Þjóðviljinn - 23.12.1983, Page 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. desember 1983
Styðjið mannréttindabaráttu
í El Salvador og Mið-Ameríku
Við söfnum fé til barnahjálpar I Mið-Ameríku
Mannréttindanefnd El Salvador
Greiða má inn á spb. 101-05-16500 Landsbanka íslands
Hver er Guðlaugur Gíslason?
Uppskerubrestur í Kampútseu
Guðlaugs saga Gíslasonar:
Endurminningar frá eyjum og alþingi
skráðar af honum sjálfum.
Örn og Örlygur 1983.
Þegar hinn pólitíski ferill Guð-
laugs hófst 1934 kom bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Vestmanna-
eyjum að máli við hann og bauð
honum bæjargjaldkerastöðu. „Fór
bæjarfulltrúinn fram á annað
tveggja að ég afhenti honum form-
lega inntökubeiðin í Sjálfstæðis-
flokkinn eða gæfi yfirlýsingu um að
ég aðhylltist ekki stefnu kommún-
ista“. Hvorugt kom þó til en Guð-
laugur hefur lengstum síðan verið í
dyggri þjónustu fyrir flokkinn sem
bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum, á
alþingi og annars staðar þarsem því
varð við komið. En um þetta virð-
ist áðurnefnd tilviljun hafa ráðið að
einhverju leyti, því Guðiaugur var
alinn upp við kröpp kjör í Eyjum.
En fljótlega kom í ljós að töggur
voru í strák og hann var útsjónar-
samur og natinn við viðskipti hvers
konar. Þess vegna millilenti hann í
verslunarskóla í Danmörku áður
en hann hóf verslunarrekstur og
pólitísk afskipti fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn.
Saga Guðlaugs er afspyrnu
átakalítil og litlaus. Hann segir lítt
frá samtíðarmönnum í Vestmanna-
eyjum, og skammtar naumt og
ópersónulega í viðburði og sam-
ferðamenn síðarmeir.
Guðlaugur sat á þingi í tíð Við-
reisnar og minnist í sögu sinni á
upphaf átakanna Gunnar/Geir
fyrir landsfund Sjálfstæðisflokks-
ins 1971. Kjósa átti um varafor-
mannsembættið og bað Geir Guð-
laug að styðja sig. Guðlaugur tjáði
Geir strax, að hann teldi ekki rétt
að Geir gæfi kost á sér. „Hans tími
kæmi örugglega síðar og myndi ég
þá styðja hann ef ég ætti kost á
því“. Guðlaugur studdi semsagt
Gunnar Thoroddssen, sem tapaði
með naumum mun þessum kosn-
ingum. Guðlaugur segir: „Fyrir
landsfundinn var sendur sérstakur
erindreki, Sverrir Hermannsson
Matvælaskortur er á ný
yfirvofandi í Kampútseu
vegna uppskerubrests sem
stafar af flóðum og skorti á
dráttaruxum og mannafla.
Þetta kemur fram í frá-
sögn Bo Göransson að-
stoðarforstjóra sænsku
þróunarstofnunarinnar, en
hann hefur nýlega heimsótt
Kampútseu, sem annars
hefur verið gleymd hjá vest-
rænum fjölmiðlum um
alllangt skeið.
Erindi Göransson til
Kampútseu var að vinna að
tiliögugerð um áframhald-
andi neyðaraðstoð
sænskra ríkisins til Kam-
pútseu, en Svíþjóð mun
vera eina landið á Vestur-
löndum sem lagt hefur fram
verulega aðstoð til endur-
uppbyggingar í landinu
eftir að Pol Pot-stjórnin var
hrakin frá völdum.
Slík aðstoð er þó bundin pólit-
ískum vandkvæðum, þar sem
sænska stjórnin hefur ekki from-
lega viðurkennt stjórn Hengs
Samrin í Phnom Penh, frekar en
hún viðurkenni útlagastjórn
Rauðu khmeranna.
Stjórnmálaleg einangrun
Kampútseu háir mjög öllum sam-
skiptum ríkisins við önnur ríki en
Sovétríkin og fylgiríki þeirra.
Sameinuðu þjóðirnar hafa aldrei
viðurkennt stjórn Hengs Samrin,
en viðurkenna þess í stað útlaga-
stjórn Rauðu khmeranna. Utlaga
stjórnin er það vanhelga banda-
lag sem þcir Pol Pot, Son Sann og
Sihanouk prins og fyrrum þjóð-
höfðingi hafa myndað með sér
með aðalbækistöðvar í Thai-
landi, þar sem hersveitir þessara
fylkinga njóta verndar og stuðn-
ings stjórnvalda íThailandi, Kína
og Bandaríkjunum. Talið er að
Rauðu khmerarnir ráði yfir um
25.000 manna þjálfuðum herafla
á meðan Son Sann, sem er gamal-
reyndur andkommúnískur
stjórnmálaforingi, er talinn ráða
yfir 7000 mönnum og Sihanouk
yfir kannski um 1000 manna liði.
Víetnamar hafa enn 150-200
þúsund manna herlið í Kampúts-
eu, og hefur nærvera þess verið
talin helsta hindrunin í vegi fyrir
stjórnmálalegri lausn á deilunni
um Kampútseu að sögn andstæð-
inga Hengs Samrin. Víetnamar
Götusalar í Phnom Penh
hafa hins vegar haldið því fram að
þeir séu reiðubúnir að draga her-
lið sitt til baka um leið og þeir fái
tryggingu fyrir því að Rauðu
khmerunum í Thailandi verði
ekki veitt hernaðaraðstoð er-
lendis frá.
Nú eru um 300.000 flóttamenn
frá Kampútseu við landamæri
Thailands, þar af hátt í 40.000
hermenn, og er þeim að mestu
haldið uppi af flóttamannahjálp
Sameinuðu þjóðanna. Hins veg-
ar veita Sameinuðu þjóðirnar
svotil enga beina aðstoð til þeirra
6 milljóna manna sem búa innan
landamæra ríkisins. Eina stofnún
Sameinuðu þjóðanna sem starfar
Landið er
einangrað frá
öðrum löndum
en Sovét-
ríkjunum og
fylgiríkjum
þeirra.
innan landamæranna er barna-
hjálpin Unicef, sem hefur þó
mjög takmarkað umboð til þess
að veita aðstoð til barnaheimila
og sjúkrahúsa.
Bo Göransson segir að til þess
að brauðfæða sig þurfi þjóðin um
1 miljón tonna hrísgrjónaupp-
skeru, en á það vanti nú 300.000
tonn, og stafar það m.a. af
sprettuleysi, flóðum og skorti á
dráttaruxum og mannafla. Fyrir
1970 voru um 2,5 miljón dráttar-
uxa í landinu, nú eru þeir einung-
is 750.000. Þá segir Göransson að
70% fullorðins fólks í landinu séu
nú konur, og stafar þetta hvort
tveggja af ógnarstjórn Pols Pot,
en talið er að á stjórnartíð hans
hafi 1-3 miljónir manna verið
teknar aflífi. Afþessum orsökum
hafði ræktað land minnkað úr 2,5
miljónum hektara niður í 0,7
miljónir þegar Víetnamar réðust
inn í landið 1979. Ræktað land er
nú komið upp í 1,4 miljónir hekt-
ara að sögn Göranssons, en dugir
ekki til.
Svíar hafa frá 1979 veitt um 420
miljónum íslenskra króna til
neyðarhjálpar í Kampútseu, þar
af um 53 miljónum á þessu ári.
Hefur hjálpin farið í gegnum
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
í formi lyfja, matvæla, klæðnaðar
o.s.frv. en hjálpin takmarkast af
því að Unicef hefur ekki nema
takmarkað umboð til hjálpar sem
ekki er ætlað að ná til almennra
borgara, heldur einungis barna.
Meðal þeirra sem veitt hafa fé til
Kampútseu í gegnum Unicef eru
samtök bandarískra kvekara og
segir Göransson að Reaganst-
jórnin hafi nú uppi áform um að
stöðva þær peningasendingar.
Hins vegar hafi hann orðið var
við að yfirvöld í landinu teldu
afar mikilvægt að halda opnum
samskiptaleiðum við Vesturlönd
til þess að verða ekki algjörlega
háð austurblokkinni.
Sovésk aðstoð
í Kampútseu eru nú um 2000
sovéskir hjálparstarfsmenn.
Kampútsea verður hins vegar að
endurgjalda fyrir hjálp þeirra
með gúmmíi og öðrum hráefn-
um. Segir Göransson að það
sama gildi um aðstoð Sovétríkj-
anna til Vetnam og Laos, hún sé í
formi slíkra gagnkvæmra skipta.
Stjórn Verkamannaflokksins í
Ástralíu hefur lýst yfir vilja til
þess að rjúfa þann vítahring og þá
einangrun sem Kampútsea hefur
lent í. Hefur utanríkisráðherra
Ástralíu lýst því yfir að fyrsta
skrefið til pólitísks samkomulags
gæti verið að afvopna hersveitir
Rauðu khmeranna. Síðan gætu
Víetnamar horfið á brott og þá
væri hugsanlega hægt að efna til
kosninga í landinu.
Dagens Nyheter hefur það
eftir heimildum í Phnom Penh að
nærvera Víetnama í Kampútseu
sé ekki sérlega vinsæl meðal al-
mennings og að Heng Samrin
njóti takmarkaðs stuðnings með-
al fólksins, en hins vegar muni
fólk líta á nærveru Víetnama sem
illa nauðsyn á meðan liðssveitir
Pols Pot séu vopnaðar handan
landamæranna. ólg./DN.
(nú ætti hann skilið að vera staf-
settur Zverrir hermanz (innsk. óg),
út um allt land og varð ég þess
greir.ilega var heima í Eyjum að
hann var ekki að reka erindi Gunn-
ars Thoroddsens, sem ég hafði lýst
stuðningi mínum við einsog fyrr
segir“.
Guðlagur segir að úrslit þessara
varaformannskosninga, hafi valdið
flokknum erfiðleikum „vegna þess
að stuðningsmenn Geirs frá 1971
gerðust sumir hverjir ráðríkir og
hafa haft of mikil áhrif á stefnu-
mörkun flokksins og ekki alltaf
sem heppilegust".
Árið 1969 fór Guðlaugur Gísla-
son í ferð með nokkrum kollegum
sínum til Sovétríkjanna og hefur sú
ferð orðið honum ákaflega minnis-
stæð. Eiginlega gefur frásögn hans
ferðapistlum sanntrúaðra lítið eftir
og hrifning hans hefur orðið mikil.
Með þeim kafla eru skemmtilegar
ljósmyndir af þingmönnum ís-
lensku. í frásögn Guðlaugs af
ferðalögum í bifreiðum í Sovétríkj-
unum kemur fram að grunur leiki á
að dónarnir í KGB hafi sett hljóð-
nema í bifreiðar þeirra félaga. Hafi
hispursleysi bókarhöfundar og fé-
laga verið ámóta í pólitískum sam-
Guðlaugur Gíslason.
ræðum í rennireiðunum eystra og
er í þeim pólitísku köflum bókar-
innar, þá verður að segjast einsog
er; gott á KGB.
Bókin er skrifuð í þokkalegum,
hógværum stíl einsog hæfir
leyndardómsfullu efni. En ef ég er
spurður hver sé og hafi verið Guð-
laugur Gíslason verð ég því miður
að segja miskunnarlausan sann-
leikann; Vestmannaeyingur og
íhaldsmaður, meira veit ég ekki.
Bókin er í fallegu broti og fer lítið
fyrir henni í bókaskáp.
-óg