Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 6
Sætar síma- töskur Allar konur sem eiga far- síma hafa líklega einhvern tímann spáð í það hvar þær eigi eiginlega að hafa gemsana i amstri dagsins. Hingað til hefur úrvalið af hulstr- um utan um gemsa verið frekar slappt ef frá eru talin þessi klass- ísku leðurhulstur sem hægt er að smella í buxnastrenginn. Slik hulst- ur hafa passað vel fyrir húsverði og aðra verkamenn sem eru oft með Ekki of fín tli að hafa um hálsinn í vinnunni en samt nógu fín út á djammiö. Spaksmanns- spjarir kr. 3500. Með fyrir „Þetta hefur eiginlega minnt meira á Melrose Place heldur en Friends," segir Þórður Ægir Bjarnason um sambýli sitt við Björgu Torfadóttur, Björn Erlendsson og Ingólfur Guðmundsson. Hópurinn deilir íbúð á tveimur hæðum með fjórum svefn- herbergjum og tveimur stofum. Byrj- unin á sambýlinu var nokkuð dramatísk, svo ekki sé meira sagt. í upphafi ætluðu þau að vera fimm í íbúðinni en fimmti aðilinn datt út með látum og það eina sem minnir á tilveru hans er risastórt bleikt sófa- sett í hans eigu sem fyllir stofuna. Hugmyndin að sambýlinu er algjör- lega frá Björgu komin. Á siðasta ári bjó hún í kommúnu í Barcelona og kunni svona líka vel við sig að hún vildi endilega stofna eina slíka þegar hún kom til baka tO Reykjavíkur. Hún valdi strákana eftir sinni henti- semi en öll könnuðust þau hvert við annað en misvel þó. Bannað að reykja í sturtu Strákarnir koma beint af Hótel mömmu og viðurkennir Þórður að vegna áhorfs á þætti eins og Friends Unnar Jósepsson. Hrafn Friðbjörnsson. „Þeir eru allir eins, þessir sætu strákar," er nokkuð sem ljótt fólk segir stundum til að líða betur sjálfu. Nú fær ljóta fólkið sönnun á máli sínu: Unnar og Hrafn eru nánast nákvæmlega eins. Unnar er „ljósmyndafyrirsæta DV“ og annar sætasti maður landsins samkvæmt nýyfirstaðinni fegurðar- keppni. Honum finnst gaman að sprikla í körfubolta. Hrafn hefur hins vegar ekki tekið þátt í fegurðarsamkeppni svo vitað sé en spriklar bara i staðinn í þröngu langbrókunum sínum. Báðir bera tvífararnir frummanninum fagurt vitni og eru lifandi sönnun á kenningum Darwins um þróun tegundanna. Maður trúir því vel að maðurinn sé kominn af öpum. herbergi skyndikynni Sjónvarpsþættirnir Friends hafa átt miklum vinsældum að fagna hér á landi. Þeir fjalla um sex ungmenni sem búa undir einu þaki og hafa það alltaf alveg rosalega gaman. Á Kaplaskjólsvegi 31 er að finna íbúð þar sem íslenska útgáfan af þáttunum gæti hugsanlega gerst. Fókus kíkti í heimsókn. Strax í upp- hafl voru settar strangar hús- reglur. Reglur eins og: Bannað að reykja í sturtu, bannað að setja snjóuga skó undir sófa og bannað að fara á klósettið með hurðina opna. Ein húsreglan, sú er Ingó og Doddi eru nýfuttir frá mömmu en eru samt nokkuö tiltækir við heimilisstörfin. Sunnudagar eru tiltektardagar heimilislns. viðkemur mökum hafi honum þótt það spennandi kostur að fara að leigja með svona mörgu fólki. En er það að búa með mörgu fólki á manns eigin aldri eins skemmtilegt og það lítur út fyrir að vera? „Já,“ er einróma svar hópsins. Þau segjast þó ekki hafa viljað flytjast inn með fólki sem þau þekktu ekki neitt og halda að kunningsskapurinn hafi haft sitt að segja í sambandi við hvað sambúðin hafl gengið vel. leigjendanna, er sérstaklega athyglis- verð en á hana hefur ekki reynt neitt ennþá. Hún hljómar þannig að ef maki einhvers er farinn að eyða meirihluta frítíma síns í íbúðinni þá skuli sá hinn sami greiða sem helmingi nemur af leiguhlutfalli fimmta aðila og skulu peningarnir renna til hinna meðleigj- endanna. Með öðrum orðum, ef ein- hver í sambýlinu nær sér i kærasta þá græða hinir á því. „Enda erum við líka alltaf að kynna Björgu fyrir einhverjum frændum okkar,“ segir Bjössi og glottir. Strák- amir segja að það sé eðlilegast að Björg gangi fyrst út þar sem hún sé með stærsta herbergið í íbúðinni en þeirra herbergi séu svo lítil að þau bjóði eiginlega bara upp á skyndikynni. Skrýtinn stíll Þegar hópurinn flutti inn fyrir rúmum tveimur mánuðum tóku allir ofan í hópinn. Bókhaldiö er sameiginlegt. með það sem þeir áttu í búið og svo var öllu blandað saman. Af sumum hlutum er því til allt of mikið. Það er t.d hægt að hita meira en nóg te á heimilinu þar sem hraðsuðukatlarnir eru þrír. Þar sem hlutirnir eru svona sinn úr hverri áttinni verður stíllinn á íbúðinni eða stílleysið nokkuð skemmtilegt. Björg hefur þó gert sitt til að reyna að samræma útlitið og gera íbúðina sem heimilislegasta. Stofan er frekar stelpuleg, með rauð- um gardínum og dúk á borði og bleik- um sófa. Efri hæðin er hins vegar strákaleg í meira lagi með skfltum og íslenska fánanum uppi á vegg. Þó sjónvarpið gnæfl yfir stofuna þá er ekki oft kveikt á því. „Síðan ég flutti hingað inn þá er maður svo að segja alveg hættur að horfa á sjónvarpið," segir Bjössi og segir að þau séu yfirleitt bara að spfla og spjafla á kvöldin. Hafió þið alltaf nóg aó tala um? Eruð þió ekkert orðin leiö hvert á ööru? „Það er nú svo að þeim mun meiri tíma sem maður eyðir með einhverj- um þeim mun meira hefur maður um að tala. Svo getur Doddi líka alltaf far- ið að tala um líffæraflutninga og ann- að námstengt efni ef okkur rekur í þrot,“ segir Björg og bætir við að hún sé líka alveg hætt að fara út úr húsi. Það sé svo skemmtflegt að vera heima með strákunum. Hafa foreldrar ykkar komið í heim- sókn? „Flestir hafa kíkt hérna við en við höfum verið að tala um að halda svona „foreldrafund" þar sem við bjóðum þeim öllum í mat og kynnum þau hvert fyrir öðru,“ segir Ingó. Það er spurning hvort foreldrar og aðrir rati tO þeirra þar sem það eru örugglega margir sem halda að það búi tveir hommar með börn á Kapla- skjólsvegi 31, alla vega af áletruninni á dyrabjöllunni að dæma: Bjössi, Doddi og börnin. -snæ lyklakippur og annaö glingur lafandi í buxnastrengnum. Þessi hönnun hefur hins vegar ekki falliö alveg í kramið hjá kvenþjóðinni enda eru þær oft ekki meö neina buxnastrengi sem hægt er að krækja í. Nú eru hönnuðir loksins að taka við sér og eru nú hulstur, sem stelpur geta skammlaust geng- ið með, fáanleg út um allan bæ. Góð jólagjafahugmynd. -snæ Þessi perlutaska er sæt á jólaböllin. Til í ýmsum litum. Skartgallerý kr. 1700. A'dur: 24 ára. $t farmjýiinu: Viðgerðar- maður og retídari. 6 f Ó k U S 10. desember 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.