Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 27
í Engihjalla 8 var áður seld hóstasaft og linsuvökvi en nú eru hillurnar fullar af bjór og brennivíni. Þar sem áður var lyfjabúð er nú hverfispöbbinn Riddarinn sem var opnaður fyrir rúmum tveimur mánuðum. Kópavogsbúum finnst breytingin alls ekki slæm enda smakkast bjórinn miklu betur en hóstasaftin. Blaðamaður og Ijósmyndari Fókuss mældu stemninguna eitt föstudagskvöldið. í Kópavogi Það er fostudagskvöld á hverfispöbbi Austur-Kópavogs, Ridd- aranum, Engihjalla 8. Hjónin Gyða Báröardóttur og Þórhallur Maack standa bak við bar- borðið þegar við laumum okkur inn og þau selja allt ann- að en hóstasaft og róandi. Þetta er nýjasti hverfispöbb borgarinnar og Íiann er svo nýr að "J'^ir eigZZo^á penslafönn sjast aöalsmerki staöarins y 3 a enn á gulmáluðum veggjunum. Útvarpið er í botni, stillt á Gull 90,9 og á sjónvarpsskjánmn tveimur rúllar hijóðlaus bíómynd frá Stöð 2. Það er ekki beint nein Staupasteinsstemning hér, en samt þægilega afslappað andrúmsloft. „Þessi staður er svo ungur að hann er ekki bú- inn að skapa sér neinn stíl,“ segir karlmaður á miðj- um aldri sem sit- ur aleinn við eitt borðið og reykir pípu. Hann heitir Þórður Helgason og er dósent við Kennaraháskólann og kemur hingað af og til. Hann kemur einn enda alltaf einhverjir sem hægt er að tala við. Umræðuefnið er oftar en ekki bæjarmálin í Kópavogi. Við erum sammála Þórði um stílinn. Húsgögnin eru brúnleit, spilakassar í einu hominu, veggimir málaðir i skærum litum, gerviblóm og riddar- aradót upp um alla veggi, í bland við ljót- ar myndir í gull- römmum. Á hverju borði logar kerti í jámlukt. „Það er af- skaplega mismun- andi stemning héma. Mér finnst hún eiginlega Add/ Je er í pílukastskir.hh aldrei vera eins Píkan og mætir *. bbnum þegar ég kem,“ seg- R/ddarann til þess aft IJkU á n- Þórður og er bess aö æfa ánægður með að það skuli loksins komin bjórbúlla í austur- hluta Kópavogs. komnar með aldur en þær segj- ast vel hafa leyfi til að vera á staðnum, séu allar yfir tvítugt og vinkonur úr grunn- skóla. „Það besta við að koma hingað er að maður sleppur við að standa í leigubíla- röð niðr’í bæ,“ segir Dagrún Fanný og bætir við að þær hafi líka lítið að gera niður í bæ þar sem flestar þeirra eiga kærasta úr Kópavoginum. Þeir eru að sjálfsögðu einnig mættir á Riddarann og á meðan stelpurn- ar sitja og spjalla standa kærast- amir og skjóta pílum í gríð og erg. Einn af strák- unum er kokkanem- inn Arnar Ingva- son, sem vill reyndar láta kalla sig Adda Je. Hann segir þá fé- lagana vera í pílufé- laginu Píkan. Þeir mæta svo að segja á hverju kvöldi á Riddarann til þess að kasta pílum og taka einn bjór. „Þó ég sé kokka- IICI aiui^! -— -i--- hérna,“ segir Kópavogsbuinn og dósentinn Þóröur Helgason. nemi, hef ég alveg eM á því að koma hér á hverju kvöldi. Bjórinn er svo ódýr og svo er ókeypis i píluna," segir Addi og mundar píluna en hittir ekki í mark. Hópurinn er sjálfum sér nógur og er ekkert að blanda geöi við aðra gesti staðarins. I græjunum hljómar útvarpstööin Gull 90,9 og á skjánum rúllar hljóðlaus bíómynd á Stöð 2. um konum. Eftir þessar heldur betur blautu viðtökur í sófanum fæmm við okkur yfir á langborðið við gluggann. Þar situr um tíu manna hópur fólks frá hestamannfélaginu Fáki. Fyrr um kvöldiö vom þau á hnakkakynningu þar sem verið var að kynna ein- hvern framúrstefnuhnakk með loft- púðum. Síðan lentu þau hér. Viðar Halldórsson, Ragna Bogadóttir, Stefanía Flosadóttir og Gunnar 's/g. strákunum, Bjórinn blandaður Stemningin í kvöld er allavega góð. Frekar róleg en góð og flestir gestanna halda sig við bjórinn. Bjór- inn og kannski eitthvað út i hann. Yngstu gestir staðarins, vinkonum- ar Vala Sigurðardóttir, Karítas Jónasdóttir, Hugrún Harðardóttir og Dagrún Fanný Liljarsdóttir þamba Corona-bjór með Baccardi út í. Við efumst reyndar um að þær séu Pólskt bónorð Sófahornið er undirlagt af fimm Pólverjum, Wojtek, Kazik, Slawek, Zdzisiek og Krzysiek. Aðeins Wojtek talar íslensku og Slawk talar smáveg- is ensku en það hindr- ar ekki restina af sérstaklega þó ekki Kazik, í að tjá sig - allavega ekki ef stelpur em annars vegar. Það fæ ég sem kvenkyns blaðamaður Fókuss heldur betur að sannreyna. Pól- verjamir em allir farand- verkamenn, búa í Engi- hjaUanum og á Riddaran- um rnn helgar. Þeir era búnir að vera hér mislengi og vinna hin ýmsu störf. Kazik bendir á baug- fingur minn og Wojtek þýðir spumingu hans um það hvort ég sé ógift. Þegar svarið er ját- andi, rýkur ^refanía Rosadótt/r „Eigendurnir eru bara svo rosalega almennl- legir og bjórinn er ódýr,“ segja vinkonurnar Vala, Karítas, Hugrún og Dagný. Pólverjinn Kazik er kvensamur í meira lagi. Hér rýk- ur hann á blaöamann Fókuss meö kossaflensi og veit greinilega ekki hvernig sjarmera á íslenskar konur. Vinur hans og samlandi Vojtek hlær að aö- förunum. Kazik niður á dófsson eru hestamenn c= hnéin og taut- uðust Inn á staö/nn eftir ar eitthvaö á kynn/ngu. bnakka- pólsku og horfir biðjandi augum á mig. Kazik færist allur í aukana þegar hið pólska bónorð er hunsað,- rýkur upp og smellir rembings- kossi á mig. Þar á eftir fylgir meira káf og kossar sem endar með því að ég neyðist til að slá hann. Aumingja Pólverjarnir vita greinilega ekki hvemig fara á að íslensk- Maggi Ámason eru nokkur af þeim sem em í hestamannahópnum og segjast aldrei hafa komið hingað áður. Þau byrja strax að afsaka sig eins og það sé eitthvað skammarlegt að lenda á hverfispöbbi á fostudags- kvöldi. „Þetta er samt mjög snyrti- legur staður," segja þau einum rómi og lofa í hástert pitsumar sem þau fengu fyrr um kvöldið sendar yfir frá Pizza 67 sem er til húsa við hlið- ina á Riddaranum. „Mér finnst samt hálfhallærislegt að láta tallausa bió- mynd á Stöð 2 rúlla á skjánum," seg- ir Gimnar Maggi og bendir á sjónvarps- skjáinn fyr- ir ofan borðið. „Það er líka svo tmflandi að hafa svona sjónvörp á ö r u m . Ósjálfrátt fer maður að horfa á þau.“ S u m i r kunna þó að meta sjónvarp án hljóðs því við barinn situr maður í brúnum loðleðurjakka og fylgist grannt með myndinni að því er virð- ist. Boltinn er þó sýndur með hljóði á breiðtjaldi á laugardögum. Við höf- um allavega séð nóg og forðum okk- ur út ásamt konu í hvítum buxum sem er greinilega líka búin að fá al- veg nóg. Hún er studd út af einum starfsmanninum. -Snæfríður Ingadóttir L;^K ifw Letffuiri kr'ékkunuim úr flesku til (kb mgric amrhéiunurn 2000 Frábær freyðidrykkur handa kampakátum krökkum. Kemur í verslanir 15. desember. Athugiö takmarkaöar birgöir!! 10. desember 1999 f Ókus 27 i Breiöablik, sími 568 7000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.