Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1999, Síða 56
jyyrir Id. ao..
> o
□
crO
s o
■Z3
s m
<
oo o
■>
2 un
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar riafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1999
Áhyggjur erlendis vegna ofnotkunar á stinningarlyfmu Viagra:
Getur valdið
getuleysi
- einstaka kvartanir um höfuðverk hér en ánægja með lyfið
víkkandi. Þeir sem fengið hefðu höfuð-
verk af notkun þess segðu að hann
hefði horflð á einni til tveimur klukku-
stundum. „Ég hef fengið einstaka
kvörtun um höfuðverk og andlitsroða,
en þetta er ekkert sem notendumir
telja til ama. Lyfið virkar vel og þeir
eru ánægðir með virknina og finnst
þetta vera minni háttar vandamál."
Guðjón kvaðst vilja undirstrika að
þeir sem tækju hjartatöflur, mættu alls
ekki taka Viagra, því blóöþrýstingur
myndi faila með töku hvors tveggja.
„Það er mikill áhugi á lyfinu og
greinileg aukning orðið á eftirspum
eftir að byijað var að flytja það inn. En
mér finnst menn hafa sýnt mikla skyn-
semi í þessu,“ sagði Guðjón. -JSS
Ofnotkun á stinningarlyfinu Viagra
getur valdið langvarandi getuleysi.
Einnig getur boriö á aukaverkunum
við töku þess, svo sem höfuðverk, and-
litsroða og bijóstsviða. Að sögn sér-
fræðinga á St. Georgs sjúkrahúsinu í
London hafa komið upp getuleysis-
vandamál hjá ungum mönnum sem
»totað hafa lyfið sem eins konar frygð-
arlyf, t.d. á næturklúbbum erlendis.
Þeir hafa náð langvarandi stinningu,
sem aftur hefur orsakað skort á blóð-
streymi í vöðva sem framleiðir eðlilega
stinningu.
„Ég þekki engin tilvik af þessu tagi
hér á landi," sagði Guðjón Haraldsson,
þvagfæraskurðlæknir á Landspítalan-
um. „Hér er líka heftari aðgangur að
lyfinu heldur en
víða erlendis, þar
sem hægt var að
nálgast það nán-
ast í lausasölu í
sumum Evrópu-
löndum."
Lyfið er selt á
undanþáguheim-
ildum hér, þar
sem Lyfjanefnd
ríkisins hefur enn
ekki veitt markaðsleyfi fyrir það. Not-
endur verða að greiða það að fullu, en
hver tafla kostar um 900 krónur.
Um ofangreindar aukaverkanir
sagði Guðjón að þær væru nokkuð sem
fylgdi lyfinu, þar sem það væri æða-
O
PterlX ""
Veðrið á morgun:
Veðrið á mánudag:
Rigning sunnan til Hvasst fýrir vestan
A morgun, sunnudag, verður suðlæg átt, stinningskaldi eða allhvasst
sunnan til en hægari um landið norðanvert. Rigning verður á landinu,
einkum sunnan til, og hiti á bilinu 2 til 7 stig.
Á mánudag verður suðvestan hvassviðri eða stormur
og slydduél vestan til en léttskýjað á Austurlandi.
Hiti verður á bilinu 1 til 4 stig.
Veðrið í dag er á bls. 57.
Þessir krakkar í Hagaskóla tóku lífinu með ró í gærdag þegar þeir spegluðu
sig í stórum polli sem myndast hafði á skólalóðinni. Snjó leysti víða á
höfuðborgarsvæðinu í gær og var Reykjavíkurflugvöllur lokaður í eina og
hálfa klukkustund vegna vatnselgs á flugbrautunum. DV-mynd Hllmar Þór
MANNI STENDURl
EKKI Á SAMA!
Mánudagur
, Ekki persónulegar mútur
máSœði, úrval 05 gott verð
- segir Ellert B.
íslenska skíðasambandið fékk fyr-
irgreiðslu fyrir það að greiða fulltrú-
um framkvæmdanefndar Norðmanna
á þingi Alþjóða skíðasambandsins í
Búdapest árið 1992 atkvæði sitt. Þetta
kemur fram í norska dagblaðinu
Adresseavisen í gær. Þar segir að
fúlltrúar Noregs hafi haft áhrif á at-
kvæðagreiðslu 20 landa til að auð-
velda að heimsmeistaramótið í nor-
rænum alpagreinum færi fram í
Þrándheimi árið 1997. í blaðinu segir
að fulltrúar Noregs hafi fyrir atkvæö-
Schram, forseti íþróttasambands íslands
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-550 ný vél
tengjanleg við tölvu
8 leturgeroir,
8 stærðir, 15 leturútlit
úrval strikamerkja
6 til 36 mm borðar
prentar (7 Ifnur
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
in greitt Skíðasambandinu
peninga, auk þess sem Skíða-
sambandið fékk ýmsar skíða-
vörur og einnig voru greidd-
ar æfingar fyrir íslenska
skíðamenn í Noregi. „Ég veit
litið um þetta mál en sjálfsagt
er að skoða það. Þarna er
ekki um að ræða persónuleg-
ar mútur heldur er þetta
Skíöasambandið sem gerirEllert B. Schram.
samning um samstarf innann
vébanda skíðahreyfing-
anna. Ég lít þetta ekki eins
alvarlegum augum og þeg-
ar persónulegar mútur eiga
í hlut. Ég kem auðvitað af
íjöllum eins og aðrir en
auðvitað þarf að skoða mál-
ið ofan í kjölinn,“ segir Ell-
ert B. Schram, forseti
íþróttasambands íslands.
-hb
Sjómenn íhuga aðgerðir
Logandi óánægja er meðal sjómanna
vegna skerðingar á lífeyrisgreiðslum úr
Lífeyrissjóði sjómanna og hefur einn
stjómarmaður, Bjami Sveinsson, sagt
sig úr stjóm sjóðsins. Runólfúr Guð-
mundsson, skipstjóri á Hring frá
Grundarfirði, sagði í samtali við DV að
sjómenn væm afar óánægðir með gang
mála hjá lífeyrissjóðnum. „Það er alltaf
verið að skerða lífeyrinn. ég hef fylgst
náið með þessum málum og peningam-
ir okkar era að verða að engu.
Það er mikO ólga í mönnum og sjó-
menn hafa verið að hringja sín á milli í
dag og ræða til hvaða aðgerða sé hægt
að grípa,“ segir Runólfur. „Minar lífeyr-
isgreiðslur verða í dag 60 til 70 þúsund
á mánuði en ég tel að þær hefðu undir
eðlilegum kringumstæðum átt að vera
140 til 150 þúsund á mánuði,“ sagði
Runólfur. -hb