Þjóðviljinn - 21.07.1983, Side 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ' Fimmtudagur 21. júlí 1983
Steinn Stefánsson:
Þjóðfrelsi
íslendinga
Annar hluti - „Kostirnir tveir”
Áróður frá hendi margra sem til-
heyra hinum flokkunum og virðist
gjaman beint gegn Alþýðubanda-
laginu gengur æ meira út í það, að
við höfum aðeins um tvo kosti að
vefja: „hervernd“ annars hvors
stórveldisins Bandaríkjamanna
eða Rússa og þar með hernaðar-
samvinnu við annað hvort risaveld-
ið, auðvitað með tilheyrandi afsali
landsréttar vegna hersetu.
Ég spyr: Er slíkt sjálfstæðisbar-
átta? Að kjósa um hvort stórveldið
eigi að ráða í þessu landi og kúga
þjóðina. Skyldi ekki Jóni Sig-
urðssyni hafa þótt það vel að verki
staðið. Honum hefði nú líklega
þótt eðlilegra að þjóðin reyndi að
sameina sig um að endurvinna
sjálfstæðið. Þetta um kostina tvo er
eitt það allra fáránlegasta sem ég
hef heyrt. En það svívirðilega
skeður, að það er verið að ala ung-
dóminn upp í þessu, að við eigum
aðeins um að velja „betri kostinn af
tveimur", vernd, annars hvors risa-
veldisins, sem þýðir auðvitað að
farga sjálfstæðinu. Þetta kemur oft
fram, þegar ber á góma að reka
þurfi herinn úr landi. Þá er svarið
einatt: „Viljið þið þá heldur Rúss-
ann“, rétt eins og það væri sjálf-
sagt.
Ofan í ýmsan heimskulegan ár-
óður fengum við svo undirskrifta-
söfnun „Varins lands“, þar sem af
frjálsum vilja er verið að biðja stór-
veldið í vestri um varanlegt hernám
á þjóð okkar um langa framtíð,
sem er algerlega öruggt til að týna
þjóðfrelsinu. Þetta held ég að sé
heimsmet, enda líklega ekki við
neinn að keppa. Það finnst varla
nokkur þjóð á jarðríki sem mundi
hegða sér á þann veg, sem V-E.-
menn ætluðust til af stjórnvöldum
okkar, enda hafa þau sem betúr fer
ekki beðið um langvarandi her-
nám. En tiltækið hefur sjálfsagt
haft sín slæmu áhrif ei að síður.
Þá koma í hug smærri þjóðir
austan tjalds. Það verður víst að
segja þeim til afsökunar, að þær
hafa sumar búið við þann ófögnuð
að vera undir þrýstingi tiltölulega
fárra valdsmanna, sem beðið hafa
risaveldið í austri um íhlutun, sem
auðvitað er óafsakanlegt fram-
ferði, svo sem í Ungverjalandi og
Tékkóslóvakíu. En fólkið ræður að
sjálfsögðu ekki við valdsmennina
sem beita hernum, þessu djöfuls
apparati, sem búið er að vera öllum
þjóðum til ills og bölvunar gegnum
aidirnar, já meira að segja hvað
mest notað af þeim kristnu því mið-
ur. Við héldum þó að kristnar
þjóðir hefðu lært boðorðið „þú
skalt ekki mann deyða", en valds-
mönnum þeirra dettur ekki í hug
að fara eftir því, fremur en
kærleiks- og bræðralagskenningum
Krists, og er það auðvitað hern-
aðarófreskjunni að kenna. En
henni er viðhaldið að yfirlögðu ráði
manna sem taldir eru fullvita. Lút-
her kynni að hafa sagt - viðhaldið
af útsendurum djöfulsins.
Þegar rætt er um „betri kostinn
af tveimur“, verður manni á að
hugsa, hvort mögulegt sé að hér á
landi finnist menn sem vildu kjósa
handa þjóðinni yfirráð Sovétríkj-
anna, þessa stórveldis sem þrátt
fyrir mikið tækifæri sem það fékk
til að gera vel, hefur í veigamiklum
atriðum svikið sósíalismann.
Vissulega höfum við mörg von um
það, um eina tíð, að það væri verið
að skapa þjóðfélag í anda Karls
Marx, þar sem raunverulega yrði
reynt að framkvæma bræðralags og
kærleikskenningar Krists. En það
hefur nú farið dálítið öðruvísi. Hér
er ekki Tmi til að fara að ráði út í
þau firn, þar sem m.a. skoðunar -
frelsier virtað vettugi, svo að óg-
erningur er að bæta um þaö sem
mistekist hefur. Tvlaðurinn er nú
einu sinni ekki alfullkominn vera
og því eðlilegt að honum mistakist
margt. Það hefur líka sýnt sig gegn-
um aldirnar sbr. m.a. kaþólska kir-
kju fyrr á öldum, valdsmennsku
hennar og mistök. En þegar svo fer
fyrir ófullkomnum mönnum, þarf
að vera leyfilegt að ræða mistökin
og hvernig leiðrétta eigi. En til þess
þarf skoðanafrelsi.
Einu sinni var því haldið fram að
lýðræði kommúnismans yrði það
fullkomnasta sem þekkst hefði. Ja,
skv. kenningunni var það víst
mögulegt, og því skyldi ekki vera
hægt að koma á fullkomnu lýðræði
og jafnrétti? Það er verkefni fram-
tíðarinnar. En hvernig hefur þetta
tekist t.d. í Sovétríkjunum? Því er
kannski ekki fljótsvarað. En þar
hafa átt sér stað andlýðræðislegar
aðgerðir sem sýna sig m.a. í þeim
hryllilegu aftökum eða hreinsun-
um einmitt gagnvart þeim sam-
starfsmönnum Leníns o.fl., sem
gagnrýndu framkvæmd kommún-
isma Stalíns. En hann tók upp
valdastefnuna. Manni getur runnið
til rifja, eins og þar eystra er mikið
af góðu fólki, hvað það hefur mátt
þola. Það má kannski teljast fram-
farir að ekki hefur heyrst um
hreinsanir eða aftökur þar eystra,
síðan Stalín leið.
Jú, sjálfsagt er að viðurkenna
mörg stórvirki sem unnin hafa ver-
ið og mönnum er kunnugt um, og
þvf ekki farið ýtarlega út í það hér.
E.t.v. ber þar hæst er ólæs miljóna-
þjóð var gerð læs. Þá væri sann-
gjarnt að nefna hið mikla átak upp-
byggíngarinnar eftir að fjöldi heilla
borga og bæja voru lögð í rúst í
heimsstyrjöldinni síðari. Svo
eitthvað sé nefnt. Það var því ekki
furða, þótt Rússar hefðu uppi svo
mikla friðarsókn eftir stríðið, að
sagt var í gamni um allar trissur, að
þeir „hefðu fundið upp friðinn". Já
þeir urðu illilega fyrir barðinu á
stórstyrjöld og vita hvað hún er.
Það er meira en Bandaríkjamenn
hafa upplifað.
En þótt þeir eystra hafi nefnt sitt
þjóðskipulag því grátbroslega
nafni „alræði öreiganna“, (það er
gamalt nafnt úr byltingu) vitum við
að það er valdið, valdsmennska ör-
fárra manna sem öllu ræður, enda
þótt stundum séu haldnar kosning-
ar til Æðsta ráðsins. Þannig hefur
framkvæmd kommúnismans mis-
tekist, þrátt fyrir þjóðnýtingu, og
vissulega almenna atvinnu sem er
víst stjórnarskráratriði. Nóg um
þetta.
En ég þekki alls engan mann í
okkar kæra landi, sem telur fram-
tíð íslenskrar þjóðar best borgið
með því að biðja Sovétríkin um
hervernd og þar með glata
þjóðfrelsinu. Það má þess vegna
hætta að brýna fyrir almenningi að
við eigum aðeins um að velja
„kostina tvo“.
Það sem er nauðsynlegt að gera
sér ljóst er það, að við höfum her
hins vestræna stórveldis, Banda-
ríkjanna, hér í landi. Vandamálið
er þess vegna, hvernig á að snúast
við því. Þótt það liggi fyrir að V.L.
hafi fengið mikinn fjölda meðal
þjóðarinnar með áróðursblekking-
um til þess að undirrita beiðni til
Bandaríkjanna um varanlegt her-
nám til langrar framtíðar, sem
mundi þýða tortímingu fullveldis
vors, get ég ekki komist hjá því á
efri árum að vona að þetta fólk og
þessi þjóð fari að skilja hvað til
okkar friðar heyrir og hegði sér í
samræmi við það. Ég vil trúa því,
að almennt séu landar okkar góðir
íslendingar sem vilji í raun og veru
heyja okkar gömlu sjálfstæðisbar-
áttu til enda, en ekki ganga á hönd
„betra“ stórveldisins.
Já þá mætti nú skrifa ýmislegt
þegar minnst er á betra stórveldið.
Finnst þjóð okkar ekkert athuga-
vert við fjramferði Bandarikjanna,
sem heimta að ráða algjörlega yfir
smáríkjum Mið-Ameríku, sem
voru þó orðin sjálfstæð, og
skammta þeim það þjóðskipulag,
sem þeim, U.S.A. sjálfum sýnist?
Það má ekki breyta neinu til bóta.
Ef þessum þjóðum dettur í hug að
fara að beita félagslegum lausnum í
stjórnarfari svo sem t.d. á Norður-
löndum þá má það ekki. Það er
ósamræmanlegt hagsmunum
Bandaríkjanna! Þau skulu ráða.
Herforingjastjórnir þeirra skulu
standa, hvar sem því verður við
komið. Eða þá Suður-Ameríku
ríki. Jú, svo að á eitt sé minnst. Það
var, eigi fyrir mörgum árum, kosið
þj óðþing í Chile í frj álsum kosning-
um og mynduð stjórn undir forsæti
Allendes, foringja flokks sem vildi
breyta frumstæðu kúgunarþjóðfé-
lagi til félagslegra átta, þar sem
lýðræði ríkti og almenningur lifði
við betri kjör. Hann var þó ekki
kommúnisti. Nú ætluðu Chilebúar
að fara að verða sjálfstæð
lýðræðisþjóð. En þetta gátu
Bandaríkin ekki þolað, heldur
studdu bak við tjöldin herforingja-
uppreisn í Chile, þar sem hinni
frjálsu þingræðisstjórn var steypt
og Allende tekinn af lífi. Er það
þetta sem okkur vantar með lang-
varandi her „vernd“ Bandaríkj-
anna? Ætlum við að minnast nánar
á E1 Salvador og slátranir þar, Gu-
atemala o.fl.? Nei, það yrði of
langt mál hér. En þetta sem svo
margt fleira segir okkur, að Banda-
ríkin eru síst betri en önnur stór-
veldi. í sögunni hafa stórveldi
ávallt verið ógeð og þar eru Banda-
ríkin síst af öllu undantekning.
Framhald.
------------------------------1---
Minningarorð_____________________
Gunnlaugur Pálsson arkítekt
F. 25. mars 1918 —
í hópi þess alúðlega starfs-
fólks, sem tók á móti mér, er ég
réðist bókasafnsfræðingur við
Bókasafn Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins í lok ársins
1980 var Gunnlaugur Páisson.
Ég var Gunnlaugi að góðu
kunn. Sem ungur blaðamaður við
Dagblaðið Vísi var oft leitað
fréttaaf byggingamálumtilGunn-
laugs. Sömuleiðis mun Gunn-
laugur hafa haft samband við
mig.
I starfi sínu sem deildarstjóri
útgáfu- og upplýsingadeildar
Rannsóknastofnunar byggingar-
iðnaðarins mun hann eflaust að
einhverju leyti hafa haft sama
háttinn á. Ég minnist starfa hans í
nefnd um bætt réttindi fatlaðra í
skipulagi og fyrirkomulagi bygg-
inga og kynningarrita sem haft
var upp á í því skyni, aðallega frá
Danmörku. Gunnlaugur var
einnig menntaður úr Danmörku.
Sumir hafa köllun til bóka-
varðarstarfs, til þess að koma upp
d. 14. júlí 1983
safni. Ég tel víst, að upplýsinga-
mál á sviði bygginga hafi verið
Gunnlaugi hugstæð, en þar að
auki lagði hann á sig að sýna
áhuga á því sem kallað er hér al-
hliða upplýsingaþjónusta, með
bókasafn sem einn kjarna henn-
ar. Til þess samdi hann íslenskt
flokkunarkerfi fyrir byggingar-
iðnaðinn. Flokkunarkerfi fyrir
byggingariðnað Rb/Sfb (SfB
Samarbetskommittén för Byg-
gnadsfrágor - að hluta til byggt á
bókstöfum). Rit þetta var gefið
út árið 1970 af Rannsóknarstofn-
un byggingariðnaðarins.
Upprunalega var hliðstætt kerfi
notað í Svíþjóð og í Englandi.
Fleiri þjóðir munu einnig hafa
tekið það upp. Upp úr og eftir
þessu kerfi varð bókasafn, lið-
tækt á sínu sviði.
Kanntu að skrifa bréf? Allt í
einu var Gunnlaugur kominn inn
til mín einn daginn. Jú, ég taldi
mig kunna það. Þetta var í byrjun
starfs mín og bréfaskriftirnar bar
ekki meira á góma í það sinnið.
Stundum gat Gunnlaugur verið
ótrúlega léttur á sér, hann hafði
kímnigáfu og kunni að meta gott
skop.
Gunnlaugur er fallinn frá fyrir
aldur fram. Ég sé á eftir góðum
starfsfélaga.
Eftirlifandi maka hans Ás-
laugu Zoéga og börnum þeirra,
ættingjum, votta ég samúð.
Svanlaug Baldursdóttir.
Guðmundur Jónsson, Eyrún Guðmundsdóttir og Davíð Oddsson, borgar-
stjóri. Milli þeirra er eitt málverkanna. Mynd: A.S.
✓
I minningu Kjarvals:
Dýrmæt Ustaverkagjöf
Reykjavíkurborg og Kjarvals-
stöðum um leið, hlotnaðist nýlega
ákaflega verðmæt og höfðingleg
gjöf. Guðmundur Jónsson, lög-
fræðingur, afhenti þá fyrir hönd
foreldra sinna, Jóns Þorsteinssonar
íþróttakennara og Eyrúnar
Guðmundsdóttur, fjögur olíumál-
verk og 22 teikningar, eftir Jóhann-
es Kjarval og er gjöfin helguð
minningu málarans. Munu þessi
listaverk nú verða sameinuð safni
Kjarvals að Kjarvalsstöðum.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
tók á móti gjöfinni og þakkaði
hana fyrir hönd borgarinnar og
Kjarvalsstaða.
Þeir Jóhannes Kjarval og Jón
Þorsteinsson voru ákaflega miklir
mátar. Var Kjarval tíður gestur í
húsakynnum Jóns, íþróttaskólan-
um við Lindargötuna, vann þar
stundum að verkum sínum og sýndi
þau. Þau hjón hafa nú þakkað fýrir
þessa samveru með þeim hætti að
eftir verður tekið - og munað.
- mhg