Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 19
GRAFARVOGUR Mlklu betrl myndgæðl Það er ekki um annað að ræða en fá sér heimabíó ef menn eru blankir og hafa ekki efni á bíómiðum. Það kostar aðeins 49.900 krónur að koma sér upp einum DVD 750 spilara ef maður fær hann á tilboði. Hann býður að sjálfsögðu mun betri myndgæði en venjuleg vídeóspóla og myndin nálgast það að vera jafngóð og í Háskólabíói, það er að segja ef maður á breiðtjaldssjónvarp. Þá þarf ekki lengur að brenna geisladiskana í tölvunni. Græjan gerir það. DVD er ómissandi í heimabíóið. Tekið upp &í geisladiskum Nú hefur geisladiskaskrifarinn tekið við af geisladiskatölvubrennaran- um. Allra nýjastur er hljóðritari sem skrifar tónlistina stafrænt inn og skilar henni aftur stafrænt út afritaðri á annan disk. Geisladiskaskrifar- inn er ekki ósvipaður gamla góða tvöfalda kassettutækinu, sem gerði manni kleift að taka upp af einni kassettu á aðra. Þennan geisladiska- skrifara ýmist tengir maður inn á græjurnar til að nota hann sem venju- legan spilara eða stingur headphone I samband við hann. Feriega flottur og fijáls Bosch 909 er agnarsmár GSM-sími sem býð- ur upp á alla flóknustu tæknimöguleika gems- ans. Það sem hann hefur fram yfir aðra síma er ótrúlegur léttleiki og hrikalega töff útlit. Bosch 909 er úr svörtu harðplasti og ryðfríu stáli - nokkuð sem kemur sér vel hér I væt- unni. Rafhlaðan endist í 180 klukkustundir í biðstöðu og það er hægt að tala í fimm tíma stanslaust án þess að hlaða hann. Hann er að sjálfsögðu með símnúmerabirti, SMS, reiknivél, klukku og dagsetningum á íslensku. Þá er hann með innbyggðu Bata módemi sem kemur sér vel fyrir þá sem ekki geta skilið við sig ferðatölvuna og eru alltaf að senda póst til vina I útlöndum. Bosch 909 er með EFR staf- rænum hljóðútsendingum og að sjálfsögðu er hægt að fá við hann handfrjálsan talbúnað - nokkuð sem íslendingar eiga enn eftir að fatta að gerir gemsann speisaðan og notkun hans kúl. Verðið er litlar 49.900 krónur. Fjórar myndlr á sekúndu Stafrænar myndavélar hafa átt mjög upp á pallborðið að undanförnu, en tæknilegasta græjan I þeim geira í dag heitir Toshiba PDR- M4. Hún er með tvisvar sinnum stafrænni að- dráttarlinsu, en aðalmálið er upplausnin, 1600 x 1200 pixel. Hún skilar þvf 2,14 millj- ón pixelum á þvertommu, sem eru langtum betri gæði en það flottasta á markaðnum fyrir sex mánuðum. Þá er hægt að súmma inn á myndir eftir á. Vinsældir stafrænu vélanna felast fyrst og fremst í því að ekki þarf að eyða óþarfa pen- ingum f framköllunarkostnað þar sem hægt er að henda ónothæfum myndum og jafnvel velja þær áður en smellt er, af litlum skjá aftan á vélinni sem líka þjónar þvf hlutverki að ramma viðfangsefnið inn. Þessi myndavél getur tekið fjórar myndir á sekúndu og er með 8 mega- bæta kort, sem hægt er að stækka með 32 megabæta korti. Nýju vélina er Ifka hægt að tengja við myndvarpa og nota hana til slides- myndasýninga. Þá er Ifka hægt að setja mynd- irnar beint inn á heimasfðuna. Kostnaður að- eins 63.053 krónur. Fyrir þá sem eru í sambandi er Bosch 909 fiottasti GSM-inn. Með Toshiba er hægt að taka og taka án þess að hafa áhyggjur af framkölluninni. Ódýr og öniggur ferðamáíi LÆKJARGATA H ÁRBÆR Næi urvagijaWralia. á íösiudágs- bg laugardagslmjlduin* Broiííarariíniar írá Lælvjargíjiu ent Id. 02:30, ()3:Ö(), 08:30 og 04:00 BREIÐHOLT 10. desember 1999 f ÓkUS 19

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.