Þjóðviljinn - 05.01.1989, Síða 5
FRÉTTIR
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
Frá afhendingu styrkja úr Rannsóknasjóði Krabbameinsfélagsins (talið frá
vinstri): Davíð Ólafsson formaður Vísindaráðs Krabbameinsfélagsins, styrk-
þegarnir Vilhálmur Rafmsson og Laufey Tryggvadóttir, og Almar Grímsson
formaður Krabbameinsfélags íslands en hann afhenti styrkina.
Krabbameinsfélagið
1.2 miljónir til rannsókna
Nýlega voru afhentir styrkir úr
Rannsóknasjóði Krabbam-
einsfélagsins, en sjóður þessi var
stofnaður á síðasta ári til að efla
rannsóknir á krabbameini.
Laufey Tryggvadóttir faralds-
fræðingur hlaut 600 þúsund
króna styrk til rannsókna á áhrif-
um blóðflokka og ættgengis á
lifun íslenskra kvenna með
brj óstakrabbamein.
Vilhjálmur Rafnsson yfir-
læknir hlaut 600 þúsund króna
styrk til tveggja verkefna, annars
vegar til rannsókna á nýgengi
krabbameina eftir búsetu, hins
vegar til rannsókna á nýgengi og
dánartíðni krabbameina meðal
íslenskra sjómanna.
Samtryggingu slegiö við
Magnús L. Sveinsson: Tilboð Brunabótarhagstœðastfyrirfélagið.
Ingi R. Helgason:Ætlum að bjóðafélagsmönnum einnig aðrar trygg-
ingar í formi nýs tryggingarpakka
Tilboð Brunabótafélags Islands
reyndist hagstæðast þeirra til-
boða sem bárust og verulega
lægra en tilboð annarra trygging-
arfélaga sem öll sendu inn sam-
hljóða tilboð, sagði Magnús L.
Sveinsson formaður Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur þegar
hann kynnti nýjan samning sem
VR hefur gert við Brunabótafé-
lagið um hóptryggingu fyrir sína
félagsmenn.
Stjórn VR ákvað í haust að
leita tilboða hjá tryggingafélög-
unum í hóptryggingar fyrir fé-
lagsmenn sína. Með því vildi
stjórnin efla sjúkrasjóði félagsins
og jafnframt auka trygginga-
vernd félagsmanna.
Samkvæmt samningnum tekur
hann til fjögurra þátta: Hóplíf-
trygginga, frítímaslysatrygginga,
sjúkradagpeningatrygginga og
slysatrygginga barna, með þess-
ari tryggingu eru öll börn félags-
manna VR. slysatryggð allan sól-
arhringinn, auk þess innifelur
tryggingin útlagðan kostnað
vegna slyss, sem verður hærri en
eitt þúsund krónur.
- Þetta er stærsti samningur
sinnar tegundar sem Brunabóta-
félag íslands hefur gert til þessa,
en félagsmenn eru rúmlega áttat-
íu þúsund, sagði Ingi R. Helgason
þegar samningurinn var undirrit-
aður. Hann sagði að félagið
tryggði nú um 25% allra félags-
manna aðildarfélaga Alþýðu-
sambands íslands.
- Við munum innan skamms
einnig bjóða félögum upp á nýjar
persónulegar tryggingar, trygg-
ingapakka sem við höfum gefið
nafnið Fjöltryggingu, en með því
tilboði getur hver og einn skradd-
arasaumað sínar tryggingar eftir
sínum þörfum, sagði Ingi. -sg
Pjóðleikhúsið
Hoffmann
fellur niður
Sýningar á óperunni Ævintýri
Hoffmanns, sem vera áttu á föstu-
dagskvöld og sunnudagskvöld
falla því miður niður af óviðráð-
anlegum orsökum. Báðar sýning-
arnar voru uppseldar, og virðist
ekkert lát á aðsókn að þessari vin-
sælu óperu. Eftir 21 sýningu eru
sýningargestir orðnir á tólfta þús-
und.
Tvær mannabreytingar hafa
orðið á einsöngvaraliðinu í
„Ævintýrunum“. Ingibjörg
Marteinsdóttir tók við hlutverki
Rannveigar Fríðu Bragadóttur
sem Nicklausse förunautur Hoff-
manns, í nóvember, og á næstu
sýningu tekur Kristinn Sig-
mundsson við hlutverki Lindorfs
leyndarráðs, í stað Guðjóns Ósk-
arssonar sem farinn er utan.
Kristinn syngur jafnframt þrjú
önnur einsöngshlutverk í sýning-
unni, Coppeiius í 1. þætti, Dap-
ertutto í 2. þætti og Doktor Mir-
acie í þeim þriðja.
Þeir sem áttu aðgöngumiða á
sýningarnar á föstudags- og
sunnudagskvöld eru vinsam-
legast beðnir um að snúa sér til
miðasölu Þjóðleikhússins fyrir
fimmtudaginn 12. jan. Næstu
sýningar á Ævintýrum Hoff-
manns verða 13., 21. 22., 27. og
28. janúar.
Ungfrú heimur
Linda í
landkynningu
Ferðamálaráð, Flugleiðir og
Útflutningsráð hafa gert samning
við eigendur Miss World keppn-
innar um að Ungfrú heimur,
Linda Pétursdóttir, sinni land-
kynningu fyrir Island og íslenskar
útflutningsafurðir á ferðalögum
sínum víðs vegar um heiminn.
Um miðjan þennan mánuð
verður Linda á ferðakaupstefnu í
Sviss á vegum Flugleiða og í fe-
brúarbyrjun í Japan á vegum
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna. í mars verður ferðakaup-
stefna í Berlín, kynning á ullar-
vörum í Dusseldorf og sjávarút-
vegssýning í Boston.
Það er því ljóst að Linda Pét-
ursdóttir mun hafa ærinn starfa
við landkynningu á næstu mán-
uðum.
Ferskfisksölur
Grimm ásókn í að sigla
Ágœtis fiskverð á Bretlandi og í Þýskalandi. Hjá LÍÚ eru söludagarfullbókaðir
nœstu 5 mánuðina í Þýskalandi og janúar ogfebrúar á Bretlandi.
Fyrstifundur Kvótanefndarinnar á morgun
Agætis verð hafa fengist á fisk-
mörkuðum á Bretlandi og í
Þýskalandi nú í upphafi ársins.
Mikil ásókn er i að selja ferskan
fisk ytra og eru söludagar fullbók-
aðir í Þýskalandi næstu 5 mánuði
og fyrstu 2 á Bretlandi.
í gær seldi Hólmatindur frá
Eskifirði 79 tonn í Hull fyrir 8,7
miljónir króna og var meðalverð-
ið 109,38 krónur. Þar af voru 48
tonn þorskur og fór kflóið að
meðaltali á 98,94 krónur og 24
tonn af ýsu á hvorki meira né
minna en 146,26 krónur. Þá seldi
Sigurey BA frá Patreksfirði 110
tonn í Grimsby í gær fyrir 9,4
miljónir króna. Meðalverð 85,24
krónur. Uppistaðan í aflanum
var þorskur en afgangurinn karfi
og annað.
í Þýskalandi seldi í gær Kamb-
aröstin SU 72 tonn af blönduðum
afla fyrir 6,5 miljónir króna og
var meðalverðið 90,43 krónur.
Meiri eftirspum er eftir fiski þar
en framboð og er það einkum
vegna þess að heimabátar hafa
ekki enn dregið fisk úr sjó á nýju
ári.
f næstu viku ráðgera 4 togarar
að selja í Þýskalandi alls um 600
tonn. Það eru Vigri RE, Jón Ví-
dalín ÁR, Klakkur VE og
Haukur GK. 5 skip munu selja á
Bretland í sömu viku: Hrafn
Sveinbjarnarson GK, Amarnes
ÍS, Stapavík SI, Bjartur NK og
Ólafur Jónsson GK.
Á morgun föstudag verður
fyrsti fundur hinnar svokölluðu
Kvótanefndar vegna gámaút-
flutnings á árinu og mun nefndin
starfa ótrauð áfram á meðan ekki
hefur annað verið ákveðið, eins
og segir í margfrægri auglýsingu
frá utanríkisráðuneytinu frá síð-
asta ári.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálms-
sonar hjá LÍÚ er ómögulegt að
segja neitt um hver útflutningur á
ferskum fiski muni verða á árinu
en eitt er þó víst að hann mun
taka mið af getu og vilja fisk-
vinnslunnar til að kaupa og vinna
aflann hér heima. Vilhjálmur
sagði að eftir því hefði verið tekið
á síðasta ársfjórðungi 1988 hvað
sum skip skigldu meira en önnur
vegna þess að búið var að loka
fiskvinnslufyrirtækjum og önnur
virtust ekki hafa áhuga né getu til
að kaupa. Því var ekki um annað
ræða en að selja aflann ytra sem
og var gert. -grh
Nemendur og kennarar Starfsþjálfunar fatlaðra.
Starfsþjálfun fatlaðra
Fyrsta námskeiðinu lokið
Fyrir jól útskrifaðist fyrsti hóp-
urinn sem stundað hefur nám
hjá Starfsþjálfun fatlaðra. Að
þessu sinni útskrifuðust 8 nem-
endur.
Tilgangur starfsþjálfunarinnar
er að vera liður í að tryggja fötl-
uðum jafnrétti, bæta aðstöðu
þeirra og skapa þeim sem best
skilyrði til eðlilegs lífs í samfé-
laginu.
Nemendur útskrifast eftir 3
anna nám. Kennd er ma. tölvu-
notkun, ritvinnsla, bókfærsla,
verslunarreikningur, íslenska,
enska og samfélagsfræði.
Starfsþjálfun fatlaðra er eink-
um ætluð fólki sem hefur náð 17
ára aldri og hefur fatiast vegna
slysa eða sjúkdóma. Alls stunda
nú 24 nemendur nám hjá Starfs-
þjálfun fatlaðra og útskrifast ann-
ar hópur í vor. Mikil eftirspurn er
eftir að komast að og hefur ekki
verið hægt að fullnægja þörfinni.
-«g
Borgarráð
14 ný
hundaleyfi
Borgarráð hefur samþykkt 14
ný undanþáguleyfi til hundahalds
í borginni þrátt fyrir niðstöðu
kosninga um hundahald í borg-
inni þar sem meirihluta þátttak-
enda lýsti sig andvígan hunda-
haldi.
Fjórir af fimm borgarráðs-
mönnum samþykktu umsögn
framkvæmdastjóra heilbrigðis-
eftirlits borgarinnar um undan-
þágu frá banni við hundahaldi til
14 aðila. Sigurjón Pétursson
borgaráðsmaður greiddi atkvæði
á móti og lét bóka að hann væri
mótfallinn öllum frekari nýjum
undanþágum frá banni við hund-
ahaldi í framhaldi af hundakosn-
ingunum á sl. ári.
Á sama fundi borgarráðs var
lagt fram bréf frá Hundarækt-
arfélagi íslands þar sem farið er
fram á endurskoðun á samþykkt
borgarstjórnar um hundahald í
borginni.
-•g-
Fimmtudagur 5. janúar 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5