Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 4
- segir leikstjórinn Fjörutíu mlnútna mynd um Quar- ashi-flokkinn verður sýnd á Skjá ein- um á laugardagskvöldiö. Leikstjórinn heitir Gaukur Úlfarsson og er þetta fyrsta mynd hans. Hún heitir „Um landiö á lyfjum" - er svona mikil eit- urlyflaneysla á sveitinni, Gaukur? „Ha? Nei, nei, og ég ætti að vita það manna best þvi ég hef hangið með bandinu árum saman. Okkur fannst þetta bara sniðugur titill. Hér er meira átt við lyf við alls kyns geðræn- um kvillum. Læknavísindunum hefur fleygt mjög fram við að hjálpa fólki eins og röppurum og hipp-hoppurum.“ Ertu aðdáandi Quarashi? „Já, já. Ég meina, er þetta ekki eina hljóm- sveitin í dag sem eitthvert pönk er 1? íslensk tón- list i dag er bara með eindæmum leiðinleg og meikið er að fara með aðra hverja hljómsveit. Fyrst Botnleðja gaf ekkert út i ár er Quarashi-platan sú eina skemmtilega. Persónulega þoli ég ekki hljómsveitir sem taka sig alvar- lega og það er það sem allflestar ís- lenskar hljómsveitir gera.“ Hvernig mynd er þetta? „Þetta er 50% leikin mynd og 50% heimildarmynd. Svo eru fjögur mynd- bönd í henni, þar af þrjú sem aldrei hafa sést áður. Myndin spannar sex mánuði á ferli bandsins. Fyrir tveim árum tók ég upp aðra sex mánuði með Quarashi og var kominn með 25 tima af efni. Mér fannst sú útkoma slöpp og tók yfir allar spólurnar. Þetta gekk betur núna og ég er sáttur. Ef ég fengi að ráða myndi ég þó byrja upp á nýtt en samband mitt og Lands- banka Islands leyfir það ekki.“ Hvaó er svo fram undan hjá þér núna? „Ýmislegt og ég vil gjarnan auglýsa eftir fólki sem vill láta gera heimild- armynd um sig. Það getur hringt i mig og ég get fylgst með þvi i hálft ár eða meira. Þetta er gott fyrir fólk sem þarf að láta peppa sig upp, eins og strákamir i Quarashi vita manna best. Ég ætla að stofna fyrirtæki í kringum þennan iðnað, kalla það Brjóstmyndir. Ef fólk vill láta minn- ast sin á einhvern hátt er heimildar- mynd ekki síðri leið en málverk eða styttur. Þetta er tilvalið fyrir vellauð- uga iöjuleysingja og ég sækist mjög eftir þeim.“ Margrét Lóa Jónsdóttir Ijóðskáld er ritstjóra nýjasta heftis Andblæs: Ný mynd um Quarashi: „Ég sækist eftir vell- auðugum iðju- leysingjum“ Engi lognm Margrét Lóa Jónsdóttir meö nýjasta hefti Andblæs prýtt þjóðlegu málverki af Hillary Clinton eftir Jóhann Torfason mynd- listarmann. Ijóðsl Bókmennta- og listatímaritið And- blær er nýkomið út í níunda sinn. Af því tilefni verður haldinn útgáfuhátíð með tónlist og ljóðalestri á efri hæð Sólons íslandusar annað kvöld klukk- an 20.30. Það verður að teljast merki- legt að tímarit af þessu tagi skuli hafa tekist að halda lífi í heil fimm ár því eins og flestir vita, tekst íslenskum tímaritum af þessu tagi sjaldnast að halda dampi lengur en sem nemur út- gáfu tveggja til þriggja hefta. Langlífi Andblæs á eflaust margt að þakka óhefðbundnum útgáfuaðferðum. „Stofnendur Andblæs, Bjarni Bjamason, Gunnar Þorri og Benedikt Lafleur, ákváðu snemma að fá nýja ritnefnd og ritstjóra til að sjá um hvert nýtt hefti,“ segir Margrét Lóa Jónsdóttir ritstjóri 9. heftis. „Það er dýrt að gefa út svona tímarit, sérstak- lega þar sem markaðurinn er litill í okkar litla samfélagi. Samt flnnum við að það er þörf fyrir svona tímarit því marga var farið að lengja eftir nýju hefti. Við sem tökum þetta að okkur ger- um það af hugsjón og fáum ekkert fyr- ir það. Slíkt gengi líklega ekki upp til lengri tima. Þetta hefur kostað mikla vinnu sem að vísu er skemmtileg. Það fylgir því viss anarkismi að hafa regluleg ritstjómarskipti og hann á kannski þátt í því að viðhalda ákveðn- um ferskleika.“ Síðasti ritstjóri, Magnúx Gezzon, stofnaði gallerí í Andblæ sem fram að því hafði eingöngu verið helgað ljóð- um og draumbókmenntum. „Ég ákvað að bæta um betur, hafa galleríið í lit og láta prenta tímaritið á veglegri pappír en áður hefur verið gert,“ seg- ir Margrét Lóa. „Ég fékk myndlistar- manninn Sigríði Ólafsdóttur, sem unnið hefur með mér sem leiðsögu- maður á Kjarvalsstöðum, til að sjá um galleríið með mér. í því starfi hef ég orðið vör við að fólk er forvitið um myndlist. Það vill fá að vita meira um sögu myndlistarinnar og stefnur á borð við póstmódemisma," segir Mar- grét Lóa sem flestir þekkja líklega bet- ur sem ljóðskáld en safnaleiðsögu- mann. „Myndlistarmenn hafa líka tek- ið okkur fagnandi, enda ekkert mynd- listartímarit til í landinu. Forstöðu- maður Norræna hússins, þar sem ég var að vinna sem kynningarfulltrúi síðastliðið vor, var líka fegin að fá í hendurnar tímarit með myndlist. Henni hefur fundist frekar vandræða- legt að hafa ekkert annaö en gömul tímarit að bjóða útlendingum sem um slík rit spyrja." Skáldakvöldin urðu að tímariti Andblær var upphaflega skálda- kvöld sem stofnendur tímaritsins héldu vikulega og því ætti ekki aö koma á óvart þótt fyrsta hugðarefni þess séu ljóð. „Þótt ég hafi sjálf sent frá mér sjö ljóðabækur og oft staðið fyrir ljóöakvöldum, þá kom það mér svolítið á óvart hversu skapandi unga kynslóðin er. Það er enginn lognmolla í kringum hana ef einhver heldur það. Við fengum heilmikið sent af ljóðum frá ungu fólki. Og það má líka benda á að margir af þeim ungu rithöfundum sem hafa verið að koma fram á sjónar- sviðið að undanfömu fengu fyrst birt eftir sig efni í Andblæ. Einn þeirra, Stefán Máni, var í ritnefnd í fyrra. Dágóður hluti af starfi mínu sem ritstjóri fór í að fara yflr allt það efni sem okkur barst og velja úr það besta til birtingar. Það hefur verið gott fyrir mig sem listamann að fylgjast svona náið með því sem aðrir em að gera því maður hefur tilhneigingu til að vera svo sjálfhverfur." En það eru ekki allir komungir sem eiga efni í Andblæ. „Ragna Hermannsdóttir, höf- undur smásögunnar Konan með sekt- arkenndina, er sjötug. Hún sendi okk- ur söguna eftir að hafa séð auglýsingu í Degi. Við fáum því efni sent úr öllum áttum og frá fólki á öllum aldri. En við birtum ekki eingöngu frum- samið efni. Við erum með tvö viðtöl í tímaritinu, annað við Ólöfu Nordal myndlistarkonu. Hitt tók ég við Guð- rúnu Guðlaugsdóttur blaðamann. Okkur fannst tilvalið að hafa við hana viðtal þar sem hún hefur sjálf tekið mikið af góðum viðtölum og er auk þess gott ljóðskáld. Guðrún er ekki mikið fyrir að trana sér fram og það þekkja hana áreiöanlega ekki margir í sjón. Hún lætur alltaf birta af sér skuggamynd með pistlunum sínum í Mogganum," segir Margrét Lóa og bætir því við að það hafl ekki verið auðvelt að ná góðri ljósmynd af Guð- rúnu. „Ég tók þær að vísu sjálf. Ég er ekki vön að taka ljósmyndir og hún var með lokuð augun á þeim flestum." Konur eru áberandi í þessu hefti Andblæs. „Konur hafa svo ríka til- hneigingu til að halda sig til hlés að við ákváðum að beina sjónum okkur sérstaklega að þeim.“ Á Sólon Is- landus annað kvöld má þó gera ráð fyrir nokkrum konum í hópi þeirra fimmtán Ijóðskálda sem stíga fram. Gerður Kristný, Vilborg Dagbjarts- dóttir og Berglind Gunnarsdóttir eru þar á meðal. „En það verða ekki að- eins lesin ljóð. Mér finnst nauðsynlegt að bjóða upp á eitthvað fleira svo dag- skráin verði massaðri. Jón Hallur Stefánsson ljóðskáld og gítarmaður ætlar að spila tðnlist og Ósk Óskars- dóttir flytur eigin lög við ljóð ýmissa höfunda á píanó. Ósk flytur lögin sín í mikilli nánd við áheyrendur og gefur mikið af sér við flutninginn sem fer vel með ljóðalestri." Tímaritið Andblær fæst í Mál og menning, Eymundson og Bóksölu stúdenta og kostar 1450 krónur, en einnig er hægt að kaupa timaritið í áskrift á lægra verði. -MEÓ LIKA ÞEGAR t>u SEFUR JÁ FRIÐ30N MtMM... ÞÚ VERÐuR BARA AÐ R6ÝNA AB VE RA ÞÚ S3ÁLFUR... VA MAÐUft... MI& DftEYMDI Ab Eö VÆRI AO SYNGJA DÚETT MEO CELINE DlON ! 4 f Ó k U S 10. desember 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.