Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2000, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000
Fréttir
Stefán Hrafn Magnússon, hreindýrabóndi á Suður-Grænlandi:
Boðar 16 yfirdýra-
lækna á sinn fund
- fær ekki að selja íslendingum ódýrt hreindýrakjöt
Svínað á hreindýrakjöti
Stefán Hrafn Magnússon er óánægöur meö aö fá ekki aö flytja hreindýrakjöt til íslands.
Samstarfssamningar þjóöanna hafa ekkert aö segja og hann veröur aö lúta því aö kjöt
hans sé sett undir kröfur Evrópusambandsins.
DV, ISORTOQ:_________________
„Sláturhús okkar hér í Isor-
toq er með staðal sem heimilar
framleiðslu á Grænlandsmark-
að. En það er ekki með Evrópu-
staðal. ísland og Grænland eru
hvorugt EU-lönd og það eru
ekki neinir sjúkdómar héma.
Þess vegna ættu íslensk yfirvöld
að samþykkja grænlenskt hrein-
dýrakjöt á íslenskan markað,"
segir Stefán Hrafn Magnússon,
hreindýrabóndi í Isortoq á Suð-
ur-Grænlandi, sem vill flytja
grænlenskt hreindýrakjöt á ís-
lenskan markað en hefúr enn
ekki fengið samþykkt.
Stefán Hrafn og félagi hans
Ole Kristiansen reka hreindýra-
bú og sláturhús í Isortoq þar
sem hreindýrahjörð þeirra með
nokkur þúsund dýrum heldur
sig á svæði sem að stærð sam-
svarar Reykjanesskaganum á ts-
landi. Árlega selja þeir um 50
tonn af hreindýrakjöti sem fer
mest til neyslu innanlands en að
hluta til Danmerkur. Þau dýr sem
slátrað er á Danmerkurmarkað þarf
að flytja lifandi langa leið til Narsaq
þar sem sláturhúsið er með Evrópu-
staðal.
„Slátrun hjá okkur fer fram und-
ir eftirliti dýralæknis. Við höfum
undanfarin ár sótt nokkrum sinn-
um um en fengið það svar um hæl
frá íslandi að leyfi fáist einungis ef
sláturhúsið sé með EU- eða US-
stimpil. Þetta hefur verið staölað
prótokollsvar og ég veit ekki af
hverju því Grænland hefur ekkert
með Evrópu eða Bandaríkin að
gera. Kannski er nei auðveldasta
leiðin fyrir yfirdýralækni i stað
þess að setja sig inn í málin og
kanna dýrasjúkdómasögu Græn-
lands sem er engin þar sem sjúk-
dómar eru ekki til staðar," segir
Stefán Hrafn.
Stefán Hrafn segir óskiljanlegt að
ekki hafi fengist að flytja kjöt sem
unnið er í Isortoq til íslands. Fyrir
tveimur árum hafi Jonathan Motz-
feldt, landstjóri Grænlands, og Dav-
íð Oddsson, forsætisráðherra ís-
lands, undirritað samstarfssamning
milli þjóðanna tveggja.
„Ég veit ekkert hvað þessi sam-
starfssamningur inniheldur. Ég
held að hann innihaldi mest
hræsni," segir Stefán Hrafn.
Hann segir innflutning á græn-
lensku hreindýrakjöti tvímælalaust
koma almenningi á íslandi til
góða.
„Með þvi að heimila okkur
innflutning myndi verð á hrein-
dýrakjöti til neytenda lækka.
Verð á hreindýrakjöti á íslandi
er svívirðilega hátt. Þar er um
að kenna framboði sem er eig-
inlega ekkert. Kvótinn er 200
dýr sem er dropi í hafið fyrir
250 þúsund manna þjóð. Þetta
eru bara örfá grömm á einstak-
ling,“ segir hann.
Stefán Hrafn segist einu sinn
hafa selt kjöt til íslands en þar
hafi verið um að ræða 1,5 tonn
af lærum sem seld hafi verið
Kjötbúri Péturs á sínum tíma.
Þar hafi verið um að ræða dýr
sem slátrað var í Narsaq og við-
skiptin urðu endaslepp.
„Þetta datt bara upp fyrir því
maðurinn hvarf. Við fengum
kjötið greitt en urðum að borga
fragtina," segir hann.
í haust verður haldin sam-
norræn yfirdýralæknaráðstefna
í Qarqotoq. Stefán Hrafn segist þeg-
ar hafa boðið dýralæknunum 16 á
búið til sín til að sjá hvemig málin
gangi fyrir sig.
„Þeim er öllum boðið hingað og
ég er tilbúinn til að starta slátur-
húsinu til að sýna þeim hvernig
þessi vinnsla gengur fyrir sig. Þeir
geta fengið að slátra sjálfir til að
upplifa hvemig allt gengur. Ég set
þá bara á sláturlínuna,“ segir Stefán
Hrafn. -rt
Vegrið hindrar útsýni
„Þetta vegrið er gjörsamlega
gagnslaust og bara til þess að auka
hættuna. Það virkar eins og massif-
ur grár veggflötur,“ sagði Mats Wibe
Lund, eigandi ljósmyndastofunnar
Mats Ljósmyndir sf. Hann lenti í
árekstri um hádegisbilið í gærdag á
mótum Laugavegar og Bolholts, þar
sem nýveriö var sett upp vegrið á
Laugaveginum. Mats var að beygja
inn í Bolholtið þegar annar ökumað-
ur, sem hafði ekki séð hann, ók í
hliðina á bíl hans. Atvinnurekendur
á svæðinu hafa kvartað undan
vegriðinu til lögreglu því teinarnir í
því liggja svo þétt saman að öku-
menn sjá ekki fyrir þeim. Vegriðinu
er ætlað að koma í veg fyrir að gang-
andi vegfarendur fari yfir götuna, en
Mats sagði að lítið væri um það á
þessum vegarkafla.
Hvorugur bíllmn skemmdist mik-
ið við atvikið og engin slys urðu á
mönnum.
„En það verður að gera eitthvað,
annaðhvort taka þetta vegrið niður
eða bara hreinlega loka irmkeyrsl-
unni í Bolholtið, því að fyrr eða síð-
ar verður þarna mjög ljótt slys,“
sagði Mats. -SMK
Slysagildra
Vegriöiö sem sett hefur veriö upp á mótum Bolholts og Laugavegar er meö svo
þéttum teinum aö þaö skyggir á útsýni ökumanna og veldur mikilli slysahættu.
Sementsverksmiðjan á Akranesi.
Þýsk sam-
steypa og Sem-
entsverksmiðj-
an í samvinnu?
DV, AKRANESI:
Fyrir nokkru flutti Sementsverk-
smiðjan inn rúmlega 2500 tonn af
háofnagjalli. Efnið var keypt hjá
belgisku sementsverksmiðjunni
CBR, sem er i eigu þýsku sements-
samsteypunnar Heidelberger, sem á
auk sementsverksmiðja í Þýska-
landi m.a. verksmiðjurnar í Noregi
og Svíþjóð og eitt af þremur fyrir-
tækjum í þessari grein í Bretlandi.
Ekki er ólíklegt að til frekari sam-
vinnu geti komið milli sam-
steypunnar og Sementsverksmiðj-
unnar í næstu framtíð.
Háofhagjall myndast við vinnslu
járns í jámbræðsluofnum, háofnum.
Það samanstendur aðallega af efna-
samböndum kalsíums, sOisíums og
áls. Háofnagjall til sementsfram-
leiðslu er fleytt ofan af jámbráðinni
og snöggkælt í vatni. Það hefur ver-
ið notað til íblöndunar í Portlands-
sement í yfir hundrað ár og árið 1994
voru um 7% af sementi framleiddu í
Evrópu háofnasement, þ.e. sement
með verulegu af háofnagjalli. Há-
ofnasement harðnar hægar en venju-
legt Portlandssement en nær góðum
lokastyrk. -DVÓ
Miðbær Reykjavíkur:
Barinn meö flösku
Ráðist var á karlmann í Hafnar-
stræti i miðborg Reykjavíkur um
klukkan 6 á laugardagsmorguninn
og hann skallaður í andlitið og bar-
inn með flösku. Að sögn lögreglunn-
ar í Reykjavík sem hafði afskipti af
málinu vissi maðurinn hvorki hver
árásarmaðurinn var né hvert tilefni
árásarinnar var. Hann var fluttur á
slysadeild þar sem gert var að sárum
hans. -SMK
Harður árekstur
á Selfossi
Harður árekstur varð á Austur-
vegi á Selfossi í um klukkan 16 í
gær. Báðir bílamir skemmdust mik-
ið og varö að fjarlægja þá með drátt-
arbíl, en ökumennimir sluppu
ómeiddir. -SMK
V/ediriiði ii jt.vöilldi
SóliargaMHgiiiF og: sja-v/atföda! I VfeíMiia á
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 23.51 00.40
Sólarupprás á morgun 03.14 02.04
Síödeglsfló& 20.33 01.06
Árdegisflóð á morgun 09.04 13.37
Vfeðíiið' ML
Skýringar á veðurtáknum
Súld
Hæg vestlæg eöa breytileg átt. Víöa súld eöa
dálítil rigning í fyrstu en síðan skýjað með
köflum. Víöa þokusúld í nótt en styttir síöan
upp víöast hvar, síst þó noröanlands.
^ *-'-VlNDÁ7T 10°. HiT1 -10° XVINDSTYRKUR Vrnftt;T l nwtrum á sekúndu 'V-KUö l HEIÐSKÍRT
o o
LÉTTSKYJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
<íS? O o Q
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Vatnsmiklar kvíslir til fjalla
Helstu þjóövegir eru greiöfærir. Þó er
Lágheiöi lokaö frá kl. 9 til 13 alla
þessa viku. Víöa er unniö aö vegagerö
og eru vegfarendur beönir aö sýna
tillitssemi og haga akstri eftir
merkingum. Flestir hálendisvegir eru
færir fjallabílum. Vegfarendur um
hálendiö eru beðnir að athuga að
vegna hlýinda aö undanförnu getur
veriö óvenjumikiö vatn í jökulkvíslum.
BZ3HET
Hlýjast í innsveitum
Fremur hæg vestlæg eöa breytileg átt. Dálítil rigning á Austfjöröum
síödegis á morgun. Hiti 5 til 16 stig, hlýjast inn til landsins.
Vindur: v
2-4 m/s
Hiti 7® til 15"
o
Hæg vestlæg e&a breytileg
átt. Skýjaö a& mestu og
vi&a dálitll þokusúld,
einkum yfir nóttina.
Hlýjast Inn til landslns.
o
Fösíiad
511!
Vindur: i
2-4 sít/s
Hiti 7" til 15°
Gert er rá& fyrir hægri
vestlægri e&a breytllegrl
átt, skýju&u a& mestu og
dálítllli þokusúld. Hltl 7 tll
15 stig, hlýjast f
innsveltum.
LttJSJí'd
Vindun
2-4 ssi/s
Hiti 8° til 15°
Sunnan- og sí&ar
su&vestanátt. Rlgnlng e&a
súld, fyrst suðvestanlands.
Hltl 8 tll 15 stlg.
AKUREYRI
BERGSTAÐIR
BOLUNGARVÍK
EGILSSTAÐIR
KIRKJUBÆJARKL.
KEFLAVÍK
RAUFARHÖFN
REYKJAVÍK
STÓRHÖFÐI
BERGEN
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÖ
STOKKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN
ÞRÁNDHEIMUR
ALGARVE
AMSTERDAM
BARCELONA
BERLÍN
CHICAGO
DUBUN
HALIFAX
FRANKFURT
HAMBORG
JAN MAYEN
LONDON
LÚXEMBORG
MALLORCA
MONTREAL
NARSSARSSUAQ
NEW YORK
ORLANDO
PARÍS
VfN
WASHINGTON
WINNIPEG
EBEB85
rigning
rigning
léttskýjaö
súld
þokumóöa
skýjaö
súld
úrkoma
alskýjaö
léttskýjaö
skýjaö
alskýjaö
alskýjaö
súld
léttskýjaö
þokumóöa
léttskýjaö
skýjaö
alskýjaö
þokumóöa
iéttskýjaö
þokumóöa
léttskýjaö
þoka
mistur
skýjaö
léttskýjaö
léttskýjaö
alskýjaö
þokumóöa
hálfskýjaö
þrumuveöur
hálfskýjaö
þokumóöa
skýjaö
11
9
9
7
9
7
9
8
12
18
16
14
19
6
10
16
14
24
16
18
14
13
15
16
2
16
15
26
17
8
22
24
17
20
21
15