Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 6
6 'lönd LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 stuttar fréttir Þróunarkenningu úthýst ISkólamálayfirvöld í Kansas- ríki í Bandaríkjunum hafa tekið þrónarkenninguna af lista yfir skyldunámsefni í skólum ríkis- ins. Yfirvöldum fannst kenningin um þróun lifveranna of frjáls- lyndisleg. Kvef Japana að lagast Forsætisráðherra Rússlands gegn skæruliðum: Árásin er hafin Vladímír Pútín, starfandi forsæt- isráðherra Rússlands, sagði í gær að allsherjarárás væri hafin á upp- reisnarmenn múslíma í Kákasus- héraðinu Dagestan til að hrekja þá á brott. Ráðherrann sagði að upp- reisnarmennimir fengju hvergi frið, ekki einu sinni í Tsjetsjeníu. „Árásin er hafin,“ hafði fréttastof- an Interfax eftir Pútín. Uppreisnarmenn undir stjóm tsjetsjenskra skæruliða náðu nokkrum þorpum I fjallahéraðinu Dagestan á vald sitt fyrir einni viku. Ekki var ljóst á máli Pútíns hvort nýjar hernaðaraðgerðir væru hafnar gegn uppreisnarmönnunum eða hvort hann hefði verið að vísa í aðgerðir sem þegar vom hafnar. Sjónvarpstöðin NTV sýndi mynd- ir af þungavopnum Rússa punda á stöðvar uppreisnarmanna og af vel vopnuðum þyrlum á sveimi yfir fjöllunum. Rússar hafa ekki komist í hann jafnkrappan siðan þeir fengu hörmulega útreið í stríðinu í Tsjetsjeníu á árunum 1994 til 1996. Rússneskir leiðtogar, allt frá Bórís Jeltsín forseta og niður virðingar- stigann, hafa keppst við að lýsa því yfir að átökunum nú muni ljúka skjótt. „Tsjetsjenía er rússneskt land- svæði og ráðist verður á stríðs- mennina hvar sem þeir eru niður komnir," hafði Interfax eftir Pútín. Rússneskar hersveitir hafa þegar farið yfir landamærin til Tsjetsjen- íu, að sögn yfirmanns landamæra- sveita Dagestans. Hann sagði að fimm brynvarðir vagnar og her- menn með hefðu farið inn i Tsjetsjeníu en snúið við um klukku- stund síðar. Talsmaður innanríkisráðuneytis- ins í héraðshöfuðborg Dagestans sagði að rússneskar hersveitir og sjálfboðaliðar væm að hrekja upp- reisnarmenn burt úr þorpum sem þeir höfðu lagt undir sig. Hann sagði að uppreisnarmenn réðu aðeins yfir sjö þorpum af þrjá- tíu og einu á helstu bardagasvæðun- um. Alls hafa tvö hundruð uppreisn- armenn verið drepnir frá því að- gerðimar gegn þeim hófust, að sögn Rússa en Tsjetsjenar segja að aðeins fimm skæruliðar hafi fallið. Fullorðin serbnesk kona veifar til serbneskra flóttamanna þegar þeir yfirgefa bæinn Gniljane, um 40 kílómetra suð- austur af Pristina, héraðshöfuðborg Kosovo. Fólkið er á leið til Serbíu. Yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins sagði í gær að ekki væri hægt að kenna frelsisher Kosovo um árásirnar á Serba undanfarið. Eyrarsundsbrúin vígð í dag: Danaprins á fund Svíaprinsessu Tímamót verða í samgöngum milli Danmerkur og Svíþjóðar í dag þegar brúin og jarðgöngin yfir Eyr- arsund verða vígð. Af því tilefni mun Friðrik krón- prins í Danmörku ganga á fund Viktoríu Svíaprinsessu á brúnni, skammt frá landamærum Svíþjóð- ar. Ekki hefur verið hægt að komast þurram fótum milli landanna tveggja frá því frostaveturinn 1941 til 42 þegar Eyrarsundið lagði. Sjö þúsund ár munu hins vegar vera frá því löndin tvö vora samfost. Síðasti hluti sextán kílómetra langrar brúarinnar verður settur á sinn stað í dag. Sérfræðingar vonast til að bættar samgöngur muni efla mjög atvinnu- og efnahagslíf beggja vegna sundsins. Brúin verður ekki opnuð fyrir al- mennri umferð fyrr en 1. júlí á næsta ári. Þá mun aðeins taka tiu til tólf mínútur að aka milli kaup- mannahafnar og Málmeyjar. í dag tekur ferðalagið hraðskreiðustu ferjuna 45 mínútur. Sérfræðingar spá því að ellefu þús- und bílar fari yfir brúna, sem verður fjórar akreinar, á degi hverjum á næsta ári. Reiknað er með að kostn- aðinum við brúar- og gangagerðina verði náð inn með veggjöldum á næstu þrjátíu árum. Auk akbraut- anna era tvöfaldir brautarteinar fyr- ir rafknúnar lestir á brúnni. Kostnaður við mannvirkið nemur um 150 milljörðum króna. Menning á bláþræði Ef stjórn Pouls Nyrups Rasmussens í Danmörku veitir ekki aukið fé til byggingar nýs ópera- og tón- listarhúss í Kaupmanna- höfn getur Kon- unglega leik- húsið allt eins gleymt áform- Iuðu nýju leikhúsi. Þetta segir Peter Duetoft, þingflokksformað- ur miðdemókrata á danska þing- inu, við Ritzau-fréttastofuna. í mál fyrir laxinn ÍTvenn náttúruverndarsamtök hafa höfðað mál til að þvinga bandarísk stjórnvöld til að gera gangskör að því að vemda villta P: Atlantshafslaxastofninn i Maine j frá útrýmingu. . Nýnasistar skúffaðir Danskir nýnasistar eru svekkt- ir yfir að dómsmálaráðuneytið skyldi hafna beiðni þeirra um mótmælagöngu um miðborg Kaupmannahafnar. Þeir sendu þegar inn aðra umsókn með breyttri gönguleið. ítalir trúa á töfra Nærri fjórðungur ítala trúir á l| töfra, spádóma, stjömuspeki og [j anda framliðinna og eyðir um ; fjörutíu milljónum króna árlega í % þessi fyrirbæri, segir í nýrri könnun. Koníak á bílinn Lögreglan í Litháen handsam- aði mann sem reyndi að smygla 53 flöskum af koniaki í bensin- geymi bifreiðar sinnar. Maður- inn var að koma frá Hvíta-Rúss- landi. Sakaruppgjöf fyrir vopn Kúrdiski skæruliðaleiðtoginn Abdullah Öcalan, sem hefur ver- ið dæmdur til dauða, sagði í gær að skæra- liöar hans væru tilbúnir að afhenda vopn sín gegn því að þeim væri veitt sak- aruppgjöf. Skæruliðar hefar þeg- ar lofað að hlýða kalli foringjans um að hætta bardögum. Brandarakall drepinn Mesti spaugari Kólumbíu var skotinn tU bana í gær. Byssu- mennimir komust undan. Hagvöxtur í Japan frá janúar fram í mars var endurmetinn og mælist nú 2% í stað 1,9%. Þessar fregnir höfðu víðtæk áhrif í gær og hlutabréf í Jap- an hækkuðu í verði, auk þess sem gengi jens gagnvart dollara hækkaði. Þessar fregnir hafa rennt enn frekar stoðum undir þá skoðun margra að japanska hagkerfið sé að ná sér á strik. Þó telja japanskir stjómmála- menn að ástandið sé enn ekki orðið viðunandi og reyna að halda gengi jensins veiku til að styðja við útflutn- ing. Sem dæmi má nefna að við- skiptaafgangur í Japan minnkaði um 15% í júlí sem voru ákveðin von- brigði í augum margra því út- og inn- flutningur drógust saman. Stjómvöld era nú að undirbúa áætlanir sem eiga að hvetja til fjár- festinga og eru að leggja til eins kon- ar eyðslupakka sem er ætlað að örva efnahaginn. Til að styðja enn frekar við efnahaginn hefur Seðlabanki Japans ákveðið að halda vöxtum áfram við 0 prósent. -bmg Kauphallir og vöruverð erlendis London 6000 6153,30 JJw Jwuu 4000 i FT-SE 100 \ M J J Tokyo 170 r 160 150 140 130 NMwl A M J J Hong Kong 20000 Hang Seng A M J J Klofningsmenn úr röðum Le Pens blankir Klofningsmönnum úr röðum Þjóðarfylkingar hægri öfga- mannsins i Jeans-Marie Le I* Pens í Frakk- landi hefur ein- ungis tekist að safna nægilegu fé til að eiga fyrir mislukk- uðum kosn- ingaslag til Evrópuþingsins fyrr í sumar. Bruno Mégret, hinn smá- vaxni leiðtogi klofningsmanna, segir að aukins fjár sé þörf ef hreyfingin á að halda velli, Flokksbrotið, sem fékk aðeins 3,3 prósent atkvæða, þarf um áttatíu mdljónir króna. Mégret sagði fréttamönnum í fær að hann væri bjartsýnn á þetta tækist. Hann ætlar þó að leita sér að atvinnu utan vett- vangs stjórnmálanna til að eiga fyrir salti í grautinn. Pyntingarklefar í herstöð sem Kanar byggðu Yfirvöld í Miö-Ameríkuríkinu Hondúras hafa fundið pyntinga- klefa í herstöð sem Bandaríkja- menn reistu handa kontraupp- reisnarmönnum frá Níkaragva 1 árið 1983. Þá hafa einnig fundist nokkrar hugsanlegar fjöldagrafir I fyrir utan herstöðina. | Þetta kemur fram í viðtali AP- fréttastofunnar við mannrétt- indalögfræðinginn Söndru Ponce. Bandarísk stjórnvöld fjár- mögnuðu kontraskæruliðana i I stríði þeirra gegn sandínista- Istjóminni í Managva. Talsmenn bandaríska land- varnaráðuneytisins vildu ekkert segja um pyntingaklefana þegar I eftir því var leitað. Norska ríkisol- íufélagið einka- Ivætt að hluta Forráðamenn norska ríkisolíu- félagsins Statoil hafa lagt til að fyrirtækið verði einkavætt að hluta og að það verði sett á hluta- * bréfamarkað. Þá leggja forráða- mennimir til að ríkisstjórnin láti l fyrirtækinu í té allar olíu- og : gaslindir landsins, eða bróður- ; part þeirra. „Bæði ríkið og Statoil era bet- 1 ur sett með því að einkavæða fyr- irtækið að hluta og setja það á hlutabréfamarkað," sagði Ole Lund, stjórnarformaður Statoil á fundi með fréttamönnum. Hagnaður Statoil hefur farið 1 minnkandi að undanfórnu og fyr- | irtækið liefur einangrast á al- Iþjóðavettvangi. Norska stjómin mun nú íhuga framtið fyrirtækisins og að sögn Anne Enger Lahnstein orkumála- ráðherra verður reynt að ná breiðri sátt um niðurstöðuna. Fyrsti alvöru- prófsteinninn á I framboð Bush [[ Fyrsti alvöruprófsteinninn á I það hvort George W. Bush eigi [ einhverja möguleika á að 1 verða forseta- efni repúblik- I ana í kosning- I unum á næsta ; ári verður í dag í Iowa. Þá fer fram ófonn- leg skoðanakönnun meðal allra íbúa ríkisins sem eru tilbúnir að j greiða 25 dollara. Bush keppir við níu aðra flokksbræður sína um tilnefning- una og hefur gífurlegt forskot á þá alla, reyndar svo mikiö að [ margir að segja að minna en 50 prósent atkvæða í Iowa sé slæleg frammistaða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.