Þjóðviljinn - 23.12.1983, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. desember 1983
Ný tillaga að
skipulagi
miðbœjar-
kvosarinnar fyrir
skipulagsnefnd
borgarinnar
}
Austurstræti allt ásamt Að-
alstræti og Pósthússtræti verði
gert að göngugötu, Vallar-
stræti verði opnað að Austur-
velli, Austurstræti endi í
bæjartorgi þar sem nú er Hall-
ærisplan. Fjalakötturinn
standi áfram og Morgun-
blaðshöllin verði notuð sem
ráðhús fyrir Reykjavíkur-
borg. Þetta eru megintillögur
skipulagstillögu sem arkitekt-
arnir Dagný Helgadóttir og
Cuðni Pálsson hafa unnið að
skipulagi í kvosinni fyrir
Reykjavíkurborg og lögð hef-
ur verið fyrir skipulagsnefnd.
Á þessari mynd af hluta skipulagstillögunnar sést hvernig höfundar hugsa sér „ráðhústorgið" þar scm nú er
hallærisplanið og íbúðabyggðina þar i kring. Vallarstræti er opið inn á Austurvöll og allt miðbæjarsvæðið
utan Hafnarstrætis lokað fyrir bílaumfcrð.
Morgunblaðshöllin
ráðhús borgarinnar
íbúðir verði í öllum húsum í miðbænum
Höfundar segja í skipulagstil-
lögu sinni að miðbær höfuðborg-
arinnar eigi að vera miðstöð
stjórnsýslu, þjónustu, sérversl-
ana, viðskipta og vettvangur fyrir
fjölskrúðugt mannlíf. Til að líf í
miðbænum deyi ekki út síðdegis
þegar verslanir og fyrirtæki loka,
sé mikilvægt að þar séu einnig
fyrir hendi hæfilegur fjöldi íbúða
og einnig skilyrði fyrir hvers kyns
mannamót, menningarstarfsemi
og skemmtanalíf. Er gert ráð
fyrir í tillögunum að búseta sé í
öllum húsum í kvosinni. Innan
við gömlu húsin sem flest eigi að
standa áfram rísi nýbyggingar og
einnig verði nýbyggingar á þrjá
veg umhverfis Hallærisplanið
sem þá verði ráðhústorg og
Moggahöllin ráðhús. Er lagt til
að húsið verði klætt uppá nýtt á
utan svo það falli betur tnn í götu-
myndina.
Eins og áður sagði er lagt til að
Austurstræti allt ásamt Aðal-
stræti og Pósthússtræti verði gert
að göngugötu. Á mótum Hafnar-
strætis og Vesturgötu er áætlað
að koma fyrir bíla- og stoppustöð
fyrir strætisvagna. Lögð er
áhersla á að fyrirhugað bfla-
geymsluhús við Tryggvagötu
verði reist sem fyrst en hugmynd-
ir um neðanjarðarbílageymslur
til lausnar bifreiðastæðisvanda í
miðborginni eru að mati höfunda
of kostnaðarsamar í framkvæmd.
Þau gömlu hús sem lenda
innan skipulagssvæðisins og lagt
er til að verði varðveitt eru: Aðal-
stræti 2, Hafnarstræti 4, Austur-
stræti 3, Veltusund 3, Vallar-
stræti 4 (Hótel Vík), Aðalstræti 7
og 8 (Fjalakötturinn), Aðalstræti
10 sem þegar er friðað.
Húsaröð þessi, sem er stór
hluti af miðbæjarmynd Reykja-
víkur, er nær óslitinn hringur
kringum Hótel ísiandsplanið og
Steindórsplan og tengist Aðal-
stræti 8 og 10.
Skipulagsnefnd borgarinnar
hefur ekki tekið þessar tillögur til
umfjöllunarennþá en þeim hefur
verið vísað til umsagnar hjá
umferðar- og umhverfisnefnd
borgarinnar og stjórn SVR. - lg.
Húsvíkingar fara einnig í blysför í dag:
á jólum 1983
Friður
Húsvíkingar munu einnig í
dag fara í blysför fyrir friði á
jólum 1983 og taka þar með
undir ávarp friðarhreyfing-
anna sem gangast fyrir blysför í
Reykjavík kl. 17.30 í dag.
ísland gegn kjarnorkuvá, Friður
á jólum 1983, Biðjum leiðtoga
þjóðanna að leggja niður vopn og
Brauð handa hungruðum heimi
eru einkunnarorð Friðarhóps Hús-
víkinga, sem fyrir göngunni stend-
ur.
Safnast verður saman við Sund-
laugina, og kyndlar tendraðir kl.
17.30. Þaðan verður gengið að
Húsavíkurkirkju, þar sem séra
Björn Jónsson tlytur stutt ávarp og
þrír ungir blásarar spila. Einnig
verður sungið. Þaðan verður hald-
ið að jólatrénu í miðjum bænum og
flutt þar ávarp fyrir friði og að lok-
um taka göngumenn þátt í
skemmtun barnanna, sem hefst við
tréð kl. 18.
-ÁI.
Þorvaldur Skúlason.
Listasaga
Þorvaldar
Skúlasonar
Út er komin hjá Þjóðsögu bók um
Þorvald Skúlason listmálara eftir Björn
TH. Björnsson. Þar rekur Björn ævi og
listasögu þessa brautryðjanda íslenskr-
ar samtímalistar frá uppvexti og æsku-
mótun um námsár og síðan öll hin
merkilegu stig sem gjörbreyttu myndlist
okkar á síðastiiðinni hálfri öld.
Þessi saga er og rakin í teikningum,
Ijósmyndum og 85 stórum litprentun-
um frá öllum ferli Þorvaldar.
Hér er um að ræða einhverja glæsileg-
ustu listaverkabók sem út hefur komið
hér á landi.
Blysför á Egilsstöðum:
Til styrktar friði
og mannréttindum
I dag kl. 17.30 hefst við Lag-
arfljótsbrú blysför til styrktar
friði og mannréttindum í
heiminum. Það er Kvenna-
hreyfingin á Héraði sem stend-
ur fyrir göngunni til að sýna
samstöðu með friðarhreyfing-
um um allan heim.
Kyndlarnir verða tendraðir við
Lagarfljótsbrú og þar verður flutt
ávarp frá Kvennahreyfingunni.
Síðan verður gengið að Egilsstaða-
kirkju, þar sem séra Vigfús Ingv-
arsson mun segja nokkur orð.
-ÁI
Menningarsjóður
leikstjóra
Andrés
Sigurvins-
son hlaut
verðlaun
Stjórn menningarsjóðs félags
leikstjóra á íslandi hefur nýlega
ákveðið að veita Andrési Sigur-
vinssyni leikstjóra viðurkenningu
úr sjóðnum. Er þetta í fjórða sinn
sem slík viðurkenning er veitt.
Andrés Sigurvinsson hefur á
undanförnum árum leikstýrt mörg-
um sýningum með áhugaleikhóp-
um, ekki síst í skólum landsins, en
á þeim vettvangi er lagður mikil-
vægur grunnur að leiklistarstarf-
semi í landinu, segir í frétt frá
menningarsjóðnum. Ennfremur
stóð hann með öðrum að endur-
reisn Stúdentaleikhússins og veitti
forstöðu athyglisverðri starfsemi
þess á síðastliðnu sumri, sem opn-
aði nýja möguleika í leikhúslífi á
höfuðborgarsvæðinu, segir einnig.
f stjórn Menningarsjóðs félags
leikstjóra á íslandi eiga sæti Gunn-
laugur Ástgeirsson, Ásdís Skúla-
dóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir.
Fiskpjófnaðurinn
hjá Isbirninum:
Tengsl
könnuð
Rannsóknarlögregla ríkisins
vann af fullum krafti í gær að því að
upplýsa mál það sem tengist fisk-
þjófnaði hjá Isbirninum. Stöðugar
yfirheyrslur hafa verið vegna þessa
máls. Meðal þeirra sem þar koma
við sögu eru fiskkaupmenn sem tal-
ið er að séu í vitorði með þeim sem
um nokkurt skeið hafa lagt hald á
fisk úr birgðum ísbjarnarins.
Kvenna-
skákmeistaramót
íslands:
Aslaug
íslands-
meistari
Áslaug Kristinsdóttir varð Is-
landsmeistari kvenna í skák á
meistaramóti kvenna sem haldið
var í húsakynnum Skáksambands
Islands nýverið. Áslaug hlaut 5
vinninga í 6 skákum.
Sigurlaug Friðþjófsdóttir varð í
2. sæti með 3 vinninga, Svana Sam-
úelsdóttir varð í 3. sæti með 2Vi
vinnig og hin 11 ára gamla Guð-
fríður Lilja Grétarsson með IV2
vinning.
Keppendur í Landsliðsflokki
voru fjórir talsins og vantaði að
þessu sinni nokkrar af sterkustu
skákkonum fslands s.s. Guðlaugu
Þorsteinsdóttur, Ólöfu Þráinsdótt-
ur og Birnu Norðdahl.
-hól.