Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 38
46 LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 I>V %éttir Ekiö yfir höfðalar folksins í tjaldP bílfor unp á ma»ni .. “ / lúristar nlðinBsvork sogir oigandinn, lögfrœðingur í 9 1 >-vmi t< ■■ , v-«ð * -íÁ-'íl *'*'**' **-$$£*** íá'" /'V'”’,, •**> Fjóröungssjtikrahúsið á Þrisvar sinnum tvíburar ■* -'a Lw yi%_ "* Sæunn Axols á Ólafsfiröi: Starfsemin til Þorlákshafnar? "%S á innp’ Kisaknst Arnþárs EA; Nær þúsund *°nní **»*/<» a >tmw! a^sievst Orkubú M*y*!S v jR! | ’ !íl Kaw !ra »*** 'T a 46 j oótiaaj h * »**> tcnrw ka*,. ''•si k».'- j yjnnihs á íi j jjtry íí'^-nn v<sru aiVwj «>'•<>. iKiriv.,:.' wtir. uiageyjur Hópur öárfestn: Kaupir þrjá þýska togara ' . s.x gew aúúa0ls’ ^ r*íSS^ >-V5 {r^r.xAA i*wys« »• -1» *»Vvf ,.v, vtV. x* w M. *\» «»: * « *ö fe»» w •***“'• “SJáMaa (a vW« * 4 rÁ V** ... ^ ^sa« ^’ VA J=xW fckisrtt «Jfc ! *íAi þ»r í í*í*S* I þHs> ttfejssjp !wi£xíWjj.*. Jö. Yíjjístftsnir »-u rð::»;:•«* JfX’vcra Sixj caíidy twi wiHWUr »öýl«.:t_giLa~. ‘e*W$ 1 arttaiv inu KBA-Nottó í Ueykjavik: Verslunarstjoranum^ catft UDD störfum c '"gasveit spiábörn agreni j ~ níl* Jinndíe þSlíSS^*'* 01,1 °S hald Jan* ^ . . ' ‘ úiJsvett af pf öf*SS^sas ,, íBiate.gaa? £3ra; SSÉsS' 'jwkr»B?t A Fráttaskot DV, sími 550 55 55: I hverri viku greiðir DV tugi þúsunda króna fyrir fréttaskot - sjö þúsund krónur greiddar fyrir besta fréttaskot vikunnar Lesendur DV hafa verið mjög ötulir við að senda ábendingar um fréttir til blaðsins frá því að Frétta- skotið, sími 550 55 55, hóf göngu sína 29. mars 1984. Rúmlega 19.900 fréttaskot hafa verið skráð á þess- um tíma en það þýðir að þau hafa farið í vinnslu á ritstjórn blaðsins. Fjöldi þessara ábendinga hefur síð- an birst sem fréttir á síðum DV. Nokkuð hefur borið á þeim mis- skilningi þeirra sem senda frétta- skot til blaðsins að þau séu tekin hrá og sett í blaðið. Málið er flókn- ara en svo. Þegar fréttaskot berst er það skráð og fer síðan til frétta- stjóra. Hann úthlutar þvi til blaða- manns sem gengur úr skugga um sannleiksgildi þess og fær upplýs- ingar um allar hliðar málsins. Þá fyrst er fréttin tilbúin til birtingar í DV. Rétt er að taka fram að ekki er tekið við fréttatilkynningum, smá- auglýsingum eða lesendabréfum í síma Fréttaskotsins. Heldur ekki kvörtunum um að blaðið hafi ekki borist til áskrifenda og hringjendur eru beðnir að hafa ekki útvarp eða sjónvarp hátt stilít þegar hringt er. Eins og sjá má hafa margvíslegar fréttir borist DV í gegnum símann sem aldrei sefur, 550 55 55, á síðustu vikum. Má þar nefna frétt um að ekið var yfir höfðalag fólks sem var í í tjaldi við Hítarvatn í veiðiferð, - níðingsverk sagði eigandinn; um að túristar liggja á gluggum forsetans á Bessastöðum; um að fangi sveik út 400 þúsund krónur af reikningi kokksins á Litla-Hrauni eftir að hafa fengið númerið á bankareikn- ingi hans; um kærumál vegna geit- hafurs í S-Þingeyjarsýslu. „Blöndal“ geltur í leyfisleysi; um að skóla- stjóri og aðstoðarskólastjóri Mýrar- húsaskóla á Seltjarnarnesi voru reknir og frétt var um að Orkubú Vestfjaröa lét til skarar skríða á Þingeyri - rafmagnsleysi þar ofan á atvinnuleysi. Frétt var um að prófdómari í vörubílstjóraprófi var klagaður til Umferðarráðs. Lét nemanda aka sandhlassi heim á hlað; um að bóndi kærði skógræktarmenn, sem veiða kindur i net og drekkja þeim; um konu á níræðisaldri sem ræktar vínber á svölunum á íbúð sinni í vesturbænum í Reykjavík og frétt var um að verslunarstjóranum í KEA-Nettó var sagt upp störfum. Frétt var um hópur undir forystu Björns Sigurðssonar í Þýskalandi kaupir þrjá þýska togara í þeim til- gangi að endurselja þá; frétt var um torkennilegan dauðdaga tveggja helsingja sem fundust dauðir á Geitlandsjökli; og frétt var um Aron Smára, 16 ára Suðurnesjamann sem tók sólópróf á flugvél. Sá yngsti til að afreka slíkt. Frétt var um að Víkingasveit lög- reglunnar fann smáböm í fikniefna- greni og þar voru níu handteknir og hald lagt á talsvert af efnum; um að á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri fæddust þrisvar sinnum tvibur- ar með skömmu millibili. Slíkt hef- ur ekki gerst áður á þessum áratug. Þá var frétt um að sjö ára drengur slapp naumlega úr lífsháska í stjórnlausum bíl sem steyptist nið- ur hrikalega fjallshlíð á Húsavik. Skelfilegt augnablik, sagði móðir drengsins. Hann slapp þó lítt meidd- ur en bíll gjöreyðilagðist. Sú frétt var raunar valin fréttaskot vikunn- ar sem þýðir að sendandi varð 7000 krónum ríkari. Það er rétt að rifja aðeins upp leikreglur. Hafi einhver ábendingu um frétt, sem hann óskar eftir að koma á framfæri við DV, hringir hann í sima Fréttaskotsins, 550 55 55. Þar er tekið við fréttum allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Hringjandi gefur strax í byrjun fréttaskotsins upp nafn, heimilis- fang, póstnúmer og síma, óski hann eftir að fá greiðslu fyrir fréttaskotið. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist í blaðinu, eru greiddar 3000 krónur. Ef margir hafa hringt í síma Frétta- skotsins vegna sama efnis fær sá greiðslu sem á fyrstu hringinguna. Fyrir besta fréttaskotið í viku hverri eru greiddar 7000 krónur. DV greióir í hverri viku tugi þúsunda króna fyrir fréttaskot. DV heitir þeim sem senda inn ábendingar um fréttir fullum trúnaði og fullrar nafnleyndar er gætt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.