Þjóðviljinn - 23.12.1983, Side 16
DWÐVIUINN
Föstudagur 23. desember 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt aö ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaösins í þessum simum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt aö ná í afgreiðslu blaösins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
BSRB fékk svarið í gœr:
Albert segir NEI
Happdrætti
Þjóðviljans
Vinnings-
númer birt
31. des.
Ljósmyndarar Þjóðviljans skreppa ekki daglega til Grímseyjar og
því náðist ekki mynd í gær af Alfreð Jónssyni. Fyrir nokkrum árum
tók -eik mynd af Grímsey í vetrarham. Hún er birt í dag um leið og
lesendur blaðsins senda Grímseyingum óskir um gleðileg jól og
samfagna þeim með hækkandi sól.
Sólarleysið hefur
ekki áhrifá skapiÖ
• sagði Alfreð Jónsson í Grímsey
te'
„Nei, - sólarleysið hefur engin áhrif á skapfcrli okkar, - svoleiðis
fólk þrífst ekki hér sem ekki þolir sólarleysið. Það verður bara að
vera annars staðar“, sagði Alfreð Jónsson oddviti í Grímsey í gær.
Þá var skemmstur sólargangur, rúmlega þrír tímar í eynni. 1 dag fer
l daginn að lengja aftur og sagðist Alfreð ánægður með það, þó
Grímseyingar spekúleruðu nú minna í því en „þeir fyrir sunnan.“
; Að sögn Alfreðs hefur veturinn verið umhleypingasamur, snjó-
5 lítið og nær snjólaust og gæftir lélegar. „Það kemur sér vel að ekki
aflast mikið á þessum árstíma", sagði Alfreð, „eins lítið og má
veiða.“ \
í gær var gott veður í Grímsey, logn og blíða. Jólahaldið verður
með hefðbundnum hætti í mat og drykk og skemmtunum. Á milli
jóla og nýárs verður að venju haldið barnaball og almennur dans-
leikur eftir miðnætti á nýársnótt. Þá verður messað í Grímsey milli
jóla og nýárs ef veður og vindar leyfa og sagði Alfreð að allir sem
aðstæður hefðu tækju þátt í þessu sameiginlega hátíðahaldi um jól
og áramót, en Grímseyingar eru nú rúmlega 110 talsins.
Albert Guðmundsson fjármálaráðherra hafnaði
öllum iaunakröfum BSRB á fundi með 10 manna samn-
inganefnd samtakanna í gærdag.
BSRB hafði Iagt fram tiilögur um bráðabirgðasamn-
ing til 1. maí n.k., hækkun lægstu launa í 15 þúsund|
krónur og nokkrar aðrar kjarabætur.
Fjármálaráðherra lýsti því yfir á fundinum að hann
teldi ekki grundvöll fyrir meiri launahækkun á næsta ári
en sem nemur 4% og að laun yrðu áfram án vísitölu-
bindingar. Hafnaði hann alfarið kröfum BSRB um
kjarabætur.
Ekki hefur verið boðaður annar samningafundur
deiluaðila, en aðalsamninganefnd BSRB hefur verið
boðuð til fundar 29. desember þar sem rætt verður um
svör ráðherra og andsvör við þeim.
- lg-
Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gœslu-
varðhald vegna innbrotsins í Hallgrímskirkju:
21 árs maður settur
Fullnægjandi skil hafa enn
ekki borist frá umboðs-
mönnum Happdrættis Þjóð-
viljans og að ósk þeirra hefur
því verið ákveðið að fresta
birtingu vinningsnúmera í
happdrættinu.
1. desember sl. var dregið í
happdrættinu og vinningsnúmer
innsigluð hjá borgarfógeta í
Reykjavík. Þar verða númerin
þangað til full skil hafa borist.
Enn er verið að innheimta vegna
Útsendra miða og eru allir þeir
sem ekki hafa skilað hvattir til að
gera upp sem allra fyrst. Hægt er
að greiða happdrættismiða á
Þjóðviljandum Síðumúia 6 í dag
Þorláksmessu, og á morgun að-
fangadag til hádegis og fram að
áramótum. Einnig er hægt að
greiða í gíró inná hlaupareikning
nr. 6572 í Alþýðubankanum aðal-
banka.
í 3 mánaða einangrun
21 árs gamall Reykvíkingur hefur verið dæmdur í þriggja mán-
aða gæsíuvarðhald og einangrun vegna aðildar sinnar að innbrot-
inu í Hallgrímskirkju um síðustu helgi. Afar sjaldgæft er að menn
séu dæmdir í svo langa einangrunarvist. Að sögn Arnars Guð-
mundsonar deildarstjóra hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins kemur
þessi úrskurður til af því að maðurinn hefur tengst ótalmörgum
afbrotamálum, fikniefnamálum, þjófnuðum, skjalafalsi og öðrum
fjársvikamálum.
í gær var svo annar þeirra
þriggja sem handteknir voru
vegna Hallgrímskirkjuinn-
brotsins úrskurðaður í gæslu-
varðhald fram til 4. janúar. Það
var aðalfulltrúi sakadómara
sem kvað upp þann úrskurð
sem og hinn fyrri.
Rannsóknarlögregla ríkisins
réðst inn í tiltekið hús í Reykja-
vík sl. þriðjudag til að ná þeim
sem grunaðir voru um innbrot-
ið í Hallgrímskirkju. Voru fjöl-
margir viðstaddra í „annarlegu
ástandi“, svo notuð séu orð
Arnar Guðmundssonar.
Nokkrir hafa verið til yfir-
heyrslu um ýmislegt sem varðar
fíkniefnamál upp úr þessu
atviki. Arnar Guðmundsson
sagði að í einu Reykjavíkur-
blaðanna hefði því verið haldið
fram að innbrotið í Hallgríms-
kirkju hefði verið gert í því
skyni að fjármagna fíkniefna-
kaup. Sagði Arnar að ekkert
hefði komið fram við rannsókn
málsins sem benti til þess að svo
væri.
-hól.
Lœknamálið í Garðabœ:
Sjúklmgasöfnunin stöðvuð
Sjálfstœðismenn voru komnir af stað en lœknarnir stoppuðu þá
Nýju heimilislæknarnir tveir í Garðabæ stöðvuðu á síð-
ustu stundu sjúklingasöfnunina, sem Sjálfstæðisflokkurinn
þar hafði ákveðið að hrinda af stað, enda bauð þeim í grun
að hún samræmdist ekki siðareglum lækna. Hins vegar
gleymdist að kippa út frétt í DV um söfnunina og birtist hún
því þar á mánudag og vakti mikinn kurr í bænum. Þar var
skýrt frá því m.a. að ungt fólk gengi um bæinn og „greiddi
fyrir skráningum með heimsendingu gagna án fyrirhafnar
fyrir íbúana“.
Þegar Þjóðviljinn skýrði frá þessu í gær á svo til nákvæm-
lega sama hátt, brást Jón Gauti Jónsson bæjarstjóri ókvæða
við. „Uppspuni, lygi og óvönduð fréttamennska“, voru eink-
unnirnar sem hann gaf frétt Þjóðviljans. Um frétt DV, mynd-
skreytta með honum sjálfum, sagði bæjarstjórinn minna og
hefur reyndar enn ekki haft fyrir að leiðrétta hana.
Jón Gauti Jónsson sagði að eng-
in söfnun sjúklinga færi fram í bæn-
um, það væri frjálst val fólksins þar
hvort það skipti um lækni eða ekki.
„Það getur ekki verið annað en lygi
að ýmsir bæjarbúar hafi brugðist
illa við þessari söfnun, eins og segir
í frétt Þjóðviljans,“ sagði hann,
„því það hefur engin söfnun farið
fram. Þetta hlýtur að vera komið
frá þessum fjórum kjósendum Al-
þýðubandalagsins í bænum eða
flokksmönnum þeirra í læknastétt.
Þetta er óvönduð fréttamennska
og þú hefur látið Guðmund Þórð-
arson plata þig.“
Svo mörg voru þau orð. Stað-
reynd þessa máls er sú að í síðustu
viku ákváðu Sjálfstæðismenn að
gera nú átak til að safna sjúklingum
til læknanna tveggja með þeim
hætti sem lýst var í Þjóðviljanum
og skyldu skólanemar í jólafríi
fengnir til starfans. Á
fimmtudaginn urðu læknarnir tveir
þess áskynja hvað í bígerð var og
stöðvuðu framkvæmdina á síðustu
stundu. Hins vegar gleymdist að
taka fréttina í DV út og þegar
Garðbæingar fengu DV í hendur á
mánudag mátti þar lesa um sjúk-
lingasöfnunina og framkvæmd
hennar. Varð til þess að athygli
Þjóðviljans var vakin á málinu.
Ennfremur var athygli læknafé-
lagsins vakin og hefur bæjarstjórn
Garðabæjar nú skrifað stjórn
Læknafélags íslands vegna þessa
máls.
Gardabcr:
ij úklingasöfnunin
>rot á ^ðareglum
safnasjúkungumfyrir
5 lsugæsluna í garðaba
Samhljóða fréttlr I DV og Þjóðvilj-
anum fóru misvel fyrir brjóstið á
Sjálfstæðismönnum í Garðabæ.
Vegna orða bæjarstjórans skal
skýrt tekið fram að blaðamaður
hefur aldrei rætt við Guðmund H.
Þórðarson lækni um málefni
Garðabæjar. Reyndar hefur undir-
rituð aðeins einu sinni rætt við
Guðmund, það var fyrir um þrem-
ur árum og varðandi allt aðra hluti.
-ÁI
Mt