Þjóðviljinn - 05.01.1989, Qupperneq 4
FLÓAMARKAÐURINN
Skoda Rapid 1987
Til sölu Skoda Rapid. Ekinn 24.000
km, eingöngu innanbæjar. Vel með
farin bíll, rauður og sætur. Upplýs-
ingar í síma 71975 eftir kl. 17.00.
Birna.
Óska eftir að kaupa
ódýran svalavagn. Upplýsingar í
síma 624018.
Píanókennsla
Tek að mér píanónemendur í einka-
tíma. Bjargey Þ. Ingólfsdóttir, sími
79117.
Óskast keypt
Óska eftir að kaupa fataskáp og
sjónvarp. Upplýsingar í síma
28552.
fbúð óskast
Reglusamt par með ungbarn óskar
eftir 2-4 herbergja íbúð sem næst
Kennaraháskólanum. Reglusemi
og góðri umgengni heitið og skilvís-
um greiðslum. Upplýsingar í síma
688601.
Yamaha DX7 II FD
til sölu. Hljóðfærið er í góðri tösku
og er eins og nýtt. Verðtilboð. Upp-
lýsingar í síma 10154 frá kl. 17-20.
Guðmundur.
Flóamarkaður
Opið mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga frá 14-18. Endalaust
úrval af góðum og umfram allt ódýr-
um vörum. Gjöfum veitt móttaka á
sama stað og tíma. Flóamarkaður
SDÍ, Hafnarstræti 17, kjallara.
Til sölu kjólföt
meðalstærð. Upplýsingar í síma
73513.
Atvinna óskast
Er með nýtt, skothelt stúdentspróf
uppá vasann en vantar góða vinnu.
Ýmiskonar reynsla og meðmæli ef
óskað er. Ásdís Þórhallsdóttir sími
18986.
ísskápur og þvottavél óskast
ódýrt eða gefins. Vinsamlegast
hringið í Ásu í síma 606970 vs.
Til sölu
hornsófi + 1 stóll. Má breyta í 3
sæta og 2 sæta sófa + 1 stól. Selst
ódýrt. Upplýsingar í síma 681827.
Bændur
35 ára gamall maður óskar eftir at-
vinnu. Er vanur. Upplýsingar i síma
91-10837 eða 91-651503.
Pottofnar gefins
hitalokar fylgja. Upplýsingar í síma
17790 og 38967.
Bíll óskast
Námsmaður óskar eftir mjög ódýr-
um, gömlum bíl sem þó er
skoðunarfær. Upplýsingar í síma
34046 eftir kl. 18.00.
Æfingarbekkur til sölu
lítið notaður, fullkominn bekkur
með æfingaprógrammi. Silfurgrár
að lit með svörtum bekk. Upplýs-
ingar í síma 18391 eftir kl. 18.00.
Breytt
símanúmer
Mánudaginn 9. janúar n.k. flytur tekju- og laga-
sviö fjármálaráðuneytisins í Arnarhvol viö Lind-
argötu (inngangur um austurdyr, áður húsnæöi
ríkisféhirðis). Beint símanúmer tekju- og laga-
sviös veröur frá og með sama tíma 91-609230.
Viðtals- og símatími skattadeildar er frá kl. 9.00
til 10.30 alla virka daga.
Viðtalstími tolladeildar er frá kl. 9.00 til 10.30,
símatími frá kl. 10.30 til 12.00 alla virka daga.
Fjármálaráðuneytið,
5. janúar 1989
ý-% Frá menntamálaráðuneytinu
%Æ Laus staða
Staða fræðslustjóra í Norðurlandsumdæmi eystra er laus til um-
sóknar.
Staðan veitist frá 1. júní 1989.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyrir
15. febrúar n.k.
Menntamálaráðuneytið
Auglýsið í Þjóðviljanum
Móðir okkar
Ósk Hallgrímsdottir
verður jarðsungin frá Bíldudalskirkju laugardaginn 7. janúar
kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á sjúkra-
húsið á Patreksfirði.
Fyrir hönd annarra vandamanna
Börnin
Innilegar þakkir til allra þeirra er vottuðu samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför bróður okkar
Gunnars Össurarsonar
húsasmíðameistara
frá Kolisvík í Rauðasandshreppi
Sigurvin Össurarson Guðrún Össurardóttir
Torfi Össurarson
ÍÞRÓTTIR
Birgir Sigurðsson hefur leikið vel með liði Fram í vetur og skorað mikið af mörkum. Hann átti nokkuð erfitt
uppdráttar framan af leiknum gegn Val en skoraði alls 6 mörk.
Handbolti
Aukið fbrskot Vals
Valur afgreiddi Fram ífyrri hálfleik. Stjarnan vann sinn
sjöunda sigur í röð. FH náði fram hefndum á Akureyri
Þrír leikir fóru fram í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik í
gærkvöld en þeim fjórða sem vera
átti var frestað þar sem Vfldngar
komust ekki til Eyja. Valsmenn
hafa nú aukið forskot sitt í
deildinni í fjögur stig en þeir unnu
Framara nokkuð auðveldlega á
meðan KR tapaði fyrir Stjörn-
unni. A Akureyri vann FH sigur á
KA í miklum markaleik.
Fram-Valur.......18-23(6-17)
Sigur Valsmanna var svo sann-
arlega aldrei í hættu eins og sést á
hálfleikstölum, ellefu marka
forskot, 6-17. Valsmenn hrein-
lega gengu yfir máttlausa Fram-
ara sem tóku sig þó saman í and-
litinu og unnu síðari hálfleikinn
12-6! Ætla mætti að Valur hafi
notast við varalið sitt í síðari hálf-
leik en svo var ekki. Sigur þeirra
var einfaldlega í höfn eftir 30
mínútur og slökuðu þeir af eðli-
legum orsökum nokkuð á síðari
helming leiks.
Júlíus Jónasson, Jakob Sig-
urðsson og Sigurður Sveinsson
sýndu mest tilþrif Valsmanna í
ísraelsku bikarmeistararnir,
Hapoel Elyon, eru greinilega í allt
öðrum styrkleikaflokki en íslensk
lið en Jæir unnu annan sigur sinn
á jafn mörgum dögum hér á landi
í Keflavík í gærkvöld.
Heimamenn áttu í vök að verj-
ast allan tímann og töpuðu að
lokum með 47 stiga mun, 118-71.
leiknum og skoraði sá síð-
astnefndi skemmtileg mörk með
snúningsskotum. Framliðið lék
mjög illa í fyrri hálfleik en í þeim
síðari áttu þeir Birgir Sigurðsson
og Júlíus Gunnarsson einna best-
an leik.
Mörk Fram: Birgir Sigurðsson
6/1, Júlíus Gunnarsson 5, Her-
mann Björnsson 2/2, Agnar Sig-
urðsson 3, Egill Jóhannesson 1,
Tryggvi Tryggvason 1.
Jens Einarsson varði 7 skot og
Þór Björnsson 3.
Mörk Vals: Jakob Sigurðsson
6, Júlíus Jónasson 6, Sigurður
Sveinsson 6/3, Valdimar Gríms-
son 3, Jón Kristjánsson 2.
Einar Þorvarðarson varði 14
skot.
Stjarnan-KR 28-23(14-10)
Stjarnan vann þarna sinn sjö-
unda sigur í röð en þeir töpuðu
sem kunnugt er fyrstu þremur
leikjum mótsins í haust. Fyrir
vikið minnka vonir KR-inga um
íslandsmeistaratitil talsvert því
nú munar fjórum stigum á þeim
og Val í efsta sætinu. Stjarnan
Guðjón Skúlason skoraði mest
Keflvíkinga, 23 stig, en Jón Kr.
Gíslason skoraði 19 stig.
Sem kunnugt er lék íslenska
landsliðið við þetta ísraelska lið á
þriðjudag og sigruðu þá aðkomu-
menn næsta auðveldlega, 96-68.
-þóm
hafði undirtökin í Ieiknum allan
tímann og sigraði verðskuldað en
þeir leiddu í leikhléi með fjórum
mörkum, 14-10. Gylfi Birgisson
átti stóran þátt í þessum sigri og
skoraði hann átta mörk.
Mörk Stjörnunnar: Gylfi 8,
Hafsteinn 4, Hilmar 4, Skúli 4,
Einar 3, Sigurður 3, Axel 1, Þór
Oddur 1.
Mörk KR: Alfreð 5, Páll 5, Sig-
urður 5, Stefán 5, Guðmundur
A. 1, Guðmundur P. 1, Jóhannes
1.
KA-FH ........31-33(16-14)
FH-ingar náðu fram hefndum
með þessum sigri en þeir töpuðu
fyrri leik liðanna í Hafnarfirði
með einu marki. Eins og marka-
tölurnar gefa til kynna fór ekki
mikið fyrir varnarleik liðanna en
leikurinn var engu að síður jafn
og skemmtilegur. KA hafði
tveggja marka forystu í leikhléi,
16-14, en skömmu síðar var stað-
an orðin 22-16 þeim í hag. FH tók
að saxa markvisst á forskotið og
var jafnt á flestum tölum frá 25-
25 upp í 31-31. Besti maður FH-
inga Guðjón Árnason skoraði þá
32. mark þeirra og eftir að KA
hafði mistekist að jafna í síðustu
sókn sinni skoraði Óskar Ár-
mannsson síðasta mark leiksins.
Guðjón Árnason var lang at-
kvæðamestur FH-inga í leiknum,
skoraði 12 mörk, og svipaða sögu
er að segja af Jakobi Jónssyni hjá
KA, hann skoraði 10 mörk.
-þóm
Staðan
Valur . 10 10 0 0 266-197 20
KR . 10 9 0 1 256-229 16
Stjarnan 10 7 0 3 229-207 14
FH . 10 6 0 4 265-241 12
KA . 10 4 0 6 235-233 8
Grótta.... ...9 3 1 5 187-202 7
Víkingur. ...9 3 1 5 232-248 7
Fram . 10 1 3 6 210-246 5
ÍBV ...9 1 2 6 184-214 4
UBK ...9 1 7 7 191-228 3
Karfa
Keflvíkingar áttu
enga möguleika
Öruggur ísraelskur sigur, 118-71
4 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 5. janúar 1989