Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Blaðsíða 18
hverjir voru hvar ríkt land til aö allir lands- menn geti lifaö mann- sæmandi lífi. Póli- tískur vilji er þaö sem til þarf því fá- tæktin er mest áþerandi í ákveðn- um þjóðfélagshóp- um og þaö er tiltölu- lega auðvelt og kostar lít- ið að leiðrétta kjör þessa fólks með afger- andi hætti. Ég tek öryrkja sem dæmi en auðvit- að eru fleiri sem þúa við fátækt, eins og t.d. aldraðir, einstæðir foreldrar og atvinnulausir. Fátækt er nefnilega mjög áþerandi hjá þeim sem sökum örorku geta ekki nýtt starfskrafta sína á almennum vinnumarkaöi og öryrkjum með fjölskyldu, sem eru á svokölluöum „stríp- uðum þótum", er ætlað að lifa á rétt rúmum 48.000 krónum á mánuði. Það gefur augaleiö að þetta fólk hefur ekki i sig og auk þess er hægt að taka mörg önnur dæmi sem sýna fram á fátækt á íslandi." meira a. Sumir haffa lítið á milli handanna Inga Lind Karlsdóttir háskólanemi: „Það fer eftir tvennu: annars vegar því hvern- ig menn skilgreina fá- tækt (þeir eru til sem halda því fram að fátækt sé að hafa ekki efni á tískufatnaöi á börnin sín) og hins vegar við hvað er miðað. Ef miðað er við önnur lönd, t.a.m. Kúbu, þar sem feður neyð- ast til að selja blíðu dætra sinna, þá segi ég: Nei, fátækt er ekki til á íslandi. Eigi að siður má ekki horfa fram hjá því að á Islandi búa menn sem sumir hverjir hafa mjög lítið á milli hand- anna en þá má heldur ekki gleyma allri þeirri þjðnustu og hjálp sem þeim stendur til boða hér á landi." Margir blankir Andri Snær Magnason rithöfundur: „Það eru alveg örugglega margir blankir á íslandi en maður veröur að þekkja al- vörudæmi til verða almennilega heitur í ein- hverju máli. Þegar atvinnuleysið var hérna fyrir nokkrum árum þá vissi maður um marga í sárum en nú þekkir mað- ur engan og tölur segja að atvinnuleysi hafi *. aldrei verið minna og þess vegna hlýtur fátæktin að ■hmm vera minni og í rauninni smámunir miðað við það sem íf* þekktisthéráðurfyrrogvið- gengst annars staðar í heim- jiS inum þar sem börn hrynja nið- ur vegna þess að einhverra hluta vegna er ekki til fimmtíukall fyrír bóluefni." www.visir.is Gangur lífsins ecco Hannyrðir eru í fókus. Það er smart, sexí og praktískt aö sitja í strætó, á kaffihúsi, á bið- stofu, i vinnunni, á skemmtistað eöa heima við sjónvarpiö - og prjóna. Svo er lika gaman að prjóna og búa til alls konar húfur, trefla, -* vettlinga, gömlu góðu ullarpeysurnar, gamm- osiur, legghlífar, grifflur, barbíföt o.s.frv. o.s.frv. Svo má ekki gleyma útsaumuðum myndum sem er hægt að kaupa tilbúnar og sauma í eftir réttum litum. Þetta er afar hag- stætt og maður losnar alveg við aö kaupa mál- verk og myndir dýrum dómum og getur þess í stað skreytt íbúðina hátt og lágt með útsaum- uðum sjómönnum, hrosshausum og íslensk- um fjöllum. Myndirnar geta líka nýst í púða sem er aldrei nóg af í djúpum þægilegum sóf- um. Hannyrðir spanna víðan völl og það er endalaust hægt að telja upp skemmti- lega sauma en fyrst og fremst eru þær óumræðilega kósi i vorhreti og kuldabyl með heitu kakói og þægilegri tónlist. Leyndin yfir bókhaldsgögnum stjórnmálaflokk- anna er úr fókus. Þótt menn á borð við Geir Haarde afneiti hvers kyns spillingu og Davið Oddsson fullyrði að engir skandalar hafi átt sér stað þá eru þetta innantóm orð meðan gögnin eru lokuð augum almennings. Fyrst þeir og fleiri pólitikusar eru svona fullvissir um skandalaleysið ættu þeir ekki að hafa neitt að fela. Aulaafsakanir eins og aö það komi sér illa fyrir ákveðna styrktaraðila ef fólk í öörum flokkum frétti af peningastyrkjum í einn flokk vega lítið og ná skammt; einnig útskýringar sjálfstæðismanna að þeir viti ekki hverjir styrktaraöilarnir séu þvi annað eins hefur nú borist milli manna í gleðiblaðrandi samdrykkj- um eða í hita og þunga dagsins. Fyrir nú utan það að fólkið sem treystir stjórnmálamönnun- um fýrir skattpeningunum fýsir náttúrlega að vita hvernig þeir halda utan um eigin fjárreiö- ur. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, formaður Ungra jafnaðarmanna: „Já, það er fátækt á íslandi þótt ein- hverjir segi að ríkidæmi ís- I e n din ga blasi alls staðar við í bílakosti landsmanna, húsnæði eða hlutabréfaeign, enda er vissulega velmegun hérlendis. Hins vegar er til mjög fátækt fólk hér á tandi og sá hópur er nokkur þúsund manns. Sú staðreynd er þjóðar- skömm því ísland er nægilega Horfir til betri vegar Orri Hauksson, aðstoðarmaður forsætisráðherra: Aldrei í mannkynssögunni hefur verið til samfélag þar sem enginn býr við of knöpp kjör og tsland er auðvitað engin und- antekning. Ég held þó að erfitt sé að finna lönd eða svæði þar sem vandamál af þessu tagi eru minni en hér í dag. Að auki þokast kjör hinna verst stöddu augljóslega í rétta átt um þessar mundir, þróun launa, bóta, atvinnuleysistrygg- inga, atvinnustigs, vanskila i bönkum o.fl. sýnir það svart á hvitu, enda skapast verðmæti hratt í samfélaginu nú um stundir. Alltaf má þó gera betur. Hins vegar finnst mér sem fátæktarhug- takið hafi útvatnast nokkuð í umræðunni og slik gengisfelling tungunnar er ekki til hagsbóta fyrir þá sem búa við raunverulegan skort. Hest- ir Islendingar lenda örugglega einhvern tíma á sínu æviskeiði um eða undir svoköliuðum fá- tæktarmörkum eins og þau eru skilgreind. Þeir sem búa hins vegar árum og jafnvel áratugum saman viö of þröngan kost eru tiltölulega fáir en mynda einmitt þann hóp sem kastljós sam- hjálparinnar á að beinast sterkast aö. Flestir bjarga sér vel Egill Helgason bíaðamaður: „Ég þekki engan sem er fátækur. Mér finnst samt skelfileg tilhugs- un að eitthvert fólk þurfi að lifa á láglauna- töxtum sem manni skilst að eigi að ná 90.000 krón- um eftir þrjú ár. Ég get ekki varist þeirri hugsun að verkalýðsforingjarnir séu enn einu sinni að svíkja þetta fólk. En það verð- ur að segjast eins og er að sjálfur þekki ég eng- an sem er á slíku kaupi. Reyndar held ég aö flestir geti bjargað sér nokkuð vel á Islandi en það er spurning hvort fyrirtæki sem borga svona illa eigi nokkurn rétt á sér.“ Eymd í strætis- vðgnum Ármann Jakobsson mið- aldafræðingur: „Ég þekki hvorki hagstærðir né hagfræðilegar skilgreiningar á fátækt en hins vegar ferðast ég meö strætis- vögnum og mér sýnist að á Islandi séu bæði til fátækt og annars konar eymd. Ég geri ekki ráð fyrir að margir íslendingar teljist fátækir, miðað við aðrar þjóðir og aöra tíma. En ég held að þeim fari fjölgandi sem ekki geta tekið þátt í velsæld meirihlutans og það hlýtur að telj- ast vera fátækt. Og mig grunar að þeim sem eru fátækir á íslandi um þessar mundir finnist þeir ekki vera ofarlega i huga þeirra sem betur mega sín.“ Ekki alls fyrir löngu gerði Visir.is skoðanakönnun og spurði þjóðina hvort fátækt væri á íslandi. 283 svöruðu játandi en 564 neitandi. Samt vaknar spurningin reglulega í daglegri umræðu og þó nokkrir pólitíkusar fullyrða að fátækt sé vissulega að finna hérlendis. Auður Jónsdóttir spurði sex valinkunna einstaklinga sömu spurningar og þeir fengu færi á að segja fleira en já eða nei. f Ef # ■ I » A v* TOTCQl/t O ICllÖCivl Q # Islandi? Klaustrið var fullt út úr dyrum á föstudagskvöld- ið. Þar sást m.a. til afmælisbarna kvöldsins, Slgurjóns Ragnars Ijósmyndara og Kidda „Big Foot“ I góöum gír. Skutlurnar Sigga Halla og Dóra voru á kantinum. Ljósmyndarinn Baldur Braga og Jón Kári athafna- maður voru um- ^ vafðir drottning- um í salsasveiflu uppi. I chillinu niðri sást m.a. til Japisséffanna Jóns Jóns og Unnars og blðmarósarinnar Rutar. Fjölnir var Möndulaus, Blrta, Díanna Dúa og Arna „playboyskvísur" voru einnig á svæðinu, sem og FM957-fjölskyldan: Hvati og frú, Hulda og Leppin Haukur Kalli Lú, Jói Jó, Bjarkl Sig., Haraldur Daói, Siggi Ragg og Halli. Kormákur og Vélin voru á kantinum. Á dansgólfinu var m.a. Svavar Örn “Tísku- lögga", ofan á barnum tók Ásgeir „pönkþjónn" þvílíka sveiflu og var Arnar „xFudge" í ham á meðan vinirnir Svenni Eyland „Borgin", Guö- . mundur Börk leiguséffi, Jón Páll „Driver" og * Arnar „Skipamiðlari" fylgdust með á kantinum. Jón Gnarr þurfti að leika lífvörð fýrir Radíó Ólaf sem var í svo miklu stuði að hann endaði ber að ofan við mikinn fögnuð og kvenhylli. Einnig sást til Hönnu islensk ameríska, BJarnarit- stjóra Séð&Heyrt með S&H-gengið, Sigga B Heimilistækjaséffa og Bjögga frá Hnum miöli. Divaadrottningarnar Sonja og Sóley voru í góö- um fíling eins og Erik Vegamótaséffi og Viddl „Greifi". Það var geðveikt að gera á Skugganum alla helgina en hún byrjaði með Oz.com partíi á föstudaginn. Guðjón Már OZ-konungur bauð öllu OZ-staffinu í Gyllta salinn þar sem Margeir og Ýmir spiluðu eðalmúsik eins og þeim einum er lagið. En þegar aðrir gestir fengu inngöngu á staðinn sást meðal annars til Sonju í Divu, Stelna í Coke, sam- fylkingarmannsins Villa Vill og töffarans Fjölnis sem er víst kaldasti piparsveinn- inn i dag. Birta og Arna playboy bunnys litu inn og Díanna Dúa var einnig á staönum. Óskar Krlst- ins Kaup- þings-broker og KR-ing var einnig að sjá, sem og Valdísi Gunnars útvarpsfikil. Þar voru Jazmln aerobikk megabeibbbbbb, Einar og Goggi Pizza 67 dúdar, Teit- ur „Sjáðu mig“ Þorkels, Siggi Kaldal X-18 skór, Sigurjón „afmælisbarn" og Ijósmyndari, Ásgeir Sigurvinsson, hin eina sanna fótboltastjarna, fýrir- sætan Andrea Brabin (vóóó), Þor- móður Egils eöa bara Móöi, Magnús Ver og Úrsusinn. Robbl Rapp tók til á dansgólfinu með helling af flottum meyjum i kring- um sig og fasteignasal- arnir Kristján Axels og Steinbergur Finnboga kíktu inn. Nú, svo voru all- ar stelpurnar gjörsamlega slefandi yfir Dean Cain, öðru nafni SUPERMAN, úr Luis og Clark-sjón- varpsþáttunum og með honum var leikstjóri Die Hard-myndanna, Reny Harlin. Sagan segir að Superman hafi flogið með eina Ijóshærða og blá- eygða upp á herbergi seinna um nóttina... Á föstudagskvöldið var haldin tiskusýning í vöruskemmu hjá Kassagerðinni. Það var fata- hönnuðurinn Bergþóra Guðnadóttir sem átti fötin en þetta var hennar fýrsta tísku- sýning. Þeir sem voru komnir til að berja dýrðina aug- um voru m.a. Andrea Róberts, Dýrleif i Dýrinu og Kormákur úr Vél- inni, Helga, hinn harðduglegi kennari í Fellaskóla, og myndlistarneminn Sara María, sem út- skrifast í vor, fýrrverandi Hall- ormsstaöabúinn Friðrik Atli og fréttakonan Eva Bergþóra af Stöö 2 og Gulla Apótekaramær var einnig mætt með alveg æðis- lega tösku. Það var mikið um dýrðir á sunnu- daginn þegar Thomsen-menn tóku á móti finnska eðaltónlistar- manninum Jiml Tenor og konu hans, Nicole Willis, á hjartslátt- arkvöldi. Staöurinn var stappað- ur og komust færri að en vildu á þessa frábæru tónleika. Fæstir gátu að visu barið Jimi augum vegna troðnings þar sem hann sat og spilaði með skærbleikan fjaðrahatt og hvíta andlits- málningu. Stebbl Steph gusgussari og ektavin- ur Jimi stóð þó framarlega ásamt Árna E. plötu- snúði og Múm-flokknum sem sá um tónlistina eftir spiliri Canada. Við barinn mátti sjá Hólm- geirsdæturnar Hrafnhildi og Báru teygja háls- inn og ekki langt frá var Árni Sveins grúfandi. Systir hans, Hrönn, hélt sig þó aftarlega og það sama má segja um kvikmyndagerðarmennina Dag Kára og Júlíus Kemp. Hallgrímur Helgason reyndi að ná sér í stól til að standa á en þar var hann ekki jafn heppinn og Barði Jóhannesson sem var með ágætis útsýni á Jimi. 24-7-menn- irnir Snorri og Eldar kíktu inn og þaö sama má segja um Thule-félagana Bjössa Blogen og Steina Plastik sem báðir voru sáttir við góðan endi á helginni. f Ó k U S 24. mars 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.