Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 31
JL>V LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 Sefur hjá brjósta- stórum konum Auðvitað var engin leið að nýtilkomin góðmennska Courtn- ey Love entist eitthvað að ráði. Örskömmu eftir að Courtney var lofuð í fiölmiðlum fyrir að hafa bjargað pari úr bílflaki er hún aftur orðin söm við sig. í nýju viðtali tímaritsins Jane við drottninguna tekur hún bæði Al- anis Morrissette og Celine Dion í bakariið: „Ég var hræðilega af- brýðisöm yfir því að Alanis skyldi selja allar þessar plötur, en Hole (hljómsveit Courtney) ekki neitt. En svo sá ég viðtal við hana í Billboard og það var það heimskulegasta viðtal sem ég hef á ævi minni lesið. Jafnvel Celine Dion er gáfulegri i viðtölum en hún,“ sagði Courtney hneyksluð. Síðan trúöi hún blaðamanni fyrir lesbískri kynlífsreynslu sinni í ofanálag: „Þegar ég er með kon- um þá vil ég vera með klám- fengnum druslum. Þær eiga helst að vera ofbeldishneigðar og með risastór brjóst.“ Celine Dion getur nú varla toppað þetta. Hanks eldist illa Sagt er að Tom Hanks hafi bara leikið í kvikmyndinni The Green Mile, sem byggð er á sögu Stephens King, til þess að hafa eitthvað við tima sinn að gera á milli stærri verkefna. En nú er liöið ár frá því að tök- ur hófust og enn er verið að kalla leik- arana sam- an til þess að endur- taka sum atriðanna. Meginástæða þess er bílslysið sem höfundurinn Steph- en King lenti í og gerði hann óvinnufæran. Önnur stór ástæða er að það gekk svo illa að bæta árum við andlitið á Tom Hanks. Reynt var að nota farða til þess að hann eltist um tuttugu ár en þær tilraunir runnu út í sandinn. Leikstjórinn Frank Darabont seg- ir um málið: „Þegar sjónarhornið var rétt þá leit Tom út fyrir að vera eldgamall en svo sneri hann kannski höfðinu aðeins og þá var eins og hann væri með grímu.“ Lausnin var að láta eldri leik- ara hlaupa í skarðið fyrir hinn unglega Tomma sem virðist vera fyrirmunað að eldast. & sfe Leigjum borð, stóla, ofna o.fl. Tjaldaleigan Skemmtilegt hf. Skógarsel 15, sími 557 7887 sviðsljós George, tímarit JFK heitins: Hafnar forsíðuviðtali Einkennilegar aðstæður hafa skapast á tímaritinu George sem rekið var af John heitnum Kennedy allt þar til hann fórst í flugslysinu hræðilega. Sagan segir að rætt sé um að fresta útgáfú nýjasta heftis blaðsins sem var það síðasta sem Kennedy kom nálægt áður en hann lést. Það sem veldur því er forsíðuvið- talið sem tekið er við leikarann Harrison Ford. Ford segir þar frá nýjustu mynd sinni, Random Hearts, en svo kaldhæðnislega vill til að myndin fjaliar um karl og konu sem dragast hvort að öðru eft- ir að ótrúir makar þeirra farast í flugslysi á leið í helgar- frí. Líkindin eru ekki slá- andi en mik- ið írafár er á blaðinu vegna þessa máls og ef til vill endar það með því að George verður fyrsta tíma- ritið til þess að hafna forsíðuviðtali við stórleikarann Harrison Ford. ssk., toppeintak, fluttur inn 1990. Nánari upplýsingar í síma 569-5660 897-1401 BÍLAÞINCpl N O T A Ð I R B (_ LAUGAVEGI 174 -SÍMI 569 5660 • FAX opið virka <laga 9-18, laugardaga 12-16. Oldsmobile 98 Regency arg. 1955 Viltu styrkja stöðu þína ? Námið er 280 kennslustunda skipulagt starfsnám og er sérhannað með þarfir atvinnulífsins í huga. Markmið námsins er að útskrifa nemendur með hagnýta þekkingu á tölvunotkun, bókhaldi, tölvubókhaldi og rekstri. Námið hentar þeim sem vilja : O Styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum 0 Annast bókhald fyrirtækja O Öðlast hagnýta tölvuþekkingu | Auka sérþekkingu sína Starfa sjálfstætt Umsagnir nemenda um námið: „ Var byrjandi á tölvur, vinn nú í tölvuumhverfi“ „Frábært nám og frábær kennsla “ Tölvu- og rekstrarnámið gerði mér kleift að skipta um starf“ „Ég sýndi lokaverkefnið mitt í viðtalinu og fékk vinnuna“ „Sé um bókhald í fyrirtækinu, gat það ekki áður“ Boðið er upp á morgun- og kvöldtíma. Næstu hópar byrja 6. september RAFIÐNAÐARSKÓLINN Skeifan 11 b • Sími 568 5010 • skoli@raf.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.