Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Blaðsíða 8
haf Vinsælir morgunþættir? Útvarpsstöftvamar kunna svo sannarlega aö lesa skoðanakannanlr sér í vil. Bæöi Mono og FM segjast vera með vinsælustu morgunþættina samkvæmt skoöanakönnun Gallups frá febrúar síðastliðnum. Mono auglýsir að morgunþátturinn sjötíu sé vinsælasti morgunþátturinn hjá fólki á aldrinum 12-19 ára á meðan FM segir að Hvati og félagar sé vinsælasti morgunþátturinn hjá fólki á aldrinum 12-34 ára. Það ergreinlega auð- velt að láta tölurnar tala sér í vil og nýta útvarps- stöðvarnar það sér óspart. Hvað kemur eigin- lega næst? Könnun á hlustun á aldrinum 13 og hálfs til 15 ára? Lífshættulegur lakkrís Alltaf bætist eitthvað við sem ekki er hollt fyrir mann og nú er það bless- aöur lakkrísinn sem fær slæma útreið. Samkvæmt þýska Wr læknatímaritinu Árzteblatt getur jffiR þetta svarta gotterí valdið hausverk og of háum blóðþrýstingi og þýskir lækn- ar mæla alls ekki með þvf að fólk sé að hakka lakkrísinn í sig. Maðurgetur meira að segja feng- ið lakkríseitrun ef maður borðar of mikið sem lýs- ir sér í útbrotum á fótum og f and- liti, eins og 37 ára Þjóöverji sem boröaði aö jafnaöi tvo poka af R lakkrís á dag fékk. En það er með þetta eins og annað að líklega er allt best f hófi. Matglaðar fegurðardísir Það virðist vera öllu þægi- legra að taka þátt f fegurð- arsamkeppninni Ungfrú Is- land.is heldur en gamal- grónu fegurðarsamkeppn- unum. Fréttir berast af þvf af þvf frá hinu ólíklegustu veitinga- og skemmtistöðum að keppendur séu þar í mat og drykk. Stelpurnar láta stjana við sig og éta á sig gat á ffnum og flottum veitingahús- um og djamma fram á rauðar nætur. Já, það er af sem áður var þegar fegurðardrottningar þurftu sinn bjútísleep, borðuðu eingöngu grænmeti og héngu á líkamsræktarstöðvunum á kvöldin. Instant-ferðalag á Fókusvef Kærustuparið Hrund Lárusdóttir og Eiríkur Sig- urðsson gerðu sér lítið fýrir og flugu til Asíu en þau ætla aö túra framandi lönd með bros á vör. Ferðalagið er sponsorað af Ferðaskrifstofu stúd- enta og Simnet.is. Þeir sem langar að kynnast leyndardómum heimsálfunnar geta það auðveld- lega þótt enginn vilji sponsora ferðalag þeirra. Það geta nefni- -. Iv.; i jllir Ijii’ .i -v Fókusvefinn og fylgst með ferða- I ö n g u n u m . Skötuhjúin eru líka f beinu spjallsambandi við áhugasama auk þess sem helstu upplýsingar um löndin sem þau heimsækja eru á vefnum og þar er hægt að fá upplýsingar um tungumál, póli- tik og menningu hvers lands. Heimsókn á Fókus- vefinn er þvf sannkallað instant-ferðalag. ecco Gangur lífsins tvífarar -r .. T*KC -V. Wt::A ■ - Slagorð eru tól sem fyrirtæki nota til þess að vekja athygli á sér og sinni framleiðslu með misgóðum árangri. Sum hafa slegið í gegn en önnur horfið í öldur óminnis sökum yfirþyrmandi lélegheita. Fókusi fannst þetta þarft umfjöllunarefni og hóaði því í nokkra valinkunna einstaklinga til að fá álit þeirra á bestu, verstu og óþörfustu slagorðunum, sem og að búa til slagorð fyrir sjálf sig og tíu hluti sem þurfa á slagorðum að halda. VUtu rými, vertu reiður. Þegar litið er yfir farinn veg í sögu markaðssetningar fyrirtækja þá er eitt sem stendur upp úr: slag- orð. Hver man ekki eftir slagorð- um eins og „með á nótunum" sem Iðnaðarbankinn notaði og flestallir höfðu á hraðbergi á einhverjum tímapunkti. Annað slíkt sem nefna mætti er hin margfræga fullyrðing Guðfmns bílasala að frúin hlæi í betri bíl. Halldóra bendir á að það sé hægt að virkja þjóðarvitundina til samstöðu og bendir á að besta slagorð sem hún muni eftir sé „Áfram ísland". Orðaleikir eru einnig vinsælir, eins og „u-hu, heldur betur“, sem Heiða valdi sem besta slagorðið. Sama má segja um uppáhaldsslagorð Rögn- valdar: „Game Boy - Leikur í hendi þér.“ Slagorðið sem Barði heldur upp á, „Radió - þar sem flipp er költ“, höfðar hins vegar til ákveðins hóps með því að nota slanguryrði. Mjólk er góð er verst Aftur á móti hafa líka komið slagorð sem hafa annaðhvort verið agalega vond eða hreinlega ískrandi léleg. „Fáðu meira“ er gott dæmi sem Rögnvaldur kemur með og er ættað úr pepsíauglýs- ingu. Fólk finnur hreinlega ekkert samhengi í því sem sagt er. Full- yrðinga-slagorð leggjast oft illa í fólk og það á við um vonda slagorð- ið hennar Halldóru: „Mjólk er góð.“ Versta slagorðið sem Heiða man eftir er „Rís súkkulaði - áttu vini?“ Hallærisleg slagorð eru einnig þau sem ekki eru einu sinni á hinu ástkæra, ylhýra. Pizza 67 bregður fyrir sig engilsaxnesku þegar reynt er að pota löngun í flathökurnar í undirmeðvitund okkar gamalnorskublaðrandi Frónbúa. „Make pizza not war“ er léleg afbökun á annars ágætum frasa frá hinum frjáds-ást-sofum- saman-sinnuðu hippum og það nýjasta frá þeim er: „Save the rain- William Shakespeare skáld. Benedikt Erlingsson leikari. Þessir tveir eru svo undarlega líkir að þeir væru líkast til fóstbræð- ur ef þeir þekktust. Benedikt og Shakespeare eru báðir soldið yggldir á svipinn, hugsandi menn en húmorískir. Báðir hafa þeir hátt enni, skörulegt yfirbragð, eru hárþunnir og með haukfránt augnaráð. Mennimir flokkast báðir undir orðið hamhleypa því Shakespeare skrifaði heilt safn ódauðlegra verka og Benedikt setur afraksturinn upp á 97 mínútum í verkinu Sjeikspír eins og hann leggur sig. forest, use the intemet." Það er bara hægt að segja eitt um þetta: It sucks. Barði kom einnig með hug- mynd að vondum frasa fyrir ham- borgarastað sem hljómaði svo: „Fáðu þér hamborgara því þá verð- ur þú feitur." Algjör óþarfi allt saman Enn eina gerðina af slagorðum má telja upp og það eru þau óþörfu. Sem dæmi um óþarft slag- orð þá rak einhver athugul per- sóna augun í auglýsingu frá útfar- arstofu sem svo snyrtilega lagði til að fólk skyldi leita til sín „þegar andlát ber að garði“. Oftast eru þó óþörf slagorð notuð þegar þau eru að segja okkur eitthvað sem liggur í augum uppi. Bæði Heiða og Rögn- valdur komu með slík dæmi. „Is- landia intemet - tengir þig við fólk“ fannst Heiðu vera gagnslaust slagorð og Rögnvaldi fannst morg- unþátturinn Miami Metall á X-inu ekki þurfa að auglýsa það að hann sé „versti morgunþáttur á Islandi". Að lokum benti Barði á það að honum fyndist i raun öll slagorð vera óþörf og lái honum hver sem vill. Halldóra -<£ Gelrharðsdóttlr lelkkona Slagorð: Puð, stuð og Guð. 'y Aðrar hugmyndir: Ríkisstjórnin: Óöir menn, æstar konur - HE Alltaf að vinna - HG Píluspjald almúgans - RR Þjóðkirkjan: Allt búið ef þiö ekki trúið - HG Gott fordæmi um vont fordæmi - RR Ókeypis vín og með því - BJ Sauðkindin: Eineltisdýr á diskinn minn - HG Kindin er fyndin - HE Kindur eru töff. Ekki vera lúöi. - BJ Reiði: Tilfinning sem tekið er eftir - HE Komin til að fara - RR Ef þú ert reiður ertu í rassinum þreyttur - BJ Seðlabankinn: Rnnur ekki Þorstein J. - RR Rognvaldsson tónlistarmaóur. Slagorð: I lengra lagi. Eyjabakkar: Bestu þakkarnir - BJ Heldur heyja bakkana við Eyjabakkana en afmeyja bakkana - HG Hekla: Eldhress og i ofsastuði - HE Alltaf hress - HG Þar sem Satan býr þar búa Islendingar - BJ Veðrið: Skitaveður við öll tækifæri, við erum verstir, kaidastir og blautastir - HE Alltaf í stuði með Guði - BJ Tjörnin í Rvík: Komin í fúlan þytt - RR Endur, athugiðl Ný sending af fólki með brauð. - HE I sund á hverjum degi - BJ Keikó: Égálíf-HG Til að mynda - RR Góður á grilliö - HE f Ó k U S 24. mars 2000 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.