski, hinn var
að landa 110 tonnum af hreinum
þorski.“
Höfði gerir út tvo togara, Júlíus
Hafstein,300tonnaskip, 13manna
áhöfn, og Kolbeinsey, sem
smíðaður var í hittifyrra á Akur-
eyri. Hann er 430 tonn, „eins full-
kominn og hægt er að hafa skip“
sagði Kristján, með 15 manna
áhöfn. Útgerðarfélagið er í eigu
Fiskiðjusamlagsins að tæpum
helmingi, aðrir eigendur eru Húsa-
víkurkaupstaður, Kaupfélag Þing-
eyinga, verkalýðsfélagið og ein-
staklingar. Helstu hluthafar í Fisk-
„Æ, þetta hefur verið heldur lélegt“ voru fréttirnar af línuveiðum, „þetta var skárra fyrr í sumar. Kristján Ásgeirsson
Handfærabátarnir? Já, það er eitthvert kropp hjá þeim á skakinu.“ Ljósm. Leifur.
Þokkalegur afli
iðjusamlaginu eru svo Samvinnu-
félag útgerðarmanna og sjómanna,
bærinn og kaupfélagið, þannig að
hér á hvað annað.
Aflinn hjá bátaflotanum hefur
verið heldur lélegur undanfarið.
Minnstu bátarnir hafa verið inná
Flóanum og útundir Mánáreyjum.
Fjórir bátar eru nú á rækjuveiðum
á Grímseyjarsvæðinu og gengið
vel, einsog öðrum rækjubátum úti-
fyrir Norðurlandi.
Hvernig koma ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar út fyrir fyrirtæki eins-
og Höfða? Kristján sagði að það
væri ómögulegt að segja um það
ennþá. í útgerðinni væri í mörg
horn að líta og áhrif af ráðstöfun-
um stjórnarinnar væru enn ekki
komin fram í heild. „Við getum
tekið einn þáttinn útúr, afnám á
olíuniðurgreiðslum og aukninguna
á hlut útgerðar í afla, og þá kemur í
ljós að miðað við sókn og aflasam-
setningu hjá okkur frá áramótum
förum við nokkuð vel útúr því“
sagði Kristján. Hinsvegar mætti
búast við meiri sveiflum eftir afla-
magni og gæðum með þessu fyrir-
komulagi, skip notar jafnmikið af
olíu í aflahrotu og fiskleysi. „Svo á
eftir að líta á aðra þætti, til dæmis
þá gjaldliði sem hækka vegna geng-
isfellingar. Skuldirnar hjá okkur
vegna skipakaupa eru nuna senm-
lega hátt á annað hundrað mill-
jóna, og þessi lán eru gengistryggð.
Þetta þýðir að þótt við tökum 20%
útúr rekstrinum greiðist höfuð-
stóllinn ekkert niður.“ Það væri því
ekkert hægt að segja um niður-
stöðuna úr þessu dæmi fyrir út-
gerðina fyrr en lengra er liðið á
árið. „Svo erum enn náttúrulega
ósáttir við kjaraskerðinguna" sagði
Kristján.
Húsavíkurtogaramir verða úti
yfir verslunarmannahelgina, en
það á að reyna að klára upp í frysti-
húsinu þannig að starfsfólkið fái
Togarinn Kolbeinsey í Húsavíkurhöfn. Ljósm. Leifur.
þriggja daga aukafrí, föstudaginn togarinn inn með afla á fimmtu-
fyrir helgi, þriðjudag og miðviku- daginn.
dag eftir helgi. Síðan kemur annar -m
Friðarganga ’83
Algjört frelsi innan ramma göngunnar
segja þeir hjá Samtökum herstöðvaandstæðinga
- Það er að byrja að færast fjör í
hlutina, blessuð vertu, en undir-
búningur hefur staðið í nokkrar
vikur, þótt skráning sé að fara af
stað þessa dagana, en þú mátt
skrifa að okkur sárvanti sjálfboða-
liðatil að vinna við skráningu og
ýinis tilfallandi verkefni.
Sá sem þetta mælir er Rúnar
Ármann Arthúrsson sem þess dag-
ana hefur aðsetur á skrifstou Sam-
taka herstöðvaandstæðinga og hef-
ur umsjón með undirbúningi fyrir
Friðargöngu ’83.
Alþjóðleg
barátta
- Af hverju heitir gangan
Friðarganga ’83, er Keflavíkur-
ganga ekki nógu gott nafn lengur?
- Friðarganga ’83 er heiti göng-
unnar alveg eins og var síðast þegar
farið var út í aðgerðir af þessu tagi,
en í júní 1981 var farið í friðar-
göngu frá herstöðinni á Keflavík-
urflugvelli til Reykjavfkur og í ág-
úst sama ár frá herstöðinni á
Stokksnesi inn á Höfn. Að þessu
sinni verður farin ganga frá her-
stöðinni í Keflavík til að minnast
fórnarlamba atómsprengjunnar á
Híróshíma og Nagasagi, en
Híróshímasprengjunni var varpað
6. ágúst 1945. Með þessari göngu
viljum við árétta þá ósk allra viti-
borinna manna að slíkir atburðir
endurtaki sig aldrei. Nú, Samtök
herstöðvaandstæðinga hafa fyrir
löngu skipað sér í fylkingarbrjóst í
friðarbaráttunni hér á landi og
tekið upp samstarf við hópa og
samtök í nálægum löndum sem.
berjast fyrir sömu markmiðum.
Nægir að minna á baráttu fyrir
kröfunni um kjamorkuvopnalaus
Norðurlönd, baráttu fyrir friðlýs-
ingu N-Atlantshafs, baráttu gegn
uppsetningu nýrra meðaldrægra
NATÓ-flugskeyta í V-Evrópu og
fleira og fleira. Langtímamarkmið
samtakanna er endurheimt hlut-
leysis íslands sem kristallast í kjör-
orðum samtakanna: ísland úr
NATÓ - herinn burt, og trú þeim
kjörorðum hafa samtökin barist
einarðlega gegn öllum hernaðar-
umsvifum NATÓ hér á landi og má
raunar segja að oft hafi verið þörf
en nú sé nauðsyn, í ljósi síðustu
frétta af nýjum vígbúnaðarfram-
kvæmdum NATÓ og ameríkanans
hér.
Gömul járn
og ný
- Já, þetta höfum við heyrt áður.
Verður ekki reynt að brydda upp á
einhverjum nýmælum í göngunni?
- Gömul járn bíta best, segir í
fornu spakmæli, og mættu menn
gjarnan hafa það í huga. Hitt er
annað mál að í Friðargöngu ’83 eru
allir velkomnir með þær kröfur sín-
ar á lofti sem falla að meginkröfum
göngunnar um stöðvun vígbún-
aðarkapphlaupsins og eyðilegg-
ingu allra gjöreyðingarvopna, gegn
hernaðarbandalögum og yfirgangi
hervelda; fyrir friði og afvopnun.
í framkvæmd er þetta þannig að
menn geta útfært sín kröfuspjöld
og þær uppákomur sem þeir vilja
hafa í frammi eftir eigin höfði, svo
fremi að það stangist ekki á við
megininntak göngunnar. Innan
þess ramma ríkir algjört frelsi. Nú,
svo mega menn líka ef þeir vilja
koma ríðandi til göngunnar, hvort
heldur þeir vilja á hjólhestum eða
lifandi gæðingum, og þeir sem það
kjósa geta fylgt göngunni eftir á
einkabílum eða í rútum göngunn-
ar. Sérstök þjónusta verður líka
fyrir þá sem eru hreyfihamlaðir og
vil ég biðja fólk um að snúa sér til
okkar til að fá nánari upplýsingar
um það, símarnir eru 2-92-12 og
1-79-66 og er sjálfvirkur símsvari
sem tekur við skilaboðum tengdur
við síðara númerið utan skrifstofu-
tíma.
Skemmtidagskrá
- Verður þá engin undirbúin
dagskrá á viðkomustöðum göng-
unnar?
Jú, auðvitað verður það og sú
dagskrá er nánast alveg tilbúin og
verður byrjað að auglýsa hana í lok
þessarar viku eða byrjun þeirrar
næstu. Þar verður um að ræða
skemmtidagskrá með tónlist og
leikuppákomum og svo verða að
sjálfsögðu haldnar ræður. Meðal
þeirra sem hafa þegar orðið við
óskum okkar um að taka til máls á
viðkomustöðum göngunnar eru:
Ragnar Arnalds. Sólrún Gísla-
dóttir, Vésteinn Ólason, Bergþóra
Gísladóttir og sr. Rögnvaldur
Finnbogason.
Til starfa
- Að lokum, friðargangan 1981
tengdist mikilli friðargöngu kjarn-
orkuvopnaandstæðinga frá Kaup-
mannahöfn til Parísar. Er eitthvað
slíkt á ferðinni núna?
-Ekki beinlínis, kannski, en þær
konur sem stóðu fyrir þeirri göngu
1981 fara af stað 6. ágúst, sama dag
og við verðum á ferðinni í göngu
frá Osló til Washington, það er að
segja þær ætla að fljúga frá Osló og
ganga síðan frá New York til Was-
hington. Þannig að okkar ganga
tengist henni svona óbeint.
- Með þessum orðum ljúkum við
viðtalinu og skorum á fólk að drífa
sig í að láta skrá sig í gönguna eða
til starfa fyrir hana.
Á.S.